Skák - 01.12.2002, Side 15
Ungversk stemmning; Agúst Sindri Karlsson og Snorri Bergsson slaka á eftir góðan dag
í Kecskémet.
Bragi Þorfinnsson er náði lokaáfanga sínum að alþjóðlegum titli á árinu.
með 8 sigrum og landaði sigrin-
um örugglega, þrátt fyrir tap
gegn hinum stórmeistaranum
meðal þátttakenda, Helga Ass
Grétarssyni, sem hafnaði í öðru
sæti. Bragi náði svo þriðja sæt-
inu. Líklega telst þetta mót eldsi
til hinna eftirminnilegustu; til
þess voru úrslit of fyrirsjáanleg,
en Hannes var þarna að krækja í
fjórða Islandsmeistaratitil sinn á
fimm árum. E.t.v. sæta úrslitin í
kvennaflokki, sem háður var í
nóvember og desember, meiri
tíðindum. Þar átti Guðlaug Þor-
steinsdóttir glæsilega endur-
komu eftir rúmlega áratugar
fjarveru og vann mótið með
fullu húsi vinninga. Vonandi
eigum við eftir að sjá meira til
hennar á þessum vettvangi og
það væri góður vitnisburður um
þá vakningu sem átt hefur sér
stað innan kvennaskákarinnar.
Þá varð Davíð Kjartansson Is-
landsmeistari í unglingaflokki
og átti sá piltur afburðagott
skákár, varð m.a. Norðurlanda-
meistari í skólaskák ásamt
annarri vonarstjörnu á skák-
himni okkar, Degi Arngríms-
syni. Atskákmeistaratitillinn féll
að þessu sinni í skaut Helga Áss
Grétarssyni sem sigraði Jóhann
Hjartarson í undanúrslitum og
meistarann frá fyrra ári, Helga
Ólafsson, í úrslitaeinvíginu.
Reynslan blívur....
Ef þátttaka Guðlaugar, sem
minnst er á hér að framan, er
vottur um „endurnýjun á göml-
um grunni,“ er árangur Ingvars
Ásmundssonar á öldungamót-
um nú í haust það ekki síður.
Heimsmeistaramót „öldunga" -
60 ára og eldri - sem haldið hef-
ur verið árlega í Þýskalandi um
nokkra hríð, er vaxandi mót og
afar fjölsótt. Raunar er það svo
að skákmótum fyrir þennan ald-
urshóp fer nú mjög fjölgandi og
flestar þjóðir efna nú til meist-
aramóta í þessum aldursflokki;
háð eru Norðurlandamót og
Evrópumót. Hér heima hafa
fyrstu tvö íslandsmótin í þessum
S K A K
299