Skák


Skák - 01.12.2002, Síða 23

Skák - 01.12.2002, Síða 23
halda uppi merki landans að þessu sinni. Þótt sveitin hafi mætt ofjörlum sínum þar ytra var hér skynsamlega ráðið og undirstrikuð hin vaxandi breidd í hópi okkar bestu skáltmanna. Teflt var á 8 borðum, í stað 10 eins og venja er, en samkomulag varð um að sleppa tveimur „öld- ungaborðum“ í þetta sinn. Af hinum 8 borðum voru 4 í lands- liðsfloltki, tvö í kvennafloltki og tvö í unglingaflokki. Guðmundar þáttur Ara- sonar Ekki verður um þessa keppni fjallað án þess að minnast á aðal- styrktaraðila íslensku sveitarinn- ar í þessari för, Guðmund Ara- son. Guðmundur hefur löngu skipað sér í hóp helstu máttar- stólpa íslenskrar skákhreyfingar frá upphafi og hefur sérstaklega lagt áherslu á að að gefa ungum og efnilegum skákmönnum tækifæri til að þroska sig og styrkja. Eiga margir okkar yngri meistara Guðmundi mikið að þakka, en hann hefur umfram ýmsa aðra styrktaraðila alltaf lagt mikla áherslu á að framlag hans kæmi hinni uppvaxandi kynslóð sérstaklega til góða. Auk Guð- mundar lagði Edda - miðlun og útgáfa - til ýmsar góðar gjafir sem íslensku keppendurinr færðu gestgjöfum sínum eins og góðum gestum sæmir. Yfirburðir heimamanna Umgjörð keppninnar var öll hin glæsilegasta og mótttökur heimamanna frábærar. Teflt var í Gironahéraði, norður af Barcelona, í bænum Caldes de Malavella en keppendur gistu í ferðamannabænum Lloret de Mar. Ljóst var áður en sest var að tafli að róðurinn yrði þungur fýrir okkar menn, enda Katalónar með tvo stórmeistara í liði sínu og stigahærri á öllum borðum. Þar munaði t.d. um 100 stigum að meðaltali á fjórum efstu borðunum og nærri 200 stigum á unglingaborðunum tveimur. Tefld var tvöföld umferð og urðu úrslit þessi: Jón Viktor Gunnarsson - SM Jordi Magem Badals 1/2-1/2 1/2-1/2 Sigurður Daði Sigfússon - SM Lluis Comas Fabrego 1-0 0-1 Bragi Þorfinnsson - AM Marc Narciso 0-1 1/2-1/2 Arnar Gunnarsson - Alfoso Jerez Perez 0-1 0-1 Guðlaug Þorsteinsdóttir - Beatriz Alfonso Nogue 1-0 1/2-1/2 Áslaug Kristinsdóttir - Imma Hernando Rodrigo 1-0 0-1 Davíð Kjartansson - AM Joan Fluvia Poyatos 0-1 1/2-1/2 Halldór B. Halldórsson - Jordi Fluvia Poyatos 0-1 0-1 Fyrri umferðin var nokkuð jöfn og munaði þar ekki síst um góð- an árangur á kvennaborðunum. Sigurður Daði vann góðan sigur á stórmeistaranum Comas, As- laug yfirspilaði sinn andstæðing og heppnin gekk í lið með Guð- laugu þegar hún stóð höllum Jón Viktor Gunnarsson náði prýðis- árangri á 1. borði Jyrir hönd Islands. fæti. í öðrum skákum áttu okk- ar menn erfitt uppdráttar. I síð- ari umferðinni kom styrkleika- munur sveitanna enn betur í ljós og unnu þeir allar skálcir sínar með hvítu. Jón Viktor hafði í fullu tré við sinn andstæðing og Bragi sömuleiðis, en Sigurður Daði og Arnar voru báðir yfir- spilaðir með svörtu. Á kvenna- borðunum var hart barist; Guð- laug varð að sætta sig við jafn- tefli, en Aslaug lenti í erfiðleik- um í byrjuninni og stóðst eldti kóngssókn síns andstæðings. Á unglingaborðunum áttu „Akur- eyringarnir“ í sveitinni erfitt uppdráttar í báðum umferðum, eins og úrslitin bera með sér, en Davíð kom í veg fyrir 0-4 tap með því að ná örugglega jafntefli í síðari skák sinni. Guðlaug stóð sig því best ís- lensku keppendanna, en telja S K Á K 307

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.