Ísland


Ísland - 10.07.1897, Page 2

Ísland - 10.07.1897, Page 2
110 I8LAND. I **=T=»=l=i ^I='Fi=ii=T=t=i=r=i=ii=r^ ^Ef3S^Ej=I L ISLAND. Ritstjóri: JÞorsteinn Gíslason. Skrifstofa: Laug’iiTeg' 2. Prentað í: Fjelagsprentsmiðjunni. „ÍSLAND" kemur út hvern laugardag á þeasum ársfjórðungi (júlí—október), 13 blöð alls. Áskrift bindandi þrjá mánuði. Hver ársfjórðungurborgist fyrirfram um leið og blaðið er pantað og kostar i Reykjavik 70 au., átum land 79 au., erlendislkr. Póstafgreiðslumenn og brjefhirðingamenn taka móti áskriftum og borgun fyrir blaðið og kvitta fyrir. ! j að hann leggur til, að skipaður sje sjer- stakur ráðgjafi fyrir ísland með þeirri á- byrgð, sem þar er ákveðið og mæti hann á alþingi. En hann telur þó sjálfsagt, að ráðgjafi sá verði að vera búsettur við hlið konungs, í Khofn. Samkvæmt því leggur hann einnig móti 3. lið þingsályktunarinn- ar, um landsdóminn; með því að æsta stjórn íslands hljóti að sitja í Kköfn, þá verði einnig að sækja ráðgjafann þar að lögum. Þingiö og stjórnin eru eftir því stjórnarsvari að dæma, sem hjer er nú fram komið, eingu nær því en áður að komast að sameiginlegum skiln- ingi á þeim greinum, sem verið hafa frá upphafi höfuðatriðin í endurskoðunarbar- áttu íslendinga. Stjórnin lýsir því yfir enn sem fyrrj, að væri kröfum íslendinga sinnt og sambandi íslands við Danmörku komið í það horf, sem þar er farið fram á, þá væru brotin grundvailarlög Dana og ríkisheildinni raskað. Aftur á móti segir þingið, að Grundvallarlög Dana hafi aldrei öðlast gildi hjer á landi og ríkisheiidin stæði jafnóröskuð eftir sem áður, þótt sambandi landanna væri fyrir komið á þann hátt, sem við óskum. Og nú hefur þingið skýlaus meðmæli fulltrúa stjórnar- innar hjer á landi til að fylgja þessum kröfum fram. Hjer standa tveir málsaðil- ar hver gagnvart öðrum með mótsettar skoðanir. Og ekki geta þeir skotið máli sínu til neins dómstóls; annar málsaðilinn er dómarinn. En hvaða andsvar frá al- þingis hálfu liggur beinast við svari stjórn- arinnar? Ekkert annað en þetta: Úr því þið álítið, að ekki sje unnt að koma sambandi íslands og Danmerkur fyrír á þann hátt, sem við teljum nauðsynlegt fyrir velferð okkar lands, án þess að brjóta grundvallarlög ríkisins, þá er það helst ósk okkar, að sambandið sje leyst. Meðan þingið ekki vill eða þorir að svara svo, stendur það eiginlega svarlaust uppi gagn- vart stjórninni. Dví ekki er til neins að þræta um lagaskilning, þar sem einginn dómstóll er til, sem úrskurðí hvor skiln- ingurinn sje rjettari. Og að standa allt af í sömu sporum og ákalla sífellt rjett- lætistilfinning stjórnarinnar, er líkast því, ef þyrstur maður hlypi upp á háan fjalls- hnúk, stæði þar kyr og heimtaði að vatnið rynni upp til sín. Við höfum spreitt okk- ur á að tína tii ýmislegt, sem sýni, að grundvallarlög Dana hafi aldrei gilt hjer á landi. En það vitum við allir, að hjer var allt stjórnarfar á riugulreið eftir að grundvallarlögin voru gefin. Og stjórnin hefur ekki haft fyrir að tína til þau tilfelli, þar sem við ef til vill höfum viðurkennt gildi þeirra. Og þó við í blöðum og tíma- ritum okkar hjerheima færum fram spreing- lærðar og hárfíuar röksemdir fyrir málstað okkar, þá hefur það ekki haft áhrif á stjórnina fremur en skvett væri vatni á gæs. Nú hefur þingið, með allan sinn vilja til að sanufæra stjórnina, sjaldan orðið ásátt um, hvernig það ætti að fara að þvi. Sumir hafa viljað fara miðlunarveg, taka það sem unnt væri að ná og láta hitt bíða betri tíma. Þessi stefna hefur aldrei kom ið eins bert fram á þinginu og nú og er þá aftur þar að að hverfa, er fyr var frá horfið og minnast á frumvarp Valtýs. Þegar það var fram komið, mun flest- um hafa þótt í því svo litlar umbætur að því væri vart sinnandi. Á laugardags- kvöldið kallaði forseti sameinaðs þings alla þingmenn á leynifund og er svo sagt, að þar talaði dr. Valtýr fyrir frumvarpi sínu, en einginn annar þingmaður mælti þar orð frá munni. Vildu þeir fyrst heyra hverju stjórnarfulltrúinn svaraði til máls- ins. Þessa dagana voru viðsjár með mönn- um, sumir vildu fella frumvarpið frá ann- ari umræðu, aðrir vildu setja nefnd í það og byggja á þvi nýtt frumvarp og enn vildu nokkrir taka því eins og það lá fyr- ir. En allur almenningur beið þess með eftirvæntingu, að umræður byrjuðu um málið á þinginu. Það var tekið á dagskrá á þriðjudaginn og voru þá áheyrendapallar neðri deildar svo þjett skipaðir, að hvergi var autt rúm og urðu margir frá að hverfa. Dr. Valtýr hjelt fyrst langa tölu með frumvarpi sínu. Kvaðst hann telja þá að- ferð heppilegasta í stjórnarbaráttunni, að taka smátt og smátt þær rjettarbætur sem hægt væri að ná. Ýmsar af kröfum vor- um sagði hann að rjettast væri að láta liggja milli hluta, þegar ræða væri um stjórnarskrárbreyting. Svo væri um setu ráðgjafans í ríkisráðinu, skipun efri deild- ar og landsdóminn; til þess að fá þessu breytt þyrfti ekki stjórnarskrárbreytingar. Að lokum skoraði hann á landshöfðingja að lýsa því yfir, hvernig stjórnin mundi taka í málið. Landshöfðingi kvað stjórnina ekki hafa Ieitað tillaga sinna í þessu, en umboð sagðist hann hafa írá henni til að lýsa yfir því tyrir hönd stjórnarinnar, að hún geingi að frumvarpi, sem gerði þær breyt- íngar á stjórnarskránni: 1. að ráðgjafinn beri ábyrgð eigi að eins á stjórnarskrárbrotum, heldur á allri stjórnarathöfninni, og 2. að ráðgjafinn mæti á alþingi á sama hátt og nú. Ekki skyldi hann hafa önnur stjórnar- störf á hendi. 61. gr. stjórnarskrárinnar vildi stjórnin og fá breytt á sama hátt og farið er íram á í frumvarpi dr. Valtýs. Ólafur Briem tók þá til máls og kvað frumvarpið ekki einasta fara of skammt, heldur geingi það í öfuga átt. Það mið- aði að því að draga vald úr höndum landshöfðingja og færa það út úr landinu. Hann sagði, að það teldu allir íslending- ar stjórnarskrárbrot, að ráðgjafi íslands sæti í ríkisráðinu, og hvernig væri það þá hugsandi, að nokkur íslendingur feing- ist í ráðaneytið með þeim skilyrðum. Dr. Valtýr svaraði ræðunum og kvað nú vera komið fram tilboð frá stjórninni til samkomulags og kvað þingmálafundi flesta hafa verið því meðmælta, að sam- komulag kæmist á við stjórnina. Hann andmælti því, að frumvarpið miðaði til þess að draga valdið út úr landinu. Ekki kvaðst hann telja það stjórnarskrárbrot, að ráðgjafinn sæti í ríkisráðinu, því hún talaði ekkert um, hvort hann skyldi sitja þar eða ekki. Þá var umræðum frestað til næsta dags og hófust þær þá aftur og stóðu yfir frá kl. 12 til 3 og á eftirmiðdagsfundi frá kl. 5 til 8. Klemens Jónsson tók fyrstur til máls og andmælti frumvarpinu harðlega, vildi láta fella það frá annari umræðu og ekki sinna því að neinu. Sagði, að eing- in ástæða væri til að ætla, að nokkuð yrði farið eftir tillögum ráðgjafans í rikisráð inu og væri bann þá eingu betur settur til að semja við þingið en landshöfðingi eins og nú stæði. Kvað einga tryggingu fyrir því í frumv., að ráðgjafinn yrði ís- lenskur nje heldur að hann mætti á þing- inu. Sagði einnið, að frumv. færi í þá átt að færa vald landshöfðingja út úr land- inu. Þorlákur Q-uðmundsson mælti móti frv. en vildi láta setja nefnd í það. Benedikt Sveinsson hjelt þá klukku- tíma ræðu og lastaði frumv. mjög; kvað hann það grundvallarstefnu og afleiðingu frumv., að alþingi kveði já við ríkisein- ingunni við Danmörku, sem það hafi áður neitað. Þórður Guðmundsson vildi ekki láta þingið eyða tíma sínum til að ræða frumv. heldur fella það strax. öuðlaugur Guðmundsson vildi láta setja nefnd í málið og byggja á frumv. sem grundvelli til samninga við stjórnina og sníða upp úr því nýtt frumv. Honum þótti frumv. ekki koma rjetta boðleið til þingsins og höfðu fleiri fundið það að því. Hann var mótmæltur breytingum á 61. gr. stjórnarskrárinnar og sagði, að stjórnin hefði komið henni inn í frumv. í hrossa- kaupum. Guðjón Guðlaugsson talaði móti frumv. og þótti ekkert varið í ráðgjafaábyrgðina, ef hann ætti að sitja í ríkisráðinu. Hann vildi og ekki taka breytingu frumv. á 61. gr. stjórnarskrárinnar nje nokkurri skuld- bindingu um að hætta sjálfstjórnarbarátt- unni. Jón Jensson hjelt þá langa ræðu og varði frnmv. og Yaltý kröftuglega. Hann sagði, að Valtýr hefði orðið fyrir vanþökk og rangsleitni, þar sem hann ætti skilið þökk og viðurkenningu fyrir sína fram- gaungu. Hann sagði, að þingmenn hefðu aldrei samþykkt endurskoðunarfrumvarpið í þeirri fullvissu, að það geingi fram ó- breytt og vildi Iáta þingið taka frumv. Valtýs. Tryggvi Gunnarsson mælti móti frumv. og vildi að konungur nefndi nokkra menn af íslendingum og Dönum til að ræða mál- ið og komast að samningum um úrslit þess. Valtýr hafði, þegar hjer var komið, livað eftir annað haldið ræður til varnar frumv. Viðvíkjandi setu ráðgjafans í ríkis- ráðinu sagði hann, að hann væri þar sam- þykkur því, að hún ætti ekki að eiga sjer ‘úað, en þessu feingist ekki breytt og væri það ákvæði tekið upp í frumv. yrði það til að fella það. Líka sagði hann, að ó- víst væri, þegar til kæmi, hve ieingi Dan- ir kærðu sig um að halda honum. Hann átaldi landshöfðingja fyrir að hafa ekki farið til viðtals við stjórnina til að semja um málið og skoraði á hann að segja álit sitt um frumv. Landshöfðingi kvaðst ekkert umboð hafa feingið frá stjórninni til að mæla fram með frumv. Valtýs og af eigin sannfær- ingu kvaðst hann ekki geta það. Þá var stungið upp á 7 manna nefnd og samþ. með 13 atkv. gegn 10 að við- höfðu nafnakalli eftir ósk 6 þingmanna. Þessir voru móti því, að nefnd yrði kosin í málið: Klemens Jónsson, Ben. Sveins- son, Guðj. Guðlaugsson, Jón frá Múla, Pjet- urJónsson, Sighv. Árnason, Sig. Gunnars- son, Tr. Gunnarsson, Þórður Guðmunds- son og Þórður Thoroddsen. Þá beiddu 8 þingmenn, að hlutfallskosningar færu fram og voru þá kosnir: Benedikt Sveinsson, Klemens Jónsson, Valtýr Guðmundsson, Sigurður Gunnarsson og Pjetur Jónsson. Fleiri feingu ekki næg atkvæði. Þá var kosið um tvo óbundnum kosningum og fjekk einginn næg atkvæði, þá var kosið um og hlaut þá kosningu Guðl. Guðmunds- son með 12 atkv. Aðrir feingu eigi næg atkv. Þá var kosið bundnum kosningum um Skúla Thoroddsen og Tr. Gunnarsson og var Skúli kosinn með 14 atkv. Málið verður að líkindindum hálfsmán- aðar eða þriggja vikna tíma hjá nefnd- inni og mun síst þurfa að búast við því, að allir verði þar á eitt sáttir. Það sem mjög er nú rætt og misjafn- lega um dæmt er framkoma dr. Valtýs og milliganga hans milli stjórnarinnar og þingsins. Hún hefur feingið stranga dóma bæði utan þings og innan. En þeir dóm- ar eru ástæðulausir. Að ámæla honum fyrir það, að hafa gert tilraun til samn- inga, það er ekki rjett. Það lá beint við eftir stefnu þingsins síðast, þegar sam- þykkt var þingsályktunartillagan, að þing- menn þeír, sem henni stýrðu, hefðu skor- að á landshöfðingja að fara þá utan til viðtals og samninga við stjórnina, því af- stöðu landshöfðingja gagnvavt tiilögunni hafa þeir hlotið að þekkja. Og hefði svo verið gert, þá hefðu þeir verið lausir við að dr. Valtýr eða nokkur tæki að sjer milligaunguna af sjálfsdáðum. Á skrifstoíu þingsins eru: Steingrímur John- sen skrifstofustjöri, Brynjólfur Þorlákssou og Yil- hjálmur Jónsson. Skrifarar i efri deild: Halldór Jónsson og Jón Þorvaldsson. í neðri deild: Morten Hansen, Jó- hannes Sigfásson, Jón Ólafsson og Haraldur Níels- son. Þessar eru helstar nefndir: 1 fjárlaganefnd: Sig. Gunnarsson (formaður), Jón frá Möla (skrifari), Pjetur Jónsson, Tryggvi Gunnarsson, Guðj. Guðlaugsson, Þórður Thorodd- sen, Einar Jónssou. Læknaskipunarmál: J. Hjaltalín (fm.), Þorleifur Jónsson (skr.), Sig. Jensson, sjora Þorkell, Gutt- ormur. Landsreikningar og fjáraukalög: Ói. Briem (fm.), Guðl. Guðm. (skr.), Valtýr. Holdsveikramál: Tr. Gunnarsson (form.), Þórð- ur Thor. (skr.), Klemens, Þorlákur og Þórður Guð- mundsson. Botnvörpuveiðarnar: Kr. Jónsson, Jón Jak., Sig. Stefánsson. Fjárkláðinn: Þorlákur, Guðlaugur, Sighvatur, Benedikt, Jón frá Mála. Samgaungumál: Skúli, Klemens, sjera Jens, Valtýr og Björn Sigf. Alþýðustyrktarsjóðir: Hallgrímur biskup, Þor- leifur og Jón frá Sleðbrjót. Bólusetningar: Þ. Thor., Eiríkur Gíslas., Ein- ar Jónsson. Refaeyðíng : Þorlákur, Bj. Sigf., Guðlaugur. Útibúin hans Halldörs. Jeg hef lesið grein hr. Halldórs Jóns- sonar, sem mun hafa átt að vera svar til mín. En jeg hef ekki fundið neitt svar í henni. Hann hefur ekki nefnt einn ein- asta banka í heimi, sem hafi útibú með því fyrirkomulagi, sem hann hugsar sjer.

x

Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.