Fram


Fram - 23.03.1918, Page 4

Fram - 23.03.1918, Page 4
30 FRAM Nr. 8 / KVENKÁPUR komu með s. verzlun Sig. lit með því sem flutt er inn. — Hér eftir verða þvi þeir, sem vörur ætla að se'nda til Ameríku,1 að fá fyrst leyfi hjá amerísku yfirvöldun- um, um að vörurnar megi flytja þangað. > Jan Mayen. Morgunblaðið skýrir 21. febr. frá því að norskt hvalveiðafélag, sem stofnað var í fyrra, hafi tilkynt ut- anríkisráðaneytinu norska, að það hafi slegið eign sinni á eyna Jan Mayen. Meira þarf eigi —: segir blaðið — til að leggja undir sig land sem enginn á, en sú skylda hvílir á þeim er landið tekur, að hann verji eignarrétt sinn. Tfðin hefir verið góð nú^undanfarið, stiliing- ar og véegt frost á nóttum. f gær gerði dálitla bleytuhríð á ’norðaustan. svo festi ofnrlítinn snjó. Mótorbátur fór í hákallalegu nýlega, og fékk nokk- ur got. , s. Lagarfoss í Sigurðssonar. Farþegar með Lagarfoss voru Hallgrímur Kristins- son einn af forstjórum landsverslunarinnar Steindór Qunnlaugsson cand. jur. settur sýslumaður í Skagafjarðarsýslu og Þórður Gunnarsson kaupm. frá Höfða. Gangverð þýskra og austurriskra pen- inga hefir mjög hækkað í Sviss síðan frið- arsamningar hófust í Brest-Litovsk. 700.000 hermenn segjast Bandaríkjamenn ætla að æfa og senda til Frakklands á þessu ári. ;; • /; f Svíþjóð voru stofnuð 1236 hlutafélög árið 1917. Innborgað hlutafé þeirra nam 413 miljónum króna. Elsti'lögspekingur Norðurlanda C. Goos fyrrum íslandsráðherra, er nýlega látinn, 83 ára að aldri. Klossar i handa börnum fást í verzlun * SlG. SlGURÐSSONAR. TILBOÐ óskast, um þurran og góðan svörð. Svörðurinn afhendist í ágúst ---- septembermán- uði niður við sjó, hvort heldur er í Hraunakrók, Haganesvík, Mósvík, eða hér við Siglufjörð. Verð á sverðinum miðist við strokktunnu. Hver til- bjóðandi segi til hve mikið hann vill selja. Rétt- ur áskilst til að hafna og taka einu eða fleiri tilboðum án tillits til annara. Tilboð merkt »Svörður« afhendist í lokuðu umslagi á prentsmiðju blaðsins fyrir 1. maí n. k. Siglufirði 23. marz 1918. Með e.s. Lagarfoss kom í verzlunina „AALESUND“ Haframél, hveiti, skóhlífar, gummístigvél, epli rjól, púð- ur og tilbúinn fatnaður. Óþarft að geta um verðið það er altaf lægst í AALESUND. Ógurleg sprenging varð 12. jan. í kola- í janúarmánuði fórst danska seglskipið námu í Staffordshire í Englandi. Voru 247 »Ellen« í Gíbraltarsundi. Pað var á leið manns niðri í námunni er sprengingin frá Ibiza til Hafnarfjarðar með salt. AUir varð en aðeins 87 náðust lifandi, hafa því menn björguðust. 160 manns látið þar lífið. 58 berton, um leið og hann skrifaði eitthvað í minnisbók sína, »og hvar bjó hún, á Albertvegi, eða í Parkstræti.« »Pað var hreinasta tilviljun að eg sá hana,« sagði gamli Dickson. »Klukkan um fjögur í dag gekk eg eftir Albert- vegi, sjálfsagt í tuttugasta skipti. Eg var farinn að verða daufur í dálkinn, því mér virtist þessir göngutúrar mínir um Camden Town ekki ætla að bera mikinn árangur, þá sá eg alt í einu skrautlegan vagn beygja fyrir götuhornið og stað- næmast fyrir framan eitt af áburðarmestu húsunum á Albert- veg>» eg hraðaði göngu minni, og kom að vagninum rétt í því að unga stúlkan sem eg hefi lýst, sté út úr vagninum og gekk inn í húsið,« Hér þagnaði gamli Dickson, og hnerraði þrisvar sinn- um, Mr. Pemberton til mikillar gremju, sem langaði mjög tif að heyra framhaldið af æfintýri karlsins, í Camden Town. »Eg stóð eins og myndastytta þegar eg sá hana,« hélt Dickson áfram. »þarna hafði eg þrammað áfram með fýlu yfir því að finna engan kvenmann, er lýsing sú er þér gáf- uð mér átti við, og svo stendur kvenmaðurinn alt í einu frammi fyrir mér, eins og hún hefði dottið niður úr tungl- inu. Eg vissi í bili ekki hvað eg átti að gera, en gekk þó til ökumannsins, sem var að lagfæra atýgin á hestunum, tók ofan hattinn, leit á skepnurnar, og sagði: »Petta eru fallegir hestar!« »Já, þeir eru fallegir,« svaraði ökumaðurinn og klapp- aði þeim á hálsinn, »og þér megið reiða yður á að þeir geta hlaupið.« »Já því get eg trúað,» svaraði eg, »þeir líta útfyrir að vera reglulegir veðhlaupahestar.* »F*að eru bara ekki til þeir hestar hér í Lundúnum, sem 5Q taka Tom og Mully á sprettinum,« svaraði ökumaður- inn, og bjó sig til að stíga upp í ekilsætið. »Með leyfi að spyrja hver á þennan skrautlega vagn?« spurði e'g, kvíðandi því að hann færi án þess að svara. »Baron Robert von Sahlmann!« svaraði hann, stökk upp í vagninn, gerði smell með svipunni og ók á stað. »Baron von Sahlmann,« endurtók Mr. Pemberton hugs- andi. »Nafnið bendir á að það sé þjóðverji.« »það er hann líka,« mælti gamli Dickson, »og gulbjart- hærði kvenmaðurinn, sem sté út úr vagninum var konan hans, hún heitir Constance Sahlmann, og er ættuð frá Elsass.« »Nú svo þér vitið það !íka!« greip Mr. Pemberton fram í undrandi. »Eg gat ekki látið mér nægja upplýsingar þær er eg fékk hjá ökumanninum,« svaraði Dickson hreykinn, »þvíeg veit að þér viljið fá alt að vita sem hægt er, þó smávegis sé. Eg gekk því inn í blaðsöluklefa, keypti eitt bréfspjald, fór að masa við stúlkuna sem afgreiddi mig, og hún sagði mér að baróninn væri þýskur og kona hans frá Elsass, og það væri hún sem hefði farið úr vagninuin fyrir tíu mínút- um síðan.« Gamli Dickson þagnaði, ogstrauk lófanum yfir gljáfægð- an skallann. Mr. Pemberton sat hljóður með hendurnar krosslagðar á brjóstinu og horfði niður fyrir sig. Svo stóð hann alt í einu á fætur, og gekk um gólf með löngum skrefum eins og vani hans var, þegar hann hugs- aði mest. »Pað er ef til vill ekkert á þessu að byggja. Pessi þýski baron og frú hans geta verið alveg laus við að hafa gert

x

Fram

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fram
https://timarit.is/publication/34

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.