Nýja öldin

Tölublað

Nýja öldin - 11.06.1898, Blaðsíða 1

Nýja öldin - 11.06.1898, Blaðsíða 1
I, 49. Reykjavík, langardag 11. Jiím. 1898, Til minnis. Bœjarstjórnar-fundir 1. og 3. Fmtd. í mán., kl. 5 slM. Fátœkranefndar~funclir 2. og 4 Fmtd. í mán., kl. 5 slðd. Forngripasafnið opið Mvkd. og Ld., kl. 11—12 árdegis. Landsbankinn opinn dagl. kl. 11 ftrdegis til 2 siðdegis. —Bankastjðri við kl. HV2—1’/«.— Annar gæzlustjóri við kl. 12—1. Landsbókasafnið: Lestrarsalnr opinn dagl. kl 12—2 slðd.; ft Mánud., Mvkd. og Ld. tilkl. 3 slðd. — Útlftn sömu daga. Náttiirugripasafnið (1 Glasgow) opið á Sunnu- dögum kl. 2—3 síðd. Söfnunarsjóðurinn opinn 1 barnaskólanum kl. 5—6 siðdegis 1. Mánud. í hv. mánuði. ííæsta Yika. Júní 11. 1845 f. sr. Sofónlas Halldórsson. 12. 1783 hófst gos úr Skaftárjökli. „ 1824 f. sr. Sveinn Skúlason. „ 1860 f. Steingr. Stefánsson bóka- vörður 1 Chicago. 15. 1834 f. sr. Davíð Gaðmundsson. „ 1853 £ sr. Sig. Jensson alþm. 17. 1221 bardagi 4 Breiðabólstað (Björn Dorvaldsson féll). „ 1808 f. Henrik Wergeland. „ 1811 f. Jón Sigurðsson. „ 1811 f. Skafti Jósefsson ritstj. Maí 11- L. 3 síðasta kvartól. „Hólar“ fara austur um. 12. S. 1. Sunnud. eftir Trinitatis. „Skálholt" fer vestur um. 13. Má. 14. Þ. 15. Mi. Sólargangur 1.36,—10.25/ „Laura“ kemur vestan. 16. Fi. 9. v. sumars hyrjar. 17. Fö. 18. L. Tungl hæst á lofti. Af sérhverju tölublaöi NÝJU ALDARINNAR eru síðan 1. Apríl borin út hér um bæinn á fjórða hundrað eintök. Það votta ég, sem er af- greiðslumaður blaðsins, Beykjavík, 20. Maí 1898. Lendingarstaður ritsímans. Það yar ekki nema anðvitað, að Austfirðinguln mundi verða það á- hugamál að fá ritsímann lagðan á land hjá sór og tryggja sér þannig ritsímasamhand við önnur lönd nú þegar, í stað þess að verða annars að bíða nokkur ár. Vér gátum því við því húizt og nærri gengið að því vísu, að hróðir „Bjarki“ tæki í þann streng, þó að oss hins vegar hefði verið það skilj- anlegt, ef hann hefði orðið svo víð- sýnn að líta eins mikið á landsins hag eins og á stundar\i&g fjórðungs síns. Hinu áttum vér ekki von á, að blaðið yrði svo ringlað, að bregða oss og öllum hinum blöðunum hér um hreppa-pólitík. Það að líta fyrst og fremst á hagsmuni alls landsins, það er þá í augum „Bjarka“ „hreppa-pólitík“. „Bjarki“ skilur ekkert í því, að öðrum geti gengið neitt til að vilja hafa lendingarstað símans sem næst höfuðstað landsins, annað en sú eig- ingjarna hvöt, að fá simann til Beykjavíkur einu eða tveim árum fyrri, en hann ella næði hingað. Hann segir meðal annars: „Vonandi er að einhver lifi, sem minnir Norð- urland og Austurland á atferli þess- ara manna, ef þeim lánast að drepa verzlun og atvinnu þessara lands- fjórðunga bara til þess að Reykjavík fái fréttaþráð tveim árum fyrr eu ella“. Þetta eru nokkuð digur orð, og óvenjulega illgjarnleg. Hitt er eftir að vita, hvort hlaðinu reynast þau að sama skapi hyggileg. Þegar rit- stjóri „Bjarka“ er húinn að vinna Austurlandi lengur og dyggilegar til gagnsemdar en vér höfum gert, og getur sýnt meiri árangur starfasíns, þá kann hann að hafa hetra útlit, en nú, fyrir því' að sér verði trúað, er hann ber oss þeim rógi meðal Austfirðinga, að vér viljum „drepa verzljm og atvinnu“ Austfírðinga- fjórðungs, sem oss af eðlilegum or- sökum er hjarta næstur af öllum hlutum ættjarðarinnar. Ef Austfirðingar hafa þá reynslu af oss, sem geri þessi rægimannlegu illmæli likleg, þá er sjálfsagt fyrir þá að trúa þeim; en só reynslaþeirra öll og eindregið í gagnstæða átt, þá er vonandi að þeir skoði þetta sem kostnaðaxlitla og ógeðslega beitu frá ritstjóra Bjarka, til að veiða kaup- endur blaði sínn og afia því vin- sælda, og má þá vera að þeim þyki hvorki vitsmunnm sínum né dreng- skap neinn sómi sýndur með því að hjóða þeim þetta góðgæti. Skynsömum mönnum á Austur- landi, sem vilja skilja málsástæður, ætlum vér ekki ofvaxið að skilja ástæður vorar fyrir því, að vilja hafa lendingarstað ritsímans hér. Hvort Reykjavík fær ritsíma-sam- hand við titlönd tveim árnm fyrr eða síðar, það er í vorum augum svo smávaxið atriði, að oss hefir aldrei eitt augnablik dottið í hug að< álíta það neins vert í samanhurði við hitt, aðritsíminn til frambúðar verði sem notaríkastur fyrir alt landið, eða sem mestan hlut landsins að auðið er. Það er skiljanlegt að menn, sem aldrei hafa ritsíma séð né vita neitt urn, hve hilunarhætt landsíma er, og hvað þeim hilunum veldur, hugsi í fyrstu, að alt sé undir því komið, að auðið sé að leggja símann. Só hann einu sinni kominn upp, þá só alt fengið. En það er kynlegt og miðurskilj- anlegt, að ritstjóri Bjarka skuliekki vita meira um síma en þetta. Vór getum að eins gert oss það skiljan- legt af því, að hann hefir lítil kynni haft af ritsímanum aunarstaðar en í Kaupmannahöfn, sem hefir símasam- bönd við umheimiun í ýmsar áttir og þó mest með sæshnum. En sjálf er Danmörk svo þóttbygð, að þótt þar slitni þráður innanlands, er því fljót-kipt í lag aftur. I Vesturheimi, þar sem símarliggja oft um óbygðir, liefir hanu ekkihaft, af símanum að segja nema nokkrar vikur í heztu blíðviðrismánuðum um hásumarið. Annars er óskiljanlegur sá barna- skapur, sem lýsir sér i hugmyndum haus um landsímann, t. d. þar sem hanu er enu (hls. 81 c 25—23) að tala um, að það sé „alveg óranu- sakað, hvort ekki megi leggja þráð- inn á jökli(!!!) um Skaftafellssýslur“. Vér erum nú hvorki símritafróðir, rafmagnsfróðir nó jökulfróðir, enda þarf þess ekki með til að vita, að það er óvita-hjal að tala um ritsima- lagning yfir jöklana. Ef maður hefir heilbrigða skynsemi, þekkirtil, hvað

x

Nýja öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja öldin
https://timarit.is/publication/32

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.