Bjarki - 24.12.1901, Síða 3
sinni hálfu að hætt vcrði við útleggíng nýa-
testamentisins og það af henni ónýtt sem þeg-
ar er orðið til.
Tyrkland. Tyrkastjórn kvað nú leyfa
herskipi Frakka »Mouett«, að fara gegnum
Bosporus og þar með mun 'úllum ófriði milii
Frakka og Tyrkja lokið í bráð.
ÍSL. PÓLITÍK í KHÖFN.
Kvöldið 29. f. m. hjelt Finnur prófessor
Jónsson fyrirlestnr um stjórnarskrárþrætu okk-
ar í fjelagi danskra stúdenta í Khöfn. A eft-
ir urðu lángar umræður um málið.
Útdráttur úr því sem þar var sagt hefur
ekki sjest hjer enn. En Finnur Jónsson er
einn af þeim mönnum sem virðist allt vera
feingið rreð búsetu einhverrar ráðgjafanefnu í
Rvík, þótt völdin verði eftir sem áður í Khöfn
í höndum einhvers af dönsku ráðgjöfunum.
Auk Finns töluðu á fundinum Oktavius
Hansen málfærs'iumaður, N. I. Larsen þíng-
maður, Scavenius kammerberra, Klemens Jóns-
son sýslumaður og dr. Valtýr Guðmundsson.
Tveir hinir fyrnefndu Danir eru vinstrimenn,
hinn þriðji hægrimaður. Þeir voru allir sam-
dóma um það, að flytja mætti búsetu ráðgjaf-
ans til Rvíkur og Islcndíngar mættu launa
honum. Annars hafði komið fram í ræðum
þeirra ekki lítill skortur á kunnugieika á mála-
vöxtum.
Dr. Valtýr hefur sjálfsagt skýrt fyrir fund-
armönnum, að Íslendíngar tækju ekki við sams-
konar frumvarpi og tíumannafrumvarpinu frá í
sumar. Annars lýsti hann kröfum Islendínga í
hinurn eldri frumvörpum og hjelt fram því
fyrirkomulagi sem farið er fram á í frumvarp-
inu frá ’8g. Hann sagði, að slíkt fyrirkomu-
lag mundi ná almennu fylgi Islcndínga og þar
gæti hin nýa stjórn mætt kröfum þeirra.
Þetta fyrirkomulag taldi hann æskilegast.
Dr. Valtýr og flokksmenn hans gera sllt,
sem í þeirra valdi stendur, til þess að við fá-
um fullkomna heimastjórn, landstjóra, búsett-
an í Rvík, með ráðgjöfum eða ráðgjafa.
„Einkermileg; greftrun.44
— o —
Bjarki hefur verið beðinn fyrir svo látandi
svar uppá aths. Austra f síðasta tbl. með
þessari fyrirsögn:
Skafti Jósefsson hefur i síðasta tbl. Austra
minnst á jarðarför Sigurðar sál. Einarssonar
og þar sagt frá því, að ekki hafi verið súng-
in þau vers úr sálminum : »Allt eins og
blómstrið eina«, sem nafn Jesú Krists stend-
ur í.
Að sjerstaklega er getið um þetta virðist
benda á, að höf. álíti það á einhvein hátt
hneykslanlegt, annaðhvort fyrir viðkomandi
persónur, Sigurð sál. og ekkju hans, eða þá
sálminn og höfund hans, eða að hinn látni
hafi ekki virt svo mikið Krist og kenníngar
hans, að hann vildi hans minnst við jarðarför
sína.
Til þess að láta höf. og aðra skilja, að hann
hefur hjer strandað á skeri skilningsleysis og
þekkingarleysis á því sem hann talar um, þá
vildi jeg segja hjer að lútandi nokkur orð:
Höf. er það fullkunnugt, að þau hjón, Sig.
sál. og Arnbjörg ekkja hans, tilheyrðu eigi þjóð-
kirkjunni og ylðurkenndu ekki trúna á guð-
! dóm Krists og endurlausnarkenníngu kirkjunn-
! ar. Nú vill svo til, að í þessum sálmi — þó
! hann sje Ijómandi failegur — er þetta trúar-
| atriði einna greinilegast viðurkennt og játað
! af hinu andríkasta sálroaskáldi og mesta trú- \
i ;
j rnanni sem landið hefur átt.
! Finnst höf. nú nokkur samkvæmni í því að
þessi sálmur hefði allur verið súnginr. við þetta
tækifæri?
Getur ritstj. álitið a5 sálminum og höf. hans
' hafi verið gjörð nokkur vansæmd með því, þó
þessi erindi eigi væru súngin ?
í Jeg get als eigi sjeð það.
Einginn efast um að sálmaskáldið mikla
hafi trúað því sem hann tekur svo skýrt fram
: : sálminum, án þess þó að hann hafi ætlast
: til að sálmurinn samsvaraði trúaþörf alira um
' aldur og æfi.
j Ilvað hitt snertir, sjest það svo áþreifan-
) lega nú, eins og svo oft áður, hve þeir, serr.
! með þjóðkirkjunni halda verða sjer til opinberrar
j minkunar án þess þeir viti eða athugi það, að
j þeir jafnvel sjá ekki vit í öðru en því sem
í fult eraf hræsnis kreddumogyfirdrep-
skap.
| Hvað því þriðja viðvíkur þá veit jeg það, að
i hinn látni virti Krist og kenníngar hans og
breytti eftir þeim, svo að jeg efast um að
ritstj. komist þar með tærnar sem hinn látni
hafði hælana. Sigurj. Jóh,
Nii í höftum.
Niðurl.
Flóðgarðurinn við Assuan er 3 kflom. á
lengd. Hann er úr granit og hæðin .27 m.
yfir minnstu vatnshæð fljótsins. Breiddin að
ofan er hjerumbil 18 m. F.ftir þeim garði á
að leggja járnbtaut.
Til þess að byggja þennan garð varð að
veita fljótinu úr farveginum. Gegnum garðinn
eru 180 recnur, en iokurnar fyrir þeim og
umbúningurinn í kring úr stáli. Sá útbúnað-
ur er uppfundning ensks manns, F.M. Stoneys,
og er svo Ijett að lyfta Iokunum að hvert barn
getur það. Garðurinn við Assuan myndar vatn
sem er 225 kílom. á iengd og inniheldur eina
billjón tonria af vatni. 8500 verkamenn hafa
unnið að verkinu og skifst á, svo að sumir
hafa unnið á nóttunni, aðrir á daginn. Grjót-
ið, sem garðurinn er byggður úr, er höggvið
út úr sömu klettunum, sem forn-Egyftar
hjuggu úr Kleópötrunálina og fleiri stórsmíði
því lík og í sumum af þessum klettum sjást
enn förin eftir meitlana sem unnu á þeim fyrir
30 öldum.
Assíut 'er 500 kílom. neðar en Assuan. Flóð-
garðurinn þar er minni, en þó að mörgu leyti
merkilegri; hann cr jafnvel talinn eitthvert hið
merkilegasta mannvirki, sem gert hefur verið-
Þessi garður er alls ekki grafinn niður í botn
fljótsins til að fá undirstöðu, eins og garður-
urinn við Assuan, heldur er 3 m. þykkt og
26,5 m. breitt múrgólf ia_t á fijótsbotninn
12 m. undir lægstu vatnsstöðu fljótsins og
þetta múrgólf ber garðinn. Hann er Soo m.
á lengd og gegnum hann 111 rennur. Vestan-
við garðinn er 15 m. breitt sund,se.n skipum er
ætlað að fara um.
Verð hins ræktaða lands sem myndast við
vatnsVeiíingar frá þessum tilbúnu stöðuvötnum
er rciknað 11/2 millíarð króna. Þessi stórvirki
breyta gersamlega hinu núverandi ástandi Egyfta-
lands; það verður að líkindum mestu auðland
heimsins.
Flóðgarðarnir í Nrl eru hið stærsta mann-
virki, sem unnið hefur verið og verða ævaranui
mhnismcrki um yfirrúð Breta yfir Egyftaland’,
cins og pyramfdarnir gömlu standa enn sem
minnismcrki um velmegun landsins á döguiii
faraóanna.
Seyðisíirði 24. des. 1901.
Tíðin óstöðug. Undanfarandi daga stillur og góð-
viðri, en gekk í hríð í gær með mikidi snjókomu.
»Egill kom að norðan á sunnudagsnótt og fór hjeð-
an aftur í gærmorgun. Ilann kom með póst frá
Norður og Vestudandi og frá Reykjavík. Engin
stórtíðindi sögð önnur en bruninn á Akureyri.
Með Agli kom hingað Jón Ólafsson faðir Björns
ritstjóra Stefnis.
Skariatssóttin er nú komin í Loðmundarfjörð, að
Klippstað, og hcfur flest af fólkinu jrar veikst, bæði
fullornir og börn.
»NorðurIand« segir veikina mikið að breiðast út
í Skagafirði.
Fundur var haklinn nú fyrir helgina í Pöntunar-
fjelagi Fljótsdada til j)ess að velja ptöntunarstjóra í
stað Jóns í Múla. Kosningu hlaut Jón Stefánsson,
sá er híngað kom fyrir tveim árum úr Filippseyja-
ófriðnum. Auk hans sóttu KristjánBlöndal verslunar-
rnaður á Sauðárkróki og Hermann Jónasson búfr. og
al[)m. á Lingeyrum.
Jón í Múla er orðinn umboðsmaður L. Söllners við
kaupfjelögin hjer á landi, eins og Jón Vídalín var
áður, en mun ætla að búa hjer iramvegU.
2 fyrstu tölubl. af hinu nýa blaði Vestfirðínga,
»Arnfirðingis, eru nú komin. Hann er í nokkru
stærra broti en Bjarki, á að koma út 36 sinnum á
ári og kostar aðeins 2 kr. 50 au.
Lað lítur út fyrir að hann muni seljast vcl hjer,
því á lítilli stundu eftir að hann kom í land tjekk
hann um 20 kaupendur.
Alexar.der Durnas (framb. Dyma), hinn eldri
heimsfrægi rithöfundur með því nafni, bauð sig einu
sinni frain við kosningar til opinberra starfa og
mælti með sjér á þennan hátt: Hann hefði í sam-
flcytt 20 ár unniðiotíma á dag, eða í allt 73000
tíma og á, þessum 20 árum skrifað 400 rómanabindi
og 35 'eib.it Rómanarnir hefðu veitt setjurunum
við prer.t imiðjurnar atvinnu og laun sem næmu 264-
000 frat nkum, prenturunum 528000, pappírssölunum
633000, bókbindurunum 120000, bóksölumönnun-
um 2,400000, leigubókasöfnunum 4,5Scfooo, Að öllu
samantöldu sagði hann að rómanar sínir^hefðu veitt
692 mönnum stöðuga atvinnu í 20 ár með 3 fr. dag-
launum. Leikritin 35 sagði hann væru tij jafnaðar
hvert um sig leikin 100 sinnum og hefð.i leikhús-
stjórarnir feingið fyrir þau 1,400000 fr., leikararnir
1,250000 fr, leiktjaldasmiðirnir 210000. fatasölumenn-
írnir 149000. Ieikhúsaeigendurnir 700000, skradd-
ararnir 50000, klippararnir 93000, saungvararnir
157000 og fátækrasjóðirnir (í skatta) 630000. Sam-
tals hefðu leikritin veitt 1450 mönnum 'stöðuga at-
vinnu í 10 ár
Alexander Dumas fjekk sjálfur of fjár fyrir rit
sín, en hann eyddi því jafnskjótt og hann .túk á
móti því. Þegar hann dó fundust hjá honum einir
20 fránkar, en.þá hafði hann tekið til láns hjá syni
sínum.