Alþýðublaðið - 26.02.1926, Blaðsíða 1
Gefið út af Al]»ýðuflokknum
1926.
Föstudaginn 26. febrúar.
49. tölublað.
Métmæli
gegn ,stýfingu' krönunnar.
Ályktun þessi var samþykt í
einu hljóði í gærkveldi á fjöl-
mennum fundi í verkamannafélag-
inu „Dagsbrún".
Fundurinn skorar á alþingi að
fella öll frumvörp eða tillögur,
sem miða að stýfingu eða lækkun
á verðgildi íslenzks gjaldeyris, þar
sem samþyktir í þá átt væru bein
stéttarráðstöfun til þess, að velta
nýrri skattabyrði á herðar alþýð-
unnar.
Eflend simskeyti.
Khöfn, FB., 25. febr.
„Bólusetning" gegn tæringu.
Frá París er símað, að pró-
fessor Camette hafi skýrt frá ár-
angri af tilraunum sínum að
„bólusetja" smábörn frá tæringar-
veikum heimilum gegn tæringu.
Tilraunirnar hafa sannað, að 93
af hundraði af börnum frá slík-
um heimilum séu gerð ómóttæki-
leg fyrir veikina, en spurningin
er. þó sú, hvort þau geti síðar
meir orðið tæringarveik.
Skattalækkun i Bandarikjunum.
Frá Washington er símað, að
neðri deildin hafi samþykt frum-
varp um skattalækkun á komandi
ári. Skattarnir lækka um 387 millj.
dollara.
Khöfn, FB., 26. febr.
Flugslys i Paris.
Frá París er símað, að fransk-
ur flugmaður haf i veðjað við
amerískan flugmann um það,
hvort hann gæti flogið gegnum
opið á Eiffelturninum. Flaug
hann með afskaplegum hraða
gegnum hvelfinguna klakklaust,
en hinum megin festist vélin í
stálvírum í sambandi við þráð-
20% afsláttui
Til næsta fimtudags verður gefinn
20% afsláttur af ölluntt
Manchettskyrtum, Nœrfatnaði,
Karlmanna" og barna-sokkum
og RE6NKÁPUM.
Enn pá eru nokkur stykki af vetrar-
frðkkum eftir, sem seljast eins og
undanfarlð fyrir hálfvirðl.
¥erzl. IMeéLFU]
MF Laugavegi 5. '*^1
fengum við með e.s. SSullfoss.
MJðlkurtélag Me^lclawikiiro
laus móttökutæki og kviknaði við
þetta í flugvélinni og brann hún
og flugmaðurinn til agna.
Mótmæli
gegn afnámi húsaleigu-
laganna.
Ályktun þessi var samþykt í
einu hljóði á fundi verkamanna-
félagsins „Dagsbrúnar" í gær-
kveldi.
Fundurinn skorar eindregið á
alþingi að fella frumvarp það,
er fyrir því liggur um afnám
húsaleigulaganna, sem og öll
frumvörp eða tillögur, sem fram
kunna að koma og miða í sömu
átt.
Með því að afnema húsaleigu-
(ögin gerði þingiÖ sig að verkfæri
í hendi leigusalanna, til þess að
sprengja húsaleigu í þessum bæ
enn hærra upp en orðið er, og
yrði þannig þess valdandi, að
fjöldi verkafólks hefði framvcgis
ekkert þak yfir höfuðið.
Kappteílið norsk-ísleiizka.
(Tilk. frá Taflfélagi Reykjavíkur.)
Borð II: 50. leikur íslendinga
(svart), K g 6 X h 5.
SJúkrasamlag Reykjavikur.
Reikningar pess liggja frammi hjá
gjaldkera pess á Bergstaðastræti 3
í kvöld og annað kvöld kl. 6—8.
Samlagið hefir orðið mðrgum Reyk-
víkingi til mikillar hjálpar.