Fram

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fram - 03.11.1917, Qupperneq 1

Fram - 03.11.1917, Qupperneq 1
Ritstjórar: Friðb. Níelssen og Hannes Jónasson. 1. ár. Siglufirði 3. nóvember. 1917. 52. blað. Veldu rétt. Vér óskum tíðum eftir gullsins hnossi, og álítum, að það sé gæfan mest, er oss í gegnum lífið lyfti og hossi, og láti oss njóta als þess sem er best. Vér förum vilt, vor andi á auðlegð betri, um eilífð hljómar kærleiks sigurhrós. Er getur myndað vor úr hjartans vetri, og vermt til lífsins hverja fölva rós. Með von um ást, vér út í lífið drögum, án þess að vita hvað þar bíður vor. Á vorum björtu ungu æsku dögum í ógætni vér stígum margt eitt spor. Því heimsins tál oss tíðum sjónir villir með töfrum skrýðir sig i fagran hjúp. Það .hjörtu vor með falskri unun fyllir er fölnar skjótt, þá kemur sorgin djúp. Því grípum ekki alt sem augað girnist þó unaðslegt sé bros þess, gullið skraut. Hið glæsilega eins og annað fyrnist, og afturför þess vekur beiska þraut. En ástin sanna aldrei breyting tekur um eilífð logar hennar guðsdóms bál, hún alla sorg og harma burtu hrekur og helgan unað færir mannsins sál.. H. j. Kvenfélag. Svo er að sjá, sem dálítil breyt- ing sé að komast á hugsunarhátt og framkomu manna hér í Siglu- firði. Bendir margt til þess, skal það ekki hér upp taiið nú, vil eg aðeins láta ánægju mína í Ijósi ýfir því að svo er. Með því skal þó ekki kveðinn neinn harður dómur yfir því sem á undan er gengið. Rað er að lík- indum ástæðulaust; en allir hugs- andi menn, sem framfarir elska, fagna yfir öllum þeim breytingum, sem til bóta eru. F*að er eins og menn séu að vakna til meðvitundar um sitt eigið gildi, og finni til þess að þeir hafa ástæður til að nota krafta sína, sem þeir áður hafa ef til vill ekki vitað hve miklir voru, meðan þeir ekki voru reyndir. Petta er þó í byrjun enn, en vonandi má búast við þroskun og henni mikilli, það þarf líka svo að vera, hér sem annarstaðar þarf að ryðja skóginn, svo nýr gróður geti vaxið upp, meina eg með því úreltan hugsun- arhátt og margskonar fyrirkomulag. Hið síðasta er, að kvenfélag var stofnað hér síðastliðinn miðvikudag. Hafði áður farið fram nokkur und- irbúningur til þess, og var svo boð- að til fundar. Stofnendur félagsins voru um 40, og von á fleiri með- limum innan skams. Á fundinum var kosin nefnd til þess að semja frumvörp til laga fyrir félagið, er leggja skal fyrir næsta fund. í nefnd þessa voru kosnar frúrnar: Guðrún Björnsdóttir, Indíana Tynæs, Petrína Sigurðardóttir, Björg Jónsdóttir, og ungfrú Sign'ður H. Jónsdóttir. Tilgangur félagsins mun vera Iík- ur og hjá öðrum kvenfélögum; að- hlynning að fátæklingum aðalatriðið. Sá tilgangur er góður, og virðing- arverður, en þó ekki ástæða til þess að binda sig við hann eingöngu. Jafnhliða honum ætti félag þetta að láta til sín taka um ýms málefni er varða kvenþjóðina og jafnvel eins, þó þau snerti bæði kyn. Pað er alkunnugt, að kvenfólkið hefir meiri þrautsegju til að bera en karl- menn, þegar því er full alvara, nú hefir það nýlega fengið rýmkað starf- svið sitt, og ætti ekki að láta hjá Hða að nota sér það. Pessi félagsskapur er alveg nýr hér, og fátt af því kvenfólki, sem í fé- lag þetta hefir gengið, verið með í samskonar félagi áður. Samt sem áður má ganga að því vísu, að nógir kraftar séu hér til, og hins besta að vænta í framtíðinni. Rær konur, sem forgöngu hafa átt að þessari félagsstofnun eiga heiður skilið, og er óskandi að all- ar yngri og eldri, sem ástæður hafa til, fylli hópinn. Séu nokkrar, sem eru mótfallnar fyrir alvöru, ættu þær að minsta kosti að láta þennan fé- lagsskap í friði, það er ætíð réttara að hlúa að ungum efniiegum gróðri, en leitast við að uppræta hann. H. J. Hvalnefndin. m. Vér höfum nýlega átt tal við einn af nefndarmönnunum — Flóvent Jóhannsson — um gjörðir hvalnefnd- arinnar. Staðfesti hann að mestu leyti frásögn vora um úthlutun til hinna einstöku manna, er þátt höfðu tektð í samanrekstri háhyrninganna. Ennfremur sagði hann, að búið væri að borga eigendum þeirra 2 mótorbáta sem úteftir fóru, 300 kr. hvorum í bátslán. Sjúkrasamlagið sagði hann að sig minti að ætti að fá 300 kr. en þorði þó ekki að fullyrða hvort það væri rétt, hvort það ætti að fá 300, 500 eða als ekkert. (Til samanburðar má geta þess hér, að Porst. Pétursson hefir sagt að það hafi verið samþykt og bókað, að samlagið fengi 500 kr., en Jón Guðmundsson segirað það hafi aldrei verið samþykt að sam- lagið fengi neitt.) Vér spurðum hann um ýmislegt fleira, en hann vildi sem allra minst segja. Frá Reykjavík sagði hann að ekk- ert væri komið enn, en von um 1400 til 2000 kr. fljótlega, og er það þó vitanlega ekki helmingur þess er þangað fór. Engar upplýs- ingar gat hann gefið viðvíkjandi sölunni suður, eða með hvaða skil- málum varan hefði verið seld, sagði að séra Bjarni og Hjalti Jónsson hefðu staðið fyrir því, og að sér væri það atriði ókunnugt. Ekki var Flóvent í neinum vafa um það, að nefndin hefði fult vald til allra ráðstafana viðvikjandi há- hyrningunum, jafnt síðast sem fyrst, og að ekki gæti því komið til mála að hún færi nokkurn tíma út fyrir starfsvið sitt. Pví, — hver á þessa peninga? — Er það almenningur, eða nefndin? Og þegar vér bentum honum á, að nefndin hefði þó ver- ið kosin af almenningi, og á opin- berum borgarafundi og það benti þó á að enginn einn maður, eða níu menn, væru eigendurnir, heldur allir, sagði hann að nefndin hefði als ekki verið kosin, það væri nú það fína við það. — Svona sagðist honum frá, og þegar vér skyldum við hann, var sigurbros á vörum hans. Eins og sagt var frá hér í blað- inu í vor, var boðað til almenns fundar strax eftir að háhyrningarnir voru komnir á land. Var fundarstj. valinn séra Bjarni Porsteinsson. Var þvínæst rætt um fyrst og fremst hvernig ætti að koma öllum þessum ósköpum í peninga, og syo hvaða verði ætti að selja það sem selt yrði. Pá var og lítillega minst á hvað gera ætti við peningana, og hver eiginlega ætti þá; en af um- ræðunum yfirleitt var ekki annað að heyra en það mál væri ekki hértil umræðu, heldur aðeins það, hvern- ig koma mætti hvölunum í peninga, og það sem fyrst. Stungið var upp á að kjósa 9 manna nefnd, og bar fundarstjóri þá uppástungu upp til atkvæða, og var hún samþ. Pá var stungið upp á að nefndin skyldi ekki kos/n, heldur tilnefndi einhver fyrst einri, og svo sá tilnefndi annan og svo koll af kolli uns komnir voru níu. — Var þá beðið um að bera þessa nýju útnefningaraðferð undir sam- þykki fundarins, en því neitaöi fundarstjóri. Nefndin var svo tilnefnd á þennan hátt og fundi slitið. Pað verður ekki séð, hvað vakað

x

Fram

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fram
https://timarit.is/publication/34

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.