Ísland


Ísland - 20.02.1897, Page 2

Ísland - 20.02.1897, Page 2
30 ISLAND. ÍP“ SE[=i=T=l=r=i=i=t=ifcr3 =75 I=t=^=t=Eí^i=t=i=i I íií fi ÍSL-AND. Ritatjöri: Þorsteinn Gíslason. Skrifstofa: Þing-holtsstræti 7. Prentað í: Fjelagsprentsmiðjwnni „ÍSL.4ND" kemur út hvern laugardag á þessnm áraf)6rðungi fjanúar—rnars), 13 hlöð alls. Áskrift bindandi þrjá mánuði. Hver ársfjórðungurhorgist fyrirfram um leið og blaðið er pantað og kostar 1 Reybjavik 70 au., útum land 79 au., erlendislkr. Póstafgreiðslumenn og brjefhirðingamenn taka móti áskriftum og borgun fyrir blaðið og kvitta Ifl fyrir. Reykvikingar og þeir sem i nánd við Rvik búa geta pantað blaðið í bðkaverslun Sigfiisar Eymumlsaonar, í verslunarbúð Björns Kristjánssonar, hjá kaupmanni Kr. Ó. Þorgrímssyni, hjá hr. Júlíus Jörgensen, Hðtel Island, hjá útgefanda blaðsins. ^T=l=T=l=1=l=f=l=T=l=T=l=T=i=T=i-=r~r ~r=i=T=l=T=l=T 3® ist. Menn haía nú byrjað að rækta tún og mýrar, en það hefur onn þú einginn ræktað skóg, og þó er það afar-þýðingar- mikið. Áf því, sem jeg þegar hef ritað um þýðingu skógarins fyrir gróður og jarð veg, sjá menn, að þeir eru afarnauðsyn- legir; það er næstum því óþarfi að taka það fram, að fyrir þjóð, er verður að kaupa hverja spítu dýrum dómum frá útlöndum, er það svo brýn nauðsyn, sem framast má verða, að rækta skóg í landinu. En menn verða að reyna fyrir sjer, finna út hverj- ar trjátegundír þrífast best, og þær til- raunir á landssjóður að kosta; og þessar tilraunir á að byrja sem fyrst, og til þess að framkvæma þær, á að útvega duglega menn, er færir eru um að leysa verkió af hendi. — Þegar tilraunirnar hafa sýnt, hverjar trjátegundir eru best falinar til ræktunar á íslandi, eiga bændurnir að taka við og rækta skóga á jörðum sínura, þar sem unnt er, en landið á að sjá um, að þeir fái leiðsögn við starfið og þekking þeirra sje aukin sem framast má verða viðvíkjandi þessu og öðru. Það er ekki nóg að hætta að drýgja sömu syndir og forfeðurnir, heldur verður þessi kynslóð að byrja á því mikla verki, að bæta fyrir brot forfeðranna. Forfeð- urnir hafa eytt gróður landsins svo að segja milli fjalls og fjöru, en yðar verk er að rækta landið milli fjalls og fjöru. Ef þjer hefjið það starf og haldið því á- fram með hyggindum og dugnaði, munuð þjer með því reisa yður þann bautastein, er stendur um~;aJdur og æfi. Kaupmannahöfn, í jan. 1897. Helgi Jónsson. „Forlegin” meðul. L Vjer þekkjum allir það alþýðu orðtak um meðul, sem þykja aðgjörðalítil eða of seinvirk: að þetta sje „forleginn fjandi“. Meiningin er, að meðalið sje búið að standa svo leingpá hyllunni hjá lifsölumanninum eða lækninum, að það sje búið að tap i hínura upprunalega krapti sínum. Enda þótt þessi dómur um læknismeð- ulin kunni opt að vera ástæðulaus sleggju- dómur, þá er þó hugsunin á rökum byggð, og þstta á vlð um svo mörg anuars kon- ar hjálparmeðul; þau geta tapað hinum læknandi eða lífgandi krapti sínum, orðið „f')rlegin“. ef þau eru ekki yngd upp eða aukin krapti jafnóðum og stundir líða fram. Stjórnarfyrirkomuhgið, í hverri grein sem er, f'rá hinu lægsta stigi til hins æðsta, og allar fjelagslegar framkvæmdir, sem heill einstaklinga, smærri eða stærri hluta þjóðfjelaganna eða heilla þjóða er undir komin — alit þetta eru „forlegin“ meðul, ef það ekki tekur þeim breytingum, sem tíminn krefur, og nauðsynlegar eru til þeirrsr framþróunar og útliðunar, er að rjettum eðlislögum hlýtur að eiga sjer stað hjá öllum siðmenningarþjóðum. Sje þessi þjóðlífs-hjálparmeðul „forleg- inn fjandi“, geta þau heft og hindrað framsóknina um skemmri eða leingri tíma. Og þetta á sjer stað hjá allmörgum þjóð- um meira og minna. Af þjóðlöndum Norð- urálfunnar eru líklega tvö: Rússland og ísland, byrgust af slíkum meðulum. Og heilsu-ástand þjóðanna, er lönd þessi byggja, er ljósastur vottur um þetta. En iátum nú veslings Rússann um sitt, og lítum á fátt eitt heima fyrir. „Hver er sjálfum sjer næstur“. Það má þá fyrst benda á landsstjórnar- fyrirkomulagið. Um það ber öllum saman, hversu skiptar sem skoðanirnar eru um einstöku atriði, að það sje óþolandi að hafa stjórn þessarar eyjar, er liggur norður und- ir heimskauti, í höndum þjóðar, er býr suður undir miðju álfunnar við alls-ólíka háttu og ókunn tungu og högum eyjarbúa. Þetta band, sem teingir oss við Danmörku, er nú orðið svo fornt, svo „forleginn fjandi", að það dugir ekki leingur til að vera oss hjálparmeðal til þjóðhagsbóta. Auðsætt má því vera, að vjer þurfum eingra verulegra þjóðþrifa eða framfara að vænta, fyr en vjer komum oss saman um ráð til að teygja svo á þessu bandi, að það hindri oss eigi í hreifingum, eða að öðrum kosti slíta það með öllu. Á sama hátt má halda niður á við og benda á forneskjuna í flestu. Rjettarganguriun byggist að flestu á svo gömlum grundvelli og er svo þungfær og kostnaðarsamur, að óhæfa er fyrir svo fá- menna og efnalitla þjóð. Margur maður verður þvi að láta rjett sinn, og margir hafa orðið öreigar fyrir að halda máli til streitu — og að síðustu þurfa að eiga úrslitin undir dómi annarar þjóðar dóm- enda, sem í raun rjettri ekkert vita hvað þeir dæma um! Þá er embættaskipunin. Væri dóma- skipaninni breytt, mætti fækka um helm- ing sýslumönnum, og yfir höfuð er ósköp lítil ástæða til að halda stjórn svo spak- látrar og fámennrar þjóðar æ í sama horfi og jafn dýrri, þó samgaungur greiðist og menntun aukist hjá alþýðu, eins og nú er komið. Fátækralöggjöfin er i mörgu úrelt og óhagkvæm. Af því stafa sveitarþyngslin, þessi óbærilega skattálaga á þjóðinni, auk þess sem það hefur spillandi áhrif á hugs- unarháttinn, drepur sómatilfinninguna hjá þiggeudum en mannúðina hjá gjildendum — áhrifin eru þjóðspillandi. Hið sama má að miklu leyti segja um hina kírkjulegu löggjöf, og mun rjettast að hafa eigi um það fleiri orð að þessu sinni. Þá er aðferðin við atvinnureksturinn í ýmsum greinum ekki síður „forlegin", gömul og úrelt, þjóðinni fremur tii heilsu- spillis en þrifa. Þar er verslunina fyrst að telja. Hún er enn víðast um land í mörgu með eldgömlu ólagi. Sama má segja um marga búnaðarhætti til lands og sjáfar. Þetta þarf allt að breytast, ef nokkur framsókn á að geta átt sjer stað. í sams konar „forlegu“ eða ellingar- ástandi eru einnig sum fjelög þau, er mynduð hafa verið í þeim iofsverða til- gangi í fyrstu, að styðja framfarir í at- vinnurekstri. Má t. d. nefna búnaðarfje- lögin og þá sjerstaklega hið verulegasta þeirra og efnugasta: „Búnaðarfjelag Suður- amtsin8“. Samkvæmt lögum þess, sem halda sjer breytingarlítið frá því það varð til, er stjórnarnefndin búsett í Reykjavík, og fundir þess ætíð haldnir þar. Má því svo heita, að fjelagið sje algjörlega í höndum nokkurra manna í Reykjavík, sem auðvit- að verða að hafa öll afskipti af því í hjá- verkum, þar sem flestir þeirra eru em- bættismenn, sem eingar sjerstaklega knýj- andi hvatir geta haft til að vinna fyrir fjelagið. Það er ekki lögum fjelagsins nje fyrirkomulaginu á stjórn þess að þakka, þó heppnast hafi að skipa stjórnina mönn- um, sem eptir ástæðum hafa staðið furðu vel í stöðu sinni, og má hin núverandi stjórn fjelagsins ekki síst eiga það lof. En þar er líka mest undir komið með framkvæmdir fjelagsins, sem stjórnarnefnd- in er. Fundirnir bæta ekki mikið úr slíku. Á þeim mæta opt þetta i kring um 10 embættismenn úr bænum — eða rjettara sagt, líta inn í fundarsalinn allra snöggvast. Og ekkert er það óvenjulegt, að fundarsalurinn tæmist áður en öll mál, sem fyrir liggja, eru upp borin, svo að stjórnarnefndin situr ein eptir. En fundirnir eru spegill fjelagsins. Eins og þar lýsir sjer áhugaleysi fjelagsmanna og skeytingarleysi um störf fjelagsins, eins má heita, að það sje allt líflaust og fram- faralaust — nema það sem stjórnarnefnd- in heldur reikningana og safnar í sjóð, og gjörir einhverjar smávægilegar tillögur um framkvæmdir, að mestu sí og æ í sömu stefnu, en lítið sem ekkert gerir fjelagið til að glæða nýtt fjör og líf í landbúnað- inum. Og þetta er eðlileg afleiðing af því, að lögunum er ekki breytt, eptir því sem búnaðarástandið og menntunarástandið breytist í landinu. Með rjettu fyrirkomulagi geta slík fjelög haft ómetanlega mikla og góða þýðingu. Skal jeg síðar skýra meining mína um þetta nákvæmar. Ufeigur Teitsson. Sögubrot. IV. Copemicus yir maximo ingenio et quod in hoe exercitio magni mo- menti est, animo libero. KEPLER. Nikulaus Kopernicus fæddist 19. Febr. 1473. Foreldrar hans voru efnaðir og bjuggu í Thorn. Það hefur verið þráttað um, hvort hann hafi verið pólskur eða þýskur. Er það talið sennilegast, að hann hafi verið þýskur að þjóðerni, því aðeing- inn veit til, að hann hafi taiað eða ritað pólsku. Hann sótti háskólann í Krakau og las þar Iatínu og grísku og stærðfræði og stjörnufræði. Þegar hann kom heim aptur var hann gerður kórsbróðir og átti hann það að þakka Ermlandsbiskupi frænda sínum. Því næst fór Kopernicus til Ítalíu og var þar tíu ár samfleytt og lagði stund á stjörnufræði og læknisfræði í Padúa, Róm og Bologna. Það er sagt um kenn- ara hans í Bologna, að hann efaðist um, að kenningar þær um heiminn væri rjett- ar, sem kenndar voru við þá Aristoteles og Ptolemæus. Sje þetta rjett hermt, þá eru iíkur til, að þessi efi kennarans hafi vakið Kopernikus til umhugsunar um þetta. Af Ítalíu fór hann aptur heim og var með Ermlandsbiskupi nokkur ár. Þá var það, að honum hugkvæmdust aðalatriðin í kenn- ing hans um sólkerfið. Þetta var á 33.— 36. aldursári hans. En árið 1506 fór hann að rita bók sína um það. Þar sem Kepler talar um Kopernikus, segir hann um hann, að hann hafi verið „vir maximo ingenio et, quod in hoc exer- citio magni momenti est, animo libero. Það er á íslensku: mesti gáfumaður og frjáls í anda; en það er áríðandi í þessari fræðigrein (o: stjörnufræðinni). Þar sem hann segir, að hann hafi verið frjáls í anda, þá þýðir það, að hann hafði nógu ríkt ímyndunarafl til þess að líta á hlut- ina frá öðru sjónarmiði en áður hafði ver- ið gert. En það er alkunna, að auðugt ímyndunarafl einkenuir alla mikla vísinda- menn. Þeir geta hugsað sjer, hvernig heimurinn mundi líta út frá því eða því sjónarmiði, borið svo saman og valið úr. Þess verður vel að gæta, að menn sjá að eins hlutina, en ekki sambandið á milli þeirra. Það verður jafnan að ráða af lík- um og þá er auðug ímyndun ómissandi. Kopernicus hafði hana, eða var frjáls í anda eins og Kepler segir. Þetta kemur ljóslega fram í aðferð hans. Öllum sýnd- ist og sýnist jörðin vera kyr og sólin hreyfast. Eingum datt í hug, að það gæti verið öðruvísi. Ea Kopernicus spyr, hvern- ig oss mundi sýnast gangur himintungl- anna, ef sólin væri kyr og jörðin hreyfð- ist. Rit hans hnígur allt að því að sýna og sanna, að okkur mundi sýnast allt eins og nú er það. En Kopernicus geymdi rit sitt von úr viti og hafði ekki almennilega hug á að gefa það út. Raunar samdi hann lítið á- grip af því og varð skoðun hans því kunn nokkrum mönnum. Ungur háskólakennari frá Wittenberg fór til Frauenburg til Ko- pernicusar og var þar full tvö ár til að kynna sjer rit hans. Hjelt hann síðan fyrirlestra um þetta og breiddi þannig út þekking á þessari nýju kenningu. Og að lokum fjekk hann kennara sinn Kopernicus til að gefa ritið út. Höfundurinn fjekk fyrsta eintakið á banasænginni, þá er hann var orðinn meðvitund irlaus. Kopernicus gaf ekki sjálfur út ritið. Það gerði prestur einn, er hjet Osiander. Sá hinn sami maður reit formála fyrir bókinni, þar sem hann segir, að það sje nógu gaman að sjá, hvernig heimurinn gæti hugsast frá þessu sjónarmiði. En hitt gefur hann i skyn, að þetta sje gert til gamans, en höfundinum sje ekki alvara með, að þetta sje svo í raun og veru. Þetta varð til þess, að menn iásu ekki bókina, af því að þeir hjeldu, að höfundur- inn væri að ieika sjer að því, að leiða alls konar fjarstæður út af setningum stærð- fræðinnar. Lúther gerði gis að því og Melanchton þótti það skammarlegt, að vanbrúka svo skarpleik sinn og gáfur, að vera að gera ráð fyrir hinu og þessu, sem kæmi ekki heim við orð ritningarinnar.— Allan þennan misskilning leiðrjetti Kepler nokkru síðar, er hann sannaði, að formál- inn væri eptir Osiander, en ekki Koper- nicu8 sjálfan. Eins og áður var getið, er bók Kóper- nikusar lýsing á því, hvernig heimurinn mundi líta út, ef jörðin hreyfðist og er þar sannað, að allt mundi sýnast eins og það er. En þar er ekki sannað, að jörðin hreyf- ist. Þó trúði Kopernicus því, að svo væri,

x

Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.