Nýja öldin - 16.04.1898, Blaðsíða 3
151
dæmi þykja. Það er fregn, sem
getr haft þýðingu fyrir oss íslend-
iuga — getr ef til vill þýtt sama
sem 5—8 kr. meira en ella mundi
fyrir hver 320 pd. af saltfiski.
Mikið var um dýrðir 20. f. m. á
áttræðis-afmælisdag Henrik Ibsens.
Vóru meðal annars leikar eftir bann
leiknir það kveld á belztu leikbús-
um flestra stórbæja um allan inn
mentaða beim.
— Manntjón mikið af opnum bát-
um í Noregi og eins í Danmörku í
vetr.
— J Austrríki eru ráðgjafaskifti
enn orðin og befír stjórnar-forstöðu
Tbun greifi, aftrbaldssamr maðr í
meira lagi.
— Krít-ey. Ekki reyndist það al-
veg rótt, að Georg Grikkjaprins væri
ortHnn landstjóri á Krít. En svomikið
er víst þó, að soldán hefir nú látið
stórveldin vita, að bann gangi að því,
og er Vilhjálmr þýzki bættr að bafa
á móti því. Var því í raun réttri
ekki annað eftir, en óveruleg forms-
atriði að koma sé sarnan um, t. d.
titil bans, sem líklegt er að verði
„fursti af Krít“. Svo var og talað
um, að stórveldin befðu einhvern lít-
inn setuliðsflokk á eynni nokkurn
tíma fyrst i stað.
— England. Enska stjórnin befir
nú komið með frumvarp um rífari
beimastjórn fyrir Irland, en áðr, og
var frumvarpið gengið fram við tvær
umræður i neðri málstofu. Jobn
Morley fórust svo orð um það, að
aldrei fullnægði það írum og væri
að eins lítið skárra en ekkert; en þó
kvaðst hann ekki vilja greiða at-
kvæði gegn þvi, með því að bver i-
vilnun, sein írum væri gerð, væri
þó spoi^ sem fLytti þá fram í áttina
til sjálfsforræðis.
— Nýtt lilutafélag er myndað í
Höfn í þeini tilgangi að reka fiski-
veiðar og verzlun við ísland. Sá sem
gengizt befir fyrir félagsmynduninni,
er Salomon Davidsen kaupmaðr, er
margir bér hafa við skift. Stofnfé
fólagsins er 400,000 kr., og eru allir
blutirnir seldir. Ekki bafði stofnfundr-
inn verið baldinn, er skipið fór;
var því félagið óskírt og stjórn ókos-
in. Auk S. Davidsens hafði dírektör
Martin Dessau verið einn af frum-
kvöðlum stofnunarinn ar. Félagið kaup-
ir alla verzlunarstaði Bjarnar kaup-
manns Sigurðsonar i Flatey (Flatey,
Skarðstöð, Ólafsvík) og ætlar að
reka þar verzlun. Einnig ætlar það
að reka þorskveiðar á seglskipum,
og reyna að fá sér eitt eða tvö gufu-
skip til fiskiveiða. Kolaveiðar ætlar
félagið einnig að stunda.
Hr. Björn Sigurðson verðr umboðs-
maðr félagsins bór á landi.
— Botnvörpu-hlutafélagiö í Esbjerg,
sem mikið var rætt bér um í haust
og vetr, er nú sagt vera loftkent
nokkuð svo, og tvísýnt að nokkru
sinni nái framkvæmdum á jörðunni,
Bréf frá gömlum bónda,
......vik, 23. Febrúaríus 1898.
Góði berra ritstjóri Jón Ólafsson!
Ég bið yðr að fyrirgefa að ég er
svo djarfr að pára yðr fáeinar línur,
sem verða mjög ófullkomnar, og ég
verð að biðja yðr að lesa í málið
skrifvillurnar. Ég lærði að lesa á
Viðeyjar-sálmabókinni og kann þvi
ekki réttritun, eins og fólkið, sem
núna er að vaxa upp og landssjóðr
kostar kenslu á. — En mig langar
til að masa dálítið við yðr. — Ég
keypti bana Skuld yðar bérna á ár-
unum og bafði oft gaman af benni
eftir að bún „tók tennrnar“. Síðau
befi óg lesið flest blöð, sem þér bafið
gefið út, því að mér finst ég skilja
bezt það sem þér skrifið um þessa
íslenzku pólitík, og þó ég búi bér í
afskektri vík á norðaustr-horni lands-
ins, þá náði ég samt í „Nýju Öld-
ina“ yðar, og þykir vænt um að
þér fóruð að gefa út blað bér á
landi aftr, því að ég hafði svo gam-
an af að heyra, hvað þér segðuð
um þetta stjórnarskrármál. Ég befi
lesið „Dagskrá1^ „Þjóðviljann11 og
„Þjóðólf11, en ég hefi ekki getað
fylgzt með „Þjóðv.“ þar sem bann
er að „fara í gegn um sjálfan sig“
í stjórnarskrármálinu. Ég bafði
reyndar gaman af þeim leik þegar
óg var ungr, en mér finst hann
nokkuð „strákslegr11 fyrir blaðamenn.
„Þjóðólfr“ er nú álténd einurðargóðr
við „þá báu“, og mér finst bann
segja þingmönnum vel til syndanna,
að þeir okri á þiugpeningunum og
sói út í óþarfa bitlinga peningunum,
sem þeir kreista undan nöglum okk-
ar fátæklinganna. Mér ftnst þing-
menn gætu farið til Reykjavíkr á
einum besti duglegum, eins og skóla-
piltar fóru í ungdæmi mínu, og urðu
margir miklir og góðir menn fyrir
það. „Dagskrá11 er stundum of há-
fleyg fyrir mig, en vel segir bún
þeim til syndanna, sem fást við þjóð-
mál, og oft þykir mér vænt um Einar
—þegar ég skil bann. En ekki get
ég gert að því, þegar ég les eftir
hann, að mér dettr stundum Halldór
sál. Hómer í hug. Munið þér ekki
eftir bonum ? Hann var fyrir austan
og ætlaði alt af að bjóða sig til
þings til að koma vitinu fyrir þingið.
Hann helt oft ræður í kaupstaðnum
og stóð upp á tunnu og endaði vana-
lega á því að segja: „Margt yrði
öðruvísi á þingi, ef ég væri þar“.
En mér dettr samt auðvitað ekki í
bug að jafna þeim saman Halldóri
og Einari, þvi að Halldór var kom-
inn á sveitina og gerði þetta til að
fá sér aura. Þér fyrirgefið, þó ég
skrafi nú svona eins og við gerum
bérna heima í víkunum. En það
sem ég eiginlega ætlaði að segja um
„Dagskrá, er það, að mér finst bún
bafa nokkuð fyrir sér í því, að miðlun-
in sé verri en valtýskan, að því
leyti, að með miðluninni játum við,
að við sóum nýlenda frá Dönurn
og bindum okkr við rikisráðið um
aldr og æfi, því að svo stór breyt-
ing á stjórnarástandi okkar, eins og
miðlunin, mundi verða álitin endileg
úrslit, og álitið, að við með henni
hefðum játazt undir ríkisráðið með
löglegum samningum. Valtýskan
yrði aftr álitin bráðabirgðabót, sem
við brintum strax af okkr og fengj-
um aðra betri, þegar við færum að
bafa áhrif á ráðgjafann og begna
honum eftir ábyrgðarlögunum, því
ég efast ekki um að bæstiréttr yrði
óhlutdrægr í því eins og Skúlamál-
inu. Eða er það þessi ríkisréttr,
sem á að dæma bann? Mér þætti
gaman að beyra álit yðar um þetta.
Við borgum ykkr svo mikið af pen-
ingum, þessum blaðamönnum, að
mér finst þið gætuð staðizt við að
skrifa okkr fáeinar línur annað slag-
ið. — Okkr þykir það líka tortryggi-
legt, að landsböfðingi og sumir þeir
bálaunuðu skuli vera móti valtýsk-
unni; við liöldum það sé kaunske
eittbvað gott í henni, sem við sjáum
ekki samt. — Og okkr í sveitunum
liggr við að bafa ólukku á þeim
þingmönnum, sem fylgja þeim þess-
um stóru herrum. Ég befði haft
gaman af að pára' yðr um margt
fleira; en ég er bræddr þór endizt
ekki til að lesa það.
Mér þykir ágætt það sem „Dag-
skrá“ segir um vistarbandsleysing-
una. Lausamenskulögin setja okkr
bændrna alveg á hausinn, og þeir
þingmenn, sem að þeim unnu, befðu
aldrei átt á þing að komast. Ég
vona að þingið afnemi þau lög sem
fyrst aftr, og ég veit að ritstj. „Dag-
skrár“ vinnr af alefli að því, þegar
hann kemst á þing, sem vonandi
verðr við næstu kosningar. — Ég
vil engin eftirlaun bafa. Það er
aumt, að bændrnir, sem á þingi eru,
skuli ekki afnema þá landplágu.
Þeir draga dám af höfðnigja-andan-
um í ítvík og þora ekki að segja
skoðun sína á þinginu.
Fyrirgefíð mór nú alt masið. —
Ætli ég mætti eiga von á línu frá
yðr? — Verið þér blessaðir og
sælir.
Yðar þónustu-reiðubúinn velunnari
Þ. Þ.
Bréfi pessu verðr svarað næst.
Rilstj.