Fram

Tölublað

Fram - 21.04.1917, Blaðsíða 3

Fram - 21.04.1917, Blaðsíða 3
Nr. 24 FRAM 83 Reglugjörð um aðfluttar kornvörur og smjörlíki. Samkvæmt heimild í lögum 1. febr. 1917 um heimild fyrir landstjórn- ina til ýmsra ráðstafana út af Norðurálfuófriðnum, eru hér með sett eftir- farandi ákvæði: 1. gr. Allan rúg, rúgmjöl, hveiti, maís, maísmjöl, bankabygg, hrís- grjón, völsuð hafragrjón, haframjöl og smjörlíki, sem til landsins er flutt hér eftir, tekur landstjórnin til uniráða og setur reglur um sölu á vör- unum og ráðstafar þeim að öðru leyti. 2. gr. Þeim, sem fá eða eiga von á slíkum vörum frá öðrum lönd- um, ber í tækan tíma að senda stjórnarráðinu tilkynningu um það, svo það geti gjört þær ráðstafanir viðvíkjandi vörunum sem við þykir eiga í hvert skifti. í tilkynningunni skal nákvæmlega tiltaka vörutegundir og vörumagnið. 3. gr. Lögreglustjórum ber að brýna fyrir skipstjórum og afgreiðsl- um skipa, sem flytja hingað vörur þær sem um geturífyrstu grein, að eigi megi afhenda slíkar vörur móttakendum fyr en stjórnarráðið hefir gjört ráðstafanir viðvíkjandi þeim í þá átt er að framan greinir. 4. gr. Brot. á móti ákvæðum reglugjörðar þessarar varðar sektum alt að 5000 krónum og fer um mál út af þeim, sem um almenn lög- reglumál. 5. gr. Reglugjörð þessi öðlast þegar gildi. Retta er birt öllum þeim til eftirbreytni sem hlut eiga að máli. í stjórnarráði íslands 11. apríl 1917. Sfg’urður Jónsson. Jón Hermannsson. átti hér í húsum sínum. Var sykri þessum útbýttmeðalbæarbúa síðasta vetrardag; 1 pund á mann að sagt er. Sumarglaðning þessa ber að þakka oddvitanum en ekki hrepps- nefndinni. Trúlofuð eru trésmiður Kristinn Tómasson og ungfrú Halldóra Pálsdóttir. »Fram« óskar þeim hjartanlega til hamingju. Sonar-tregí. Liðin er nú ljóss til sala Helga Guðrún, heitmey Bjarna; gráta Fljót, gráta Hörgdælir, Sveipast Norðurland sorgar skýum. Sú var mær mætust kvenna, borin syni Bægisár skálds; í ætthaga sínum og í Fljótum brúður ástrík börn ól þrjú. Sá eg ungt íturkvendi, fyrst at Hraunum, þá at föður míns, Síðast at Barði hjá bróður sínum; en aldna kysti at Steinhóli. Mér var ljós, lífs á vegi,' móðir göfug, meya fegurst; féllu lokkar ljóma glæstir, huldu mjaðmir höfuð krýndu. Sveif of jörðu sólu fegri, gyðju glíkust, glöddust sveitir; brosti á vörum blómi sjafnar, en logi guðdóms lýsti af enni. Svo var málrómur sigurlindar, sem hörpu ómur himinborinn; svo var til-lit svásra hvarma, sem skini eygló á upphimni. Geyma minning merkiskonu niðjar, vinir og náfrændur; lifir ást í lýða hjörtum, varir nafn meðan varir Frón. Ritað 17. apríl 1917. A. Frímann B. Arngrímsson. Er það sælgæti! í »Lögberg« 4. jan. þ. á. ergrein með þessari yfirskrift, þar stendur meðal annars. »í Ungverjalandi er »Fimue« pappírsgerðarverkstæðið elsta, og um leið stærsta verkstæðið af því tægi í Evrópu um alllanga tíð. Upp- haflega var þar búinn til umbúða- pappír, skrifpappír, biblíupappír og Htið eitt af cigarettupappír. En smátt og smátt hneigðust eigendur verk- smiðjunnar að því, -að hyggilegra myndi að dragaúr biblíupappírnum og öllum öðrum pappír, sem lík- legt væri að »guðs heilaga orð« myndi ritað á að nokkrum mun,en auka að miklum mun birgðirnar af vindlapappírnum. Nú sem stendur er búið til í þessari einu verksmiðju sjö járnbrautarvagnhiöss á mánuði. Fram yfir það sem selt er til inn- lendra tóbaksverksmiðja, eru þaðan flutt til Frakklands 2240 pund á degi hverjum. Takið eftir úr hverju cigarettu- pappírinn er búinn til. Pappírinn er gjörður úr fatadrusl- um af ýmsu tægi, skóm og öðru hrasli, sem tínt er saman á víg- vö 11 u n u m. Mergurinn málsins er þessi: í cigarettupappírnum borða ciga- rettuvinir uppþurkaðar blóðdrefjar úr föllnum Pjóðverjum, og þeirra sinn- um, eða föllnum Bretum og Cana- damönnum, og sleikja tuskur af Austurríkisbúum, Tyrkjum og Pjóð- verjum, ogföllnum hetjum sambands- manna. — Til útaf brigðis ög smekk- bætis reykja þeir og að líkindum fatatuskur og blóðdrefjar breskra, canadískra og belgiskra karla og kvenna, barna og fullorðinna, sem Pjóðverjar hafa svelt til dauða. Er það sælgæti!« Indverjinn. Framh. Lucy Iétti við að heyra erindið, en fékk þó andstygð á þessum til- mælum. Pegar Yoginn var búinn að bera upp erindið hætti hann að beygja sig og stóð rtú þráðbeinn og hreyfingarlaus og beið svars. Lucy gat ekki gert sér í hugarlund á- stæðuna fyrir þessari bæn hans. Hún var í sjálfu sér mjög mark- laus, en að öðru leyti snerti hún hennar eigin persónu, og þessvegna bauð henni við að verða við henni. En alt var þetta svo ofur barna- legt, og hversvegna skyldi hún vera að gera þennan mann að óvini sín- um með því að neita honum um þetta. Pað gat jafnvel verið hætta að neita, en engin hætta að verða við bæninni, og þar að auki var hún þá laus við hann. Pessi hugsun greip hana sem elding og þarnæst svaraði hún: »Hárið er fest saman með prjón- um og borðum, bíðið þér þangað til eg kem tilbaka, þá skuluð þér fá það sem þér biðjið um.« Hún talaði ineð uppgerðar rósemi og tiginni Ijúfmennsku, stóð síðan á fætur og gekk hvatlega inn. Yoginn gerði enga hreyfingu til að fylgja henni eftir, heldur stóð grafkyr hjá Tulsiplöntunni. Lucy gekk hugsandi upp á loft- ið. Henni fanst ómögulegt að það gæti gert nokkuð ilt, eða orsakað nokkra breytingu, þó hún gæfi eitt hár af höfði sínu, en eigi að síður fann hún ósjálfrátt til óbeitar á því að verða við bón hans. Pegar hún kom að herbergisdyrum sínum leit hún með sjálfri sér fljótlega yfir hvað hún gæti gert. Egna hann til reiði með því að láta hann bíða, eða að kalla á þjónana? Nei, það dugði ekki. En hvað þá? Með hverju augnabliki sem leið varð sú rödd sterkari í brjósti hennar, að verða ekki við bæn Yogians. Hvernig átti hún að komast úr þessum vanda? Sem örskot flaug í huga hennar hvað hún ætti að gera. Til þess að komast í svefnherbergi sitt þurfti hún að ganga framhjá dyrum ruslakompunnar. Par inni lá hin lítið kærkomna gjöf frá mrs. Hooley. Henni komu til hugar orð Hald- ens um að hárin á ábreiðunni hefðu sama lit og hár hennar. Hún skaust inn í herbergið, greyp eitt hár úr hinu langa kögri, ýfði lítið eitt sitt eigið hár og gekk síðan niður. Indverjinn stóð grafkyreins oglíkn- eski þar sem hún hafði skilið við iiann, en græðgislegri eftirvænting brá fyrir í augum hans þegar hún kom. »Hér er hárið« sagði hún rólega og lagði það í hendi hans. Ind- verjinn hneigði sig djúpt, auðsjáan lega mjög ánægður, án- þess að segja eitt orð, og gekk burt af veröndinni jafn hljóðlega og hann var kominn. En þrátt fyrir hið dá- samlega vald er hann hafði yfir and- liti sínu, sá hún þó sigurhróssglampa í tilliti hans er hatin snéri sér við. Hvað gat það boðað? Ekki neitt, eða eitthvað mikið. Pegar maður hennar kom heim nokkrum dögum seinna, sagði hún honum strax hvað til hefði borið. Hann varð bæði undrandi og ergi- legur. Það var naumast hægt að álíta að atburður þessi hefði mikla þýðingu, en hann var svo óvanalegur og óskiljanlegur að það gerði liann órólegan. »Mér þykir vænt um að það var ekki eitt afþínum hárum,« sagði hann, þegar hann hafði lengi hugsað um málið. »Parna varð þó ábreiðan að gagni« sagði Lucy. »Já við megum vera gömlu mrs. Hooiey þakklát,« sagði hann hlæjandi. Lucy hafði ekki farið útfyrir garðs- hliðið síðan Indverjinn heimsótti hana, því hún vildi ógjarnan ganga framhjá Mangorjóðrinu, sern hann var vanur að sitja í. En daginn eft- ir að ínaður hennar kom heim, ók hún með honum í eineykisvagni, og þá sá hún hinn magra brúna mann sitja í sömu stellingum og hann var vanur, að minsta kosti leit það þannig út, en í raun og veru var það ekki. Pegar Roger snéri sér að manninum til þess að senda hon- um ógnandi, eða að minsta kosti aðvarandi augnaráð, sá hann breyt- inguna. Indverjinn. varð ekkert var við Roger eða konu hans, hann sá þau ekki, hann hafði beygi höfuð- ið yfir útrétta hönd sína, og starði á eitthvað í lófa sér. »Siíur hann

x

Fram

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fram
https://timarit.is/publication/34

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.