Ísland - 26.02.1899, Blaðsíða 4

Ísland - 26.02.1899, Blaðsíða 4
16 ÍSLAND. að mæna’ ekki stöðugt á hauga’ og leiði gróin, að hirða’ ekki’ um, þó misjafnt sje margt um ykkur sagt, að metast ekki’ um, hvað er í sölurnar lagt! Og til þes9 höfum öll við safnazt hjerna saman, að sameiginleg verði’ okkar allra þrá, að andi okkar sameini alvöru’ og gaman, að okkur verði ljettara’ að skilja og sjá hvað við erum, hvað við getum, svo við förum risafetum, þegar forlög heimta eining og mest liggur á. * * * Vjer, sem að erum hin þrautseiga þjóð, þjóð, sem er vöknuð úr drunga, — vjer, sem að eigum mörg ágætis ljóð, eldbrak og sæniðinn þunga, — vjer, sem að knýjum úr hömrunum hljóð, höfum svo lifandi, ólgandi blóð, vjer erum ísland hið unga! * * * Þá hjelt formaður stutta ræðu og las upp nokkur kvæði eptir ýms skáld. Þá las Guðm. skáld Guðmundsson upp kvæðaflokk eftir sig, sem prentaður er í 2. hepti „Sunnan- fara“ frá síðastliðnu ári, „Sigrún í Hvammi“, og var gjörð- ur góður rómur að. En þeir, söngkennari Steingrímur John- sen og kand. Árni Thorsteinson skemmtu með söng, og Boilleau baron ljek á „violoncol11, en fröken Ásta Sveinbjörnsen Bpilaði undir á hljóðfæri. Skemmtu áheyrendur sjer vel, Einkum var mönnum nú orðið nýnæmi að heyra spil Boilleaus baróns; hamj hafði leikið hjer á hljóðfæri á opinberri skemmt- un í hittifyrra og þótti þá takast mjög vel, en ekki síður nú. 8. þ. m. andaðist í Kaupmannahöfn H. -Th. A. Thomsen kaupm., f. í Kelflavík 14. okt. 1834. Hann var einn af merkustu kaupmönnum íslenzkum og átti stærstu verzlunina hjer í bænum, auk nokkurra annara verzlana hjer á Suður- landi. Hann hafði staðið fyrir verzluninni frá dauða töður síns 1857, yfir 40 ár, með miklum dugnaði og aukið stórum viðskipti hennar og álit. Lík hans verður fiutt upp hingað og jarðsett hjer í Keykjavik, samkvæmt ósk hans. 19. þ. m. andaðist hjer i bænum Árni Einarsson, fyrrum hreppstjóri á Vilborgarstöðum í Vestmannaeyjum, faðir Ein- ars verzlunarstjóra við Thomsens verzlun og Jóns verzlun- armanns við Brydes verzlun. Jarðarför hans fór fram í gær Aðfaranótt 22. þ. m. andaðist hjer í bænum Guðbrandur Finnbogason konBúll og verzlunarstjóri við Fisohers verzlun. Suemma í þ. m. andaðist hjer í bænum tómthúsmaður Sigurður Þórðarson; greíndur maður og vel látinn af öllum sem hann þekktu. 01-kofraþáttur. Það er nú sagt, að ýmsir Templarar ætli að gjöra gang- skör að því, að skoðað verði betur en áður í pokahornið bjá reglubrðður þeirra, Birni Jónssyni. Eins og áður er sagt, hefur orðrómurinn um það, að hann væri ekki sem hreinastur Templari Iengi gengið í hvíslingum munn frá munni innan Beglunnar, en karl hefur látið sjer það í ljettu rúmi liggja og tvístigið framan í almenningi í hlaðvarpa „ísaf.“ sem eínlægur bindindismaður. Vinirhans í Keglunni vilja þó, að sögn, fyrir hvern mun bæla þetta umtal niður og Jón Ólafs- son kvað hafa fundið upp á því sujallræði, að royna að fá hann valinn fyrir Stór-Templar í vor, ef hægt verði að koma í veg fyrir kærurnar. Á fundi í stúkunni „Verðandi“, sem telur Björn enn með- al fjelaga sinna, mætti Jón með hann nú á þriðjudagskvöld- ið var og hafði Björn þá ekki komið á stúkufund, að sögn Templara, í 9 eða 10 ár. Karlinn mætti þar klæddur eins- og trúður, segja þeir, og þótti vel við eiga og fyndið af Jóni, að leiða hann þarna fram í loddaragerfi, enda kvað hann nú spila með Björn á ýmsan hátt. Jón veit vel, að sumir af beztu mönnum fjelagsins hafa megnasta ýmigust á Birni í Reglunni, og það er að líkindum ekki til annars, eins og nú stendur, en að spilla fyrir málstað hans, að vera að ota honum fram á fundum. Hviskrað hefar verið um það meðal Templara, að kæra hafi komið fram gegn Bírni á þessum fundi, en ekki verið lesin upp. Má það merkilegt kalla, ef almenningur í stúkunni og fjelaginu lætur slíkt viðgangast. Andlegt gjaldþrot. Það Jítur út fyrir að þeir hafi verið síðustu fjörbrot hins andlega lífs hjá kuuningja okkar „lsaf.“-Birni, kippirnir, sem hann tók nú eptir nýárið. Síðan hefur færzt yfir hann einhver dvali. Hann er andlega gjaldþrota, maðurinn. Steingrímsfirði 27. jan. Verzlun hefur verið hjer mjög ó- hagstæð næstl. ár og hefur verið hart gengið eptir skuldum af verzlununum á Hólmavík og Borðeyri, sem reyndar er hvorttveggja sama verzlunin. Allt er hjer mjög dýrt, einkum kramvara, þar á ofan fást ekki bjer við verzlanirnar um há- kanptíðir algengustu munir, sem heimilin þarfnast, og öll matvara þrotin fyrir miðjan vetur. Það er sorglegt dáðleysi og framtaksleysi, að menn skuli ekki reyna að koma svo ár sinni fyrir borð, að þeir þurfi ekkert að byggja á slíkum verzlunum. Það eru þó engin vandræði, að nálgast vörur frá fjarlægari kauptúnum eptir að strandferðabátarnir eru komnir á. Vonandi þó að þetta lagist með tímanum, þvi margir eru farnir að sjá, að ekki er við slíkt verzlunará- stand unandi, sem nú er hjer. TaKiö eptir. Munið eptir þessum alþekta skó- og vatnsstíg- vjelaáburði sem hvergi fæst betri í bænum en hjá Jóhannesi Jenssyni 2 Kirkjustræti 2. Þessar bækur fást til kaups meö litlu verði: Álþingistíðindin frá upphafi í bandi, íslendingasögur (Sig. Kr.) í bandi, Fornbrjefasafnið óbundið, Biblíu- Ijóðin í skrautbandi, Ritstj. vísar á seljanda. Hjá undirskrifuðum eru eins og að undanförnu hinar miklu byrgðir af Sjóstígvjelum, Karlmanns- skóm og Dömuskóm, sem alt er unnið á minni al- þekktu vinnustofu. Sömuleiðis fást aðgerðir á slitn- um skófatnaði mjög fljótt og vel af hendi leystar og þar að auki er allt seit mjög ódýrt mót borg- un út í hönd. Til þess að sem flestir geti fengið þetta góða úrval af skófatuaði, má borga helming í innskript, sömuleiðis á aðgjörðum, en þeir sem borga allt í peningum fá mjög háar prósentur. Virðingarfyllst. £3 K-irlijustr. 2. Jóhannes Jensson, skósmiður. Til kaupenda „íslands“. öjaldkeri blaðsins, cand. phil. Einar Gunnars- son, Kirkjustræti 4, hefur á hendi innheimtu á öll- — í Almanaki, sem út kom í Winnipeg í vetur er með- al annars ritgerð með fyrirsögninni: „Safn til landnámasögu íslendinga í Vesturheimi". Þar er ágrip af sögu landnáms- manna í Nýja íslandi eftir Guðlaug Magnússon, einn af elstu innflytjendum þangað. Kitgerðin er fróðleg þótt hún sje stutt. um skuldum þess, eldri og yngri, og eru menn vin- samlega áminntir um að borga blaðið til hans hið fyrsta. — Kaupendum innanbæjar verða sendir heim reikningar fyrir yflrstandandi ársfj. þegar þetta tölublað er komið út. Til kaupenda „Sunnanfara“. Iunheimta á útistandandi skuldum Sunnan- fara hefur cand. phil. Einar Gtunnarsson, Kirkju- stræti 4. og áminnast menn um að borga nú þegar eða semja við hann. Sömuleiðis eru útsölumenn beðnir að senda honum sem fyrst, það sem kann að liggja hjá þeim óselt af Sunnanfara. Náttúrusafnið er opið á sunnudögum kl. 2—3. (Ekki í illviðrum né ófærð). Menn eru beðnir að reykja ekki. Ben. Oröndal. Alþýðuskólinn í Ileykjavík. Þar er nú byrjað að kenna teikningu (til aprílloka). Noti menn nú góða og ódýra Jcennslu. Taliiö eptir. Hjá undirskrifuðum fæst ágæt og ódýr Ma- skínuolía. Jóliannes Jensson 2. Kirkjustræti 2. Ritstjóri: Porsteinn Gíslason, Laugaveg 2. Afgr.maður: Þorvarður Þorvarðarson, ÞingholtBstr. 4. Beikningsskil og innheimtu annast: Einar Gunnarsson cand. phil., Kirkjustræti 4. Hvar á Islandi eru flest ÚR, margbreyttust og ódýrust, saman komin á einn stað? Það er hjá PJETRI HJALTESTED írsfflii Í Reykjavík, sem í vetur hefur farið til útlanda til þess að geta ejálfur valið bæði þá vöru og aðrar handa skipta- viuum sínum og boðið þær fyrir bezt verð. á boðstólum fyrir margar þúsundir króna. Eins og úrin eru mísmunandi að verði, þar sem þau eru frá 8 kr. til 150 kr., eins eru þau líka ólík að útliti, gæðum og skrauti. stærð við YESTIS-HKAPP. GULLÚR, karla og kveuna 14 og 18 karat. — Gull-Double-Úr. 14 karat. — Ameríkönsk, óþekkjanleg frá ekta gullúrum. — Silfurnikkel-, stál- og Emaille ÚR. Hin minnstu ÚR á Menn geta sent pantanir og sjálfir ákveðið verðið, því heita má, að úria sjeu með einnar krónu verðmun frá átta til hundrað og flmmtíu króna, og eru þó mörg til af hverri gerð. Ennfremur til sölu: IS.llllS.Klir, margbreyttar, frá 3—90 kr., þar á meðal hinar ágætu „SKIPSKLUKKUR11 fyrir að eins 0 l3L.r. ÚRKEÐJUR af mörgum teg. fyrir samtals fleiri hundruð kr., mis- munandi verð. KAPSEL af ýmsri gerð. — Mjög mikið af EKTA SILFUR-MUNUM fyrir karla og konur, þar á meðai alls konar Brjóstnælur. Trú, von og Kærleili. má kaupa fyrir lítið verð. Hljóöfæri: svo sem Guitarar frá 8—36 kr. Violin frá 6—30 kr. — Spiladósir, Líru- kassar, Harmonikur, Munnhörpur, Ocarinur, Flautur, Fiageoletter, Accord-Zitherar, Columbria Zitheraro.fi. Loptþyngdarmælar — Hitamælar — Kíkirar. — Litmyndir — Litografl Allar pantanir eru fljótt og vel afgreiddar. Pjetur Hjaltested. Prentað í Fjolagsprentsmiðjunni.

x

Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.