Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Blaðsíða 7
KOSNINGABLAÐ
7
JÓN P. EMILS, ntari stúdentaiáðs:
\
Úr ýmsum áttum
í grein þessari mun ég leitast við að
greina fyrir ýmsum þeim málum, sem nú-
verandi stúdentaráð hefur fjallað um, frá
mínum bæjardyrum séð.
Úrslit stúdentaráðskosninganna 1. nóv.
1947 féllu á þann veg, að „Vaka“ fékk fimm
fulltrúa kjörna í ráðið og tvo í stjórn þess.
Hefur ráðið því verið háð meirihlutavaldi
Vökumanna, og eru þeir ábyrgir um hátt-
semi þess stúdentaráðs, sem nú er að fara
frá völdum.
1. STYRKJAMÁLIN
Styrkjamál háskólastúdenta var slungið
tveimur meginþáttum, þ. e. styrkupphæðin
á fjárlögum og úthlutun styrkjanna meðal
stúdenta. Á fjárlögum ríkisins 1947 var á-
ætlað til náms- og húsaleigustyrks háskóla-
stúdenta kr. 190.000,00. Nefnd innan stúd-
entaráðs komst að þeirri niðurstöðu með
tilvísun til aukins nemendafjölda háskóla-
stúdenta og aukinnar dýrtíðar í landinu,
að styrkurinn ætti að nema kr. 310.000,00
miðað við upphæðina á fjárlögum 1939.
Var fjárveitinganefnd Alþingis send beiðni
um hækkaðan styrk ásamt greinargerð. Féll-
ust nefndarmenn alha flokka nema sjálf-
stæðisflokksins á að hækka styrkinn upp í
kr. 250.000,00, enda varð liðurinn þannig
afgreiddur í fjárlögum 1948. Máttu stúd-
entar vel við una þessi málalok eftir atvik-
um. Nú kom að hinum þættinum.
Ég bar fram í stúdentaráði 12. nóv. til-
lögu þess efnis, að kosin yrði 7 manna nefnd
til að rannsaka og gera tillögur til úrbóta
á úthlutun styrkjanna. Skyldi hver háskóla-
deild eiga einn fulltrúa í nefndinni, en stúd-
entaráð þann 7. Lagði ég áherzlu á, að
styrkurinn væri hærri í þeim deildum, þar
sem stúdentar verða að verja að meira eða
minna leyti sumarleyfum sínum til skyldu-
starfa í sambandi við námið. Á þetta eink-
um við læknadeildina og einnig verkfræði-
deildina. Einnig yrði á það lögð áherzla, að
stúdentar fylltu út umsóknareyðublöðin með
meiri samvizkusemi en áður hafði tíðkast.
Formaður stúdentaráðs lagðist á móti þess-
ari nefndarskipun. Hann vildi að kosin yrði
þriggja manna nefnd innan stúdentaráðs í
sama tilgangi. Fór stúdentaráð að hans ráð-
um. Var hann sjálfur kosinn formaður
nefndarinnar, en honum láðist að kalla
nefndina saman til fundar. Hinn 17. des.
bar hann svo fram tillögu, sem einnig var
undirrituð af sömu nefndarmönnum hans,
um sömu skipan á málunum, er fram hafði
komið í tillögu minni frá 12. nóv. Var for-
maður kjörinn í nefndina af stúdentaráðs
hálfu. Þessi nýja nefnd, sem skipuð var for-
mönnum styrkjanefnda deildanna og for-
manni stúdentaráðs, var eigi kölluð saman
fyrr en seint í janúar, en þá var formaður
búinn að missa af strætisvagninum. Há-
skólaráð hafði þá lokið við að skipta styrkn-
um milli deidanna, og styrkjanefndirnar
yfirleitt teknar til starfa. Þótt svona illa
hafði til tekizt í þetta skipti, hafði formað-
ur þó getað kallað nefndina saman á ný, til
að tillögur væru tilbúnar fyrir næsta skóla-
ár. Það hefur honum einnig láðst. Varð ég
fyrir miklum vonbrigðum á afskiptum for-
manns í máli þessu, þar eð þetta mál virt-
ist eina áhugamál hans í síðustu kosninga-
baráttu.
2. GARÐSMÁL
í janúar s. 1. var endanlega gengið frá
sklpulagsskrá fyrir stúdentagarðana. Enn
hefur reglugerð fyrir garðana eigi verið
breytt í samræmi við breyttar aðstæður, og
vilja stúdenta. Væntanlega á það sér stað
innan skamms, en þá verður garðprófastur
rekinn af Gamla-Garði til hagsbóta fyrir
stúdenta.
3. FÉLAGSHEIMILI - FLYGILKAUP
Stúdentaráð það, sem að völdum sat 1946
—‘47 hafði mikinn áhuga á að gera Gamla-
Garð að „miðstöð félagslífs stúdenta".
Gerði það ýmsar tillögur um breytingar á
salnum á Garðinum í þeim tilgangi að þar
yrðu haldnar skemmtanir, dansleikir og
hljómleikar.
Áður en nokkuð var ákveðið méð þessar
breytingar, gerði ráðið ráðstafanir til flygil-
kaupa í Tékkóslóvakiu. Var málum svo
komið, er núverandi ráð tók við völdum,
að ekki var aftur snúið með kaupin. Nú-
verandi ráð var þeirrar skoðunar að eigi
færi vel á, að hafa íbúðarverur stúdenta og
skemmtisali þeirra undir sama þaki. Ráðið
álítur hins vegar, að eina varanlega úrlausn
þessa máls sé að finna í tillögum dr. Sig-
urðar Nordal um sérstakt félagsheimili stúd-
enta.
Hvað viðkom flygilkaupunum, sýndi Við-
skiptanefndin stúdentaráði þá velvild að
veita nauðsynleg leyfi til innflutnings hljóð-
færisins. Kom það til landsins um miðjan
ágústmánuð s. 1., en er ótollafgreitt, þar
sem vonir standa til, að fjármálaráðuneytið
veiti undanþágu á tollgreiðslu.
Flygill þessi, sem er af gerðinni „Petrof",
er ein stærsta tegund consert-flygla eða 282
cm. á lengd. Verð hans verður tæpar 40 þús.
krónur, fáist tolleftirgjöfin ekki, enda þótt
Eimskipafélagið hafi sýnt ráðinu það dreng-
skaparbragð að fella niður farmgjaldgreiðslu
frá Rotterdam til Reykjavíkiu. í máli þessu
geldur stúdentaráð nokkuð afturhugs fyrir-
rennara sinna, og mætti líkja ráðstöfun þess-
ari við það, þegar höfundur bókar byrjar á
því að skrifa eftirmáli fyrir 2. útgáfu.
Allir mega sjá, að í fjárhagsvandræðum
sínum myndi stúdentaráð vafalaust hafa
varið fé sínu á betri hátt, t. d. með greiðslu
í skíðaskálasjóð stúdenta. í salinn á Gamla-
Garði hefði mátt fá ágætt píanó fyrir 5—6
þús. krónur.
4. ÁRAMÓTADANSLEIKURINN I
HÁSKÓLANUM
Dansleikurinn fór fram með svipuðum
hætti og áður. Nokkur blaðaskrif áttu sér
stað um hann. Ákvað stúdentaráð ákveðn-
ar aðgerðir í þeim málum. Formaður fór