Alþýðublaðið - 01.07.1926, Side 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
A11 i r, sem vil|a starfa að sigri
A«listans,
komi í Goodtemplarahúsið kl. 12.
Hverjir hafa barist gegn umbót-
um á fátækralögunum?
íhaldsfirmað Jón Horláksson &
Sig. Egge/z.
Hverjir börðust fyrir ríkislög-
reglu ?
Stjórn Jóns Þorlákssonar með
stuðningi Sig. Eggerz.
Hverjir hafa stofnað til svívirði-
legra skatta á bak fátækrar ai-
þýðu ? *
ihaldsfirmað Jón Poriáksson &
Sig. Eggerz.
Hverjir vildu gefa stórrikum
gróðafyrirtækjum eftir réttmæta
skatta ?
Hlutafélagið Jón Þorláksson &
Sig. Eggerz.
Hverjir greiða atkvæði móti
rýmkun kosningarréttar?
Það gerir auðvaldssamlagiö Jón
Þorláksson & Sig. Eggerz.
Burt með slíkar aljjýðuplágur!
Kjósum lista alþýðunnar,
A-listann!
r. S. n.
Kjördeildir
við kosninguna i dag.
1. A.—B.
2. C.—Guðbrandur.
3. Guðfinna—Guðrún Gunnlaugs-
dóttir.
4. Guðrún Hafliðadóttir—H.
5. I—Jón Ormsson.
6. Jón Pálsson.—L. .
7. M.—Olsen.
8. Ólöf.—Sigtryggur.
9. Sigurbára.—T.
10. U.—Ö.
11. Kjósendur í Laugarnessspít-
ala.
Kosnkigin byrjar kl. 12 á há-
degi.
(Jm daginn og veginn.
Nœturlœknir
er í nótt M. Júl. Magnús, Hverf-
isgötu 30, sími 410.
Vinnum rösklega
að stórsigri alþýðunnar við kosn-
ingarnar í dag. Sameinaðir sigrum
vér, alþýðumenn!
Frambjóðendurnir og Spánarvínin.
Blaðið „Templar" skýrir nýlega
frá því, að andbanningarnir á C-
listanum, Jón Þorláksson og Þór-
arinn, höfðu þá enn ekki svarað
fyrirspurnum, er stórstúkan gerði í
maímánuði til tveggja efstu mann-
anna á hverjum landkjörslistanna,
fyrst og fremst um það, hvort þeir
vilji vinna að því að fá Spánarsamn-
ingnum breytt, til þess að losa Is-
lendinga við Spánarvínin, og að þar
til það kemst í kring, fái kaup-
staðarbúar neitunarvald gegn á-
fengisútsölum, og um aðrar endur-
bætur á bannlögunum. Blaðið skýr-
ir enn fremur frá, að „Sig. Eggerz,
frumkvöðull Spánarvínaútsölunnar
úti um landið, fer eins að“ og þeir
J, Þorh og Þórarinn. Hann svaraði
ekki heldur. Aðrir játuðu. — Reynsl-
an hefir sýnt, hver hefir þorað að
segja nei gegn siðspillingunni. Jón
Baldvinsson hefir fi/rst og fremst
svarað spurningunum í verkinu.
Gætið sóma landsins!
Islendingar! Látið það ekki spyrj-
ast þjóð ykkar til® skamniar, að
íhald og auðvald eigi griðastað á
þessu fagra og fræga landi, þegar
aðrar menningarþjóðir flæma það
úr sínum löndum.
Kjósendafundurinn
almenni, sem Alþýðuflokkurinn
boðaði til í barnaskólagarðinum í
gærkveldi, var mjög fjölmennur.
Myndu þó enn fleiri liafa sótt hann,
ef útlit hefði ekki verið rigningar-
legt. Til máls tóku af hálfú alþýðu-
flokksmanna Felix Guðmundsson,
Guðm. R. Ólafsson úr Grindavík,
séra Ingimar Jónsson, Björn Bl.
Jónsson, Ólafur Friðriksson, Guð-
jón Benediktsson, Ágúst Jósefsson
o. fl. Af hálfu andstæðinga listanna
töluðu Jakob Möller og Jón Þorláks-
son. 1 lok ræðu sinnar bað Jón Þor-
láksson fylgismenn C-listans að
ganga með sér af þessum fundi og
á flokksfund hans, og urðu tveir
eða þrír menn honum samferða.
Jakob Möller,
„frjálslyndi" mannréttindafjandinn,
gumaði mikið af því á fundi E-list-
ans í barnaskólaportinu, hversu þeir
„frjálslyndu'* myndu vilja styðja
jafnaðarmenn í mannrétiindamálum
þeim, sem þeir beita sér fyrir í
þinginu. Kom þá rödd frá áheyr-
endunum, sem spurði: „Viljið þér
breyta fátækralögunum?" „Já,“ sagði
Jakob. „Á hvaða hátt?“ spurði á-
heyrandi. „Ég er ekki frambjóð-
andi,“ var svarið. M.
Tollavizka tollaráðherrans.
I fyrra kvöld hélt Jón Þorlákssoh,
Verzlnnin Aldan
Bræðraborgarst. 18A. Sími 1376
hefir fengið saltkjöt ágætt og kart-
öflur, kringlur, tvíbökur, barinn
rikling,. gulröfur, ljábrýni o. fl. Enn
fremur tilkynnist viðskiftafólki, að
þeir, sem kaupa fyrir 5 kr. og þar
yfir í einu, fá 5% yfir júlíniánuð.
Virðingarfyllst.
JAhaones V.H.Sveinss«n.
Á Þjorsármötið
Frá Sæberg fara bílar að Þjórsá
laugardaginn 3. júlí. Nýir Buickar
(heimsfrægir). Góðir kassabilar
(þjóðfrægir). Ódýr sæti.
Sæberg.
Sími 784.
fjármálaráðherra íhaldsins og fram-
bjóðandi þess, því fram á kjósenda-
fundinum, að 'alþýðunhi væri betra
að borga hærri kaffi- og sykur-
toll, svo að hægt væri að létta
skatti á togarafélögunum, því að
þá hefðu þau meira rekstursfé tii
að láta togarana halda áfram veið-
um og stöðvuðu þá því síður. Síð-
ar spurði Jón Baldvinssoq hann, hve
mikið kaffi- og sykur-tollurinn
þyrfti að hækka til þess að togar-
arnir væru látnir halda áfram. Því
treysti Jón Þorl. sér ekki til' að
svara.
Mjög nýstárleg sundkeppni
verður háð við sundskálann í ör-
firisey sunnudaginn 11. júlí. Þar
verður þreytt meðal annars 100 st.
stakkasund; þ. e. synt verður í full-
úm sjóklæðum, stakk og kloíháum
stígvélum. Sjómannafélag Reykjavík-
ur hefir gefið verðlaunagrip.
Óhæfan.
Lepur moðið mógræfan
í maurasæti.
Alt af loðir óhæfan
við Austurstræti.