Skák


Skák - 01.12.2002, Side 12

Skák - 01.12.2002, Side 12
Einu sinni var.... Við lifum í heimi breytinga þar sem menn og málefni eru sífellt vegin á nýja mælikvarða. Þegar lýðveldið var ungt og þjóðernis- móður svall mönnum í brjósti var skáklistin með rétd kölluð þjóðaríþrótt og stórmeistarinn okkar, Friðrik Olafsson þjóð- hetja. Ekki einasta skaraði hann framúr víða á erlendri grundu, heldur var glíma hans við Bent Larsen í samhljómi við eftir- skjálfta sjálfstæðisbaráttunnar sem gerðu vart við sig með þjóð- inni um áratugi og gera e.t.v. enn. Með Friðrik í fararbroddi reis skákbylgjan hátt á sjötta ára- tugnum; næsti toppur kom árið 1972 þegar landið varð um hríð eins og miðpunktur heimsins og hreif sú alda víst með sér marga fleiri en skákáhugamenn. I þriðja sinni varð ævintýraleg uppsveifla þegar Jóhann Fljart- arson atti kappi við Kortsnoj 1988 og enn var þáttur Friðriks markverður þegar Viktor hinn ógurlegi fékk makleg málagjöld. Milli þessara öldutoppa eru vita- skuld rökræn og söguleg tengsl; árangur Friðriks ruddi í vissum skilningi brautina fyrir einvígið ‘72 og fyrir áhrif þess ólst hér upp á áttunda áratugnum sú sveit stórmeistara sem Jóhann var hluti af. Stöðnun?.... En byrinn blæs ekki alltaf með manni og einhvernveginn lenti skáklistin í hálfgerðri ónáð. Skák varð næstum því gamaldags og hallærisleg og frábær afrek gátu ekki lengur kveikt neistann hjá almáttugum fjölmiðlamönnum og okkar hviklyndu þjóð. Eftir að gestir í Þjóðleikhúsinu risu úr sætum í hléi á leiksýningu til að klappa fyrir sigri Jóhanns á Kortsnoj í febrúar 1988, varð einhvernveginn ekki lengra komist. Frábær árangur á þrem- ur Ólympíuskákmótum á tí- unda áratugnum (1990, 92 og 96) hreyfði varla við mönnum og tíðindi af heimsmeistaratitli Helga Ass í flokki unglinga 1994 fór í flokk skringifrétta úr mann- lífinu, e.k. „human interest" saga. Nýir mælikvarðar voru teknir í notkun. Skákhreyfingin var komin í þá stöðu að lifa lífi sínu á fornri frægð og ýmsir veikleikar sem áður virtust litlu skipta skutu upp kollinum. E.t.v. hefur hreyfing oldtar löng- um verið fremur veikburða; ár- angur hennar byggðist á fram- taki fárra forystumanna og Skákhreyfingin hefur löngum átt mikið undir velvilja stjórnmálamanna. Þessi mynd er tekin á Hótel Lofileiðum þar sem löngum voru haldin mögnuð alþjóð- leg mót. Þá var Halldór Blöndal oft meðal áhorfenda. nokkurra framúrskarandi skák- meistara. Afl hennar var undir því komið að þjóðin fagnaði og bæri hana á höndum sér. Sem fjöldahreyfing stóð hún tæplega undir nafni og skortur á stefnu, skipulagi og áætlunum til lengri tíma gerðu hana vanbúna til að takast á við breytingar. Því er þessi margorði formáli að annál ársins rifjaður upp hér, að á þessu ári hefur mátt sjá merki þess að vindur sé að snú- 296 S K A K

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.