Alþýðublaðið - 14.03.1935, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 14.03.1935, Blaðsíða 4
Nýir kav 3 endur fá Alþýðublarið ókeypis til næstu mánaðamóta. JGSaeala §iiá| Kristin Sviadrotning Störkostleg og hrífandi mynd, sem styöst við sögu- lega viðburði úr Iífi Kristínar Svíadrotningar. Greta Garbo leikur aðalhlutverkið af fram- úrskarandi snild og myndin vegna hennar ógleymanleg. í kvöld kl. 8 Sjónleikur í 3 páttum eftir John Masefield. Aðgöngumiðar seldir kl. 4-7- daginn fyrir, og eftir kl. 1 leik- daginn. Sími 3191. Hafnarbílstöðin hefir síma 2006. Opið allan sólarhringinn. Útvarpsnotendur verða að muna það, að kosn- ingarnar í útvarpsráð eru eins áríðandi og hverjar aðrar kosn- ingar, þar sem barist er gegn í- haldinu. Kosningin fer fram á Lækjartorgi 1, húsi Páls Stefáns- sonar, herbergi nr. 10. Kjósið C- listann. Leikfélag Reykjavíkur sýnir í kvöld kl. 8 leikritið Nönnu eftir John Masefield. Þorfinnur Jónsson á Baldurshaga, sem lengi bjó i Tryggvaskála við Ölfusá, fanst í gærmorgun kl. 5 örendur við Rauðavatn. Hann fór að heiman frá Baldurshaga kl. 11—12 á þriðjudagskvöld og var þá þeg- ar farið að leita hans. Atvinnuleysi er nú mikið á Akureyri, eftir því sem segir í skeyti frá frétta- ritara Alþýðublaðsins þar. Enginn fiskafli er í firðinum, en sunnan- verátta er dag hvern. Athygli skal vakin á aðvörun til fisk- útflytjenda frá fiskimálanefnd, sem birtist hér í blaðinu í dag. HAFNARFJÖRÐUR. (Frh. af 1. síðu.) 3 frumvörp, er öll fóru í mjög svipaða átt og þetta og miðuðu að því að bæta úr brýnni og að- kallandi þörf Hafnarfjarðarkaup- staðar á ræktanlegu landi. Um; ástæður fyrir þessu frumvarpi má því í aðalatriðum visa til grein- argerða þeirra, er fylgdu þeim frv. , . Ástæður hafa í engu verulegu breyzt síðan. Ahugi fyrir auk- inni ræktun er mikill og almenn- ur í Hafnarfirði, en landið er lítið nærtækt, nema hraun, sem er óræktanlegt með öllu. Jófríð- arstaðir, Ás og Hvaleyri eru þær jarðir, sem næst liggja bænum að sunnanverðu, og fylgir þeim öllum allmikið óræktað land, sem vel mætti takast að rækta, og múndi að öllum lílúndum þegar hafa verið ræktað, ef Hafnfirðing- ar hefðu átt þess nokkurn kost. Land þetta er aftur á móti lítið notað af eigendum eða ábúend- um þessara jarða, og má því segja, að þeir missi ekki í mik- ils, þó að það væri af þeim tekið. Um landsvæðið í Garðahreppi er það að segja, að afnotarétt- inn að nokkrum hluta þess hefir Hafnarfjarðarbær átt kost á að kaupa, en málið hefir strandað á því, að menn í Hafnarfirði hafa ekki viljað taka þar smábletti upp á þau býti að verða fyrir það útsvarsskyldiir í Garðahreppi. Hefir því nú verið tekið upp í frv. ákvæði um stækkun lögsagn- arumdæmis Hafnarfjarðar, sem nemur því landi, er þarna getur komið til greina. Um þetta atriði hefir verið reynt að ná samkomu- lagi við Garðahrepp, en árang- urslaust. En það er nýmæli í þessu frv. að Krísuvík í Grindavíkurhreppi og Stóri Nýibær verði tekinn með. Er það gert með tilliti til þess, að þar eru einu jarðhitasvæðin í nágrenni Hafnarfjarðar. Hafa kaupstaðarbúar mikinn hug á að tryggja sér þau og notafæra á ýmsa lund síðar. Jarðir þessar eru nú lausar úr ábúð og í eyði, svo tíminn yrði aldrei betur val- inn enn einmitt nú. Kaupið Alpýðublaðið. Strandaða skipið á Meðallandi. Eins og skýrt var frá hér í blað- inu i gær, er skipið franskt, sem strandaði á Slýjafjöru i Meðal- landi. Skipið er frá Dunkerque á Frakklandi og heitir „Lieutenant Boyau“, og heitir skipstjórinn Sago Tierre. Skipið strandaði á Slýjafjöru kl. 11 á mánudagskvöld, og voru þá 20 dagar liðnir frá því, að það fór frá Frakklandi. í gærmorgun var sk'pbrots- mönnunum skipt niður á bæina i Meðallandi, en fjórir þeirra, sem voru verst haldnir og mest þjak- aðir, urðu kyrrir á S'j ðri F1 jótum. Annars eru skipbrotsmenn flestir að ná sér til fuilnustu. Nokkrir hafa fengið kvef við hrakningana, en sumir voru marðir og hrufl- aðir, en þó ekki mikið. . í gær komst læknir og túlkur til þeiira. Enn eru ár og fljót eystra ófær. Færeysknr kútter sekknr. Skipshöfninni bjargað. í gær um klukkan tvö kom undir Eiðið í Vestmannaeyjum kútterinn Mignonetta frá Thors- havn í Færeyjum, með skips- höfnina af kútternum Langanes frá Trangisvaag. Var þegar gert aðvart um skipbrotsmenn, ogþeir sóttir á vélbátnum Létti og flutt- ir í land. Skipstjórinn á Langanesi skýrir þannig frá: Á mánudagskvöld klukkan hálf tíu var Langanes statt 35 sjómíl-i ur vestur af Vestmannaeyjum. Fékk það þá á sig brotsjó, sem braut úr því bæði siglutré og fleira ofanþilja, tók út báða skips- I. O. G. T. Félagar st. SKJALDBREIÐ eru beðnir að koma til viðtals annað kvöld (föstud.) kl. 9 e. h. í G.-T.-húsinu. SKÁLDSKAPUR. (Frh. af 3. síðu.) pnna í svona sögum þarf ekki að spyrja. Gagnstæður þessum. lesenda- flokki er svo aá, sem sér ekkert frá eldri timum nema keituker- öld, lusuga sveitarlimi, skriðhor- aðar kotahúsfreyjur, óþrifalega og rifbaldalega hreppstjóra og þekk- ir þáðan ekki annan andlegan lifsvott en leirburðarstagl og holtaþokuvæl — og virðist vilja, að skáldin lýsi sveitunum, í sam- ræmi við þetta. í kaupstöðunum eiga svo helzt allir kaupmenn, út- gerðarmenn og embættismenn að vera fantar og dónar, en öll al- þýða stríðandi og sigrandi hug- sjónamenn, séfcn hugsa fult svo mikið um ástandið í Kína og Ni- caragua eins og ástæðurnar í hreysinu heima hjá sér. Því stærri orð, því meira af eymd, aur og saur, sem lýst er, því sannara og betra. Og hver skyldi svo dirfast að gera kröfur til, að skáld, sem slíku lýsir, hafi, þó ekki sé nema á allra ófullkomnasta stigi, stíl- hæfileika, sálfræðilega þekkingu eða gáfur til að gera persónur sínar að lifandi og trúverðugum manneskjum og umhverfið sæmi- lega greinilegt og kunnuglegt les- anda, sem eitthvað vill skygnast ofan í kjölinn. Loksins koma svo þeir tveir flokkarnir, sem að bókmentaleg- um — og yfirleitt andlegum þroska — standa á hæstu stigi lesenda og bókmentadómenda. Þessir tveir flókkar eru sammála að vissu marki. Þeir, sem þá fylla, segja allir: Skáldrit, sem ekki að stíl, máli, framsetningu, persónu- og umhverfis-lýsingum ber vott um kunnáttu, formgáfu og að meira eða minna leyti frumlega innlifun í sálarlíf manna og áhrif ytri aðstæðna á mótun þess og þróun, er lélegt skáldrit, hvað sem líður viðhorfum höfundarins. En lengra geta þessir flokkar svo ekki orðið samferða. Hjá öðrum þeirra er gildi skáldritsins enn fremur komið undir því, að það hafi eitthvert sérstakt málefni að flytja, sem sé að þeirra dómi þarft öllum almenningi í augna- blikinu. Hinn flokkurinn gerir aftur á möti ekld þessa kröfu, heldur segir, að formfegurð, sam- fara skáldlegu ímyndunarafli og tilfinningaþrótti hafi sitt sérstæða gildi, án tillits til málflutnings. Báðir þessir flokkar telja sem sé listina nauðsynlega og sjálfsagða hverri menningarþjóð, en annar gerir að kjörorði sínu: listin fyrir lífið; hinn: listin fyrir listina, — en þetta bvorttveggja eru gaml- ar og gamalkunnar setningar, er valdið hafa miklum umræðum, sem enn þann dag í dag hafa ekki verið leiddar til lykta. Ég mun hér síðar koma nokkuð að þessum atriðum og minnast á, að mjórra mun vera á milli þessara flokka, en þeír vilja oftast vera láta, en aftur á móti ærið langt á milli þeirra beggja og hinna, er búa, eins og kandídatinn, sem íslenzkur biskup sagði að ætti heima fyrir vestan alla aðgæzlu og sunnan alla sanngirni. — En í næsta kafla lýsi ég nokkuð viðhorfi skáldanna við hinum ýmsu kröfum — eins og það viðhorf er frá mínum bæjar- dyrum. Frh. I DAG Næturlæknir er í jnótt Gísli Pálssion, Iingólfsstræti 21C, sí'mi 2474. Næturvörður er í nótt í Reykja- víkur- og Iðunnar-apóteki'. Veðrið. Hitinn; í Reykjavík 2 st. Yfirlit: Lægðarmiðja yfir norð- anverður íslandi á hreyfingu norðaustur eftir. Veðurútlit: Norðvestan kaldi. Skúrir eða slydduél. ÚTVARPIÐ: 15,00 Veðurfnegnir. 19,00 Tónleikar. 19.10 Veðurfregnir. 19,20 Þingfréttir. 20,00 Fréttír. 20,30 Erindi: Frá útlöndum (séra Sigurður Einarsson). 21,00 Lesin dagskrá næstu viku. 21.10 Tónleikar: a) Útvarpshljóm- sveitin. b) Þættir úr hljóm- kviðum (plötur). c) Danz- lög. bátana og kastaði farmi skipsins út í aðra hlið þess, svo það lá mjög á hliðinni. Kom þá þegar leki að skipinu, og urðu skips- menn að standa í austri með blikkfötunii í samfleytt 14 klukku- stundir, því dælan brotnaði. Þá kom Mignonetta á vettvang og bjargaði allri áhöfn, 22 manns. Skipbrotsmenn voru allir hress- ir þegar þeir komur í land' í Vest- mannaeyjum, en klæðlitlir og sumir skólausir. Skipstjóri segir, að Langanes hafi haft hjálparvél, en til þess að geta sett hana í gang varð að ausá í 8 tima. Eftir það gekk vélin í hálfa aðra klukkustund. Skipið var á floti þegar Mign- onetta sá síðast til, en ekki töldij skipsmenn líklegt, að skipið myndi haldast lengi ofansjávar. Skipstjórinn heitir Nils Poli Nielsen. Hjartanlega pakka ég þeim, sem glöddu mig með innilegri samúð og vinarhug á 80 ára afmælisdaginn minn. Hólmfríður Gísladóttir, Berg- staðastræti 45, Reykjavík. íþröttafélag kvenna heldur aðaldanzleik sinn 16. þ. tn. í Oddfellowhúsinu. AÖgöngu- miðar verða afhentir hjá Unni Jónsdóttur, Skólavörðustíg 36, í kvöld frá kl. 6—7 og 8—9. Eldborg kom: í gær úr ferð sinni vest- an af Breiðafirði. Bjarni Matthiasson hringjari er nýræður í dag, er hann bæði vinsæll og velþektur maður. Frú Margrét Jónsdóttir, Framnesvegi 25, verður 66 ára í dag. „Straumur lífsins" heitir erindi, er frú Aðalbjörg Sigurðardóttir flytur á fundi í „Septímu“ annað kvöld. Mannalát. Á aðfaranótt sunnudagsins andaðist hér í bænum frú Jó- hanna Proppé. Á mánudag and- aðist frú Ingveldur Guðmunds- dóttir, móðir Sigurðar Grímsson- ar lögfræðings. Ólafur Ólafsson, fyrrum prófastur í Hjarðarholti, andaðist í gær að heimili sínu bér í jbænum. Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að dreng- urinn Þormar Grétar Vídalín, Laugavegi 27, var ekkert viðrið- inn þjófnaðinn í Hressingarskál- anum og Reykjavíkur-apóteki og hefir aldrei len:t í neinu kasti við lögregluna. SDnDndaysblað álbíðoblaðsins er ódýrasta skemtiblað á íslandi. Enn þá er hægt að fá pað frá upphafi í afgreiðslu blaðsins. Nýja Má Eimskipafélagsskipin. Gullfoss er í Kaupmannahöfn, Goðafoss er í Vestmannaeyjum, Brúarfoss er væntanlegur íkvöld frá London til Kaupm.hafnar. Dettifoss fer vestur og norður í kvöld kl. 10, Lagarfoss verður á Sauðárkróki í dag, Selfoss er í Reykjavík. Skip Sameinaðafélagsins. Island er væntanlegt hingað í fyrra málið. Dr. Alexandrine er í Kaupmannahöfn. Fulltrúaráðsfundur verður haldinn í Kaupþings- salnum annað kvöld kl. 814. Ýms áríðandi mál eru á dagskrá, og eru fulltrúar beðnir að mæta vel og stundvíslega. Almenna skemtun heldur Sjómannafélag Reykja- víkur í Iðnó á laugardaginn. Hljómsveit Aage Lorange (6 menn) spilar með danzinum. Leikkvöld Mentaskólans. I gærkveldi sýndu Mentaskóla- nemendur „Henrik og Pernillu“ eftir Holberg, en á undan söng Mentaskólakórinn undir stjórn Sigfúsar Einarssonar, og var þakkað með dynjandi lófataki. Leikurinn tókst mjög vel, og skemtu hinir mörgu áhorfendur sér prýðilega. Sérstaklega þótti leikur Þórðar Möller ágætur. •Leikurinn verður aftur sýndur annað kvöld. Czardasmæria. (Die Czardasfurstin). Stórfengleg þýzk tal- og hljómlistarkvikmynd, * sam- kvæmt hinni heimsfrægu óperettu með sama nafni eftii E. Kalman. Aðalhlutverkið leikur og syngur leikkonan viðfræga Marta Eggerth, ásamt Paul Hörbiger, Hans Schröder og skopleikaranum fræga Paul Kemp. „Spírella“. Munið eftir hinum viðurkendu Spirella-lífstykkjum, Þau eru haldgóð og fara vel við líkamann. Gera vöxtinn fagran. Skoðið sýnishorn á Bergstaðastræti 14. Sími 4151. Til viðta’s kl. 2—4 síðd. Guðrún Helgadóttir. Prjónakjjólar á smábörn, sérlega fallegir, handgerð- ir, fást í Verzlun LILJU HJALTA, Austurstræti 5. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður og tengdamóður okkar, Jónínn Þorgeiðar Sandholt. Hjörtur og Bertha Sandholt. •'ii 1 LI 1 ) j ,y mí Aðvðrun til fiskiitflytjenda. SamkvæmtJ3. gr. laga nr, 76. 29. dezember 1934 um fiskimálanefnd, útflutning á fiski, hagnýtinu markaða o. fl. má enginn bjóða til sölu, selja eða flytja til út- landa fisk, nema með leyfi fiskimálanefndar. Samkvæmt pessu má enginn gera bindandi sölutil- boð um fisk né semja um sölu á honum til útlanda nema hann hafi áður fengið útflutningsleyfi Þegar sótt er um útflutningsleyfi verður að tilgreina ákvörðunarstað, ákveðið verð miðað við fisktegund, magn og stærð fisksins. Brot gegn fyrirmælum pessum varða sektum sam- kvæmt ákvæðum téðra laga. Fiskimálanefndin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.