Ísland - 20.03.1897, Qupperneq 3
ISLAND.
47
og þarf til þess að þvo svo mörg mjóikur-
ílát, og svo tímasparnaður, búverkin taka
upp minni tíma. Tími og eldiviður eru
iíka peningar og það dregur sig saman
um árið, þótt ekki sje neraa fáir aurar á
hverju máli, þar sem einn eyrir sparaður
um hvert mál eru 7 krónur og 30 aurar
græddir á einu ári, sem er meira en nóg
ívexti af peningunum, sem þarf aðleggja
út fyrir skilvinduna. En besti kosturinn
við skilvinduna er samt enn þá ótalinn og
í honum getur einnig verið fólginn mikill
peningagróði. Skilvindan er fyrsta skil-
yrðið fyrir því að fá mjólkina og urn leið
matinn úr henni vel hreinan, því hún
hreinsar sjálf mjólkina miklu betur en
hægt er að gjöra með nokkru sigti
eða síu. Ókosturinn víð það að setja
mjólkina upp og breiða hana út um mörg
grunn ílát, er það, hversu gjarnt rjóman-
um er að fá á sig ryk, sem blandast sam-
an við hann og eingar síur ná nema því
stórgerðasta úr aptur, svo hættir henni
við að súrna í samarhitunum, en við þetta
allt er maður laus, þegar mjólkin er skilin
í skilvindunni. Að skilvindan drýgi rjóm-
ann, mun ekki vera rjett að orði kveðið,
en aftur á móti er einginn efi á því, að
það er miklu auðveldara að verja rjóm-
ann fyrir ódrýgindum með skilvindunni,
heldur en með því, að setja mjólkina upp,
og á mörgum heimilum mun af því geta
geta leitt, að smjörsafnið verði meira, svo
að ekki muni svo litlu.
Svona hefur reyndin orðið á skilvind-
unni hjer. Ekki kefur borið neitt ábilun
á henni eða að ekki sje góð ending í henni,
en auðvitað þarf hún góða hirðingu og
meðferð eptir leiðarvísínum, sem henni
fylgir. Eftir þeirri kynningu, sem jeg hefi
af „Alfa Colibri" og „Butterfly“, vil jeg
heldur ráða mönnum til að velja „Butterfly".
Hjarðarholti, í febr. 1897.
J. Guttormsson.
ísland erlendis.
í parlamenntinu enska hefur komið til tals, að
Einglendingar sendi herskip til íslands í sumar til
að vernda botnvörpuveiðara [iar, svo að rjetti þeirra
Bje ekki misboðið.
Dr. Valtýr GuðmundsBon hefur verið kvaddur af
grænlenska vísindnfjelaginu tii að gjöra runnsókn-
arferð til Grænlands og, ásamt Daniel Brun, er í
fyrra fór til íglands í fornleifarannsóknir, að skoða
gamlar tóftir forfeðra vorra þar í landi.
Dr. Þorv. Thoroddsen er fyrir akömmu kominn
heim úr för sinni til Eiristjaníu. Var hann kvadd-
ur þangað af landfræðisfjelaginu norska tii að
halda íyrirlestur um íeland og hagi þess nú á
tímum.
Pejlberg sá, er ferðaðist í fyrra sumar um Suður-
°g Vesturland, hjelt nýloga fyrirlestur í Kaup-
'Qanuahöfn um búnaðarháttu íslendinga. Fórust
honum vel orð um land vort og þjóð og kvað
húnaðarháttum vorum hafa farið stórum fram hin
síðustu 20 árin.
í>að er ekki laust við, að íslandi og íslenskum
bókmenntum hafi verið meiri gaumur gefinn á Norð-
urlöndum á þessu ári en hingað tii. Dr. Georg
Brandes hefur minnst mjög hlýlega á þýðingu þá
á dönsku af sögum Gests Pálssonar, er út kom í
fyrra, og vakið athygli manna á íslenskum bók-
menntum yfir höfuð í grein sinni í „Politiken“
um ritgjörð Vilhjálms málfræðings Jónssonar, er
birst hefur i tímariti, er gefið er út í Stokkhólmi
og heitir „Nordisk Tidskr. for Vetenskap, Konst
og Industri“. Lýsir Vilhjálmur þar yngri skáld-
um vorum og rltum þeirra, að hverju leyti þau
sjeu frábrugðin í anda og stefnu hiuum eldri kveð-
skap vorum. Sömuleiðis er nú að koma út, neðan-
wáls í „Verdens Gang“, norsk þýðing á sögum
Gests. —■ Og enn má geta þess, að innan skamms
mun birtast í „Tilskueren" ritgjörð um Bjarna
Thorarensen og Grím Thomsen og þýðing á nokkr-
um kvæðum þeirra, er (einn) danskur málfræðing-
ur hefur þýtt.
Jón Jónsson sagnfræðingur hofur nýlega feingið
styrk til vísindaiðkana úr sjóði Hjelmstjerne Rosen-
krone, 500 kr. á ári. Útdráttur á dönsku af rit-
gjörð hans um Skúla fógeta hefur nýiega birst í
„Historisk Tidskrift", og enn mun Jón hafa eitt-
hvað nýtt á prjónunum, enda veitír ekki af, að
einhver sögumaður haldi nú uppi heiðri sögulands-
ins forna. Aðrir sagnfræðingar láta ekkert til sín
heyra.
Nýdáinn er í Khöfu Sigurður Jóusson Gudmund-
sen, verslunarmaður, um tvítugt. „Hann var góður
dreingur og vel látinn og harmdauði öllum þeim,
er hann þekktu".
Sömuleiðis andaðist í Höfn á Friðriksspítala fyr-
ir skömmu íslensk kona, Sigrún Bergvinsdóttir frá
Litlahóli í Eyjafirði. Kom húu þangað með siðustu
ferð „Vestu" til lækninga.
Sagt er, að dr. Jón Þorkelsson í Kaupmannahöfn
muni ætla að fara að halda út tímariti í sambandi
við færeyskan mann og eigi það að verða ritað
bæði á ÍBlensku og færeysku, og mun stefna þess
þá einkum verða sú, að útrýma dönskunni sem
bókmáli þar í cyjunum, en færa málið nær íslensk-
unni og hreinsa það. Tvö blöð koma nú út í eyj-
unum og or annað, „Ðimmalætting“, ritað á hreinni
dönsku, en hitt, „Föringatidindiu, á færeysku. Hið
íyrnefnda er á stærð við „ísafold“, en hitt á stærð
við „Dagskrá“, hvorttveggja vikublöð. Mundi rit
þetta, ef það kemur út, verða til að auka við-
skift.i og viðkynni íslendinga og Færeyinga og
gætu báðir haft gott af.
Dr. Finnur Jónsson háskólakennari í Khöfn ætl-
ar að feiðast til íslands í sumar með frú sinni og
ungum syni. Hann mun ekki hafa komíð hingað
til lands siðan hann sigldi sem stúdent sumarið
1878.
Chand. phil. Ólafur Davíðsson ætlar einnig að
koma lieim hingað í sumar og or sömnleiðis langt
síðan hann hefur heimsðtt gamla Frón.
Dr. Heusler, hinn þjóðverski vísindamaður, sem
ferðaðist hjer um land í fyrra, hefnr nú sagt Djóð-
verjum frá ferð sinni og liggur honum mjög vel
orð til íslendinga.
Próf hafa tekið við háskólann í Khöfn: Helgi
Pjetursson í náttúrufræði með 1. eink., Sæmundur
Bjarnhjeðinsson og Kristján Kristjánsson báðir í
Jæknisfræði mcð 2. eink., Oddur Gíslason í lög-
fræði með 1. eink.
Nýlega eru trúlofuð eand. jur. Oddur Gíslason
frá Lokinhömrum og fröken Erika Hansen, dóttir
stórkaupmanns Jens Hansens í Khöfn.
Dr. Niels Finsen, sem fyrir fáum árum varð
frægur fyrir „rauða herbergið“, hefur nú gert til-
raunir með áhrif Ijósgeislanna á hörund manna og
þykja stórmerkilegar. Til þeirra rannsókna hafa
Danir í vetur komið upp stofnun, sem þeir nefna
„Det medicinske Lysinstitut" og hefur hún kostað
um 12,000 kr. Búist er við miklum árangri af
rannsóknum hans.
Fyrirlestur Dr. Þorvaldar Thoroddsens, sem um
er getið hjer að ofan, hefur vakið mikla eftirtekt
í Noregi og mikið verið um hann ritað í dagblöð-
um þar. Um 900 manns hlustuðu á fyrirlesturinú.
í Kristjaníu var dr. Þorvaldi haldin veisla af land-
fræðisfjelaginu og komu þar maTgir menn og merk-
ir. Forinaður fjelagsius, Haffner offursti, mælti
fyrir minni dr. Þorvaldar, Gustaf Storm prófessor
fyrir minni íslands, en prófessor Brögger fyrir
minni dr. Þorvaldar sem jarðfræðings.
í Khöfn befur dr. Þorv. Thoroddsen haldið fyrir-
lestra í vetur i landfræðisfjelaginu og sótti þangað
fjöldi manns, þar á meöal konungur.
Nýtt íslenskt tímarit á nú að fara að koma út í
Chicago. Útgefandinn er Stefán Pjetursson prent-
ari, Bem vestur llutti hjeðan úr Reykjavik fyrir
nokkrum árum, en ritstjórarnir eru tveir: Jón
Ólafsson og Steingrímur Stefánsson, báðir bóka-
verðir við sama bókasafnið þar í borginni, New-
berry library. Yið hinn fyrnefnda ritstjórann kann-
ast allir íslendingar, en hinn síðarnefndi flutti vest-
ur fyrir sex árum síðan; hafði áðnr um nokkur ár
lesið stærðfræði við háskólann í Khöfn.
Kaupmannasamkundau í Höfn er að semja við
Landbúnaðarfjelagið danska um flutning á íslensku
sauðfje til Jótlands, ætlaðist hún tíl að það sje al-
ið þar, eins og áður var gert í Einglandi, áður því
sje slátrað, en síðan á ketið að flytjast til Eing-
lands.
Ditlev Thomsen farstjóri vill koma á fjárflutn-
ingum hjeðan til Belgíu og Frakklands með til-
styrk Zöllners og Vidalíns; gerir ráð fyrir að tak-
ast ferð á hendur tll þeirra landa til að koma því
máli áleiðis.
í norsku blaði, sem gefið er út í Krisjaníu, stóð
nýlega kvæði, sem heitir „íslandu, og hafa kaflar
úr því verið teknir upp í önnur norsk blöð. Þar
er farið óþvegnnm orðum um Danmörk og þvi
haldið fram, að ísland ætti að fylgja Noregi. Dan-
mörk er þar kölluð sjuki maðurinn norðurfrá, en
suðurfrá hefur Tyrkinn leingi verið nefndur því
nafni.
Kafli úr kvæðinu er svona:
Naar Sörensen om föje Tid
skal atter ambuteres,
vi har Qt Krav at sende did
som nöje bör noteres.
Men næste Gang der gaar en Bris,
en Dönning over Jorden,
vi kræve vil paa retslig Vis
den syge Mand í Norden.
Lad andre tage Sjællands Mö
og alle Jyllands Borge,
den gamle Runerister-0
skal kun tilhöre Norge.
Frá fjallatindum
Til fiskimiða.
„Laura“ kom til Reykjavíkur á þriðjudagsmorg-
uninn; hafði hfin eins og oftar tafist í Færeyjum,
nú 5 daga. Með „Laura“ komu: Björn Guð-
mundsson múrari, Geir Zoega kaupmaður, Friðrik
Jónsson kaupmaðnr, Jón Jónsson skipstjóri i Mels-
húsum, cand. mag. Helgi Jónsson, cand. med. Krist-
ján Kristjánsson, stud. jur. Jens B. Waage, Han-
nes Thorareusen verslunarmaður i Rvík, Páll Snorra-
son verslnnarmaður frá ísafirði og Kristsmey ein til
klaustursins i Landakoti.
Góður árangur hefur orðið af ferð Björns Guð-
mundssouar til Noregs. í næsta mánuði kemur
gufubátur Frederiksens Mandælings upp hingað og
á að hefja ferðir sínar hjer um Faxaflðann 6. maí
í vor. Björn lætur vel af bátnum, segir hann
bera 80 smál., hafa þrjú farþegarúm og taka 200
farþega. Allur er hann yfirbyggður. Báturinn bjet
áður „Tönsberg", en er nú skýrður upp og hefur
vel tekist nafngiftin. Báturinn heitir „Reykjavíku.
Gufubátsferðir Austflrðinga annast þetta ár eins
og í fyrra Thor E. Tulinius stórkaupmað. í Khöfn.
í Sæfaratíðindum Dana er sagt frá því, að til
þeirra ferða hafi hann nú keyft uýtt gnfuskip, sem
„ Hjálmaru heiti, 330smál., en annarsstaðar er sagt,
að „Bremnœsu eigi að verða til þeirra ferða. En
hvort sem satt er, þá á skipið að fara sex ferðir
milli Siglufjarðar og Hornafjarðaróss frá 1. maí til
24. seft., koma við á 23 stöðum auk þeirra tveggja
og fara þess ntan 3 ferðir til Rvíkur og eina til
Sauðarkróks.
„V©sta“
er nú á ferð að austan norðan um land. Hún fór
frá Khöfn eins og til stóð 1. mars. En það er
frekar af ferðum hennar að segja, að farstjóra
bárust kvartanir miklar og kiaganir frá Flateyíng-
um yfir skipstjóra Corfitzson, sem, eins og kunn-
ugt er, braut boð farstjóra og fór fram hjá Stykkis-
hólmí og Flatey á síðustu ferð sinni í haust. Skip-
stjóri bar fyrir sig skipsbækurnar og kvað ófært
veður hafa hamlað förinni og bar skipshöfnin það
með houum. Málafærslumftður hefur nú feingið
málið til athugunar, en óvíst talið, að hægt sje
fyrir farstjóra að koma fram ábyrgð á hendur hr.
Corfitzson, þvi vitnÍBburður skipsbókanna má sín
mikils í þeim efnum. Hitt er víst, að skipstjóri
varð fyrir þungum átölum af farstjóra og er hon-
um nú vikið frá stjórn „ Vestuu, en sagt er, að
Gufuskipafjelagið hafi þegar feingið honum annað
skip til meðferðar. „Vesta“ hefur feingið nýjan
skipstjóra, I. 0. Svensson, sænskan mann eins og
Corfitzson.
Skaðabótamál gegn landskipsútgerðinni kvað
Björn kaupmaðnr Sigurðsson ætla að hefja, en þó
ef til víll búist við enn, að málið verði jafnað án
málssóknar.
Gæti svo farið, að þar bættist enn töluvert við
Vestu“-kostnaðinn.
Norðmenn ætla að fara að byrja hvalveiðar á
Mjóafirði eystra; er því misjafnlega tekið af fjarðar-
búum.
Af Eyrarbakka var fyrst róið 6. þ. m., en lítið
nm fisk þar, sömuieiðis í Þorlákshöfn. Hæst 6 i hiut,
í Rangárvallasýsiu eru sagðir sujóar miklir, en
veður góð. Búist við almennum heyskorti, ef ekki
skifti bráðlega um.
Fröken Ólafía Jóhannsdóttir hjelt 7. þ. m. lyrir-
lestur á Eyrarbakka um bindindi.
í bindiudisfjelagið I Ólafsvík hafa nú á skömm-
um tíma geingið 70—80 manns. Undanfarandi
hafa verið seldír áfeingir drykkir þar í kaupstaðn-
um fyrir 8000 kr. Bestur styrktarmaður bind-
indishreyfingarinnar þar vestra er Björn kauprn.
SigurðBson í Fiatey.
Sæluhúsið á Mosfellsheiði.
í vetur lá leið mín yfir Mosfellsheiði. Jeg komst
að sæluhúsinu kl. 2 um nóttina, þreyttur og heit-
ur, í frostbil, og vildi jeg hvíla mig þar til næsta
morguns. Þegar jeg kom inn fyrir hurðina óð jeg
í báða fætur. Jeg skreið upp á pallinn og kveykti
ljós til þess að litast um í húsinu. Gólfið var eitt
vatnsflóð. Sá jeg að búið var að breyta þakinu
yfir húsinu frá því er jeg hafði komið þar seinast,
þar var komið járnþak í stað moldarþaks. Undir
járnið hafði verið klastrað fúnum borðskifum, sum-
staðar kantsettum að nafninu til. Á pallinum voru
íjalir og setubekkur. Nú voru fyrir hendi tveir
kostir, annaðhvort að standa, sitja eða liggja, því
hreifingarlaus varð maður að vera þarna á klak-
anum á þessum litla palli í miklum vindsúg, eða
leggja aftur út í byl og náttmyrkur. Jeg fór strax
að skjálfa. Eftir hálfa Btund fór jeg út úr hús-
inu og klifraði upp á vegginn; fann jeg þá að hús-
ið var rennuiaust. Járnið á vesturgafli þess náði
ekki upp undir þakskeggið; þar á ofan var járnið
illa neglt. Með þessum frágangi hefur smiðnum
tekist að veita vatninu af þakinu ofan í veggina
og inn í húsið. Jeg lagði af stað frá húsinu út í
myrkur og byl og ásetti mjer, að ef svo færi, að
jeg kæmist af heiðinni, skyldi jeg lýsa fyrir almenn-
ingi þeim óhæfilega frágangi, sem er á þessu nauð-
synlega húsi, og undir eins þeirri shömm, er hlýt-
ur að hvíla sjerstaklega á yfirsmiðnum, ef svo færi,
sem vel má verða, að einhver ferðamaður yrði þar
til af kuida. Mjer hefur verið það fjærri skapi,
að óska öðrum ills; þó gat jeg ekki annað en ósk-
að þess, þegar jeg lagði af stað frá sæluhúsinu út
í ófærð og náttmyrkur, votur og skjálfandi, að
áðurnefudur smiður væri kominn til mín til þess
að ryðja braut og rata í myrkrinu.
Leingi býr að fyrstu gerð. Sæluhús þetta var
og er óhyggilega formað bæði &ð byggingu og
smíði. Þess vegna er vonandí, að húsið verði lag-
að hið fyrsta, og þar til valinn sá maður, er bæði
hefur vit og vilja á að leysa verkið vel af hendi.
Ferðamaður.
Reykjavík.
Nú er farið að fjörgast í höfuðstaðnum ; skip
koma og fara og meira líf á landi og sjó en verið
hefur. Annars er allt stórtíðindalaust innan bæjar.
Þorvaldarmálið og Valdimars var lagt i dóm á
íimmtudaginn og skulu þeir nú bíða dómsúrslita i
sex vikur.
Maður andaðist hjer í fyrradag, Gísli bóndi Gísla-
son frá Reykjahjáleigu íÖlfusi, hafði verið hjer til
lækninga um tima.
„Laura“ fer hjeðan í dag. í fyrradag fór hún
til Akraness og Hafnarfjarðar. Með henni fara út:
Ásgeir Sigurðsson kaupmaður, Björn Kristjánsson
kaupmaður og konsúll W. G. Spence Paterson.
Trúlofuð eru Kristján Bjarnason skipstjóri og
ungfrú Jóhanna Gestsdóttir frá Brekku á Hval-
fjarðarströnd.
Skólaröðina i latínuskðlanura hafði „Þjóðólfur"
fyrir leiðara í þriðjudagsblaðinu og setti með hrossa-
letri. Hjer kemur hún nú í næsta blaði.