Fram

Eksemplar

Fram - 22.11.1916, Side 4

Fram - 22.11.1916, Side 4
4 FRAM Nr. 1 í verzlun Stefáns Kristjánssonar Siglufirði fæst: Hveiti — Haframjöl — Hrísgrjón — Sago (small) — Döðlur Sveskjur — Cacao — Sukkulaði— Niðursoðnir ávext/r (marg- ar tegundir) — Ostar, Ka.ffi (brent) — Kaffibrauð (gott) — Strausyk- ur — Rjómi (niðursoðinn) — Tóbak (allskonar) — Nærfatnaður Álnavara — Spii — Kerti — Eidspítur — ÖI o. fl. Myndarammar. Stórt og mikið úrval í verzlun Sig. Sigurðssonar. Á næstu dögum er væntanlegur Sódi á 15 aura pundið í verzlun Sig. Sigurðssonar. Úrsmíða-stofan á Siglufirði (í húsi h.f. ísland.) Viðgerð á ÚRUM og KLUKKUM. Einnig NÝ ÚR til sölu. Úrval af skrautgripum, væntanlegir fyrir jólin, mjög smekklegir til JÓLAOJAFA. Guðbr. Samúe/sson úrsmiður. í verzlun HALLGR. JÓNSSONAR fæst: Kaffi, Kex, Flormjöí, Fiskibollur, ensk Sultu- tau, Karlmannafatnaður, Regnkápur Nærfatnaður, Handklæði, Léreft, Flónel, Flöjel, Silki, Lasting, Shirting, Stoppuð teppi o. fl. VERZLUN HALLGR. JÓNSSONAR. Umboðsmaður lífsábyrgðarfélagsins „CARENTÍA“ er á Siglufirði Stefán Kristjánsson. 20 kr. hver 63 kílo, — nam stjórn- arráðið úr gildi hámarksverð verð- lagsnefndarinnar. Nú hafa því Reyk- víkingar næga mjólk, þó dýr sé, 35 au. líterinn. Tíðin Hlákur og þíðviðri voru hér síðastliðna viku, svo snjó tók að mestu upp; en um helgina frysti aftur og hefir síðan verið frost og stilling. Skautaís. er nú dágóður á tjörnum bæjar- ins, og má þar sjá margan mann- inn, eldri sem yngri — blómarósir og unga sveina — vera að skemta sér, einkum þegar kvölda tekur. Steinsteypuhús tvílypt, er Sigurjón Benediktsson járnsmiður að láta byggja, áfast við íbúðarhús sitt. Mun þar eiga að koma ein ný yerzlun enn. Sigtrygg- ur Jónsson byggingameistari frá Akureyri hefir »accord« á bygging- unni. Nýtt verzlunarhús. hefir h.f. hinar sam. ísl. verzlanir látið byggja hér í sumar, og er það nú að mestuleiti fullgert. Akveðið er að flytja í það jafnsnemma og vörukönnun fer fram. Hús þetta er hið vandaðasta og hefir sölubúðin það framyfir aðrar sölubúðirhér á staðnum, að ofn er í henni. Ann- ars er það athugaverður sparnaður, að hafa ekki ofna í sölubúðum. Niðurjöfnunarnefndin byrjaði starf sitt síðastliðinn laugar- dag. Vér óskum henni als hins bezta meðan á því erfiða verki stendur, og að minsta kosti eins mikillar réttsýni og áður hefir verið. Nýlátin er hér í bænum öldruð kona, Hansína Jónsdóttir. Jarðarför henn- ar fór frarti í gær. Brunatryggingar. Vátryggingar hlutafélagið VOLGA stofnsett árið 1871. Vátryggir: hús, húsgögn og allskonar vöruforða o. s. frv. gegn eldsvoða fyrir lægsta iðgjald.MOLQk er eitt- hvert stæðsta og ríkasta vátryggingarfélagið í Evrópu. Er viðurkent af stjórnarráðinu og hefir varnarþing í Reykj’avík. Allar inn og útborganir hér. Allar frekari upplýsingar gefúr undirritaður, sem er umboðsmaður félagsins hér á Siglufirði. Virðingarfylst. Jens Eyjólfsson. Bolinders mótorinn Er mjög olíuspar og reynist ágætlega hér á landi. Fljót afgreiðsla. Pantiðlhann. Allar frekari upplýsingar gefur undirritaður, sem er um- boðsmaður fyrir Siglufjörð. Virðingarfylst Jens Eyjólfsson. Hólar kom hingað frá Akureyri síðast- liðinn föstudagsmorgun. Með skip- inu kom mesti fjöldi Siglfirðinga er tekið höfðu sér listitúr til Akureyr- ar með Oullfoss, er hann fór hér um síðast. Hólar fóru héðan aftur á laugardagskvöld, beina leið til Gautaborgar. Til Noregs fóru héðan með »Hólar« Krist- mundur Einarsson, Steinþór Hall- grímsson, Rórarinn Stefánsson og Þórður Kolbéinsson. Munu þeir allir hafa farið til þess að leita sér atvinnu þar í vetur, og ættu fleiri að gjöra hið sama. Dæmin hafa sýnt það, að þeir sem sótt hafa aV vinnu til Noregs um vetur, hafa haft upp stórfé, einkum þó síðast- liðinn vetur, en hér heima er mjög lítil atvinna yfir veturinn. Goðafoss kom til Reykjavíkur í gær. Dagskrá Hreppsnefndarfundarins 6. nóv. 1916. 1. Kosning oddvita og varaoddvita. 2. Kosning í fastar nefndir. 3. Bréf Hafnarnefndarinnar. 4. Undirbúningur undir niðurjöfnun 5. Um uppfyllingar á Eyrinni. 6. Um hundahreinsanir. 7. Um þarfanaut. 8. Um brunamál aftur. 9. Um farkennslu. 10., Dýrtíðaruppbót til kennara. Agrip af fundargerðinni varð að bíða næsta blaðs, vegna rúmleysis. Þetta blað verður sent heim til allra í bæn- um og grendinni, sem álitið er að muni verða kaupendur þess. — Ef einhver sem fær blaðið, ekki vill kaupa það, er hann beðinn að láta annanhvorn ritstj. vita það. Fram kemur út einusinni í viku ef hægt er. Verð blaðsins er 1 kr. hver 15 númer — 10 aura í lausasölu. Afgreiðslan fyrst um sinn hjá Friðb. Níelssyni. Siglufjarðarprentsmiðja

x

Fram

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fram
https://timarit.is/publication/34

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.