Skák


Skák - 01.12.2002, Side 35

Skák - 01.12.2002, Side 35
Bg6 25. Hhgl - De7 26. Kc2 - Kf7 27. Rcl - h5 28. Be2 - Hh8 29. Rb3 - g4 30. Dhl - Bf6 31. Rd2 - Bg5 32. Dg2 - Bf6 33. Hbfl - Hbg8 34. Bel - Ke8 35. Dhl - Kd8 36. a5 - b5 37. cb5 - ab5 38. Bb5 - Rb5 39. Rb5 - Be8 40. Rc3 - h4 41. Re2 - h3 42. Rc4 - Bb5 43. b3 - Dh7 44. a6 - h2 45. Hg2 - De4 0-1 í áttundu umferð má segja að ég hafi kórónað lélegt mót. Eg hafði hvítt á Sárosi sem jafnaði taflið fljótt. Mér tókst hins veg- ar að skapa spil á kóngsvæng í miðtaflinu og vann svo peð eftir taktíska yfirsjón Ungverjans. Upp kom endatafl þar sem ég hafði nokkuð sælt peð yfir og líklega unna stöðu. Eftir 39 leiki átti ég um 5 mínútur til að leika þeim 40. í fremur rólegri stöðu þar sem ég þurfti einfaldlega að valda umframpeðið. I stað þess festist ég í útreikningum á annarri leið (rangri), sá svo að ég varð að valda peðið og uppgötv- aði um leið að umhugsunartím- inn var á þrotum. Smellti ég því leiknum á borðið en féll um leið og ég ýtti á klukkuna. Mjög ergilegt og aulalegt tap. Sigur- björn hafði hvítt á Schwartz sem tefldi mjög framúrstefnulega. Sigurbjörn saumaði að Banda- ríkjamanninum sem tókst þó með útsjónarsemi að ná jafntefli. Magnús mætti Vladimir Sutor- ikhin og stýrði hvítu mönnun- um gegn „Accelerated-dragon- kerfi“ Rússans. Magnús mun ekki hafa valið allra nákvæmustu leiðina í byrjunni en Sutorikhin mun hafa glott til Hodjkos eftir einn leik Magnúsar í byrjuninni. Hann glotti þó ekki eftir skák- ina. Hann fórnaði nánast öllu húsinu á Magnús sem reyndist misráðið, og mátti hann gefast upp þegar allt príl var runnið út í sandinn en liðsmunurinn orð- inn gríðarlegur. I síðustu umferð hafði ég svart gegn Schwartz, og þrálék- um við í stöðu sem líklega var i jafnvægi. Sigurbjörn hafði svart í kóngsindverja gegn Reiss sem tefldi sama afbrigði og Sárosi. Hann endurbætti taflmennsku landa síns og fékk betra tafl en Sigurbjörn hélt þó jafnvæginu með seiglu. Magnús lauk mót- inu á jafntefli gegn Vamos með svörtu. Þrátt fyrir hnökra í skipulagn- ingu fór módð á heildina séð vel fram. Dr. Erdélyi er mesta ljúf- menni og það var þægilegt að gista og tefla í sömu byggingu, einungis lyftuferð á skákstað. Aðstæður eru alls ekki verri en á flestum opnum mótum. Kekskémet er rólegur og þægi- legur staður og þar er ódýrt að lifa. Því er vert að hafa staðinn í huga ef ætlunin er að fara á á- fangaveiðar erlendis. Árangur undirritaðs var slak- ur. Sérstaklega nagaði ég mig í handarbökin vegna skákanna við Vamos og Sárosi auk þess sem skákin gegn Magnúsi tapað- ist helst til of ódýrt. Sigurbjörn og Magnús máttu betur við una þó þeir væru auðvitað ekki full- komlega sáttir. Þannig hefði Sigurbjörn t.d. alveg eins getað tekið heilan punkt úr skákinni dramatísku við Hodjko. En lít- ið þýðir að velta sér upp úr „ef‘ og „hefði“ menn verða bara að taka stefnuna á næsta mót sem við og gerðum. Stefnan var tek- in í norðvestur á Opna Tékk- landsmótið í Pardubice. Við höfðum þó nokkra lausa daga á milli móta til að endur- hlaða batteríin. Nýttum við þá m.a. til að skoða Búdapest, hina undurfögru höfuðborg Ung- verjalands. Þar hittum við fyrir þrjá skáksveina sem voru að tefla á hinu mánaðarlega „First Satur- day“ móti, þá Braga Þorfinns- son, Stefán Kristjánsson og Halldór Brynjar Halldórsson. Bragi og Stefán tefldu í 14 manna stórmeistaraflokki en Halldór 12 manna „Fide rating flokki“. Stefán fékk sjö vinninga sem samsvaraði AM-áfanga og undirstrikaði að væntanlegur AM-titill var engin tilviljun. Bragi var heldur brokkgengari og endaði með 5'/2 vinning. Þeir félagar munu báðir hafa lagt að velli stigahæsta stórmeistar- ann í flokknum. Halldór Brynj- ar fékk 8 vinninga í sínum flokki og hafnaði í öðru sæti. Þeir fé- lagar höfðu einnig sett stefnuna á Pardubice að þessum mótum loknum. Pardubice er um 100 þús. manna bær austur af Prag. I júlímánuði ár hvert fer þar fram mikil skákhátíð sem gengur undir nafninu Czech Open. Aðalviðburðurinn er gríðarfjöl- mennt opið mót þar sem keppt er í fjórum styrkleikaflokkum. I A-flokki tefldu 310 skákmenn en B-flokkur var fjölmennastur flokkanna með 413 þátttakend- ur. Einnig eru ýmsir hliðarvið- burðir s.s. atskákmót, hraðskák- mót, Fisher-random-mót, tví- skákarmót, sveitakeppni o.fl. Þá var og keppt í bridge og go á há- tíðinni. Einnig fer fram knatt- s K Á K 319

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.