Bergmálið - 17.07.1899, Síða 2

Bergmálið - 17.07.1899, Síða 2
BEKGMÁLIÐ, MÁNUDAGINÍT 17. JÚLÍ 1899. GEFID UT AD GIMLI, MANITOBA PEEliT'B.AJO I PE.BlTTSMtDT'C ,, S^T _A. Eitstjóri (Editor): G. M. Thompson. Business Manager: G. Thorsteinsson (l ár . $1,00 BERGMALIÐ kostar: \ 6 mán. ... $0,50 { 3 mán. $0,25 Borgist fyrirfi'am. AUGLÝSINGAR: Smá áuglýsingar í eitt skifti 25 cents fyrir 1 þuml. dálks- lengdar, 50 cents um mánuöinn. A stærri auglýsingar, eða auglýsingar um lengri tíma, afsláttur eftir samningi. Viövíkjandi pöntun, afgreiðslu og borgun á blaöinu, smii menn sér til G. Thorsteinssonab, Gimi.i. Utanáskrift til ritstjórans er: Editur Berymdlið, P. 0. Eox 38, Gimli, Man. Einkenllileg■ staöhæfing'. í júní-blaðinu af „Ereyju“, sem Mrs. M. J. Benediktsson gefur út í Seikirk, birtist grein, sem þýdd er iu hinu aineriska tímariti „Eeview of Eeviews“. Eyrirsögn greinarinnar er : „Eldsneytislaus hiti“(!). ífeðan við grein þessa, gerir þýð- andi hennar svo látandi athugasemd : „Sé hægt að komast af án eldiviðar(,) er útséð um járnbraut til Nýja-íslauds“. Ilver svo sem þessi þýðandi er, þá gerði ég mér samt þá huginynd um Mrs. Benediktson, að henui hlyti að vera það ljóst, að það eru íleiri skilyrði fyrir því, að járnbraut verði lögð tii Ný-íslands, en eldiviðarskort- ur; og þó að hún—sem ritstýra—á- líti þessa staðhæfing þýðandans—sem auðvitað er gripin úr lausu lofti— vera fullgilda staðhæfiug, þá skeikar henni þar. Skilyrði fyrir því, að vilja og geta fylgst með menningarstraumnum, er ekki það, að stara einungis á einn einasta depil. Andi mannsins nær aldrei háu þroskastigi mcð slíku þröngsýni, og uppskeran verður afar lýr. Og þótt nú Mrs. Benediktson, álíti okkur Ný-íslendinga á svo lágu menningarstigi, að eina skilyrðið fyr- ir því, að járnbraut verði lögð hing- að sé það, ef þurð kynni að verða á viðarsprekum, til að „stiuga undir katlana“ í stór-hæjunum, þá mun samt sá fíini koma, að Ný-ísland mun hlómgast og þróast, án þess aðþurfa að nota skilyrði hennar (Mrs. B.) sér til framfærslu. Og þótt að Mrs. B. vilji ekki verða hluttaki vor í framsókn vorri, þá mun tíuiinn leiða í Ijós, að frumskilyrðin fyrir því, að Ný-ísland komist í samband við umheiminn, eru hvgð á öðruni grundvelli, en hlað hennar dreymir um. Ný-Islendingar þurfa því ekki að óttast, að þó að Nikola Tesla takist að fullkomna svo hugmynd sína, með að framleiða hita, án þess að nota til þeirrar framleiðslu nokkurt elds- neyti, að sú uppfinding verði til þoss, að steypa Ný-íslandi niður í djúp menningarleysis og svía því frá um- heiminum um aldur og'æfi, hvað svo sem „Froyja“ staðhæfir. Likamleg-t uppeldi barna. Eftir A. Hebtel, danskan héraðslækni. --------------o----- I. Af mörgum rannsóknum, sem gerð- ar hafa verið á öllum Norðurlöndum um heilsufar skólabarna á síðustu tutt- ugu árum, verður að álíta það full- sannað, að hinn uppvaxandi æskulýð- ur sé alls ekki svo heilsugóður og þróttmikill, sem æskilegt væri, held- ur sé mei'ri hlutur hans blóðlítill oo- o taugaveiklaður. Einkum á það við stúlkuböiTÍn; á gelgjuskeiðinu er að minsta kosti helminguriun af stúlk- unum í œði i skólunum þjáðar af hlik- sótt, höfuðverk og taugaveiklun; af því verða þær meira og miuna van- megna og óhæfai til að ganga í skól- ana. Betta sést á öllum limahurði þeirra; þegar þær sitja, liniprast þœr saman og hryggurinn þognar í mörg- um þeirra, og kemur það af þeirra magnlausu vöð\ agerð. En taugaveikl- unin og afl-levsið kemur ekki að eins fram í líkamaDum, heldur ber fult svo rnikið á þessum veikleika í hinum andlegu efnum, sem sýnir sig í skortj á starfslöngun, hirðuleysi, sleni og leti,eða þá þvert á móti í dutíunga- semi, frekju, breytingagirni og æs- andi skemtunum o. s. frv. Jafnframt eru gerðai' miklar kröfur til námsins, svo að unglingarnir verði færir um að komasl áfram og standast hina miklu samkepni í öllum efnum. Próf eru iðulega tekin og gerast sífelt heimtu- frekari. Einkum er það að verða al- gengt, að uppeldi stúlkna sé lokjð með opinheru prófi. Það dugar naumast að berjast gegn þessari stefnu tímans, en af því það er mjög þýð- ingarmikið, að hinn uppvaxandi æsku- lýður, og einkum liinar tilvonandi mæður, sé svo heilbrigðar og þrótt- miklar sem verða má, og af því vér vitum, að taugaveiklun mjög auðvehl- lega gengur að erfðum frá foreldrum til barna, þá hlýtur það að verða ætlunarverk vort að berjast inóti þess- ari almennu veiklun og lasleika æsku- lýðsina með skynsamlegu uppeldi. Heimilin og skólarnfr verða hér að taka höndum saman, enda hafa mjög miklar breytingar til hins betra með busakynni verið gorðar í ýmsum skólum, jafnvel þótt mörgu sé enn ábótavant. Hér skal þó einknm minst á það sem gera má í þessu efni á heimilunum. Það þarf ekld að hregða foreldrum nú á tímum um skort á umhyggju fyrir börnunum, heldur skipa þau víða fullmikið öndvegi; það er vak- að yfir þeim með alt of mikilli á- liygg’j« meðan þau eru lítil. Þagar þau stækka er tekið ofmikið tillit til þess sem þau segja og ofmikið látið eftii' þeim, svo þeim finst þau vora sjálf heilmiklir mcnn. Uppeldið á að stjórnast af ást og jafnframt festu. Það er óþarfi að vera dauðhræddur ura, að ofurlítið kvef sé byrjunin á öllum mögulegum hættulegum sjúk- dómum. Frá því hörnin hafa fyrst vit á, skyldi venja þau á hlýðni og aga, og tauganæm hörn þurfa að gefa sig á vald rólegum, ástúðlegum, fóst- um vilja. Með því læra þnu að stjórna geði sínu og hvorki stór-reiðast né gráta af hvo litlu som ámóti blæs. Hafi fyr á tímum börnum verið hegot °f °ft og harðlega, þá ímjmda ég mér, að nú geri monn oft þvert á móti; það er látið eftir þeim, til að losast við þau, í stað þess að kenna þeim að hlýða með rósemi og festu. Það er alls ekki nanðsynlegt að hegna; þegar böruin mæta föstum vilja, læra þau fljótt að beygja sig og láta undan, án þoss að gremjast við sneipur og undanfœrslu. i II. c Ekki dugar heldur að vera of i hræddur um að börniu ofkælist, þótt > þau fari eitthvað út. Þ.ið verður að s herða þau meö skynsemd og varkárni, i frá því þau eru ung. Það má hold- i ur ekki dúða þau syo, að þau líti út í eÍDs og eintómur fataböggull eða í klæðastrangi. Þegar þau geta farið j að hlaupa, verða þau að fá að hreyfa t sig frjálslega, og þá er þeim ekki i ■ nærri því eins hætt við ofkælingu, þegar þau venjast því að vera létt klædd, eins og þegar þau eru dúðuð í klútum, treflum og sjölum innan- undii' kápunni þegar þau fara út. Það á snemma að venja þau við að þvo þeim um allan líkamann úr köldu vatni; að vetrinum má taka kulið úr því. Auðvitað er sjór beztur, þar sem í hann næst. Bezt er að þau séu úti svo míkið sem unt er og ástæður leyfa, því það er það bezta meðal til við- halds og styrkingar heilsunni, og ætti því að nota það í f'ullum mæli. Lát- ið börnin fá sérstakt leiksvið; það þarf ekki stórt, en þar verða þau að fá að leika sér sem þau vilja. Látið þau hafa rúmgóð hlý og óvönduð föt, einkum til utileikjanna, sem þau mega ólireinka. Þegar þau koma inn, eru þau auð vitað oft óhrein, en þegar hú- ið er að þvo þeim um hendur og and- lit, þá eru líinnarnar rjóðar, augun fjörleg, og matarlystin ágæt. Ágætt er að hafa smásteinahrúgu á leiksvæðinu. Lítil börn una löng- um við að leika sér að þeim, einkum ef ímyndunarafl þeirra er vakið moð því, að sýua þeim hvernig megi búa til ýmislegt úr því. Þótt hörnin séu látin ganga úti spottakorn daglega, þá vegur það ekki múti því, að þau hafi lientugt leiksvið, þó sumstaðar verði ekki komið öðru við, því börn- unum er eðlilegast að hlaupa og leika sér sem sjálfráðust, og þau þreytast ótrúlega seint á því. Á barnsaldrin- um eru leikir og lireyfingar lífs-skil- yrði, alveg eins og matur og drykkur. Það þýðiugarmesta og áhrifamesta tímabil barnæskunnar er þegar þau fara að byrja nám, annuðhvort í skól- um oða heimahúsum. Þá tekur hið áhyggjulausa cbundna líf þeirra enda; þau fara að fá skyldustörf, sem þau hafa ekki þekt fyr. Hugsanir þeirra og áhugi snúast uú að meira eða minna leyti um það. Þessi mikla breyting á öllu lífi og venjum barns- ins hlýtur að hafa áhrif á þroska og framfarir þoss. Fari þiu í skóla, eða só farið að kenna þeim áður enn þau eru orðin nægilega þroskuð andlega og líkamlega, eða leggi náinið þeim of miklar byrðar á horðar, svo þau verði að herða að sér fram yfir það sem kraftar og aldur þeirra leyfa, þá minkar vellíðun líkamans; þau missa matarlystina og veiða föl, fjörlaus og máttlítil. Eu það, sem barnið missir á fvrstu námsárum sínum af fjöri, lífs- gleði og kröftum, því nær það ekki íljótt aftur. Vér vitum af ýmsum rannsóknum, er benda á, að lasleiki

x

Bergmálið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmálið
https://timarit.is/publication/29

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.