Ísland


Ísland - 05.06.1897, Síða 2

Ísland - 05.06.1897, Síða 2
90 ISLAND. 1 1 ISLAND. Ritstjóri: JÞorsteinn Gíslason. Skrifstofa: Lougaveg 2. Prentað í: Fjelagsprentsmiðjunni „ÍSLAND“ kemur út hvern laugardag áþessum ársfjórðuugi (aprll—jtlli), 13 blöð alls. Áskrift bindandi þrjá mánuði. Hver ársfjðrðungurborgist fyrirfram um leið og blaðið er pantað og kostar 1 Reykjavik 70 au., útum land 79 au., erlendislkr. Pðstafgreiðslumenn og brjefhirðingamenn taka mðti áskriftum og borgun fyrir blaðið og kvitta fyrir. Reykvikingar og þeir sem 1 nánd við Rvlk búa geta pantað blaðið í bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, í verslunarbúð Björns Kristjánssonar, hjá kaupmanni Kr. Ó. Þorgrímssyni, hjá hr. Júlíus Jörgensen, Hótel Island, hjá útgefanda hlaðsins. h =I=i=r=r=r=T=n=T=*=i=^=T=J=T=r=T=i=T=*=r=i=T=a=r=u=i=i=iii nógu slæm hjer og hvar á landinu til þess að þau gætu orðið kláðug, ef mauraruirá annað borð gætu myndast af sjálfum sjer. Mjer virðist það með öliu ástæðulaust fyr- ir almenning að vefeingja það sem mörg hundruð manna hafa varið lífl sínu til að rannsaka og sanna og aldrei fundið neitt sem móti því stríði. Menn verða að trúa því, enda er ekki hægt í fljótu bragði að sýna og sanna hverjum einum að svona sje það og svona sje það ekki. Ef allir hefðu verið svo tortryggnir, að trúa eingu öðru en eigin sjón eða eigin reynslu, væru vísindin eigi komin á það stig, sem þau nú eru á. — Hitt ætti ekki að þurfa að segja mönnum tvisvar, að dugandi kláðalyf drepi maurana, sjeu þau rjettilega viðhöfð, auk heldur að þau búi þá til. Þetta getur hver og einn full- vissað sig um. E»að er ekki kláða- Iyfjunum að kenna, þótt kindur, sem bað- aðar hafa verið, smittist eftir baðið af kláðugu fje eða öðru, sem maur er á. Það má heldur einginn ætlast til þess, að hægt sje að lækna kláða til fulls með einu baði, því að mauraeggin sleppa lífs af úr bað- inu, og eftir 6—7 daga eru þau unguð út og kindin þá aftur orðin krök af maur. Væri baðað aftur rækilega eftir vikutíma, mundu menn sjá árangurinn betri. Eing- um skynsömum manni dettur heldur í hug að kalla það kláða, þó að útbrot komi á kind, sem skaðskemmd hefur verið í illa til búnu karbólsýrubaði. Það má og gera hvert bað ónýtt eða árangurslaust, ef það er haft allt of dauft, kindinni dýft að eins snöggvast niður í, eða böðunaraðferðinni er meira eða minna ábótavant í einu sem öðru. Þetta og því líkt mun hafa blekkt marga, sem feingið hafa ótrú á böðunum og baðlyfjum. — En hvað sem öðru líður, þá er það víst, að um kláða er ekki að tala, nema maur eða mauraegg komi á kindina og að vel má takast að drepa maurana og lækna kláð ann með góðum baðlyfjum, sjeu þau rjetti- lega viðhöfð. Af þessu leiðir aftur, að útrýma má kláðanum úr landinu í einni svipan — að eins ef næðist til allra mauranna á ein- um og sama tíma, bæði þeirra sem eru á fjenu og utan fjár, en það er hægra sagt en gert. Væri hægt að yfirvinna þennan örðugleika, kæmu almennar baðanir yfir land ailt að tilætluðum notum, en annars ekki. Þær mundu miklu fremur verða tíl þess að deyfa eða drepa trú almennings á böðunum, þegar menn sæju kláðann rísa upp aftur litlu eða eingu betri en áður. Eins og áður hefur verið tekið fram í blöðunum, gæti varla verið að tala um almenn böð hjer nema haust eða vor; á haustin, þegar allt fje er komið í hús og á vorin, þegar fje er geingið úr ull og á að rekast á afrjett. En eftir því sem til hagar hjer hjá oss, eru lítil eða eingin lík indi til, að hægt sje að framkvæma al- mennar baðanir á þessum — eða öðrum — tímum árs, svo að nokkur veruleg vissa geti feingist fyrir því að kláðinn verði hjer ekki efiir sem áður. Eigi að útrýma kláð- anum í einni atrennu, mæta okkur svo margir erfiðleikar, að naumast er hægt að yfirvinna þá alla; sje tekið sjerstakt tillit til sumra, verður að sleppa öðrum. Eins og oft hefur verið áður tekið fram, nægir ekki eingaungu að drepa maurana, sem eru á fjenu; það þarf líka að drepa þá, sem eru utan fjár (í húsum og víðar), ef að gagni á að koma. Sje fjeð baðað á vorin rjett áður en það er rekið á afrjett, mætti sótthreinsa húsin yfir sumarið, og ef hægt væri að fara með ær eins og geldfje, væri gátan ráðin. En sá er gall- inn á, að óvíða eða hvergi mun vera hægt að baða ær á sama tíma og geldfje og víða ðmögulegt að verja því, að geldfje, sem ætíð sækir heim í byggðir aftur, komi saman við ær. Svo er og hætt við, að sumar kindur sjeu sloppnar, svo ekki ná- ist í þær þegar baða á. Setjum nú svo, að hægt væri að verja því, að geldfje kæmi niður í byggð saman við ærnar, þá hefði maður nokkurn veginn vissu fyrir því, að geldfjeð smitttaðist ekki, en þá koma ærnar til sögunnar. Þótt þær væru nú baðaðar rækilega um eða eftir fráfær- ur, þá er ekkert vísara en að þær smitt- uðust af högunum kring um bæina, því að beitiland eða haglendi, sem kláðafje hefur geingið í er álitið grunsamt i 6 vik- ur. Eina ráðið yrði þá, að geyma allt fjeð heima þangað til að hægt væri að baða geldfje, ær og lömb á sama tíma og reka síðan allt á afrjett og verja því frá heimahögum, en þetta dettur mjer ekki í hug að nokkur taki í mál. Að því er haustböðin snertir, þá virð- ist ekkert þurfa að vera því til fyrirstöðu, að baðað yrði allt fje á sama tíma, en þá koma vandræðin með húsin. Þá er ómögu- legt að sótthreinsa þau svo, að nokkur veru- leg trygging sje fyrir því, að maur lifi ekki í þeim. Helsta ráðið — og þó ónógt— væri, að hafa tvenn fjárhús á hverjum bæ. Þótt íjárhúsin væru sótthreinsuð að sumr- inu til, væri það til lítils gagns, þvi að ekki yrði komist hjá því að hýsa fjeð áð- ur en baðað yrði, og þótt fjenu sje sleppt blautu úr baðinu inn i húsin, þá er ómögu- legt að álíta þá sótthreinsun nægilega og því síður tryggilega. Það eru því miður lítil líkindi til, að hægt verði að útrýma kláðanum úr landinu í einni atrennu og hætt við, að hinar almennu baðanir geti ekki komið að þeim notum, sem marg- ir hafa haldið, því að auk hinna eðlilegu erfiðleika, sem þegar eru taldir, koma ýms- ir aðrir og vil jeg að eins benda á hirðu- leysi og vankunnáttu margra hverra í sjálfri böðunarframkvæmdinni. Það þarf ekki stórt glappaskot til að eyðileggja allt verkið. — En einginn skyldi samt skilja mál mitt svo, að nú eigi að leggja árar í bát og láta kláðann eiga sig. Það er öðru nær. Bændum á að lærast að baða fje sitt án þess þeim sje þreingt til þess nauðugum. Þeir meiga ekki ætla, að þeir menn, sem telja þá á að baða og skýra fyrir þeim gagnsemi baðanna, sjeu að því að gamni sínu eða til þess að narra þá í óþarfa kostnað. Eða ætia íslenskir bændur að stjettarbræður þeirra erlendis baði fjenað sinn tvisvar á ári af tómri fá- visku, reynsluleysi eða bruðlunarsemi? Nei, það getur hvar og einn verið fullviss urn, að þeir raundu ekki gera slíkt, ef þeir sæju sjer ekki ábata í því; þeir hugsa ekki síður um skildinginn en íslensku bændurnir. Erlendis baða menn fjenað sinn, þótt ekki sje hann kláðugur; það eru til fleiri smádýr en kláðamaurinn, sem háir og þjáir skepnurnar, og þarf að hreinsa af þeim. Það er bæði útlend og innlend reynsla fyrir þvi, að böðin margborga sig í meiri og betri ull og fóðursparnaði, og það er synd að segja, að þetta hafi verið dulið fyrir almenningi. Hver góður bóndi ætti að gera sjer það að reglu að baða fje sitt tvisvar sinnum á ári, haust og vor, án tillits til þess hvort það er kláðugt eða ekki. öæti þetta Iíka orðið til að styðja að útrýming kláð- ans. En ekki býst jeg við að menn vilji tvíbaða, enda er eitt gott bað nægilegt til þrifa, en kláða er ekki hægt að lækna með minna en tveim böðum á vikufresti. Einfalt þrifabað getur því ekki komið í í stað kláðabaðs. Kláðanum verður að taka sjerstakt tak. Það verður að taka kláðafje á hvaða tíma árs sem það finnst og lækna það, sótthreinsa húsin eftir megni og varast, að kláðasjúkt og grunað fje hafi samgang við heilbrigt fje. Með þessu móti ætti að takast á nokkr- um árum að takmarka kláðann svo, að lítil brögð yrðu að honum og ef til vill útrýma honum alveg. En til þessa þurfa menn að fá nákvæma leiðbeining og strangar reglur til að fara eftir og jafnframt setja útvalda menn í hverjum hreppi til að sjá um að reglun- um sje fram fylgt. Auk þeirra ættu að vera í hverri sveit einn eða fleiri kláða- læknendur, sem feingið hefðu tilsögn hjá dýralækni. Reglurnar ættu að vera samd- ar af dýralækni og einum eða fleirum þar til kjörnum mönnum, og samþykktar af amtmanni. Jeg get ímyndað mjer, að þeim sem haldið hafa, að hægt væri að útrýma sjúk- dómi þessum úr laudinu á einu hausti, þyki leitt að heyra það, að vjer verðum að burðast með þessa iandplágu ef til vill mörg ár enn, en því miður mun það verða að vera svo. Jeg hygg að eingin dæmi sjeu til þess, að nokkurt land, sem haft hefur eins út- breiddan fjárkláða og vera mun nú hjer á landi, hafi getað losað sig við hann á svo stuttum tíma, og mundi það þó víðast vera hægara en hjer. í því skyni vil jeg benda á muninn á fjárhúsunum hjer og annarsstaðar. í öðrum löndum eru þau víðast hvar byggð úr trje eða steini og því ólíkt auðveldara að sótthreinsa þau en moldarkofana hjer á landi. Þá er og það atvik, að fje manna geing- ur meira saman bæði sumar og vetur en víðast annarsstaðar og er það mikið mein, þegar um útrýming næmra sjúkdóma er að tala. Þetta og margt fleira, sem rót sína á að rekja til búskaparlags vors, gerir oss örðugra fyrir en öðrum að útrýma kláða og öðrum næmum sjúkdómum, en það tjá- ir ekki að láta hugfallast við það. Kláð- ann verðum vjer að yfirvinna. Því stærri sem erfiðleikarnir eru, því meiri nauðsyn ber til, að beitt sje skynsemi, kappi og samheldni til að yfirstíga þá. Magnús Einarsson. Frá fjallatindum Til fiskimiða. „Egill“ fðr hjeðan anstur uin 1. þ.m. með fjölda fðlks. Þar fóru þrirprestar: sjora Halldðr á Prest- hólum, sjera Björn á Dvergasteini og sjera öeir á Hjaltastað. Dar fðr Stefán verslunarstjóri á Djúpa- vogi. Til Vestmannaeyja fðru: eand. mag. Jðn Þorvaldsson og Jðn verslunarmaður Þorsteinsson læknia í eyjunum. Þeir ætla að vera þar sjer til skemmtunar dálítinn tíma. Með Agli fór og margt af sjðmönnum og verkafólki til Austfjarða, bæði karlar og konur, kvennfólkið flest ráðið til Watnes. Margir af þeim, sem með Agli komu að austan, fóru aftur, voru á skemmtiför. 31. f.m., kl. 11 f.m., kom allsnarpur jarðskjálfta- kippur í Plðanum, en varð þð hvergi tjðn af. „Thyra" kom hingað norðan að á fimmtudags- kvöldið. Með henni komu Skúli Thoroddsen alþm., sjera Kristinn Daníelsson á Söndum, sjera Jðsef Hjörleifsson, frú Clausen úr Stykkishólmi alfarin hingað til Reykjavíkur, ekkja Hjartar Jónssonar læknis úr St.hólmi, Jón Stefánsson cand. theol., Brynjúlfur Kuld cand. phil., Wilhelm Paulson vesfurfaraagent, Einar Jochumson trúboði og m.fl. í norðanveðrinu, sem staðið hafði frá 1.—13. f.m. í Eyjafirði, fðrust þessi skip þar: „Elliði“, eign Halldðrs Gunnlaugssonar verslunarstjóra o.fl. „Hermes“, eign kpm. Kristjánssona. Menn allír kom- nst aí. „Draupner“, eign kaupstjóia Chr. Havsteens, fórst á Hornvík 2.—3. maí Aliir menn fórust. Enn þá vantar skipið „Stormnr“, eign nokkurra bæuda í Arnarneshreppi. Heyleysi var alraennt í Eyjafirði. í Skagafirði er heyleysi talsvert hjá nokkrum, en alls ekki eins almennt og í Eyjafirði. Útskrifaðir af Möðruvallaskðlanum í maí: Friðrik Sigurðsson (Eyjafirði) . . . . ág. 60 stig Halldðr Stefánsson (Múlasýslu) . . . ág. 60 — Valdimar H. Guðjónsson (Skagf.) . . I. 56 — Indriði Benediktsson (Skagf.). . . . I. 54 — Páll Jónatansson (Eyjaflrði) .... I. 54 — Guðmundur Guðmundsson (Þing.) . . I. 54 — Jónatan Jósafatsson (Húnv.) . . . . I. 53 — Guðni Þorsteinsson (Fnjóskadal). . . I. 51 — Guðjón Guðmundsson (Stranda) . . . I. 50 — Þorsteinn Jónsson (Þing.).............I. 60 — Bogi Benediktsson (Fnjóskadal) . . . I. 49 — Þorvaldur Baldvinsson (Svarfaðardal) . II. 47 — Sigurjón Gíslason (Skagf.)............II. 47 — Olgeir Benediktsson (Fnjöskadal) . . II. 46 — Sigurður Jónsson (Skagf.).............II. 45 — Jóhann Sigurðsson (Skagf.) . . . . II. 44 — Hallgrímur Jónsson (Mývetningur) . . II. 37 — Halldór Jóhannsson (Húnv.) . . . . II. 36 — Eggert Einarsson (Eyjafirði) .... in. 29 — Aðalmundur Guðmundsson (Eyjafirði) . III. 27 — Stúlka varð úti í norðanhretinu, Ingibjörg að nafni, frá Þrasastöðum í Stíflu. Hún var að fylgja tveim stúlkum, að eins stutt á leið, og var því klæðlítil mjög. Hinar voru mjög aðfram komnar, er þær fundust. 17. júní næstkomandi er sagt, að þingmálafund- ur Skagfirðinga eigi að verða. Nýlega drukknuðu 4 monn á bát úr fiskiróðri í Eyrarsveit, í Lagarós svo nefndum, í logni en tals- verðu brimi. Formaður: Sigurður Sigurðsson i Lág, frá konu og 7 börnum, efnismaður. Hinir voru: Jón Sveinsson, Mýrarhúsum, bóndi; Jón Sigurðsson vinnumaður frá Lág og Helgi nokkur að auknefni „Mopp". Sigurður Gíslason, bóndi á Staðarbakka í Helga- fellssveit, drukknaði 30. f.m. Kom frá kirkju og fór eftir það með Lofti bróður sinum og vinnu- manni að sundleggja hesta í svo nefndum Ármót- um. Rak hann alla hestana út í hyl, en þegar hans eigin hestur var kominn á sund, fjekk hann krampa og sökk þegar, en hinir mennirnir stóðu á bakkanum og gátu ekki bjargað manninum, og er þó svo mjótt, að hefðu þeir haft band í hendi, var hægt að kasta því til mannsins. Hesturinn var fundinn en maðurinn ekki. Sigurðnr sál. var efnis- maður rnikill. Sagt er, að Guðmundur Bjarnason bóndi á Hof- stöðum í Helgafellssveit hafi misst allt fje sitt í sjóinn, og ýmsir fleiri meira og minna. Gróðurlaust við ísafjarðardjúp, snjór í öllum

x

Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.