Bjarki - 10.11.1903, Blaðsíða 3
3
B J A R K I.
Quy- de Maupassant.
Quy de Maupassant, sem nokkrar sögur hafa verið
þýddar hjer eftir, er heimsfrægt skáld franskt, f. á
herrasetrinu Miromesnil 5. ág. 1850. Hann gekk skóla-
veginn og átti að verða embættismaður, en hvarf frá
því og lagði fyrir sig ritstörf. Hann byrjaði á því
undir handleiðslu skáldsins Flauberts, sem var guð-
faðir hans, og ljet sjer eins ant um M. og hann
hefði verið sonur hans. Flaubert eyðilagði fyrstu rit-
smíðar hans hverja eftir aðra og kendi honum að
vanda sig. 1880 kom M. fyrst fram sem rithöfundur
með kvæðasafn og litla skáldsögu. En á næstu tíu
árum ritar hann svo mikið að undrum sætir, mest
stuttar skáldsögur, en þó einnig lánga rómana. Hann
varð á skömmum tíma mjög frægur og skáldsögur
hans voru þýddar áöll túngumál hins menntaða heims.
Hann er talinn mestur „realísti “ ('ranskra skálda. En
það lítur svo út sem hann hafi ofreynt sig á þessum
árum. Síðustu bækur hans bera vott um þúnglyndi.
1802 fjekk hann heilasjúkdóm; hann grunaði, að þetta
væri byrjun til brjálsemi, og gerði tilraun til að fyr-
irfara sjer, en hún mistókst. Brjálsemina gat hann
ekki umflúið, en dó skömmu á eftir, 6. júlí 1893.
Frá Vesturíslendínsrum.
Síra Oddi Gíslasyni er vikið úr kirkjufjelagi
Íslendínga í Vesturheimi, og það af þeirri merki-
legu ástæðu, að hann þykir fara með »kukl
og galdra» í Iækníngastarfsemi sinni. I vestan-
blöðunum hefur nú síðustu missirin mátt sjá
mjög einkennilegar auglýsíngar frá þessum
nútímans galdrakarli, og víðftægir hann þar
lækníngar sínar bæði í bundnu og lausu máli.
Á kirkjuþíngi Islendínga í sumar var honum
boðið að láta af galdri sínum, eða vera burt
úr kirkju Krists þar í landi, og kaus hann
heldur hið síðara. Undanfarandi hefur hann
haft styrk frá kirkjufjelaginu sem einn af trú-
boðum þéss, en hefur jafnframt rekið erindi
Kölska hjá sjúkum mönnum með galdri sínum.
Nú er hann þá geinginn í Kölska þjónustu
eingautigu.
Pjetur Hjálmsson guðfræðiskandidat var
ráðinn af kirkjuþínginu í sumar sem missións-
prestur með 720 dl. árslaunum og sömul. sr.
Einar Vigfússon frá Desjarmýri um fjögra mán-
aða tíma.
Jóhann P. Sólmuiidarson er orðinn prestur
únítarasafnaðarins í Winnipeg.
»Dagskrá II., sem Sig. Júl. Jóhannesson o. fl.
hafa gefið út, er nú liðin undir lok sem blað,
en á að koma út sem tímarit frá næstu ára-
mótum.
Síra Friðrik Bergmann verður næsta ár, eins
og undanfarandi, kennari í íslenskum bókment-
um við Wesley College í Winnipeg.
Frú Huida Qarborg^
sem hjer var á ferð í sumar, hefur ritað
laung og skemtileg ferðabrjeí í Dagblaðið í
Kristjaníu. Hún fór landveg frá Húsavík til
Akureyrar og með henni þýsk kona, frú H.
Frú Garborg þykir landið fagurt og miklu
byggilegra en hún bjóst við. Islensku torf-
bæirnir þykir henni miklu fallegri en timbur-
á gráa ótemju, sem jarðvarpaði henni strax,
en síðan upp á áburðarhest, sem lagðist með
hana. Kveðst hún hafa sagt honum óspart til
syndanna, en hann sagði »já« við öllum henn-
ar ávítum, skyldi ekki annaðhvert orð, sem
hún talaði.
Er því ílla farið þegar merkir ferðamenn út-
lendir hitta á ónýta leiðsögumenn.
Mjölnir
kom frá útlöndum á fimmtudagsmorgun. Með
honum voru á leið frá Ameríku sr. Halldór
Bjarnarson í Presthólum og Páil útflutníngs-
stjóri bróðir hans, ennfremur Sigurður Jónsson
frá Helluvaði við Mývatn á ieið frá Skotlandi;
hefur henn verið eftirlitsmaður með fjárflutn-
íngunum frá norðurlandi í haust.
Hjeðan fór Sigurður Jónsson til Vopnafjarð-
ar og D. Östlund til Akureyrar,
Fjárútílutníngurinn
til Einglands hefur geingið vel í haust þar
til nú með seinasta farminn, frá Borðeyri. Skip-
ið hreppti óveður og var níu daga á leiðinni.
Marga daga í röð var ekki hægt að brynna
fjenu. 150 kindur drápust á leiðinni og margt
af fjenu var sjúkt þegar til Einglands kom,
Oddrúnarmálið.
Bjarki hefur nú feingið að kynna sjer rannsókn
Axels sýslumanns Tuliníusar á þessu máli.
Rannsóknarprófin eru svo laung að ekki er
hægt að gefa yfirlit eða skýrslu um þau í stuttu
máli. En við yfirlestur prófanna hlýtur hver
maður að gánga úr skugga um, að framburð-
ur Oádrúnar getur ekki staðist, enda komst
rannsóknardómarinn skjóttað þeirri niðurstöðu.
Þar sem hann úrskurðar, að setja skuli hana
í gæsluvarðhaid kemst hann svo að orði:
»Dómarinn tilkynnti Oddrúnu S'gurðardótt-
ur, að sökum þess að við vitnaleiðslur þær,
sem íram hafa farið í májinu, hafi fram komið
miklar líkur fyrir því, að húti vísvitandi hafi
borið fram ránga st'ýrslu fyrir rjetti og að á-
stæðulausu kært menn fyrir þjófnað, þar eð
skýrsla hennar kemur í mótsögn við skýrslur
vitnanna og jafnvel framburður hennar fyrir
rjetti eigi kemur heim við skriflega skýrslu
hennar, álíti hann rjett að hafa hana í gæslu-
varðhaldi fyrst um sinn þar til málið verður
betur upplýst.c
Nokkur af vitnunum sem leidd hafa verið
hafa svarið, að Oddrún hafi í áheyrn þeirra
áður talið aðra nafngreinda menn valda að
þjófnaðinum, og það eftir að hún hefði átt að
hata fulla vissu um málið, ef skýrsla hennar
væri rjett.
Vottorð hafa verið lögð fram fyrir rjettinn
um alibi annars af þeim mönnum, sem Odd-
rún ákœrir, þegar þjófnaðurinn fór fram.
Rannsóknardómarinn lýkur starfi sínu hjer í
þetta sinn með þessum orðum:
» . . var rannsókninni á Seyðisfirði frestað
og ákvað dómarinn að taka Oddrúnu Sigurð-
ardóttur með sjer á Eskifjörð til frekari rann-
aður aðeins til þess að rannsaka framburð og
skýrslu Oddrúnar.
Vestanblöðin.
Bjarki biður hjer með útsendíngamenn Vest-
urheimsblaðanna íslensku að bæta við utaná-
skriftina til sín: Via Copenhagen, eða: Via
Stavanger, þvf þá mundu bloðin komast miklu
fyr híngað, ekki flækjast frá Einglandi upp til
Reykjavíkur og liggja þar, eða einhversstaðar
á leiðinni þaðan, ef til vill mánuðum saman.
Dáin
er 17. f. m. Þórdís Eiríksdóttir, kona Jóns
bónda Jónssonar á Skjöldólfsstöðum á Jökul-
dal, merkiskona. Hún var tvígift. Fyrri mað-
ur hennar var Þórður bóndi á Skjöldólfsstöðum
Einarsson prests Hjörleifssonar í Vallanesi.
Börn hennar af fyrra hjónabandi eru síra Einar
alþm. í Hofteigi, Þórðar bóndi á Fossi í
Vopnafirði og Þóra Margrjet, áður gift Þórði
bónda á Arnórsstöðum, en dáin 1897. Þau
Jón og Þórdís áttu eina dóttur, Þorvaldínu.
Af vangá
hefur niðurlag sögunnar „Á Ferð" fallið úr þessu
blaði, en kemur í næsta blaði.
Kvittanir;
VI. ár: Sigfús Björnsson, Reykjahiíð.
VI. og VII- ár: Jón Stefánsson, Litluströnd.
VII. og VIII. ár: Jón Teitsson, Seyðisfirði.
VIII. ár: Stefán Stemholt, Sf.; Páll Árnason, Sf.;
Stefán Jóhannesson, Bæ, Skagaf.; Gunnar Ólafsson,
Vík/Mýrdal; Vigfús Eiríksson, Sf.; Kr. Jónsson, Staf-
felli; þorbjörg Björnsdóttir, Sf.; Kristm. Bjarnason, Sf.
Erl. Erlendsson, Sf.; Jörgen Bqnediktsson, .Sf.; Pálina
Vigfúsdóttir, ;Sf.; þorst. Jónsson, Brimnesi; Vil-
hjálmur Árnason, Hánefsstöðum; Ól. Pjetursson, Sf;
Jón Kristjánsson, Skálanesi, Árni Steinsson, Bakka-
gerði; Finnur Einarsson, Sævaranda; Baldv. JóJiannes-
son, Stakkahlið; Th. Tuliníus, Khöfn; M. Einarsson
Thorshavn, Færeyjum; Ásgr. Guðmundsson, Húsey;
B. Pálsson, Brekku; þórarinn Jónsson, Jórvík; Jón-
as Eiríksson, Eiðum; G. Pálsson, Ásgeirsstöðum;
Einar Þórðarson, Eyvindará; Porv. Jónsson, Upp-
sölum; Sigbj. Björnsson, Ekkjufelli; Björn Hallsson
Rángá; Sigbj. Björnsson, Litlabakka; Kr. Kristjáns-
son, Ekkjufelli; Ermenrekur Jónsson, Rvík; Vilhjálmur
Hjálmarsson, Brekku; Jón Jónsson, Sf; Porsteinn
Jónsson læknir, Vestmannaeyjum; Sig. B. Jóhannes-
son, Tjörn; Árni Jóhannsson, Sf.; Ben. Sveinsson,
Firði.
Jlífsábyrgdarfjelagið Dan
í KAUPMANNAHÖFN
tekur að sjer iífsábyrgðir á Islandi fyrir lægra
iðgjald en nokkurt annað fjelag. I þessu fje-
lagi geta menn með góðum kjörum- tryggt
sjálfum sjer ellistyrk, -eða ættingjum sínum
lífrentu, og hvergi er eins ódýrt að vá-
tryggja börn á hvaða aldri sem er, og í þessu
fjelagi.
Af ágóða fjelagsins eru 8/4 hlutar borgaðir Q-e-
lagsmönnum í bonus.
Vátryggið því líf yðar eða barna yðar, eða
kaupið yður lífrentu eða ellistyrk í DAN!
Aðalumboðsmaður fjelagsins á íslandi
gefur allar frekari upplýsíngar.
St. Th. Jónsson
Seyðisfirði.
t'VVi't Á *» K i'iaíA I-Art „„í
óánægð með fylgdarmann sinn frá Húsavík, i Axcl sýslumadur Tuiiníus hafi verið skipaður I 1 h. JÓHSSOn
Jóhannes, því fyrst setti hann þýsku frúna upp j'til að rannsaka þjótnaðarmálið; hann var skip- j á Seyðisfirði