Bjarki - 27.09.1901, Síða 3
að frá Sketlandi um Færeyjar af stóra norræna
málþráðafjelaginu. ■ En ekkert geta þau um
hluttoku annara ríkja í fyrirtæ'kinu, en það er
hún, sem á hefur staðið allt ti! þessa. Lík-
legast er, að í fregn þessari sje eitthvað bland-
að málum.
Stjórnarskrármálíð í Khöfn.
— o —
Eins og kunnugt er, sendi minnihlutinn
Hannes Hafstein til Khafnar strax í þínglok
til þess að túlka skoðanir þess fiokks á stjórn-
arskrármálinu fyrir stjórninni. Það er ekki vanda-
'aust hlutverk sem hann hefur þar feingið að
vinna. Því þessir svokölluðu flokksmenn hans
hafa einga sameiginlega skoðun á málinu.
Skoðanir þeirra eru í þeim efnum svo gjör-
•ólíkar innbyrðis sem framast má verða. Sum-
ir vilja alls eingar breytíngar frá því sem er,
aðrír vilja eitthvað meira en frumvarp meiri-
hlutans. Þessir minnihlutamenn gætu aldrei
orðið á eitt sáttir um nokkrar breytíngar.
Þeir geta aldrei samleið átt framar en dagux.-.
inn og nóttin. Þeir geta aldrei orðið sam-
taka til annars en þess, að sporna á rróti
öllum breytíngum, eins og átti sjer stað í
sumar.
í dönskum biöðum, bæði »Nationaltidende«
og »Politiken«, hafa komið franr greinar um
málið, ritaðar eftir viðtali við þá dr. Valtý og
Hannes Hafstein. Tveggjaráðgjafafrumvarpi
minnihlutans frá því í sumar segistPIannes nú
ekki vera fylgjandi leingur, því verði fram-
vegis alls ekki haldið fram. Um afstöðu
flokksmanna sinna ti! clöri frumvarpanna, land-
stjóra eða jarls með ráðaneyti, segir hann, að
»cf til vill sjeu nokkrir meðal þeirra, sem telji
slíkt fyrirkomulag markmiðið«. Það er auð-
fundið, að sjálfur er hann ekki í þeirra
tölu.
En hvað vill þá »flokkur« hans? Um það
hefur Hannes Hafstein ekki látið neitt ákveðið
uppi. Og við því er heldur ekki að búast.
1 þeim flokki vill einn þetta, annar hitt, enn
aðrir ekki neitt.
»Pólitiken« lætur. eins og við getum feingið
allt sem við viljum, sje sambandi Islands og
Danmerkur ekki raskað. En þetta er reyndar
ekki annað, en hægrimannastjórnin hefur áður
sagt. Blaðið vill láta setja nefnd at íslenskum
og dönskum mönrium til þess að koma málinu
'svo fyrir, að báðir geti verið ánægðir.
Annars er litið að marka, hvað dönsk blöð
segja um málið enn sem komið er. Hin nýja
stjórn er því alvcg ókunnug. Ilún hefur ekk-
ert um það sagt enn. Bæði hefur hún í mörgu
að snúast nú sem stendur, og svo er ekki
heldur við því að búast, að gersamlega ó-
kunnugir menn myndi sjer ákveðnar skoðanir
á málinu á svipstundu.
En í haust á að koma út konúngleg aug-
lýsíng, sem skýrir frá skoðun stjórnarinnar á
rnálinu.
Fregnir. sem borist hefur um það, að skipaður
yrði fyrir næsta þíng sjerstakur Islandsráðgafi,
hefur ekki við neitt að styðjast.
Seyðisfirði 27. seftember 1901.
Rigningar stöðugt fram vfir síðustu helgi og 'einnig
við og við þessa viku. Sunnanatt og hlý veðrátta.
Garðarsuppboðið byrjaði í gær, og er hjer fjöldi
manna aðkomandi, sem það sækja, til og frá aí land-
inu.
Skipin fimm voru seld í gær og keyptu þessir:
»G. í. C.« keypti etatsráð Bryde íKaupmannahöfn
á 6100 kr.
»GoIden IIope« keypti Sig. kaupm. Johansen á
6000 kr.
»Vesper« keypti sami á 5400 kr.
»E!dorado« kevpti Pjetur kaupm. Thorsteinson á
Bíldudal á 5100 kr.
»Morning Star« keypti framkva:mdarstjóri Fr.
Wathne á 4900 kr.
Jónas Kristjánsson Iæknir ernú kominn austur til
læknishjeraðs síns; har.n sest að í vetur annaðhvort
á Arnheiðarstöðum eða Klaustri í Fljótsdal.
ingólfi Gíslasyni cand. med. er veitt Reykjadals
læknishjerað og hann fiuttur þángað.
Nýtt blað ætla Akureyríngar að fara að gefa út.
Lað verður prentað hjá Oddi Björnssyni og ritstjór-
inn verður Einar Hjörleifsson. Hann er nú fluttur
norður. Blaðið kvað eiga að byrja 1. okt. og heita
»NorðurIand«.
Landburður af síld var á Eyjafirði nú um síðustu
helgi, hver nót og hvert net f'ullt. Síldargangan
byrjaði um miðjan mánuðinn. Ætiað var, að um
2000 tunnur mundu vera í einum lásnum, þeirra
Wathnes og Chr. Havsteens. Iriskiafii varogmikil]
þar nyrðra.
»Hólar« fóru fram hjá Borgarfirði síðast á suðurleið.
En þar biðu þeirra milli 40 og 50 sunnlenzkir sjó-
menn. »Ceres« var þá feingin til að hleypa inn til
Borgarfjarðar daginn eftir og flytja þá norður um
land og suður.
Frásögnin hjer á undan um kaupin á Garðars-
skipunum er tekin eftir uppboðsbókinni. En það er
fjelag sem boðið hefur í skipin öll. í gærkvöld
hjeldu fjelagsmenn fund til að skifta feingnum og fór
þá svo, að Sig. kaupm. Jóhansen hreppti tvö skip-
in, »G. I. C.« og »Vesper«, Lórarinn kaupm. Guð-
mundsson »Morníng star,« Pjetur kaupm. Thorstein-
son á Bíldudal »Eldorado« og Ólafur Árnason kaupm.
á Stokkseyri »Golden hope«.
Dýrast af skipúnum varð við skiftin »G. I. C.« á
7700 kr.
Hannes Hafstein kom heim úr Hafnarför sinni nú
í vikunni með »Ceres«.
Tryggvi Gnnnarsson.bánkastjóri, sem fór út með
Hannesi til þess að garfa eitthvað í bánkamálinu, er
einnig kominn heim aftur.
Jón Ólafsson býður sig fram til þíngs í Suður-
Múlasýslu.
Snemma í jiessum mánuði brann bærinn á Litla-
Eyrarlandi í Iíaupángssveit í Eyjafirði. Þar var
timöurhús, en óvátryggt. Skaðinn talinn á 4. þús.
kr. 130 hestar af töðu brunnu.
Baldvin Einarsson bóndi á Sólborgarhóli í Krækl-
íngahlíð fjell nýlega af hesti og beið bana af.
Þeir síra Halldór Bjarnarson á Sigurðarstöðum á
Sljettu og Páll bróðir hans hafa nú hver í sínu lagi
lögsótt ritstjóra Austra fyrir »Strandsögu« síra í*or-
leifs á Skinnastað, sem stóð í blaðinir 1. ág. síðastl.
Lað er þraungt í búi hjá Skafta nú sem stendur.
Austri er látinn lifa á því að prenta upp greinar úr
Bjarka.
tjl Upphjeraðs, allt út að Túngu og Hjaltastaðaþíng-
há, bæði með aðalpósti og Vopnafjarðarpósti, til Út-
hjeraðs, í Túngu, Hlíð og Hjaltastaðaþínghá með
Vopnafjarðarpósti. Með öðrum ferðum er biaðið
ekki sent nema því að eins að þess sje vitjað á afi
greiðslustaðnum. Letta er tekið hjer fram vegna
umkvartana einstöku manna um, að þeir fái blaðið
seint. Það liggur á ákveðnum dögum á viðkpmu-
stöðum póstanna, en ferð þess þaðan til einstakra
kaupenda getur útgefandi ekki ráðið.
»G!adys«, fjárfiutníngaskip frá Skotlandi, kom híng-
að snemma í vikunni og bíður til mánudags. það
á að taka 2000 fjár hjá Sig. kaupm. Jóhansen og eitt-
hvað af fje- frá Pöntunarfjelagi P'ljótsdæla.
Loiko Sóbar.
(Zigeuna saga).
—-;»:o:«: —
»Æ, jeg fell þjer til fóta, stæriláta drotn-
íng!« hrópaði Sóbar svo hátt, að hljómaði yfir
alla heiðina, fleygði sjer niður á jörðina, qm-
faðmaði og kyssti fætur hinnar Iátnu Röddu.
Hann lá hreifíngarlaus. — Við stóðum ber-
höfðaðir, hljóðir og óttaslegnir og horfðum á
þennan ömurlega leik. Hvað getur maður sagt
cða gert undir svona kríngumstæðum ? Og
jafnvel þó Núr gamli hefði skipað okkur að
binda hann, þá hefði einginn okkar hreyft
hönd nje fót gegn Loikó Sóbar. Núr benti
okkur að viðlskyldum gánga afsíðis. En Daníló
tók upp hnífinn, sem Radda hafði fleygt frá
sjer; hann horfði leingi á hann, en gráu hár-
lokkarnir á honum og skeggið nötraði af ó-
stillandi geðshræríngu. Hnífurinn var flugbeitt-
ur en hafði bognað og blóð Röddu litaði hann
enn fagurrauðan. Ailt í einu stökk Daníló
þar að, er Sópar lá og lagði hann með hnífn-
í hjartastað.
Hann var faðir Röddu, hann gamli Daníló
herniaður!
»Það var rjett gjört af þjer, nrælti Sóbar
skírt og skiljanlega og snjeri sjer að, Daniló.
— Síðan dó hann, — til þess hinumegin við
dauðan að samcinast Röddu.
Við geingum allir burtu.
Þarna lá Radda, starandi til himins og með
höndina þrýsta að sárinu; en við fætur hennar
lá hinn hugprúði Loikó Sóbar, með andlitið
hulið hárlokkum. Daníló gamli skalf og dökku
augabrýrnar hans hnykluðu sig. Hann stóð
þarna þögull og horfði til himins. En vesa-
lings gamli Núr fleygði sjer á grúfu niður á
jörðina og grjet svo sárt að líkami hans engd-
ist af ckka. — Þetta var líka sárt sorgarefni,
eða hvað finnst þjer, Fálki?
Þegar þú geingur, Fálki, þá gakk ætíð beint
áfram og hvarfla aldrei til hliða — ætíð beina
leið — heyrir þií það — Já nú er saga mín
á enda — Fálki.«
Makar þagnaði, Ijet pípu sína niður í tóbaks-
hylkið og hneppti yfirhöfnina yfir brjósíið, er
áður var bert Það fór að rigna, vindurinn óx
og hafdrunurnar urðu æ þyngri og reiðilegri,
og hestarnir komu lötrandi hver á eftir öðrum
og hnipruðu sig í kríngum varðeldinn, sem nú
var því nær útkulnaður.
Makar Ijet vingjarnlega að hestunum og
klappaði á makkann á uppáhaldshesti sínurr, cr
»Satan« hjet. Síðan sneri hann sjer til mín:
»Nú mun vera mál að sofna,« og hann sveip-
aði sig í kósakkaúlpuna og sofnaði þegar.
Bjarki er sendur til Hjeraðs með hverri póstferð;