Nýja öldin

Tölublað

Nýja öldin - 07.05.1898, Blaðsíða 2

Nýja öldin - 07.05.1898, Blaðsíða 2
170 KTÝJA ÖLDINT kemr út hvern Laugardag (og oft endrarnær, alls 72 tölbl. um árið). Kostar innanlands 3 kr. 50 au. árg. — 90 au. ársíjðrð. (3 mán.). — Erlendis 4 kr. 50 au. — 5 sh. — doll. 1.25 — árgangrinn. Abyrgðarmaðr: Jón Olafsson, (Glasgow-húsi, 2. lofti, norðrenda). Aðal-umboðsmaðr blaðsins, Signrðr Krist- jánsson bðksali, annastsöluog útsending.— Afgrriðslustufa uppi yfir Landsbankanum. Prentuð i Félagsprentsmiðjunni. að taka alt að 500 milíóna lán að auk, ef á þarf að halda, og geta þau fengið það gegn 3 til 31/2°/0. Hins vegar eru þeir að mðrgu varbúnir mjög við ófriði, enda var lítill atkvæðamunr á þingi, er réð úrslitum, og fjöldi af þjóðinni var mótfailinn ófriðnum og ámæla forseta harðlega fyrir. Aðrar fréttir. Noregr. Tambs Lyche, ritstjóri mánaðarritsins „Kringsjaa“ dó úr brjóstveiki 16. f. m. 38 ára gamall (f. 1859). Er að honum inn mesti mannskaði. Danmörk. JÞaðan ekkert nýtt markvert. Káðaneytið þykist enga ástæðu hafa til að víkja úr sæti eft- ir þvi sem forsætisráðgjafanum hafa farið orð. En svo segja sum blöð að það sé lítið að marka, því að enginn só ólíklegri til að vita neitt um útsjón ráðaneytisins til lengri lífdaga, en ráðaneytið sjálft. Danskt hlutafólag til verzlunar var enn nýmyndað í Höfn, og er verzlunarhúsið Adolph's Enke talið helzt fyrir því. Það félag hefir keypt verzlanir Grams allar hór á landi: á Þingeyri, í Stykkishólmi og í Ó- lafsvík. — Ýnmlegt. Orð lék á því, að Bandaríkin mundu hafa sent her- skip, er þeir höfðu í Hongkong, til Eilipps-eyjanna til að taka þær. Eins að þeir mundu taka Portorico, sem Spánverjar eiga lika. En yfir því hefir þingið og forsetinn lýst, að eigi ætli Bandaríkin sér Kúba, heldr að eins að friða laudið og koma þar á frjálsri stjóm eftir ósk landsbúa. — Taki þeir Filippseyjar og Porto- rico, mun ið sama verða ofan á þar, að landsbúar fá að setja sér þá stjórn, sem þeir vilja sjálfir. En ó- líklegt er að þau hverfi aftr undir Spán. Hins vegar var og um það rætt, að ekki væri ólíklegt að Bandarikin legði hald á Sandvikreyjarnar og eins á eyjar Dana í Vestr-Indíum, en að eins meðan á ófriðnum stæði, og skiluðu þeim aftr að loknu stríð- inu. Danir sendu eitt herskip („St. Thomas“) til eyjanna, er stríðið byr- jaði, til að gæta lands. Öll Norðr- álfuveldi hafa lýst yfir hlutleysi sínu í ófriðnum. Bandarfkjamenn hafa lýst yfir því, að þeir fylgi viðteknum alþjóða- rétti og leyfi ekki víkingskap gegn Spánverjum. En Spánverjar hafa lýst yfir þvi, að þeir ætli að leyfa víkingskap gegn Bandaríkjum (þ. e. leyfa einstökum mönnum að legg- jast í víkingu til ránskapar). Mæl- ist það illa fyrir. „Bjarki" vilir vegar, Vinr vor, ritsjóri Bjarka, ritar 4 dálka langt mál um það, hve mikill sparnaðr það væri og hyggindi bæði fyrir • land vort og mikla norræna ritsímafólagið, ef ritsiminn yrði lagðr I upp á Berufjörð og þaðan landveg suðr Skaftafellssýslur sunnaulands til Reykjavíkr, i stað þess að leggja hann landveg norðr til Akreyrar og þaðan austr í Múlasýslur. Ritstjóri Bjarka heftr, auðheyrt, aldrei ferðazt landveg sunnanlands. Annars mundi hann vita það, sem hverjuin þeim manni er auðsætt, sem þá leið þekkir, að aldrei getr komið til mála að legja ritsímann þá leið, af þessari einföldu ástæðu, að þar hlýtr hann að vera undirorpinn slitn- un og stórskemdum árs árlega, og oft hagar þar svo til, að langtímum saman yrði ekki auðið að gera við skemdirnar. Vér skulum taka rétt til dæmis Skeiðarársand. í»ar verða oft þau hlaup, að hver einn og einasti af staurum þeim, sem ritsímanum verða að halda uppi, mundu þar brotna og falla, og það á heillar dagleiðar svæði. Og þar geta hæglega liðið 1—2 vikur, eða fleiri, sem engri skepnu uema fuglinum fljúgandi er fært yfir sandinn; og yrði þá shninn að liggja i lamasessi viðgerðarlaus. allan þann tíma. Sviplikt getr átt sér stað á Breiða- merkrsandi, Mýrdalssandi, og ejada víðar, þótt þessi sé háskamestu svæðip. Það verðr að vera nerðaulauds, yfir Akreyri, að Austrlandið og Reykjavík tengjast simabandi, hvort heldr sem sæsímin verðr nú lagðr á land á Austrlandi eða hér syðra, ekki allfjarri Reykjavík. Þó að það kosti meira að leggja sæsíma en landsíma, svo að lítils- háttar bráða-sparnaðr yrði að því að leggj'a síman á land eystra,. þá yrði hins vegar meiri staðaldrs-kostn- aðrinn með því móti á landi; það þyrfti að minsta kosti einar 3—5 símastöðvar, og á hverri af þeim dýran mann. En lægi síminn á land hér syðra, þá þyrfti að eins eina stöð (í Reykjavík). Þá mætti tengja Norðrland og Austrland við Reykjavík með málsíma (telefón), og yrði það ódýrra og þjónustan sér í lagi. Auðvitað ríðr mest á að samband- ið milli Reykjavíkr og útlanda hald- ist óslitið. , En liggi ritsíminn yfir land hingað af Austrlandi, þótt norðanlans sé, þá er miklu hættara við bilun á símanum á landi. En hver slík bilun sliti höfuðstað lands- ins úr sambandi við útlönd. Lendingarstaðr ritsímans. Eftir að greinin hér á undan (um ummæli „Bjarka“ um lendingarstað ritsímans) var skrifuð og alsett í prentsmiðjunni, kom „Thyra“ frá Höfn. Með henni barst einum af meðlimum Blaðamannafélagsins hér (hr. E. H.) bréf frá Dr. Valtý Guð- mundssyni, og gerði hann (eftir til- mælum Dr. V. G.) féiagsmönnum kunnan kafla úr því brófi, er snerti ritsímamálið, og skulum vér með leyfi bréfþegans geta hór nokkurs ins helzta inntaks: Góðar horfur á því, að fyrir- tækið komist á. Rússar inunu leggja eitthvert fé til hans, og góðar vonir um England, en lítil von um Frakka. Félagið hugsað sér, að leggja símann að eins til Reykjavíkr, en alþingi hafði engin skilyrði sett um það, hvar til íslands hann skyldi lagðr. — Dr. Valtýr fór frani á við félagið, að það legði símann í land á Austrlandi, og svo landlinu þaðan norðr um land til Reykjavikr; en félagið var ófáanlegt til þess; vill það ekkert eiga við landlínu. Svo snori dr. V. G. sér til ríkisþings og innanríkis ráðgjafa, til að reyna að vinna bilbug á félaginu þá leið. Við lauslega rannsókn reyudist svo, að landlínur þær, sem fram á var farið (frá Austrlandi um Akreyri til Reyk- javíkr, og frá Stað í Hrút.afirði til ísafjarðar) mundu kosta 400—500 þúsundir króna. Þetta er svo mikil upphæð, að dr. V. G. þóttist sjá, að seint yrði landsími lagðr alla þessa leið, ef landssjóðr ætti einn að kosta lagninguna;, hefir hann því reynt að koma því til vegar, að landsbninn verði lagðr jafnfraint sæsímanum til íslands, og hefir komizt það áleiðis, að fáanlegt er, að. sæsiminn verði lagðr á Land eysira, ef laiuMjórnin hér vill sjá um lagning landsinwm

x

Nýja öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja öldin
https://timarit.is/publication/32

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.