Nýja öldin

Ataaseq assigiiaat ilaat

Nýja öldin - 16.04.1898, Qupperneq 4

Nýja öldin - 16.04.1898, Qupperneq 4
152 Landshornanna á milli, — Þýzkt botnvörpuskip rakst í góðviðri á land. undan Meðallandi og strandaði. 8 skipverjar björguð- ust í land á bát og eru bingað komnir; en 5 héngu í reiða skipsins eftir, og bjargaði franskt fiskiskip þeim og setti þá upp í Vestmann- eyjar. — Botnverping enskum, er í land- helgi veiddi, náði „Heimdal“ milli lands og Vestmanneyja. Var sá að leggja lóð í landhelgi. Var lóðin upptæk ger og skipstjóri sektaðr um 90 kr. (!). Úr höfiiðstaðniim. Rvlk, 15. April. — Afmœli kónungs hefir aldrei verið eins lítið við haft í Rvik eins og í ár, einmitt er hann var áttræðr. Ekkert alment samsæti né hátíða- hald í bænum. Eitt félag að eins — „Reykjavíkr klúbbr“ — hélt sam- sæti, en það var að eins fyrir með- limi þess, um 50 manns. Það er þó óhætt að fullyrða, að engin þverrun á drottinhollustu Reyk- víkinga hafi valdið þessu, heldr al- gengr álappaskapr bæjarmanna. Það má örugt segja, að öll þjóð vor ber ávalt einkarhlýjan hug til Kristíáns konungs ins IX., ins bezta konungs, sem hún hefir haft af að segja, og árnar honum af hreinum hug farsældar og velgengni. — „Heimdallr“ kom hingað Laug- ard. fyrir Páska og hafði með sér mislinga-sýki. Vóru menn af hon- um í landi hér um allan bæ það kveld, en síðan var póstr, sem hann flutti, sendr um borð aftr og skipið lagt í sóttgæzlu. — Eimsk. „Asgeir Asgeirsson“ kom hingað frá Túnsbergi á Langafrjádag með vörur og farþegja. Með hon- um kom Sig. Thoroddsen verkfræð- ingr, L. A. Snorrason kaupmaðr af ísafirði o. fl. Skipið hélt héðan næsta dag til ísafj. — Erakneskt herskip „La Cara- vane“ kom hér 9. þ. m. Síðar von á „La Mancheu, og á spítalaskipinu, sem var hér í fyrra („St. Paul“), er þá strandaði, en Helgi Helgason gerði við. Hefir Erökkum þótt hon- um vel takast í skipkvíaleysi og til- færingaleysi því, sem hér er, og hafa þeir ritað um það í franskt blað og sett þar mynd af Helga. — Hlýviðri nú og þurviðri dag- lega. — „Skálholt“ kom 2. páskadag og með því ýmsir farþegar: Kaup- mennirnir Bartels (Rvík), P. J. Thor- steinson (Bíldudal), Sæm. Halldórs- son (St.hólmi) o. fl. — „Hólar“ komu degi síðar. — Skipstjóri Aasberg á „Skálholt11 bauð á Miðkud. ýmsum bæjarbúum að skoða skipið: landshöfðinga, amt- manni, biskupi, yfirdómendum, for- stöðumönnum læknaskóla, prestaskóla lærða skóla, ritstjórum blaðanna, bankastjóri, landritara, bæjarfógeta, alþm. Jón Jakobssyni o. fl. Öflum leizt mæta vel á skipið, sem er 380 smálestir, hefir 28 rekkj- ur á 2. farrúmi og 16 á fyrsta. Nokkru fleiri menn geta verið í hvoru farrúmi, en rekkjur eru fyrir, því að vel má sofa á setbekkjum. Sumir gestanna fóru síðan yfir á „Hóla“. Það skip er l1/^ feti breið- ara, en annars nær eins að öllu og hitt. Skipstjóri þess er Jakobsen. Skipstjórar hafa áðr verið stýri- menn á póstskipunum hér og eru vinsælir menn og vel látnir. Auglýsingar í „N. Ö.“ verða að koma til ritstj. fyrir hádegi á Eöstudögum, ef stór- ar eru. Smærri auglýsingum má koma til kl. 3 síðd. Umboðsmenska og erindrekstr. Undirskrifaðr, sem hefir verzlun- arborgararétt í Reykjavík, tekst á hendr að kaupa hér alls kyns varn- ing fyrir karla og konur út um land og senda hann með strandferðum; einnig að selja hér alls konar ísl. vöru gegn peningum eða vörum fyr- ir utanbæjarmenn. — Erindi þessi rekin samvizkusamlega og fyrir sann- gjarna þóknun. Jón Olafsson ritstj. — Nú eru aftr til nokkur eintök af 11. tbl. af „N. Ö.“ og geta þeir nú fengið þau, sem áðr hafa eigi fengið þau, ef þeir óska. Stutt fréttabréf og ritgerðir þiggr „N. Ö.“ þakksaml. frá hverj- um sem er. O'rrrpuin kemr út á Akreyri, 24 O I Lmin tölubl. á ári. Verðár- gangs 2 kr. — Eina blaðið, sem kemr út á Norðrlandi. AI |CTD| kemr út á Seyðisfirði, AUo I nl 36 blöð um 4rið) {stóru fjórdálkuðu broti. Tíðar fróttir frá útlöndum, þar sem Seyðisfjörðr hefir greiðari og meiri samgöngur við út- lönd en nokkur annar staðr á land- nu. Verð árg. 3 kr. Ritstjóri Skaft/L Jósepsson. Á þessum ársfjórðungi heíir ,N. •• O’. meiri títbreiðslu í Reykjavík, heldr en nokkurt annað blað. Ekkert eitt blað annað yeit- ir a u g I ý s i n g u m jafn- mikla b æ j a r - útbreiðslu. Johs. Hs er nú kominn lieim aftr me miklar birgðir af vörum msen ð Alt vandaðar vörur. Verð svo lágt sem staðizt getr eftir gœðum. JáiTivörur. Nýlenduvörur. Niðrsoöin matvæli. Kryddvörur. Eldhúsgögn Plet-vörur og Kikkel-vörur. Yínföng alls konar. Tóbak, vindlar. Ýtarlegri auglýsing sídar.

x

Nýja öldin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja öldin
https://timarit.is/publication/32

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.