Skák - 01.12.2002, Síða 13
íslandsmeistarar Hróksins.
Kvennaskák í uppsveiflu; Guðlaug Þorsteinsdóttir ogAsdís Halla Bragadóttir, betjar-
stjórí í Garðabœ að tafli. Skák peirra var einn affjölmörgum viðburðum sem Tajfélag
Garðabtejar stóð fyrir á árínu.
ast og skákin sé aftur að fá byr í
seglin. Nýir tímar, nýir menn og
nýjar aðferðir. Við sjáum að
skákinni er alltént ekki hættara
en öðrum greinum að drukkna í
afþreyingaflóði nútímans; hún er
einfaldlega hluti af því flóði og á
ekki síðri möguleika en aðrir að
spjara sig. Svo hefur það komið í
ljós að gamla íslenska skákhjart-
að slær enn með þjóðinni, hversu
alþjóðleg sem hún annars kann
að vera í lífsstíl sínum.
... og ferskir vindar
Tvö skákfélög með ötula for-
ystumenn hafa öðrum fremur
bryddað upp á nýjum og fersk-
um hugmyndum á þessu ári.
Hrókurinn kvaddi sér hljóðs
árið 2001 þegar hann mætti
með flokk erlendra stórmeistara
til deildakeppni; sá leikur var
endurtekinn í síðari hlutanum í
vor og nýtt félag skráði nafn sitt
á Deildakeppnisbikarinn. Hinir
nýju meistarar sýndu svo í fyrri
hluta nýrrar keppni í haust að
þeir eru líklegir til að verja titil-
inn. Þetta tiltæki Hróksins vakti
verðskuldaða athygli, varð
keppninni til framdráttar; gjör-
breytti í raun forsendum hennar.
Fullyrða má að deildakeppnin
verði aldrei söm aftur. Félaginu
fylgdi einnig öflugt mótahald
s.s. Símaskákmótið í mars,
ásamt Hraðskákmóti Islands,
svo og Mjólkurskáltmótið á Sel-
fossi í október, þar sem mikið
bar á fjölþjóðlegri liðssveit
Hrafns Jökulssonar og félaga. A
fyrsta mótinu sigraði tékkneski
stórmeistarinn Tomas Oral eftir
einvígi við Landa sinn Jan
Votava, en Jóhann Hjartarson
náði bestum árangri íslendinga.
Helgi Ólafsson varð Hraðskák-
S K A K
297