Skák - 01.12.2002, Qupperneq 17
íslenskir Ólympíufarar við brottfdr til Bled. Talið frá vinstri: Gunnar Eyjólfsson, Þröstur Þórhallsson, Stefán Kristjánsson, Anna
Björg Þorgrímsdóttir, Jón Garðar Viðarsson, Aldís Rún Lárusdóttir, Helgi Ass Grétarsson, Harpa Ingólfsdóttir, Hannes Hlífar
Stefánsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Helgi Ólafsson og Bragi Kristjánsson.
eiga sér athvarf. Þeir Arnar E.
Gunnarsson og Stefán Kristjáns-
son urðu jafnir og efstir á Is-
landsmótinu og vann sá fyrr-
nefndi titilinn í úrslitaeinvígi. Þá
hefur Taflfélag Garðarbæjar tekið
upp samstarf við skákþjóninn
Playchess og efndi til myndarlegs
móts af því tilefni nú í nóvember.
Auk slíkra móta eru íslenskir
skákmenn allra kvikinda iðnastir
við taflmennsku á Netinu og eiga
að sjálfsögðu met á því sviði sé
miðað við höfðatöluna góðu.
Margir telja að þessi mikla
nettaflmennska dragi úr annarri
skákiðkun og má það vel vera, en
varla er þó hægt annað en að
fagna þeim aulcnu tækifærum til
að þjóna skákgyðjunni sem hér
bjóðast. Þá er Netið vettvangur
fréttabyltingar á skáksviðinu; og
þótt alheimurinn sé undir ber
oklcur sérstaklega að fagna tilvist
skák.is í umsjá Gunnar Björns-
sonar, sem hefur staðið sig frá-
bærlega í öruggri og skjótvirlcri
fréttamiðlun í okkar íslenska
skálcheimi. Til skoðanaskipta
höfum við svo Skákhornið, þar
sem allar raddir, þýðar sem rám-
ar, fá að heyrast og andagift skák-
manna leikur lausum hala.
Reynslan blívur enn...
Það hefur tíðlcast í þessum árlega
annál hér í blaðinu að Tímaritið
Skák tilkynni val sitt á skák-
manni ársins. Við höfum lagt á-
herslu á að þetta er fyrst og
fremst til gamans gert, en þó
ekki alvörulaust og vel rökstutt.
Valið er eldci síður vandasamt nú
en áður og verður nú að leita af-
brigða. Okkar sterkasti virki
skákmaður, Islandsmeistari með
meiru missir naumlega af titilin-
um í ár. Við minntumst á sí-
breytilega mælikvarða hér í upp-
hafi og fylgjum nú dyggilega því
sem þar er boðað; stig eru gefin
fyrir úthald í þetta sinn. Sá oklc-
ar virku skákmanna sem lengst-
an feril á að baki hlýtur því
nafnbótina að þessu sinni. Þótt
árangurinn á þessu ári hafi verið
sveiflukenndur, komu góðir
sprettir inn á milli, svo sem á al-
þjóðlega Reykjavíkurskákmót-
inu, Mjólkurskákmótinu og síð-
ast en ekki síst á Ólympíuskák-
mótinu. I Bled tefldi hann á sínu
þrettánda Ólympíuskákmóti
sem er glæsilegt íslandsmet. Þá
er framlag hans til þjálfunar
ungra og aldinna þungt lóð á
vogarslcálina. Já, umfram allt út-
haldið. Altmeister Helgi Ólafs-
son er að mati Tímaritsins Skák-
ar skákmaður ársins 2002.
S K A K
301