Bjarki


Bjarki - 28.05.1898, Blaðsíða 2

Bjarki - 28.05.1898, Blaðsíða 2
82 ]>cim lánast að drepa verslun og atvinnu þessara landsfjórðúnga bara til þess að Rvík fáj -írjettaþráð tveim árum fyr en ella. Einginn þingvallafundur. --« O »- íJíngvallafundarboð þeirra Bene- dikts Svcinssonar hefur feingið ennþá verri undirtektir en Bjarki hafði búist við. Eins og menn muna, þá kom sú uppástúnga fyrst fram hjer í blaðinu, að hinir þrír þíngflokkar reyndu heldur að láta almennan þjóðfund skera úr málum milli sfn heldur en að vera leingur að sendast á skömmum og bríxl- um. Hver einstakur þeirra þóttist hafa þjóðina með sjer alla saman, eða að minsta kosti mikinn meira hluta. Ur þessu að minsta kosti gat þjóðfundur skorið. Eftir því sem á stóð þá, gat því vcrið góð meiníng í almennum fundi. l’ar hefði töluvert mátt sjá af- stöðu þjóðarinnar í málinu bctur cn í blöðunum, og ef til vill hefði mátt miðla málum milli flokka með stillíngu. En þetta gat því að eins orðið að allir flokkarnir styddu fundinn. Hjer fór nú alt á annan veg. Fimm menn úr tveim minni flokk- unum hlupu til að boða Ih’ng- vallafund án þess að tala um það eitt orð við fjölmennasta þíng- flokkinn. Völdu óhentugan stað, og als óhæfan tíma. Bjarki þóttist nú sjá það fyrir fram að þetta myndi ekki verða vinsælt, og grun- aði að með þessu væri síðustu friðartilrauninni komið fyrir kattar- nef. Hann gat varla vænst neins árángurs af þcssum fundi þegar samkoroulaginu, aðal grundvellinum var kift burt. J’rátt fyrir þetta vildi hann þó ekki standa í vegi ef meiri hluti blað- anna og þjóðarinnar væntu sjer gagns af þessu, og vildi heldur vera ]>ess hvetjandi að fundurinn yrði ]> á scm fjölsóttastur. En hjer cr öðru nær. Af nöfnum fundarboðenda var auðvelt að sjá aö ekki var hugsað um neitt samkomulag við Valtvs- flokk. En hinu hafði maður búist við að Benedikt og miðlunarm. frá '89 væru samþykkir sín á milli að minsta kosti um fundarhaldið, cn ]>að er heldur ekki svo vel. Nýa öldin, eina málgagn ’8g-mannanna telur fundinn óráð citt og heimsku- frumhlaup og undrast yfir aö þeir Jón í Múla og Pjetur ljái nöfn sín til slíks. M e ð ]> v í e r síðasta 1 í f s- ljós þíngvallafundarins ú t s 1 ö k t. Ástandið alt er og nú orðið svo að þíngvallafundur eða almennur þjóðfundur myndi lítið gagn geta unnið, og ástæðurnar eru: Ástandið i Danmörku. það er sagt sem áreiðanlegt að ráðgjafirn muni innan skams gefa svar upp á ávarp efri deildar, og skýra þar frá stefnu sinni og fyrir- ætlun í stjórnarskrármálinu. Landshöfðinginn er nú ytra og má telja víst að af- staða stjórnarinnar til málsins á næsta þtngi verði fastráðin eða að minsta kosti eitthvað ákveðin áður hann og ráðgjafinn skilja. Hægrimenn sitja kyrrir í Danmörku, svo hvað sem vinstri- menn kynnu að vilja slaka til við okkur þá kemur ekki til þess fyrst um sinn. Við verðum við hægri menn að eiga enn um stund. Þegar svona er ástatt og alt þetta yfirvegað, þá er vandi að sjá hverir menn ættu að tala á þíng- vallafundi eða ráða þjóðinni ráð -— aðrir en þeir sem aungum sáttum vilja taka. Þíngvallafundur getur ekki orðið sáttafundur flokkanna. Fyrir því hafa þessir fimm menn sjeð. Þíngvallafundur getur ekki rætt samkomulag við stjórnina meðan einginn veit skilyrði hcnnar eða samnínga við landsh. A Þíngvallafundi geta því nú ekki aðrir talað en Benedikt Sveins- son einn. Kvennaskóli Eyfirðinga kvað nú hafa feingið ágætt hús- næði í hinu veglega stórhýsi, er dugnaðarmaðurinn mikli, Snorri timburmeistari Jónsson hefur reist á Oddeyri. Kenslustofurnar eru á I. sal háar og bjartar, vita gluggar mót suðri og er þaðan útsjón hin fegursta inn yfir höfnina og hjer- aðið. Stofurnar eru 14 ál. lángar og 8 ál. breiðar. Auk þess hefur skólinn stórt herbergi til áhalda- geymslu og rúmgóða skrifstofu handa forstööukonunni. Heima- vistir eru eingar í skólanum svo námsmeyar vcrða að leigja sjer herbergi út um bæinn cn húsa- leigustyrk hafa þær feingið af skólasjóði þcssi ár, sem skólinn hefur verið á Akureyri og svo mun cnn verða. Ungfrú lngibjörg Torfa- dóttir cr og sagt að veiti skólan- um forstöðu næsta ár. Hefur hún nú dvalið erlendis 3 misseri og stundað nám á hinum fræga Fröken 1 Zohles skóla í Höfn, scm nú mun talinn einna ágætastur kvennaskóli á Norðurlöndum. Auk þess hefur hún ferðast nokkuð um Svíþjóð til j ]>ess að afla sjer upplýsínga um skóla og kenslumál. Síðast liðið ár var skólinn vel sóttur og mun ekki verða það sfður þetta ár eftir því að dæma, að margar stúlkur hafa þegar sótt um inngaungu. Það, sem hjer að ofan er sagt er tekið eftir áreiðanlegum brjefum úr Eyafirði. Þótti vel við eiga að geta þess til leiðbein- íngar fyrir únga kvennfólkið hjer austur frá, sem hefur í huga að gánga á kvennaskóla næsta vetur. Helgi Jónsson jurtafræðíng- ur kom híngað nú með Vestu. Hann ætlar nú í sumar að rann- saka sægróður hjer við Austur og Norðurland. Hann var í fyrra sumar við samskonar rannsóknir sunnanlands og vestan og á Fær- eyum. Hann hefur dvalið hjer í bænum þessa dagana síðan Vesta kom, en brá sjer í gærkvöld upp yfir heiði að finna sjera Magnús bróður sinn í Vallancsi og móður sína. Aðalstöð sína gerir hann ráð fyrir að hafa á Rcyðarfirði. f 22. þ. m. andaðist hjer í bæn- um Kristin Gisladóttir Jóns- sonar, gullsmiðs, . á 15. ári. Það er annað barnið sitt, gott og mann- vænlegt sem þessi sorgmæddu hjón hafa orðið að sjá á bak nú á rúm- um tveim mánuðum. Útlendar frjettir. — :o: — ófriðurinn. 18. þessa mán. var ekkert enn þá orðið sögulegt þaðan. Orusta hafði staðið fyrir framan Man- illa, höfuðborg Filippseya milli lítilla flotadeilda, og báru Bandamenn þar hærra hlut, enda höfðu Spánverjar þar gömul skip og ljeleg. Borgina tóku Bandamenn þar á móti ekki, og var það ránghermt í hraðskeytunum fyrri. En nú bjuggust allir við stærri or- ustu á hverri stund, því floti Spánverja var nú allur kominn af stað en hvergi kominn fram ennþá, svo einginn vissi hvar hann myndi ráða á vestra, en fiotadeildir Amerikumanna voru allar á ferð og flugi að safna sjer saman á einn stað til að taka á móti og Ilöfðu sent skip í allar áttir á njósn. Alt var því í óvissu og IielmUrinn beið með öndina í hálsinum. G I a d s t o n e e r I á t i n n, einn af frægustu sonum Einglands og mestu ágætismönnum aldarinnar; það er reynd- ar lausafregn sem segir að hann sje dáinn 19. þ. m. en varla mun efi á því að hún sje sönn. Seyðisfirði 28. Maí. Veður hefur mátt heita gott þessa viku, sumarblíða og fiiti suma dagana en mjög nollkalt á milli og skúrahreys- íngur í fyrra dag og gæírriorgun. Fiskur má hjer nú heita góður, sumir hafa fiskað ágætlega þessa daga. Góður afli líka í Mjóafirði í gær en á- kaflega misjafnt. Fiskigufuskipafjelagíð »Frem« í Esbjerg hefur nú sent híngað eitt af skipum sínum »Esbjerg« til að litast um hjer um slóðir. Með skipinu kom framkvæmdarstjóri fjelagsins C. B. Her- mann til athugunar og fyrsta undir- búníngs. Fað mun vera áform fjelags- ins að senda híngað tvö gufuskip :nn- an skams til fánga með aðalstöð hjer á Seyðisfirði. Bindindisfundur almennur var haldinn hjer á Vestdalseyri 21. þ. m. Af áheyrendum kom þar töluvert, en lítið af þeim ræðumönnum, sem fund- arboðið hafði lofað. Annan fund hjeldu daginn eftir hjcr í bindindishúsinu kjörnir menn frá ýmsum bindindisfjelögum hjer austan- lands til að ræða um samband sín á miili. Árángur ókunnur. SKIP. Inga, skip Gránufjel. kom híngað 2i. þ. m. að norðan. Fór út daginn eftir með lítið eitt af vörum. Hólar, fóru norður þ. 21. og með þeim Jón læknir og bindindisfundar- mennirnir o. fl. Thyra kom híngað 22. og mcð henni, auk margra annara, Haldór Daníelsson bæarfógeti í Rvík á kynn- isferð til föðar síns, Magn. Magnúss. frá Cambridge á heimieið og Jón For- steinsson bakarasveinn híngað. Vesta kom híngað frá útiöndum 24. þ. m. Auk fleiri farþega komu þeir giasfræðíngur Helgi Jónsson, Kristján Jónasarson, Bjarni kaupm. Forsteins- son Borgarfirði, Jón Lúðvíksson skó- smiður, frk. M. Jacobsen og Sölví Björnsson frá Ekkjufelli. Sunnan af fjörðum komu híngað Sigurður prentari Einnbogason, Sig. Johnsen, Sig. Malm- qvist og frk. Olga Shiöth á leið til Akureyrar. Hjeðan fóru með Vestu til Akureyrar, húsfrú Margrjet Pjeturs- dóttir frá Egilsstöðum og ýngismær Guðlaug Vigfúsdóttir frá Arnheiðar- stöðum. Páli kaupm. Torfason frá Flateyri fór enn frernur með skipinu til Vesturlandsins. Esbjerg, gufuskip fiskiveiðafjélags »Frem« í Esbjerg, kom híngað af hati 24. þ. m. Með því komu þeir Páll kaupm. Torfason og Hermann, fram- kvæmdarstjóri fiskiíjelagsins »Frem«. Lyna, seglskip Jóhansens verslunar, kom híngað með kol, þakjárn og fleira í fyrradag (26.) 6 Frakknesk fiskiskip hafa komið híngað inn þessa dagana. »Margot< Vigöureuse, — Margaret, — Postillon — L’Esperance —■ Ieanne* d'Arc, öll frá Dunkerque. Gufuskipin fiskuðu þessa viku (Laug- ard. til Föstud.): Elín 4,291, Egeria 2,388, Bjólfur 2,807. Elín er komin inn í gær en hin tvö koma í dag og því ekki nema liálf- sjeð móts við hana. Lefolii gamli, kaupm. á Eyrárbakka, andaðlst 10. þ. m. í Khöfn. Lagrarflótsós- Eftir tilmælum sýslumans Norðunnúlasýslu hefur Jac- obssen skipstj. á Hólum tjáð sig fús- an til a<5 kóma við á Lagarfljótsós í næstu eða næst næstu ferð að sunnan, ef hægar vörtír verður að flytja og veður ineð noklcru rrióti leyfir. t Aðalbjörg Sigurðardóttir ó- gift kona 33 ára, tók sig af Hfi hjer j J

x

Bjarki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.