Skák


Skák - 01.12.2002, Síða 26

Skák - 01.12.2002, Síða 26
Tomas Oral sigurvegari Hreyfilseinvígið hófst annars á hádegi laugardagsins 14. sept- ember klukkan 12 á glæsilegum mótsstað í Þjóðarbókhlöðunni. Einvígið var haldið til að fagna næstum því hálfrar aldar sögu Taflfélags Hreyfils, sem stofnað var 1954 og var lengi vel meðal öflugustu og virkustu skákfélaga landsins. Um eitt hundrað manns voru við setningarat- höfnina og við það tækifæri var Guðbjarti Guðmundssyni, helsta forystumanni Taflfélags Hreyfils, jafnframt veitt gull- merki Skáksambands Islands fyrir áratugastörf í þágu skák- hreyfingarinnar. I tengslum við einvígið var jafnframt gefið út glæsilegt tímarit, þar sem Þráinn Guðmundsson rakti merka sögu Taflfélags Hreyfils, og sagði frá afrekum keppendanna tveggja, en þeir voru Stefán Kristjánsson alþjóðlegur meistari, og tékk- neski Islandsvinurinn Tomas Oral, stórmeistari. Báðir eru fé- lagar í Taflfélaginu Hróknum, sem stóð að mótshaldi ásamt Hreyfilsmönnum, en Hróks- menn, með Hrafn Jökulsson í broddi fylkingar, hafa verið afar duglegir við að halda skemmti- leg skákmót hér í hinu nýja hita- belti gróðurhúsaáhrifanna. Mótshaldarar hefðu þó mátt búa betur um hnútana, svo sem hvað snertir skákir einvígisins, en þær eru hvergi aðgengilegar á þeim hefðbundnu stöðum, hvert skáltáhugamenn sækja sér nýtefldar skákir. Jafnvel Eyjólfur Armannsson hafði aldrei haft þær undir höndum. Eg hlýt því að gera því skóna, að mótshald- arar hafi síður viljað fá umfjöll- un um einvígið í Tímaritinu Skák, en vona að þessi örfáu orð verði ekki metin til refsingar, s.s. leiftursnöggra högga með blárri reglustiku. Einvígið var annars sent út beint á ICC (Internet-skákfélag- inu) og fylgdust þar fjölmargir skákáhugamenn með gangi mála, og þar tókst undirrituðum að lokum að komast yfir skákir meistaranna. Þegar líða tók á einvígið varð þó einum þeirra að orði, að þetta væri ódýrt einvígi, því keppendur hafi ekki þurft að undirbúa sig mikið, þar eð þeir hafi ætíð teflt sömu byrjanirnar. Það er þó mikil einföldun, því einmitt það kallar á góðan und- irbúning til að hrekja tafl- mennsku andstæðingins frá fyrri skákum. Þrátt fyrir þá stað- reynd, að skákirnar hafi verið frekar einhæfar, voru þær síður en svo leiðinlegar, enda áttu tveir baráttuskákmenn í hlut. Strax í fyrstu skákinni varð ljóst, að von var á flugeldasýningu: Hvítt: Tomas Oral (2549) Svart: Stefán Kristjánss. (2428) Frönsk vörn, Tarrasch-afbrigðið l.e4 e6 2.d4 d5 3.Rd2 í fimmtu einvígisskákinni lék Oral 3. exd5 og hélt örugglega jafntefli. 3. - c5 4.exd5 I þriðju skákinni lék Oral 4. Rgf3 og framhaldið varð 4. - cxd4 5. Rxd4-Rf6 6. e5 - Rfd7 7. R2f3 - Rc6 8. Bf4 -Be7 með óljósri stöðu. Hvítur hefði vísast getað komist í sama af- brigði og í fyrstu skákinni með 5. exd5, en hefur hugsanlega óttast endurbætur Stefáns. 310 S K A K

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.