Bjarki


Bjarki - 02.10.1897, Blaðsíða 1

Bjarki - 02.10.1897, Blaðsíða 1
Eitt blað á viku minst. Árg. 3 kr. borgist fyir i. Júlí, (crlendis 4 kr. borgist fyrirfram). BJARKI Auglýsíngar io aur. línan; mikiil afsláttur ef oft er auglýst. Upp- sögn skrifleg fyrir i. Okt. II. ár. 40 Seyðisfirði, Laugardaginn 2. Október 1897 Skrifstofa sýslumansins í Norðurmúlasýslu og bæarfó- getans á Seyðisfirði verður fyrst um sinn f húsi fyrv. sýslumans E. Thorlacíusar og verður venjulcga opin hvern virkan dag frá kl. io — 2 og 4 — 7. Seyðisfirði 14. Seft. 1897. Jóh. Jóhannesson. ÁBYRGÐIN. Mesta gamanið, cða kannske eina gamanaði á næstu þíngmála eða kjörfundum verður það, þegar mótstöðu- menn stjórnarskrárbreytíngarinnar koma upp á ræðupall- ana og fara að tala um ábyrgðina. Sá hluti tölunnar verður svona: Ileiðruðu kjósendur! I’essi ábyrgð, sem Valtýs frumv. tahr um er eingin ábyrgð; því þó ráðgjafinn lofaði alþíngi að mæia með einhverju, þá getur ríkisráðið felt það fyrir honum, eða sem er það sama: Konúngur finnur að lögin hafa svo mikið andstæði í ráðinu að hann sjer sjer ekki fært að skrifa undir þau. Ráðgjafinn segir ekki af sjer embætti, konúngur víkur honum ekki frá því, og svo kcmur hann á næsta þíng, og þegar þíngið fer að hreyfa »ábyrgð« hans segir hann sem svo: »Nei, blessaðir verið þið, þetta er ckki mjer að kenna, jeg gerði alt sem jeg gat, en ríkisráðið, hclv. ríkisráðið eyðilagði það alt fyrir mjcr, og »hjcrna stcnd jeg, jeg get ekki annað..........arnen*. þarna sjáið þið piltar! Ráðgjafinn hefur gert alt sem hann gat, hvernig á að beita lögsókn hjer? Nei, ráðgjafi í rikisráðinu er á- byrgðarlaus og — hana nú. Reki svo þetta hver sem getur«. Þið skuluð nú 'ekki segja manninn ljúga, því það sann- færir aungvan mann. En gerið þið honum grikk. Spyrjið þið hann að því hvernig standi á, að bæði Danir og aðr- ar þjóðir hugsi sjer að geta, og geti gert ábyrgð gild- andi á hendur einstökum ráðgjiifum, og hafi margar rekið einstaka ráðgjafa frá völdum, og þó sitja þeir allir í ríkisráði. Þctta mun vefjast fyrir þcim, því sannleik- urinn er sá, að sctan í ríkisráðinu kemur ckkert ábyrgð- inni við. Iíver ráðgjafi bcr einn ábyrgð allra þeirra mála sem undir hans meðgjörð koma. Sje ríkisráðið andstætt honum, eða lög, sem hann hefur lofað að mæla með, nái ekki undirskrift af einhverjum ástæðum, (sem örsjaldan ber að, hafi það annars nokkru sinni komið fyrir í þíngræðis- sögu Eivrópu) og beygi hann sig undir ráðið, cða kon- únginn, þá ber hann auðvitað ábyrgðina og ber hana einn. Beygi hann sig þar á móti ekki, verður konúngur cða ríkistorseti annaðhvort að láta undan eða víkja honum frá. Og það hvort tveggja hefur þráfaldlega komið fyrir sem eðlilegt cr. Það er með öðrum orðum, að hin p ó 1 i t i s k a ábyrgð allra ráðgjafa í hverju landi hefur mjög litið að þýða, því hann þarf aldrei að lofa þínginu meiru en hann getur efnt. Eön þarna er einmitt þröskuldurinn; þarna cr hættan. I öllum þíngræðislöndum er búið svo um það, að þíngið þurfi ekki að eiga neitt undir því hverju ráðgjafinn vill lofa að mæla með, því hann vcrður einmitt að mæla með þvi sem þíngið vill að hann mæli með, því ella getur það ekki við hann átt og þá verður hann að fara. Og um það hefur staðið öll stjórnardeila Dana að ráðaueytið gat farið í kríng um vilja þíngsins, eða rjettara sagt, brotið hann mcð valdi. Þess vegna er algert þíngræði það eina, sem nokkuð er leggjandi í sölurnar fyrir, alt annað er kák. En fram á það hafa frek- ustu lög og írv. alþíngis aldrei farið nema um fjárlögin ein. Það er nú auðvitað mikilsvert, að meiri hluti þíngs- ins geti knúð fram þau fjárlög sem honum líkar, en í öll- um öðrum málum stendur þíngið eftir þeim frumvörpum ráðalaust með ráðgjafann, öldúngis eins og þíng Dana gerir nú í öllum málum, og eins og við hlytum að standa með okkar ráðgjafa, hvort sem hann væri í rikisráðinu eð,a ekki. Vilji hann vel, fer hann auðvitað svo lángt sem kleift er og setur embætti sitt í veð. En reynist hann erviður, þá ætti þó hver heilvita maður að sjá, hversu ó- líkt það er, að þíngið geti átt tal við hann sjálfan og haft áhrif á hann, eða hann sjái aðeins lögin og landshöfðíngjabrjcfin eins og nú er. Það er eindrægni þjóðarinnar, sam- tök og áhugi þíngmanna og siðferðisþrek beggja, sem á að hrinda málum okkar áfram. Hin pólitiska ábyrgð er lítils virði jafnt hvort sem ráðgjafinn er í ríkisráðinu eða laus við það og eins þó við fáum landsstjóra-ráðgjafana, nema gagnvart fjárlögunum einum. Aftur er það mjög þýðíngarmikið að hin nýa stjórnarbót Iætur ráðgjafann bera ábyrgð á öllum s t j ó rn ars t ö r funu m, og því störfum framkvæmd- arvaldsins líka. Eins og nú er, hefur ráðgjafinn einga slíka ábyrgð, eins og fram kom í Fensmarks málinu. En þessa ábyrgð játa víst allir, og um hana þarf ekki að tala hjer, því þó menn sjálfsagt scgi margt á kjörfundunum, þá trúir maður því þó ekki að óreyndu, að neinn maður segi þar, að ríkisráðið hafi áhrif á þá ábyrgð. Það væri að minsta kosti leiðinlegur snoppúngur á heilbrigða skyn- semi. Sýslunefndarfundur. A aukafundi sýslunefndarinnar 29. og 30. f. m. gerðist þetta helst til tíðinda. Um farir Bremnæss höfðu komið nokkrar kvart- anir og urðu miklar umræður um það mál. Endalokin urðu þau að samþ. var að leita meiri upplýsínga viðvíkj- andi málinu, og frcsta útborgun sýslutillagsins til næsta aðalfundar sýslunefndarinnar. Hreppstjórar nýir. I Borgarfirði hafði Jón Stefánsson beiðst Iausnar. Þar voru tilnefndir nýir: Arni Steinsson, Hannes Sigurðsson og Egill Arnason á Bakka.

x

Bjarki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.