Bjarki


Bjarki - 07.07.1900, Blaðsíða 2

Bjarki - 07.07.1900, Blaðsíða 2
ro 6 Sjerstaklega kom þó verðið flatt upp á mig, og mjer þykir þjer, hreint að segja, selja ofdýrt, herra apótekari, jafnvel þó það sje í lausakaupum (Haandköb). 50 kr. ávinníngur á 12 krónum! Jeg má til að segja yður það; það er verra en við höfum vanist af apótekur- um, jafnvel af verstu sendíngunum frá Danmörku. « Mjer þótti, eins og jeg sagði, sverðið prýðilega komið í höndum yðar og jeg skrifaði ekki línurnar í Bjarka vegna neins efa um það, heldur af hinu, að jeg býst við að missa bæði yður og sverðið þá og þegar, því eins og þjer vitið hafið þjer svo oft átt vissa von á embætti eða einhverju öðru í Dan- mörku, og þó þjer feingjuð ekki Fanö í vetur, þá getið þjer feingið það næsta eða næst næsta sem þjer sækið um, eða þá að minsta kosti það 33. eða 34. Þetta vakti fyrir mjer, herra apó- tekari, og er ástæðulaust að mis- virða það, og því síður munuð þjer misvirða þessar línur ef þær eru rjett þýddar. f>. E. 1 Útskritaðir úr búnaðarskólan- um á Eiðum 2. Maí 1900. Benedikt Jón Jóhannesson úr Norðm.s. 1. eink. 104 stig i bókl., I. eink. 51 st. í vrkl. Forbergur Guðmundss. úr Suðurm.s. I. eink. 93 st. í bkl., I. eink. 45 st. í vrkl. Einar Guttormsson úr Norðm.sýslu II. eink. 89 st. í bk!., I. eink. 52 st. í vkl. Hermóður Guðnason úr Norðurm.sýslu II. eink. 78 st. í bkl., I. eink. 46 st. í vkl. Fundurinn á Eiðum 18. Maí 1900. Skólapiltar i Eiðum höfðu komið sjer saman um það arið 1892, að finnast þar allir árið 1900, og sama hafa hinir gert sem síðan hafa verið. Frumkvöðlar fundarins voru því þessir piltar frá tíð Jónasar skóiastjóra en höfðu líka boð- ið hinum sem áður voru. Því miður gátu margir ekki sótt fundinn sakir anna og getur Eiðaskólinn vel unað við þau forföll, þó það hefði auðvitað vetið gaman að þeir hefðu getað kom- ið ailir, bundinn sóttui8af fyrverandi náms- mönnum skólans af 40 sem einkanlega voru væntanlegir, og endurskoðandi reiknínganna Jón Bergsson á Egilsst. °K stjórnarnefndarm. Eiríkur Einars- son í Bót. Fundarstjóri var kosinn skólastj. Jónas Eiríksson og skrifari Sigurður Sigurðsson. Fundarstjóri setti fundinn með töiu. Helstu atriði er hann mintist á voru þessi: 1. Um til- drög og þýðíngu fundarins. 2. Um að- gerðir búnaðarskólans frá vorinu 188S ti! vorsins 1900. 3. Um stjórnarnefnd og kennara skólans. 4. Um búnaðar- skólana, sjerstakiega skólann á Eiðum. 5. Um vísindalegan búnaðarskóla og efnarannsóknarstofnun. 6. Um tak- mörkun á munaðarvörukaupum. 7. Um búnaðaríjtlög undir yfirstjórn búnaðar- fjelags ísltnd, o. fl. Skrifarí fundarins, Sigurður Sigurðs- son, talaði um afurðir búpeníngs skóf- ans frá 1894, samkvæmt reiknfngum skólabúsins, og í sambandi þar við unt nauðsyn á nákvæmfi og formfegri bú- reiknmgsfærslu fyrir alla búendar. i*á hjelt búfr. Jón Jónsson gagnorða tölu um alþýðumentun, sjerstaklega hina fyrstu undirstöðu nl. um fraeðslu barna og únglínga. Talaði- hanit um gallana á barna og únglíngafræðslu hjer á iandi, og hvað gera mætti til bóta, að auka kennarafræðslu, að kennarar hefðu líf- vaenleg laun, urngángskensfa væri auk- in í sveitunum og meira eftirlit haft með henni. í kaupstöðum og sjópláss- um skyldi stofna únglíngaskóla o. s, frv. Allítarlegar umræður urðu um málefni þetta. Sigurður búfræðíngur Antoníusson talaði um áhrif búnaðarskóla og búnað- arfjelaga á búnaðarmáfefnin. Fyrverandi námsmenn skólans, skýrðu síðan frá störfum sínum í þarfirbúnað- arins, í röð, eftir því sem þeir höfðu útskrifastaf skóianum og mæltístmörg- um vel. Gátu þeir um búnaðarfjelög, er þeir hefðu unnið fyrir, og nauðsvn á ýmsum framkvæmdum á vissum grein- um jarðabóta og jarðrssktar. Ein'kur óðalsbóndi í Bót sýndi fram á, að búnaðarskólar og búnaðarfieiög hefðu aukið starfsemi heimilanna í bún- aðarframkvæmdum, en áður hefðu því nær eingar jarðabætur verið gerðar. í’ví næst hófust umræður um búnað- arskólana og fleiri búnaðarmál. í'á þakkaði Pjetur búfr. Stefánsson skólanum fyrir gagn það, er hann hefði haft af skóiaveru sinni, og kvað heim- ili skólans hafa sýnt starfsemi oj reglusemi. Jón Jónsson talaði síðan þakkarorð til skólastjóra og konu hans, og af- henti þeim vandaða stundakiukku að gjöf frá nemendum skólans, er skóla- stjóri þakkaði. I>á mintist Sigurður Antoníusson, fyr- verandi kennara Einars sál. Einarsson- ar og starfsemi hans við skóiarm. Síðan þakkaði skóiastjóri fundar- mönnum fyrir komuna, og alla velvild þeirra sjer og skólanum til handa, og óskaði öllum námsmönnum skólans hamíngjusamrar framtíðar, að þeir mættu verða landi sínu gagnlegir og nýtir menn. Var þá fundi slitið. Jónas Eiríksson, Sigurður Sigurðsson. Seyðisfirði Veðrið: Sd. 24. Júní -j- 12; sól kyrt. 25. -f- 11; sót, logn. 26. -j- ir; s. veður. 27. -f- 7, kyrt, þoka. 28. -j- 6; s. veður. 29. -j- 6; rigníng. 30. -j- 7; ofsa rigníng allan dag. 1. Júlí-j- 7; utan vindur. 2. -j- 8; logn, sól öðru hvoru. 3. -j- 13; sama Veður. 4, -j- ji; sól, logn. 5. -j- 10; sama veður. 6. X 9, ÞykB logn. 9. x 7;s. veður. Skip: 27. Júní, Argo fór út. 30. Hólar suður. Með þeim fór Pál! Ólafsson og kona hans og dóttir til Rvíkur. 4. Júlí. Snæfetl kom frá Einglandi; fór aftur í gær. Með því fór Mr. R. M. Heuctt til Einglands. 5. Vaagen fór utan. Fiskiafli góður var fyrir nokkru á Borgarfirði, en er nú iítill. Eins er hjer útifyrir fjörðunum; þó hafa menn aflað veí und3nfarandi daga hjer inni á kríngíunr.r. Dálítill kolaafli hefur einnig verið bjer inn við fjarðarbotninn. Fiski- skútur »Garðars« hafa aflað vel. Síðastl. Laugardag, áttu bæjarbúar funcl með sjer t Bindindishúsinu á Fjarðaröldu tll þess að kjósa nefnd til að undirbúa hátíðarhaldið hjer á Seyð- isfirði þ. 13. Ágúst næstkomandi. 19 manna mættu á fundinum. Kosnir voru þessir: Þórarinn Guðmundsson. Fr. Wathne. Andr. Rasmussen. Sig. johansen. H. I Ernst. Rolf Johansen. Jóhann Vigfússon. Brjefdúfa. Skipstjórinn á Morning Star, Hansert, skaut dúfu 51/0 mílu v. sv, frá Færeyj- um nál. svokölluðum Munk, 22. Júní. Um hægra fót dúfunnar var gúmmí hríngur merktur F. 581, en um vinstri fótinn hríngur. úr málmi (nýsilfri?) merktur T 340 W i& A 98. Báðir hríngarnir eru geymdir á skrifstofu Bjarka. Hvorki brjef nje neitt annað en þetta fanst á dúfunni. Til forstöð ö-k oim spitalans hjer á Seyðisfirði fyrst um sinn til 1. Október, hefur verið kosin frú Jóhanna Ketilsdóttir, þrátt fyrir meðmæli »Austra«. Ur ýmsum áttum. Háttvirti herra ritstjóri! í viðaukagrein við grcin mína til Bjarka um fn'kirkjuna í Presthólapresta- kalli segið þjer, að sjera Haldóri haft verié vikið frá embætti »sakir úlfúðar« við söfnuði sína. Hvaðan hafið þjer það? Viljið þjer ekki gera svo vel að segja alþýðu það, því jeg get ekki fyrir mítt leyti trúað slíkri fjarstæðu. Hjer er það kvisað, að sjera H. megi þakka afsetnínguna bituryrðum sínam um suma embættismenn vora og sitt segir hver Virðfngarfylst. Rift 26. Júní 1900. Jóhann Baldvinsson, Ath.: Bjarki taldi víst, að úlfúðin hafi að minsta kosti verið notuð sem ástæða. Björn Halsson á Rángá hjelt nýiega brúðkaup sitt til Hólmfríðar Eiríks- dóttur hreppstjóra í Bót. Hin dóttir Eiríks er sagt að hafi opinberað trúlof- un sína í sömu veislunni og er unn- usti hennar Pjetur Stefánnsson fyrrcm prests að Hjaltastað. 26. f. m. hjeldu þau brúðkaup sitt Sigfús Magnússon á Galtastöðum ytri í Túngu og Margrjet Björnsdóttir. f*ar var haldin fjölmenn veisla, hátt á ann- að hundrað mans. Alt á þetta fólk kyn sitt meðal merk- ustu manna á Hjeraði. Hreppstjóri í Túngu er útnefndur af ámtmanni Eiríkur Einarsson óðals- bóndi í Bót. Sýslunefndarmaður fyrir Hjaltastaða- þínghá var kosinn Þórarinn Jónsson í Jórvík. Margir höfðu búist við að Sig- fús hreppstjóri Hakiórsson á Sand- brekku yrði fyrir þeirri kosníngu, en kenna því um, að Austri flutti rjett á undan meðmæli með Sigfúsi. Smávegis. Prófessor Fiske £ Ftóreos á Ítalíu á stærra safn af íslenskum bók* um en nokkur annar einstakur maður. Árið sem leið hefur hann verið að koma skipulagi á bókasafnið og feingið til hjálpar sjer tvo íslenska stúder.ta frá háskólanum í Höfn, Haldór Hermans- son frá Velli á Rángárvöllum og Bjarna Jónsson úr Hreppunum í Árnessýslu. Annarhvor þeirra á svo að verða bóka- vörður hjá honum framvegis. í vor hefur hann einnig feingið Boga Th. Melsteð til að koma suður ti! sín og vera við niðurskipun á bóka- safninu. ^ggjageymsla. Danskur verk* maður, Peter Kristensen hefur fundið nýja aðferð til að geyma egg, sem er mjklu betri en allar áður þektar aðferðir. Hann hefur unnið að þessu í 12 ár með tilraunum og loks í fyrra afhenti hann kassa til landbúnaðarháskólans danska sem var innsiglaður og opnað- ur fyrst eftír 8 mánaða geymslu 5-Jan- úar í vetur og voru þá eggin að öllu eins og ný. Annar kassi var geymdur í Prívatbánkanum sama tíma og fór þar alt á sömu leið. Kristens. dýfir eggj- unum ofan í lög, en samsetníng lagar- ins er leyndardómur hans. Að verja 7000 egg kostar aðeins 150 aura. Svo ódýrt er það. Uppgötvun sína hefur hann selt enskurn eggakaupmanni- fyrir 600,000 kr. Kristensen er óbrotinn verkmaður og; svo fátækur að hann varð að fá eggin að iáni handa landbúnaðarháskólanum og hefur oft orðið að svelta til að geta haldið áfram tilraunum sínum. Trúboðar- Við 50 ár afmælishá- tíá trúarboðsfjelags eins á Einglandi sagði Salisbury lávarður alveg nýlega blátt áfram, að utanríkisráðaneytið bretska liti á ' trúboðana eins og fjöl- mennan skemdalýð, sem drægi úr hin- sm, hreinu áhrifum hins kristna trúar- Iærdóms og segir þá blaðið sem þetta flytur, að mjög mrkið vafamál sje að hve miklu leyti rfkin hafi rjett til aó siga styrjaldarhundunum á þjóðir, sem trúboðarnir hafi æst upp með yfirgángi sínum. Petta hafa nu þúsundir mauna fund- ið laungu áðúr, en það er samt gleði- legt að stjórnir stórveldanna fara rni að kannast við þá ábyrgð, sem hvílir á þeim fyrir að styrkja og vernda ókristi- legt trúboð og- ómannlegt meðal út- lendra þjóða. Leiðrjetting. I>essa leiðrjettíng verð jeg að setja við síðasta Austra: Hvorki í vor njc áður hafa nein- ir menn, lögfræðíngar nje aðrir, varið mál um það, bver þeirra væri hæíastur til að flytja mál fyrir hæsta rjetti. Um málfærslustöð- una við hæstarjeít keppa mesan ekki á þann hátt og geta ekki kept. Ulf Hansea og Dr. Ernst Mölles reyndu báðir að fá stöðuna og hlutu báðir. Ernst Möller fjekk sitt leyfi 28. Mars í vetur og neyð- ist jeg til að fáta þá Hof og stats- kalenders grúskarana, Ernst apó- tekara(?) og Skafta Jósepsson vera ómerka að öllu þvaðri sínu

x

Bjarki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.