Húsgangur - Jul 1997, Page 4

Húsgangur - Jul 1997, Page 4
4 Húsgctngur - Júlí 1997 Starfsmannafélagið I— rá því aö Húsgangur kom út 1 síðast hcfur starfsmannafélagið staðið fyrir tveimur viðburðum. Sunnudaginn 1. júní fór 18 manna hópur í Þjóðlcikhúsið til að sjá Listamanninn cftir Yazmin Reza. Var góður rómur gerður að en verkið hefur hlotið ágæta dóma og viðtökur. í annan stað var farin dagsferð í Húsafell sunnudaginn 15. júní ogvoru þátttakendur 41. Á leiðinni upp eftir voru Hraunfossar og Bamafoss skoðaðir. Þegar í Húsafell var komið fóru margir upp í bæjargilið að skoða listaverk Páls Guðmundssonar sem hann hefur höggvið þar í grjót upp eftir gilinu. Á leiðinni glímdu nokkrir við hellutökin hans séra Snorra sáluga Björnssonar við misjafnan árangur. Enginn réð við þann þyngsta. Tveir steinar vom þar álíka þungir, um 100 kíló hvor. Einhver ágreiningur var um það hvor væri þyngri. Guðrún Karlsdóttir kvað upp úr um að það væri sá vestari. Eftir göngu og sund var sest að grillmat sem Hörður hafði útbúið og þótti maturinn með afbrigðum góður. Heim var haldið um Hestháls og Dragháls og komið að Bókhlöðunni laust fyrir tíu um kvöldið. Er ekki annað vitað en allir hafi notið dagsins vel. Eiríkur Þormóðsson Samkeppni um merki Starfsmannafélags Þjóðarbókhlöðu tjórn Starfsmannafélags Þjóðar- bókhlöðu, skammstafað: SÞ, hef- ur ákveðið að efna til samkeppni meðal félagsmanna sinna um merki (lógó) fyrir félagið. Okkur vantar sár- lega merki og það er ákveðinn stíll yfir því að geta sent út tilkynningar og auglýsingar í nafni félagsins með merki þess. Reglur fyrir samkeppni þessa eru: 1. Þátttakandi þarf að vera félagi í Starfsmannafélaginu (hægt er að ganga í það hvenær sem er með tilkynningu til einhverra í stjórn félagsins). 2. Stafir félagsins SÞ þurfa að koma fram í merkinu en að öðru leyti er rétt að láta hugmyndaflugið ráða. 3. Dómnefnd, skipuð stjórn félagsins mun meta tillögurnar og veita viðurkenningu (verðlaun) fyrir besta merkið. 4. Verðlaunamerkið mun verða notað á allt efni sem sent er út í nafni Starfsmannafélagsins (auglýsingar innanhúss, á tölvupósti o.þ.h.). 5. Skilafrestur er til 1. október n.k. og hægt er að skila tillögum til allra í stjórn félagsins í lokuðu um- slagi. Munið að láta nafn ykkar fylgja með. Stjórnin hvetur alla félagsmenn til dáða í þessari samkeppni og fyrir þá sem ekki eru í Starfsmannafélaginu og langar til að vera með þá er um að gera og taka sig til og ganga í félagið. Með sumarkveðju, Stjóm SÞ Afmælisráðstefna framhald af bls. 1 muligheder og tmslcr.“ Fyrirlesarar leituðust við að taka mið af þessu. Meðal þeirra var danski ráðherrann Jytte Hilden sem fer mcð málefni rannsóknarstarfseminnar í landinu. Einnig vom þjóðbókaverðir Norður- landanna fímm með erindi, þ.á m. undirritaður. Framkvæmdastjóri NORDINFO, Ylva Lindholm-Roman- tschuk, gerði grein fyrir framtíðar- áformum stofnunarinnar og gesta- fyrirlesari frá háskólanum í Wanvick, Kelly Russcll, sagði frá svokölluðum eLib verkcfnum (Electronic Librarics Programmc), cn allrækileg lýsing á þeim var áður komin hér í hús í prentuðu formi og er m.a. í höndum forstöðumanna dcilda. Þá skyggndist Vigdis Moc Skarstein, háskólabóka- vörður í Þrándheimi, inn í framtíðina í yfirgripsmiklu erindi. Sitthvað er þó ótalið, m.a. sex málstofur, en ein þeirra fjallaði um rafræn tímarit og var í umsjá Sólveigar Þorsteinsdóttur. Torben Nielsen, fyrrum yfirbóka- vörður, hélt aðalræðu hátíðarkvöld- verðarins. Hann var víst sá eini sem nú tók þátt af stofnendum NVBF og mælti á mörgum tungum svo sem hann er þekktur fyrir. Að lokinni ráðstefnu var haldinn aðalfundur NVBF. Niels-Henrik Gyl- storff frá Árósum lét þá af for- mennsku, en við tók Harald Sandal Böhn frá Þrándheimi. Einar Sigurðsson Húsgangur issn 1027-9091 lnnanhússblað Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns Júlí 1997 - 3 Umsjón með þessu tölublaði: Halldóra Þorsteinsdóttir, Þorleifur Jónsson Fjölritað í Landsbókasafni íslands - Háskólabókasafni

x

Húsgangur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsgangur
https://timarit.is/publication/2070

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.