Ísland


Ísland - 01.05.1897, Blaðsíða 1

Ísland - 01.05.1897, Blaðsíða 1
9 I. ár, 2. ársfj. Reykjavík, 1. maí 1897. 18. tölublað. Kringsjá. Grikkjastríðið. Þess var getið í síðasta blaði, að upp- reistarsveitir grískar hefðu ráðist, inn yfir landamæri Tyrkja og þar orðið nokkrar orustur. Um nokkurn tíma höfðu þá her- sveitir Grikkja og Tyrkja beðið báðumeg- in landamæra og ekkert að hafst. Höfðu stórveldin látið það boð út ganga, að ráði Rússa, segja menn, að þeir sem fyrri rjeðu á hina yrðu taldir friðspillar og skyldu refsingu sæta. Urðu nú Grikkir til að brjóta þetta bann stórveldanua. Og þótt eigi væri þetta eftir opinberri skipan Grikkjastjórnar með fyrstu, kom það skjótt í ljós, að hjer var það eitt byrjað, er tii var stofnað með margra manna ráði. Því Grikkir vildu stríð hafa og ekkert annað. Óx nú vígahugur hjá báðum og laust upp fullkomnum ófriði um páskahátíðina. Fyrsti aðalbardaginn var háður á hæðunum sunn- an við Olympsfjall, hina fornhelgu fjall- borg Gfrikklands. Veitti Grikkjum miður og ljetu þeir undan síga niður á sljett- lendi Þessalíu; það eru vellir, fagrir og frjóvgir. Tvær borgir standa þar, Turna- vos og Larissa og er hin síðari höfuðborg Þessalíu. Turnavos er lítill bær, á stærð við Reykjavík. Þá borg tóku Tyrkir á þriðja páskadag. Voru Tyrkir þá hinir kátustu og geingu fram með hlátrum og sigursaungvum. En Grikkir bjuggust nú fyrir í Larissa og var þar saman kominn aðalher þeirra undir forustu Konstantins konungssonar. Lið Qrikkja þar er sagt um 60,000, en Tyrkja um 80,000. Þar skyldi nú til skarar skríða og stóðu sakir svo, er síðustu fregnir bárust til Eing- lands áður „Vesta" fór þaðan 22. þ.m. Lítið var mannfall í þeim orustur sem orðið höfðu og stóð þó bardagi eitt sinn samfellt í 36 stundir. — Vestur í Epírus höfðu einnig orðið smá-orustur og G-rikkj- um vegnað þar betur. Ekki hafa stórveldin enn sem komið er gefið sig fram í þessar síðustu óeirðir. Eu svo lítur út sem Grikkir sjeu fullráðuir í að fara sínu fram hvað sem þau segja, enda hafa þeir þjóðirnar með sjer, þótt stjórnirnar sjeu þeim erfiðar og eiga þeir marga styrktarmenn í frelsisbaráttu sinni víðsvegar um lönd í Norðurálfu. Kenna þeir því um ófarirnar hina fyrstu daga, að Tyrkir hafi haft betri vígstöð og stór- skotalið meira. Frá Danmörku er það sagt, að ráðaneytið muni bráðum víkja sæti. Er því spáð af sumum, sem aðrir telja þó allra óiíkast, að Estrup eigi aftur að taka við stjórnartaumunum. Þar hefur nú staðið yfir fjárlagadeila um til- lög til hersins og til kaupa á vopnum og verjum, og stjórnin krafist 200,000 kr. meir en fólksþiugið vill veita. — Þar sem ráða- neytið danska er nú að velta úr sessi er ekki við að búast að stjórnmálum íslend- inga verði sinnt þar nokkuð að þessu sinni. Með „Laura“ er skrifað: Ráðaneytið á í miklu stappi út af fjár- lögunum, og hefur því tekist að koma ár sinni svo fyrir borð, að svo má heita, sem það hafi nú báðar þingdeildirnar upp á móti sjer. Þrætueplið er eins og vant er, útgjöldin til hers og flota. Vildu hægri menn í fyrstu að veittar væru 200 þús. krónur, fram yfir það sem venja er til, til hermálaefna, en vinstri menn settu sig öndverða á móti því. Reyndi nú ráða- neytisforseti Reedtz-Thott að miðla málum og fara meðalveg til að koma á samkomu- lagi. En það hefur enn ekki tekist og er Danmörk því enn ekki búin að fá nein regluleg fjárlög og ósjeð hvort hún fær þau nokkur á þessu ári. Ymsir eru að spá því, að Reedz-Thott muni leggja nið- ur völdin og draga sig til bakavið lítinn orðstír og er ekki ólíklegt að svo muni fara. Þá missum við íslendingar líka okkar góða Rump — en það er bótín að við fáum annan í staðinn. „L’institut de droit internationale (al- heims lögfræðisfjelagið) heldur 18. ársfund sinn í Kaupmannahöfn í ágúst í sumar. Nansen er nú kominn heim úr för sinni suður um löndin. Hann fór til Lundúna, Parísar, Berlínar og kom við í Khöfn. Rigndi á þeirri för hvervetna yfir hann lofræðum, orðum og titlum. Hann er nú gerður að prófessor í dýrafræði við háskólann í Krist- janíu. Hann kom til Hatnar 6. apríl. Danir vildu ekki verða minnstir. Hjeldu þeir Nansen stórmikla veislu og var þar sam- an komið flest stórmeuni þeirrar borgar. Afhenti krónprinsinn, sem er heiðursfor- seti landfræðisfjelagsins danska, honnm heiðurspening úr gulli með kórónu á. Hafa sum blöðin þennan heiðurspening í skopi, og þykir sæmdin ekki eins mikil og til hefur verið stílað. — Stúdentar hjeldu blysför fyrir Nansen. Með „Laura“ bárust eingar stórvægi- legar fregnir af Grikkjastríðinu og geing- ur þar allt í þófi. Um leið og ófriðnum laust upp, ljetu Tyrkir það boð út ganga, að allir Glrikkir skyldu vera burt af Krít innan hálfs mánaðar, ef þeir vildu halda lífi og limum. Á sjónum hefur Grikkjum geingið betur síðustu dagana; hafa þeir brennt upp eigi lítið af matforða fyrir Tyrkjum og skotið bæ niður. Tyrkir hafa skift um yfirhershöfðingja og var sá sem frá fór háaldraður. Bolgarar hafa neitað að veita Tyrkjum fylgi, en 4 hersveitir Armeninga hafa geing- ið í lið með örikkjum. Áskorun um liúsbygging á Þingyöllum. Vjer undirskrifaðir, sem höfum geingið í fjelag8skap með að koma upp húsbygg- ing á Þingveili, er bæði gæti verið fyrir samkomur innlendra manna og til afnota fyrir erlenda ferðamenn, sem eins og kunn- ugt er, sækja fjölmargir á hverju ári til Þingvalla og Giejsis, leyfum oss hjer með að bjóða almenningi á íslandi að taka þátt í þessu fyrirtæki með því að kaupa einn eða fleiri saman tuttugu og fimm króua hluti í hinni fyrirhuguðu byggingu. Áætlað er, að húsið muni kosta allt að 5000 krónum eða um 200 hluti alls, og er gert ráð fyrir, að það geti verið full- gjört áður en ferðamanna er að vænta næsta sumar. Það er ákveðið, að hlutir þeir, sem koma inn, skuli geymast í spari- sjóði Reykjavíkur; en eigi verður byrjað á byggingunni fyr en sjeð verður, að nóg fje muni fást, að öðrum kosti verður pen- ingunum skilað aftur til eigendanna. Komist byggingin upp, eins og að fram- an er sagt, skulu hluta eigendur njóta tiltölulega ágóða af húsinu, þann, er verð- ur umfram viðhald og umsjónarkostnað, eftir árlegri skilagrein. í hússtjórnarnefnd skal kjósa 3 menn, þannig, að formaður Þjóðvinafjelagsins nefnir einn, sýslumaðurinn í Árnessýslu annan og ferðamannafjelagið í Reykjavík hinn þriðja. Nefndin skal kosin til 2 ára í senn, í fyrsta sinn jafnskjótt og húsið er fullgjört. Allt það, sem að framkvæmdum bygg- ingarinnar lýtur, önnumst vjer undirskrif- aðir. Hluta-upphæðir skulu sendar til gjald- kjera fjelagsins, Sigfúsar Eymundssonar, með glöggri skýrslu um nöfn og heimili hluta eigenda, og sendir hann þeim þá hlutabrjef með fyrsta pósti, eða afhendir þau þeim, sem borga utan pósts. Til þess að hægt sje að byggja húsið næstkomandi sumar, verða fjelagshlutir að vera borgað- ir innan loka þessa árs. Vjer treystum því, að góðir menn veiti þessu máli góðar undirtektir, bæði vegna landsmanna sjálfra og vegna þess, að slík bygging mundi einkum, ef henni fylgdi skemmtibátur til veiða og siglinga á Þing- vallavatni, stuðla mjög að því að auka heimsóknir erlendra ferðamanna til íslands, sem hingað til hafa ekki getað vegna skýlisleysis haft neina dvöl á hinum forna víðfræga þingstað íslendinga. Reykjavík, 24. apríl 1897. Benedikt Sveinsson. Uelgi Helgason. Tryggvi Gunnarsson Sigfús Eymundsson formaður. gjaldkeri. Signrður Kristjúnsson. Ditlev Tliomsen. Hannes Porsteinsson. Bráðafárið erlendis. Menn hafa allt til þessa ætlað, að bráða- sóttin í sauðfje ætti ekki annarsstaðar heima en á íslandi, í Færeyjum og Noregi. Nú er það fram komið, að sýki þessi hef- ur miklu meiri útbreiðslu; það er sem sje sannað, að fjárveiki sú, sem kölluð er „Braxy“ og mjög er algeing bæði í Eing- landi og Skotlandi, er ekkert annað en bráðafárið íslenska. Nýlega er og sýnt, að veikin er til í Svíþjóð. Yfirdýralæknir Svía í Karlskróna hefur fundið drepandi sýki í fje þar i hjeraðinu umhverfis, en hefur því miður enn sem komið er ekki haft tækifæri til að rannsaka hanu ná- kvæmlega. En eftir vitnisburði annars læknis er nú fullyrt, að þetta sje sama sýkin og kölluð er hjer bráðafár. Veikin er einnig í Þýskalandi og hefur gert þar mikið tjón í sumum hjeruðum. 1890 sýndi dýralæknir einn, að hún væri algeing í Meklenborg og nefndi veikina „Bradsot“, en því nafni kalla Danir bráðafárið. Vís- indalega hefur veikin verið rannsökuð bæði í Rostock og Berlin, en þó er það fyrst nú nýlega, að nokkuð hefur verið ritað opinberlega um hana á þýsku. Nú er því haldið fram, að auk þess sem veik- in vinnur hið mesta ógagn í Meklenborg, muni hún vera víðar á Þýskalandi og er sagt, að ef til vill hafi henni sumstaðar verið blandað saman við miltisbrand. Fyrir skömmu hefur þýskur dýralæknir lýst því, að veikin sje í Liineborg, og í Bretagne á Frakklandi kvað hún einnig vera ný- fundin. Þetta er tekið úr mánaðarriti danskra dýralækna, 8. b. 12. h., 1897. Fjárkláðimi. Vjer höfum nú spurt dýralæknirinn ýtar- lega um ferð þá, sem hann fór til að rannsaka fjárkláðann í Mýrasýslu, og skýr- ir hann svo frá förinni: „Jeg lagði af stað hjeðan úr Reykjavík að morgni hinn 30. mars með „Slangen" upp í Borgarnes. leigði þar hest og mann og reið upp í Arnarholt til sýslumanns; kom jeg þangað 31. mars um kvöldið. Daginn eftir byrjaði jeg fjárskoðanir og skoðaði tvo næstu daga á bæjum þeim í Stafholtstungum, er eigi hafði verið baðað á, og auk þeirra á nokkrum bæjum öðr- um, þar sem baðað hafði verið. Á flest- um bæjum fann jeg nokkrar kindur grun- samar, en ekki gat jeg fundið kláðamaur á fje nema á einum bæ, Hamraendum, þótt hann að öllum líkindum hafi verið þar víðar. En orsökin til þess, að svo erfitt var að finna maurinn, er að mínu áliti sú, að menn voru nýbúuir að „bera í“ kláða- blettina og eru þeir stöðugt að því. En við það skríða maurarnir burt á aðra staði og sumir þeirra drepast, en mjög er óhægt að finna dauða maura með litlu stækkun- argleri. Aftur á móti fann jeg ekki all- fáar kindur með útbrotum eftir fellilús

x

Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.