Ísland


Ísland - 10.07.1897, Qupperneq 1

Ísland - 10.07.1897, Qupperneq 1
ISLAND. I. ár, B. ársfj. Kringsjá. Grikkir. Eins og fyrr er sagt, vildu Tyrkir fá Þessalíu aila af Grikkjum og geysimikið fje í herkostnað; síðan kefur verið ráða- gerð með stórveldunum og er svo að sjá sem Rússar og Frakkar hafl staðið fast- ast móti kröfum Tyrkjans; nú er sagt, að Tyrkir hafl farið ofan af kröfunni um Þessalíu, en haldi fast við herkostnaðinn og skika nokkra norðan af Grikklandi, og það er talið víst að þeir muni fá. — Hvern- ig Grikkir geti lagt á sig þau fjárútlát ofan á allt annað — það er öllum óskiljan- legt. Þeir eru skuldugir í öllum löndum; einginn vill lána þeim framar og þar að auki er þar hallæri í ár og hungursneyð, ósamþykki innanlands og tortryggni svo mikil, að víða heldur við uppreisn. Sem dæmi má nefna, að öeorg konungur er svo óvinsæll i ríki sínu, að prestarnir fá ekki að biðja fyrir honum á stólnum; ef ein- hverjum klerkinum verður það á, þá rýk- ur söfnuðurinn upp og hrópar einum munni, að sá herjans svikari skuli fara norður og niður með allt sitt hyski. Sama er að segja um ráðgjafa konungs, að þjóðin tor- tryggir þá og herinum trúa þeir svo illa, aðbændur heingja hvern liðsforingja, sem þeir ná í. Það er sannast að segja, að flest geingur á trjefótum í Grikklandi, þjóðin er fátæk og fákunnandi til verk- legra og andlegra hluta og allra þjóða tortryggust og óstýriiátust, svo sem vant er að vera þegar sjálfræði fer eftir ósjálf- ræði og fornri kúgun. — Hjer vil jeg að eins benda á eitt, er sýnir þroskaleysi og fákænsku þjóðarinnar: að hún neyðir Ge- org konung til að fara í stríð við Tyrki, þeir heimtuðu stríð með slíkri frekju, að honum var annaðhvort að gera: segjaTyrkj- um strið á hendur eða fara af landi brott.— Síðan, þegar Gtrikkir hafa farið ófarirnar fyrir Tyrkjum, með þvílíkri svívirðu, að slíks eru fá eða eingin dæmi fyr nje síðar, þá slást þeir upp á konung sinn, kenna honum um allt saman, hann hafi lagt út í stríðið eingaungu til þess að vinna al- þýðuhylli og steyft Grikklandi í stríð og volæði til þess að tryggja sjer og ætt sinni ríkisstjórn, hann sje blauður og hafi setið heima í Aþenu af geitarskap og sent son sinn ragan og dáðlausan móti Tyrkj- um. En Georg konungur sat heima fyrir þá sök, að ef hann hefði farið með hernum, þá átti haun visa tvenna fjandmenn: Tyrki að norðan og uppreisnarher sunnan að. Hann sat kyrr heima vegna þess, að þar gat hann betur haldið niðri óeyrðarflokk- unum innanlands. Þetta vanþakklæti hinnar grísku þjóðar, svo óviturlegt sem það er, verðut enn heiinskulegra, þegar þess er gætt, að ef Grikkland kemst stórskaðalaust út úr þessum ófriði, þá er það einraitt Georg konungi þeirra að þakka. Því ef Grikk- land nær að losa Krít við Tyrki — eins og útlit er fyrir — og láti lítii eða eing- Reykjavík, 10. júlí 1897. 28. töluMað. in lönd af hendi, þrátt fyrir allar ófarirn- ar, þá er það ekki svo mjög að þakka mannúðartilfinningu almennings i Evrópu eða illri stjórn og óvinsældum Tyrkja, ekki heldur þeim ljóma, sem af Grikklandi stendur frá fornum tíðum, ekki kænsku nje þreki Q-eorgs konungs, þótt hann sje vitur maður og dugandi — heldur mest og best því, að systir hans ræður lögum og lofum á Rússlandi hjá syni sínum keis- arannm; en með líússum standa Frakkar, og enska stjórnin fylgir því máli hægt og bítandi fyrir afli almenningsálitsins og á- hrifum þeirra, sem standa drottningunni nær _ prinsessan af Wales er systir Qe- orgs konungs. Þetta er þá sannast að segja af Grikkj- um, að þeir heimtuðu ófriðinn, biðu ósig- ur, ekki fyrir ofurefli óvina sinna, heldur af dæmafáu hugleysi og hræðslu, gerðu síðan uppreisn móti konungi sínum sak- lausum og það þrátt fyrir það, að hann einn gatmeð frændafla sínum borgið landinu. Hátíðin á Einglandí. í ár hefur Viktoría drottning setið að ríkjum í 60 ár og þess vegna er haldin hátíð mikil um allt Eingland. Einglend- ingum þykir vænt ura drottninguna sína, en enn þá vænna um gamla Eingland og í raun rjettri halda þeir hátíð í minningu þeirra ágætismanua, sem þeir hafa átt um þetta 60 ára skeið, í minningu þeirra framfara, sem Bretland hefur tekið á þess- um á þessum tíma, hversu auður lands- ins hefur vaxið við framfarir allra atvinnu- vega, hversu frelsi innanlands hefur auk- ist og menntun og iþróttir blómgast. Þeir fagna því, að Iandið þeirra hefur geingið í fararbroddi meðal þjóðanna um þessi ár, í vísindum, í pólitík og eingu síður í iðn- aði og verklegum framkvæmdum. Það mætti skrifa langar bækur um viðgang Jóns Bola á þessum tíma, því að þá yrði um leið að segja frá framförum Evrópu á þeim tíma, ekkert stórmál, er snerti alla álfuna, hefur verið leitt svo til lykta, að Bretar ættu þar ekki þátt í, margar fram- farir annara Ianda, í iðnaði, vísindum, listum, pólitik, hvar sem er í álfunni, eiga rót sína að rekja til þeirra. Allir vita hversu hátt sæti enskur varningur skipar á heimsmarkaðinum, og að aðrar þjóðir, sem nú standa framarlega í iðnaði, hafa sent þangað menn til þess að læra, og hvað vísindin snertir, þarf að eins að nefna nöfn svo sem Darwin, Mill, Spen- cer, Thomson, skáld og rithöfundar hafa lifað á þessu timabili: Tennyson, Carlyle, Swineburn, Browning og margir fleiri, og stjórnvitringar og þingskörungar, sem allir þekkja og hver maður lítur upp til, sem við stjórnmál fæst, þeir Beaconsfield, Qladestone, Peel, o.s.frv., og listin enska þykir nú standa hærra en nokkru sinni áður og skör ofar iþrótt annara landa. Alls þessa minaist Jón Boli nú við 60 ára stjórnarafmæli drottningar sinnar. Hátíðin fer fram með ýmsu móti, og skulum vjer síðar geta hins helata. Alþing. Sj álfstj órnarmálid. Þar lukum vjer í síðasta blaði frásögn frá alþingi, er stjórnarskrárfrumvarp dr. Valtýs var fram lagt í neðri deild. Þetta frumvarp hljóðar svo: í stjórnarskrá um hin sjerstaklegu málefni ís- lands, 5. janöar 1874, breytist 3., 25., 34. og 61. gr. ásamt 2. ákvörðun um stundarsakir, sem hjer segir: 1. gr. 3. grein orðist svo: í þeim málef'num, sem getið er í fyrra lið 1. gr., ber ráðgjafinn á- byrgð á stjórnarathöfninni. Alþingi kemur fyrir sitt leyti ábyrgð fram á hendur ráðgjafanum eftir þeim reglum, sem nákvæmar verður skipað fyrir með lögum. 2. gr. 1. liður 25. gr. orðist svo: Fyrir hvert reglulegt alþingi, undir eins og það er saman kom- ið, skal leggja frumvarp til fjárlaga fyrir tveggja ára fjárhagstímabilið, sem í hönd fer. Með tekjun- um skal telja bæði hið faata tillag og aukatillagið, sem samkvæmt lögum um hina stjórnarlegu stöðu íslands í ríkinu, 2. janúar 1871, 5. gr., sbr. 6. gr., er greitt úr hinum almenna ríkissjóði til hinna sjerstaklegu gjalda íslands, þó þannig, að greiða skuli fyrirfram af tillagi þessu útgjöldin til hinnar æðstu innlendu stjórnar íslands, eins og þau verða ákveðin af konunginum. 3. gr. 34. gr. orðist svo: Ráðgjafanum fyrir ísland skal heirailt vegna embættisstöðu sinnar að sitja á alþingi, og á hann rjett á að taka þátt í umræðunum eins oft og hann vill, en gæta verður hann þingskapa. Ráðgjafinn getur eínnig veitt öðrum manui um- boð til að vera á þingi við hlið sjer og láta því í tje skýrslur þær, er virðast nauðsynlegar. í for- íölluin ráðgjafa má veita öðrum umboð til þess að semja við þingið. Atkvæðisrjett hefur ráðgjafinn eða sá, sem kem- ur í hans stað, því að eins, að þeir sjeu alþingis- menn. 4. gr. 2. málsgr. 61. greinar orðist svo: Nái uppástungan um breyting á stjðrnarskránni sam- þykki beggja þingdeildanna, og vilji stjórnin styðja málið, skal leysa alþingi upp og stofna til almennra kosninga af nýju. 5. gr. 2. ákvörðun um stundarsakir orðist svo: Þangað til lög þau, er getið er í 3. gr., koma út, skal bæstirjettur ríkisins dæma mál þau, er alþingi höfðar á hendur ráðgjafanum fyrir íslaud, eftir þeim málsfærslureglum, sem gilda við tjeðau rjett. Ekki kom mönnum frumvarp þetta á óvart, þótt fáum muni hafa verið kunnugt til hlýtar innihald þess. Því samræði Val- týs við stjórnina var fyrir laungu á allra vitorði og það talið víst undir eins og hann kom upp hingað, að hann færi ekki einn saman. Stjórnhollir Reykvíkingar litu því sömu augum til dr. Valtýs og húsfreyjan er vön að líta til þeirrar vinnukonunnar, sem henni virðist húsbóndinn hafa talað meira við en góðu hófi gegnir. En nú var frumvarpið fætt og spriklaði í laugarkeri neðri deildar. Og Ijósmóðirin leit i kring- um sig hugsandi um hvort hún ætti að færa það í reifarnar eða ekki. Það þótti sem var, að frumvarpið ekki tryggði það, að íslenskur maður yrði sett- ur á ráðgjafastólinn, nje heldur að ráð- gjafinn mætti á alþingi. í frv. var og ekk- ert ákvæði um það, að ráðgjafinn ekki skyldi eiga sæti í ríkisráðinu. Svo átti stjórnarbaráttunui að vera lokið með þessu og sú breyting gerð, að þingrof skyldi ekki verða, þótt samþykktar yrðu stjórnar- skrárbreytingar nema stjórnin vildi styðja málið. Þetta fundu þingmenn að frum- varpinu. En áður frumvarp dr. Valtýs kom fram hafði Stjórnarsvarið borist, fyrst í boðskap konungs til alþing- is, sem fram kom að vanda við þingsetn- ingu, og var þar sett þvert nei við þeim kröfum, sem þingsályktunin frá síðasta þingi hafði farið fram á. Og sama kvöld komu stjórnartíðindin á flakk og höfðu að færa meðai annars ráðgjafabrjef, dags. 27. maí, og þar gerð grein fyrir neituninni. En eins og menn muna höfðu tillögumenn á siðasta þingi tekið fram þau atriði, er þeim þótti mest um vert að breytt yrði í hinni núgildandi stjórnarskrá og eru þau þessi: 1. „Að eigi verði borin upp í ríkisráðinu nje lögð undir atkvæði þess lög eða stjórnarathafnir, er snerta hin, sjerstöku málefni íslands. 2. Að innlendur maður, er búsettur Bje á ís- landi og mæti á alþingi, beri eigi að eins ábyrgð á því gagnvart alþingi, að stjórnarskráin sje hald- in, hetdur og á sjerhverri þeirri stjórnarathöfn, er snertir hin sjerstöku málefni landsins; og 3. að hjer á landi verði skipaðnr dómur inn- lendra manna (landsdómur) til þess að dæma þau mál, or konungur eða neðri deild alþingis kann að höfða gegn þeim manni, er hefði á hendi hina æðstu stjðrn innlendra mála, út af embættisfærslu hans“. Þessu svarar stjórniu svo, að kröfurn- ar sjeu hjer í öllum aðalatriðunum hinar sömu sem áður hafi verið farið fram á af al- þingi og þá verið neitað. Sú krafa, að sjermál íslands eigi skuli borin upp í ríkis- ráðinu, segir hún að byggð sje á misskiln- ingi bæði á stöðulögunum og á hinni nú- nildandi stjórnarskrá og sambandi þessara laga við grundvallarlögin dönsku. Telur hún það enn sem fyrri röskun á ríkis- heildiuni, ef stofnað yrði „sjerstakt íslenskt ríkisráð" eða ráðgjafi íslands yrði óháður ríkisráðinu danska. Samkvæmt þessu neit- ar hún einnig að flytja aðsetur ráðgjafans frá Khöfn til Rvíkur og telur það þá einn- ig eigi geta komið til mála að skipa sjer- stakan íslenskan dóm, eins og ályktanir þingsins fóru fram á, nema ráðgjafinn ætti búsetu hjer á landi. Neitun stjórnarinnar er þá byggð á þvi, að eigi megi skilja íslandsráðgjafann við ríkisráðið, því það sje gagnstætt grund- vallarlögum Dana; eftir þeim eigi ráð- gjafar konungs að sitja í ríkisráðinu. En eins og kunnugt er, hefur því allt af ver- ið haldið fram af hálfu alþingis, að grund- vallarlögin gildi ekki hjer á landi og það verið margsýnt, að þeim hafi ekki verið fram fylgt hjer. Stjórnartíðindin flytja einnig brjef landsliöfðingja til ráðgjafans og sjest þar hvað hann hef- ur lagt til málanna. Tillögur hans við- víkjandi 1. lið þingsályktunarinnar eða setu ráðgjafa íslands í ríkisráðinu, eru eindregið með þinginu og færir hann rök fyrir því, að sjermál íslands skuli ekki borin undir atkvæði ríkisráðsins. 2. liðn- um er hann og samþykkur að því leyti,

x

Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.