Skák - 01.12.2002, Síða 14
Arið hófst með skemmtilegu einvígi Hannesar Hlífars Stefánssonar og Nigels Short.
meistari íslands á bráðskemmti-
legu móti á Kjarvalsstöðum, en
mótið vann Ivan Sokolov. Hann
sigraði svo ásamt fyrrum landa
sínum Predrag Nikolic í A-
flokki Mjólkurskákmótsins, Jan
Votava vann B-flokkinn, en Jón
Viktor Gunnarsson varð annar.
Þessir viðburðir, ásamt áformum
um átak til að efla áhuga barna á
skáklistinni, fengu mikla og
góða kynningu og virðist svara
kröfum tímans betur en margt
annað sem reynt hefur verið í
því skyni á undanförnum árum.
Annað félag hefur náð framúr-
skarandi árangri á árinu en á
öðru sviði og með öðrum að-
ferðum. Þetta er Taflfélag
Garðabæjar með Jóhann Ragn-
arsson í broddi fylkingar. Með-
an Hrókurinn hefur verið mest
áberandi á stórmeistarasviðinu,
hafa Garðbæingar róið á önnur
mið; á vordögum efndu þeir til
sveitakeppni með þátttöku inn-
lendra og erlendra sveita og í
nóvember höfðu þeir forgöngu
um landskeppni við Katalóníu á
8. borðum. Þeir stofnuðu til
nýrrar sveitakeppni með útslátt-
arsniði og slógu botninn í hana á
skákhátíð í nóvembermánuði
þar sem margt fleira var í boði.
Það hefur einkennt viðburði TG
að þar hafa konur, ungir skák-
menn og börn fengið að njóta
sín og þeir hafa kappkostað að
hafa samvinnu við önnur félög
og virkja sem flesta af „grasrót-
inni“ frekar en stóru nöfnin.
Þannig hafa þeir sýnt að lítil fé-
lög án stórra nafna geta lagt
mikið að mörkum til að auka
fjölbreytni skáklífsins.
Fleira ber að nefna, og víst eru
þessi félög ekki þau einu sem
hafa gert eitthvað af viti á árinu.
Það hófst reyndar með merkum
viðburði í boði hins 10 ára
gamla Hellis; einvígi Hannesar
Hlífars Stefánssonar og Nigels
Shorts sem var á skemmtilegan
hátt tengt sýningu til að minnast
30 ára afmælis einvígis aldarinn-
ar. Hið hefðbundna alþjóðlega
Reykjavíkurskákmót var háð í
mars og lauk með sigri íslands-
vinarsins Ivans Sokolovs, sem
reyndar bar einnig sigur úr být-
um á hinu alþjóðlega mótinu
sem hér var háð, Mjólkurskák-
mótinu sem áður var á minnst.
Nýir meistarar
Islenskir áfangaveiðarar hafa
undanfarin ár verið iðnir við
kolann á opnum mótum suður í
Evrópu. Um hríð fór fjölmenni
til Capelle la Grande í Belgíu,
einnig á opna Kaupmannahafn-
armótið, en hin síðari ár hafa
sumarferðir til Ungverjalands og
Tékkóslóvakíu verið hvað vin-
sælastar. Sigurður Daði Sigfús-
son reið á vaðið snemma vors og
var nálægt áfanga í Debrecen í
Ungverjalandi. I þvísa landi náði
Ágúst Sindri Karlsson í sumar
sínum fyrsta áfanga og Stefán
Kristjánsson hreppti lokaáfanga
sinn á móti í Tékkóslóvakíu.
Hið sama gerði Jón Garðar Við-
arsson sem brá sér til Hollands á
fertugsafmælinu. Hann væntir
útnefningar á næstunni en Stef-
án hefur þegar fengið sinn titil
staðfestan. Þriðji skákmaðurinn
sem á þennan titil í vændum er
Bragi Þorfinnsson sem hreppti
þriðja áfanga sinn á Skákþingi
Islands í september.
Keppni í landsliðsflokki á
Skákþinginu fór að þessu sinni
fram á Seltjarnarnesi. Eins og
spáglöggir menn gerðu ráð fyrir
lauk keppni með öruggum sigri
stigahæsta keppandans. Hannes
Hlífar Stefánsson byrjaði mótið
298
S K A K