Nýja öldin - 11.05.1898, Qupperneq 4
176
stjórnin veitti Reykjavíkr klúbb 100
krónur i þessu skyni. — Allir á
fundi nema M. B. og sr. E. Br. —
Séra Þ. B. tók þátt í 4 fyrstu mál-
unum, en varð þá að fara frá.
— Fundr o. Mal. — 1. W. 0.
Breiðfjörð biðr um útmælingu i við-
bót við erfðafestuland sitt og var á-
kveðið að taka fyrir útmælingu þessa
á staðnum næsta mánudag kl. 8 árd.
ásamt öðrum útmælingum, er fyrir
liggja. — 2. Varzla bæjarlandsins
falin Guðmundi Ingimundarsyni í
sumar, um sama tíma og með sömu
kjörum sem síðast liðið sumar. — 3.
Beiðni Þorvaldar lögregluþjóns um
launahækkun vísað til fjárhagsnefnd-
arinnar. — 4. Brunab.virðingar: yfir-
mat á húsi Gísla Þorbjarnarsonar
við Laugaveg samþykt, 3,500 kr. —
5. Kvörtun frá ábúandanum í Laug-
arnesi um ágang af hestum og átroðn-
ing á túnið í Laugamesi af girðinga-
leysi kring um holdsveikisspítalann.
Eormanni er falið að hlutast til um
að ráðin yrði bót á þessu. — 6.
Vegan. falið að láta bera ofan í
Laugaveginn inn að Rauðará, og
sömuleiðis í Laugahúsveg neðanverð-
an, enn fremr lenging á Nýlendu-
götu að inum nýja brunni, og full-
gerð á stéttinni sunnan við Banka-
stræti ásamt brú yfir lækinn. Enn
fremr cauðsynleg bráðbirgðaraðgerð
á rennunni vestast í Austrstræti að
norðanverðu. Svo var og veganefnd
falið að gera plássið kringum Lauga-
húsið þurrara og þrifalegra með
rennu eftir þörfum og nota til þess
það grjót sem þar er fyrir hendi.—
7. Samþykt að kaupa af Amunda
Amundasyni í Hlíðarhúsum lóðar-
spildu norðan með götunni fyrir 1
kr. □ al. (sbr. fund 6. jan. þ. á).—
8. Kom fyrir beiðni Rannveigar
Torfadóttur á Bakka um styrk til
að verja hús og lóð fyrir sjávar-
gangi. Málinu frestað þangað til
fyrir lægi álit fátækranefndarinnar,
þar sem beiðandinn þiggr sveitar-
styrk.
Allir á fundi nema Dr. J. J. og
Magn. Benj. Tr. G. gekk af fundi
meðan 6. máhð var rætt.
—-,,Hólar“ komu áSunnudagskvöld.
„Skálholt“ í gærmorgun. — Fjöldi
farþegja með hvoru um sig. Með
„Hólum“ kom meðal annara: Bened.
Sveinsson alþm., Stefán Guðmunds-
son verzl.stjóri af Djúpavogi, séra
Þorsteinn Halldórsson á Þinghóli
með syni sinum, Vilhelm Jensen
snikkari af Eskifirði með fjölskyldu,
yngismær Helga Bech frá Sómastöð-
um, Reiðarf., Lárus óðalsbóndi í Pap-
ey, o. fl., alls um 60 manns.
— Með „Skálholti“ komu meðal
annara: Lárus sýslum. Bjarnason með
frú, séra Páll E. Sívertsen, séra Árni
Þórarinssonar í Miklholti o. fl., alls
um 70 manns.
— Frakneskr stroJcumaðr. Þrísiglt
fiskiskip, „Mathilde", er kom hér
inn nýlega, hafði meðferðis mann, er
fundizt hafði i skipinu skömmu eftir
að það var lagt í haf frá Frakk-
landi. Hann kvaðst vera vinnumaðr
ofan úr sveit, og langaði út á sjóinn.
Ekki kunni hann til sj'ómensku og
var lítt penningaðr; hafði milli 10
og 20 franka. Hér á höfninni tók
hann skipsbátinn i leyfisleysi og
laumaðist í land. Var að tilhlutun
franska konsúlsins tekinn hér og
fluttr um borð í herskipið annað
frakneska, sem veitir honum far út.
Athugagrein.
Auglýsing um Þingvallafund sá
ég fyrst eftir að ritgjörðin á 1. bls.
var alsett. Vissi ég því eigi að séra
8. G. var einn fundarboðandinn.
Ritstj.
í „N. Ö.“ verða að koma til ritstj.
fyrir hádegi á Föstudögum, ef stór-
ar eru. Smærri auglýsingum má
koma til kl. 3 síðd.
Þingvallafundarboð,
Með því að svo má gera ráð fyrir,
að á næstkomandi sumri, eigi síðar
en 20. dag Ágústmánaðar, verðibúið
að byggja hús það á Þingvelli, er
styrkr er veittr til í núgildandi fjár-
lögum, fyrir þjóðlegar samkomur og
erlenda ferðamenn, þá viljum vér
undirritaðir leyfa oss að skora á in
einstöku kjördæmi landsins að kjósa
og senda þangað fulltrúa, einn eðr
tvo, eins og ákveðið er um þjóð-
kjörna alþingismenn.
Tilgang fundarins höfum vér hugs-
að oss þann, að ræða mest um-varð-
andi almenn þjóðmálefni, sér í lagi
stjórnarskipunarmálið, en tengja þar
við jafnframt þjóðminningarsamkomu
fyrir land alt með svipuðu fyrir-
komulagi og gert var í Reykjavik
síðastliðið sumar.
Vér fulltreystum því, Islendingar,
að þér munuð gefa þessari áskorun
því rækilegri gaum, sem þér munuð
finna til þess, eins og vér, að aldrei
hefir verið brýnni ástæða til þess,
en nú, að sameina beztu krafta fóstr-
jarðarinnar henni sjálfri til vegs og
frama.
D |AD1/| ó- Seyðisfirði flytr öll
tíðindi innlend og útlend,
sem þjóð þarf að vita. Er nú að
húðfletta leyndarlyfin, Brama, Kína,
Sýbillu & Co. Færir skrítlur og aðra
skemtun. Neðan máls in fræga
saga „Snjór“ eftir Kjelland. Eitt
blað á hverri viku. Kostar 3 kr.
Ritstj. Þorsteinn Erlingsson. [56*
Fundrinn verðr settr fyrnefndan
dag, 20. Ágúst á hádegi.
Ritaö í aprílmánuði 1898.
B. Sveinsson. Sigurðr Gunnarsson.
Kl. Jónsson. Jón Jónsson
þm. Eyf.
Pétr Jénsson.
Á þessum
ársfjórðungi heíir ,N.
Ö’. meiri utbreiðslu
í Reykjavík, heldr en
nokkurt annað blað.
Ekkert citt klað annað veit-
ir auglýsingum jafn-
mikla 1) æ j a r - utkreiðslu.
FlUtt!
Ritstjórnarstofa þessablaðs, og
heimili ritstjórans, er frá 14. Maí á
1. sal í inu nýja steinhúsi hr. stein-
höggvara Schau’s á Laugavegi 10.
Til skýringar þessu fundarboði
skal það tekið fram, að það er til-
ætlun vor fuudarboðenda, að allir
kjósendr í hverjum hreppi inna
ýmsu kjördæma landsins, eða því
sem næst, eigi fund með sér fyrir
forgöngu beztu manna, að þeir á
þeim fundi kjósi kjörmenn, 1 fyrir
hverja 10 kjósendr eftir gildandi
kjörskrám, að þeir kjósendr, sem
mæta, verði nafngreindir í fundar-
gjörðunum á sama hátt sem í kjör-
skránum, og að allir kjörmenn hrepp-
anna, að því búnu, komi saman á
einn fund, og kjósi þar fulltrúa til
Þingvallafundarins, 1 eða 2, eftir
því sem alþingismennirnir eru. Það
segir sig sjálft, að alþingismennirnir
eru ekki kjörgengir, hvorki sem
kjörmenn né Þingvallafundar-full-
trúar.
55J Fundarboðendrnir.