Bjarki


Bjarki - 25.06.1898, Blaðsíða 2

Bjarki - 25.06.1898, Blaðsíða 2
g8 Umfram ait ættu menn að sjóða eða steikja alt ket vel og neyta sem minst ósoðinnar mjólkur. Mjólk og ket nautgripa eru talin einn háskalegasti pestberi erlendis og þetta dæmi sýnir og sannar að hjer dugur aðgerðarleysi ekki heldur. Heimdallur hafði farið norður til Eyafjarðar þ. 16. Júní og kom híngað aftur þann 18. fór aftur hjeðan 22. Díana kom þ. 18. ogfór aftur þ. 22. Gwent gufuskip með vörur til pönt- unarfjel. kom |i. 19. þ. m. Með skip- inu komu Skafti ritstjóri Jósepsson og Ingibjörg dóttir hans. Fór aftur þ. 20. norður og vestur um land. Með því tók far sjera Lars Oftedal ritstjóri. IVIanChe herskipið frakkn. kom 20. Fór á Miðvikudagiun og teymdi á eft- ir sjer frakkneska skútu sem hjer hef- ur Iegið inni um stund. Með því fór suður á firði Carl konsúll Tuliníus og Georg Richelsen. Thyra kom sama dag og með henni Jón Vídalín með konu sinni, Iæth kaup- maður, sjera Jónas frá Ameriku og fleira af fólki. Fór hjeðan daginn eft- ir og mcð henni hjeðan Elín Tómas- dóttir til Akureyrar, sjera Einar Fórð- arson í Hofteigi til Vopnafjarðar, sjera Forsteinn Haldórsson o. fl. Vaagen kom 23. |>. m. með vörur til pöntunarfjelagsins, og kol. Smátt og stórt. —:o:— Sjera Lars Oftedal notaði tímann hjer til að heilsa upp á vini sína Og gömul sóknarbörn. Hann brá sjer og upp yfir heiði til að sjá hjeraðið. Hann er töluvert einkennilegur maður bæði að yfirlitum og ásigkomulagi. Hhnn er með minstu mönnum að vexti en þrek- inn vel og með nokkra ístru. Andlitið kríngluleitt og vel við sig, svarthærður og skeggið stuttskorið, mjög þjett og nokkuð hært. Svipurinn sýnist harð- legur og lýsa þreki og fjöri. Honum lágu hlýlega orð til íslands og íslend- inga- Zeuthen læknir á Eskifirði hefur fcingið lausn frá embætti frá 31. Júlí. Þorvaldur Thoroddsen hefur verið geríur brjeflegur heiðursfjelagi konúnglega landafræðisfjelagsins; Lund- únum. sig á því að miður sanngjarnt væri að láta sýslu- og jafnaðar- sjóði kosta þráðtnn umhverfis land að meira eða minna leiti, þegar landsmenn allir væru búnir að kosta hann jafnt til Rvíkur. Nú vill hún þó lofa öllu landinu að taka lán til lagníngarinnnr áfram, þegar hann er fyrst kominn til Rvíkur. Þetta er þó strax framför og mesti munur að hún stcfni í rjetta átt. En um bilunarhættu þráðar- ins og lagníngu yfir land hefði rit- stjóri Nýu aldarinnar ekki þurft að tala nærri svona mikið til þess að sýna að hann veit ekki meira en Bjarki um þá hluti. Það eru einkum ofsarok scm verða þráðum að grandi og þau vita allir að cru tíðari sunrrar meir en hjer. Hjer munu og fárr staðir á landinu þar sem líða myndu margir dagar svo að ekki værí hægt að senda mann með skeytið yfir þann kafla sem bilaður væri. Hvernig er farið að erlendís þegar svo ber að, sem títt er, að eíngrn eimlest kemst á- fram fyrir snjó eða vegabilun? Danir og Rússar senda menn á milli með skeytin. Jeg veit ckki hvað Amcrikumenn senda. Að fara að vitna í ást sr'na á Austurlandi eða umhyggju fyrir því var hreinta óþarfi, og betra að geyma það þángað til þess þurfti meir við, fyrst hnoða átti úr því snjókúlu á annað borð. Við vit- um allir að »sá er vinur sem í raun reynist« og það sannfærir miklu bctur bæði vini og vanda- lausa heldur cn öil óðamælgi og hitaflog. Hjer er spursmálið aðerns þetta: Hverir vilja tryggja öllu landinu að þræðinum verði haldið tafarlaust áfram hvar sem hann er lagður á land? Hvað gera menn til að styðja þetta? Ilvar láta menn ó- gert það sem þcir gætu gert? IJvað vinna menn því til bölvunar? Þetta er að líta á. Þetta er að muna. Fjárkláði i Vopnafirði. Af þvr' það er málefni sem alla varðar, þá vrl jeg ekki láta hjálíða að gefa yður til vitundar til frek- ari auglýst'ngar í blaði yðar að jeg hefi fundið hinn reglulega kláða- maur (sama sem t' sunnlenska kláð- anum) í hrúðrum af 2 gcmlíngum á Eyvindarstöðum og 1 gemlíng frá Búastöðum hjer í Vopnafirði. Gcml- íngarnir á Eyvindarstöðum voru fluttir þángað t' vor frá Hániund- arstöðum en gemlíngurinn á Búa- stöðum var tekinn til fóðurs í haust þángað frá Bakka í Skeggja- staðahreppi. Nú þegar hafa tvr'baðanir farið fram á bæjum þessum og má telja vr'st að rcynt vcrði að gera alt frá hálfu yfirvaldanna sem unt er til að útrýma þessari landplágu. Alt um bað ættu allir að leggj- ast á eitt með að gera sitt til að kláðinn nái ekki að útbreiðast og þá sjerstaklega að gæta þess að als einginn samgángur sje á fje yfir Jökulsá á Brú sem virðist í bráðina vera sjálfskrifuð takmarka- lt'na. Virðr'ngarfylst. Jón Jónsson (læknir.) Spitalinn á Seyðisfirði er nú kominn á ágætan veg. Hann á að standa sunnan ár upp frá apótekinu mitt á milli og brekkunnar. Þar er nú umgirtur fallegur túnblettur töluvert stór og á honum miðjum er nú lángt komið með að hlaða grunninn alt að tveggja álna háann. Eví verki stýrir Sigurður Sveinsson múrari, og er það vandað hið besta. I-Iúsið á að verða 30 álnir að leingd og forskáli að auki, en 19 álnir að breidd til endanna en 12 um miðju. Húsið sjálft er nú í smíðum hjá Friðriksen et Co í Mandal og á að koma upp um miðjan næsta mánuð. Húsið getur því staðið fullbúið nú í haust og komið þá þegar í gagnið ef ekki skorti fje, en það hefur því mið- ur orðið oflítið, af því að byggíngin brást, sem menn böfðu feingið ádrátt um hjá holdveikishússnefndinni i Dan- mörku. Hann getur því ekki orðið til afnota fyrri en einhversstaðar að er komrð fje til áhalda og húsbúnaðar. húsið sjálft er að sönnu stærsta stykk- ið en hins má heldur ekki án vera. Vegur er þegar lagður upp að spít- alanum milli apoteksins og prentsmiðju Bjarka 125 faðma Iángur óg 6 álna breiður. Spítalahúsið með því öðru sem hjer er talið á samkvæmt samníngum að kosta rúmar ellefu þúsundir króna. —1 iti íii m 1-- Utlendar frjettir (ná til 18. þ. m.) Ófriðurinn. Gegn um alla lýgina sem fer frá ófriðnum eins og fjaðrafok um all- an heim sýnist það nú nokkurnveg- inn víst að Bandartienn hafa komið herdeild á Iand á Cúbu við stað sem heitir Guantanamó á suður- ströndinni, nokkrum mílum fyrir austan Santiagó. Þeir eru þó svo liðfáir enn þá að þeir verða að bíða þar í skjóli flotans og eru á- sóttir af Spánverjum úr skógunum í kríng. Bandamenn eru nú að búa út fjórar hersendíngar; tvær til FiDppseya.,. eina til Portoricó, eina til Santiagö eða þar í. nánd- ina og eina til Havanna. Þær til Filipseya, Portoricó og Santiagó er sagt að sje komnar af stað og als hafa Bandamenn nú 280 þúsundir manna undir vopnum. Ofan á alt þetta hefur neðri málstofa samþykt að taka Hawaii eyar í sambandið eða leggja þær undir það. Þetta var samþykt nú 15. Júni' með 209 atkv. móti 91 og ekki efað að efri deild sam- þykki það líka. Víða um Norðurálfu er nú tal- að um að mál sje að fá frið og var fyrst sagt að Bretar ætluðu að gángast fyrir því, en svo þagnaði það aftur. Nú er sagt að Vil- hjálmur þýski hafi haft orð um að skerast í leik á Filipseyum, og hafa ýmsir blaðamenn Bandamanna haft mjög Ijótt t' munninum út af því og Iofað Þjóðverjum að þeir skyldu heldur en ekki fá fyrir ferðina. Annars trúa Bandamenn því ekki sjálfir, en nokkur þýsk skip er sagt sje á leið til Manillu, en líklegast rjett til vonar og vara. Nú er aftur sagt að Manilla, höfuðborg Filipseya, hafi ekki gef- ist upp enn þá, en sje á heljar- þröminni, og vopnafá og vistalítil. Bandamenn telja sjer lítinn styrk að uppreistarmönnum bæði eystra og á Cúbu, en ekki sjest hvort það er af viljaleysi eða getuleysi eða af hvoru tveggja. Húngurupphlaup hafa verið víða um Italr'u og Spán og stjórnin Iát- ið skjóta niður soltinn og vinnu- lausan verkalýð tugum saman. Aðalorsökin hefur verið afarverð kornsins Og þó fleira blandast sam- an við. Korn var þó nú að falla í verði. Seyðísfirði 25. Júní. Veður hefur verði fremur mein- hægt þessa viku, en þó hráslaga kuldi meiri partinn aðeins 7—8 stig í skugga. Sýslumaður kom úr þíngaferðum á Mánudagskvöldið var (þ. 20.) Fískur mjög lítill um alla fjörðu, bæði slæmar gæftir þessa viku og rjett að bátar og gufuskip verða vör þegar út er farið. Berklaveik kýr. Díana keyfti hjer kú til sláturs núna í vikunni. Kýr- in var hraustleg að sjá og í góðum holdum. En útlendíngar hafa víða eitt- hvert eftirlit með því sem þeir láta ofan í sig, og það gerðu og þessir menn og fundu þá að kýrin var mjög herjuð af berklum, svo bæði gat mjólk hennar og kct verið háskalegt heilsu manna. Peir greiddu vcrð kýrinnar ei að síður, en heltu steinolíu yfir skrokkinn og söktu honum svo í hafið. pað hefur lftt verið rannsakað hve berklar sje magnaðir í búpeníngi hjer á landi, en ýmsar Iíkur eru til að þeir sje töluvert almennir. Væri ekki van- þörfá aðslíku \æri gefinn gaumur, þeg- ar berklar eru að drepa fólk í hrönn- um um aít land.. Helgi Jónsson jurtafræðíngur hef- ur verið hjer í firðinu við rannsóknir síðan hann kom, en fór nú hjeðan með Thyru norður á leið. Konráð Hjálmarsson í Mjóafirði er nú búinn að fá gufubát sinn. Hann fór í fyrstu leit sína núna í vikunni og fjekk 600 að sögn. Skemtiferð til Jan Mayen. í »Dagens Nyhedcr* segir að Hjálmar, skip Þórarins Túliníusar, hatí ætlað af stað frá Höfn um miðjan þenn- an mánuð með 20 manna, mest útlend- ínga, til íslands og Jan Mayen; þar xtla þeir að vera í hálfan mánuð víð fiski- og fuglaveiði (drepa mæður frá úngum?) og koma svo til Austur- lands og ferðast eitthvað upp í land. Kaupmennirnir Ernst og Johnsen standa fyrir förinni..

x

Bjarki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.