Fram


Fram - 20.05.1918, Síða 4

Fram - 20.05.1918, Síða 4
66 FRAM Nr. 17 Erlendar símfréttir. Undanfarið^ hafa verið töluverðar óeyrðir í þingi Breta. Lloyd George hefir verið sakaður um að gefa rangar skýrslur um hernaðinn, en hann hefir þó sigr- að. Vantrausttillaga á hann var feld með 293 atkv. gegn 106. Pjóðverjar hafa tekið Rostow. Bretar hafa gjört árás á Ostende og Zeebrugge. Finnskar hersveitir hafa hrakið Lappa út úr Finn- landi. Guetamale hefir sagt Pjóðverjum stríð á hendur. Hungursneyð er sögð í Helsingfors, Nyborg og Petrograð. Pjóðverjar undirbúa ógurlega sókn. Ófriðar þjóðirnar hafa iokað innsiglingutil Göteborg Maximalistar eiga í orustu við stjórnleysingja. Pólland verður í konungssambandi við Austurríki. Austurríkismenn eru óánægðir með friðarsamn- inga Rúmena og Pjóðverja, telja að Pjóðverjar hafi samið sjálfum sér mestan hagnaðinn. Alment álitið að Ukraine sé andvigt Pjóðverjum. Sambandsmál íslands og Danmerkur er mjög mikiö ræit í Danmörku um þessar mundir. „Köben- havn“ segir að ís/endingar krefjist þess að Dan- ir sendi menn til þess að semja við íslensku stjórn- ina. Zable hefir gefið út skýrslu um íslensk mál. Knud Berlin hervæðist. „Politiken“ segir að Danir eigi frumkvæði að því sem í ráði sé að gert verði á íslandi, með samþykt á stjórnarfundi 22. nóv. i haust, segist vona að Danir beri gæfu til þess að standa sem einn maður í þessu máli, og ræða það með jafnaðargeði. Búist er við að ríkisþingið, er saman á að koma 28. maí, taki fyrst til meðferðar r * sambandsmál Islands og Danmerkur. Prennir tímar. 1818. Það er sumarmorgun. Poka Iigg- ur yfir hafinu. Seglskipið »Már,« hefir ekki haft landsýn í samfieytta fimm sólarhringa, og hvorki skip- stjórinn, afi minn, né nokkur af skips- höfninni getur sagt um hvar í ís- hafinu skipið er statt. Um miðjan dag: Landsyn á bakborð. Þokunni léttir, og hinn litli vindsvali, er áð- ur var, eykst, og fyrir stinnungs byr stefnir skipið að landi, og kemur upp undir Siglunes. — Um kvöld- ið: Skiðip liggur á Siglufjarðarhöfn. Nokkrir bæjir sjást meðfram fjalla- hlíðunum, niðri á eyrinni eru örfá hús, flest torfhús. Margir bátar koma út að skipinu; íbúar Siglufjarðar nota hið sjaldgæfa tækifæri til þess að fá fréttir frá umheiminum. Kaupmað- urinn, sá eini á staðnum leitar eftir viðskiptum hjá skipsmönnum. Morguninn eftir: Skipið er farið. Höfnin auð. Sigiufjörður með sömu ummerkjum og áður. Kyrð og ein- verublær sem fyr. Alt tilbreytingar- laust, þar til annað skip ef til vill villist hér að, og ber með sér óm- inn af atburðum þeim er gerast í heiminum. — 1918. Siglufjörður, 20. maí. Fallbyssuskot. Bærinn pryddur fánum. Ouðsþjónusta. Litprentuð hátíðaskrá með kvæðum. Skrúð- göngur, silki, flauel, gull og silfur. Syngjandi barnaflokkur, hin efnilega unga kyrtslóð. — Hljóðfærasláttur og söngur, ræðuhöld, íþróttir og dans. Frá morgni til morguns er alt Iíf, tjör og gleði hjáhinum þúsund íbúum Siglufjarðar, því í dag er 100 ára minningarhátíð, afmæli bæjarins sem löggilts verslunarstaðar. Par sem örfá hús voru fyrir 100 árum er nú stór bær, 20 kaupmenn þar fyr var einn. Stórar verksmiðj- ur, og umfangsmikil starfsemi við síldarsöltun. Heill floti af stærri og minni skipum er auð sækja í Æg- isskaut. Kæri Sighifjörður. Hamingjan stiðji þig, og gefi að þú á hinum komandi árum blómg- ist og þróist á sama hátt og þú hefir gert á þeim iiðnu. En eiginlega ættir þú að sýna uppsprettu framfara þinna þann þakk- lætisvott að breyta um nafn; kalla þig: »Síldarfjörð.« 2018. Siglufjörður! Hraðlestin, sem fór á stað frá Rvík fyrir fjórum klukkustundum, stað- næmist á hinni skrautlegu járnbraut- arstöð. Fáum mínútum . síðar ókum vér með fljúgandi hraða í glæsilegri bif- reið til hinnar alþektu og víðfrægu gistihallar: »Siglufjörður,« og brátt setjumst vér þar að miðdegisverði er fullnægir hvers manns kröfum. Við borðið sitja gestir í hundraða tali, fjöldi tungumála blandast sam- an í óskiljanlegan klið, því hér eru menn af flestum þjóðum heimsins. Um kvöldið er kappsigling á höfn- inni, eru það hinir hraðskreiðu neð- ansjáfar mótorbátar verksmiðjueig- andanna er reyna sig þar. Þúsundir áhorfenda eru dreyfðar umhverfis höfnina. Bærinn nær umhverfis allan fjörð- inn, frá Siglunesi til ysta undirlend- is að vestan. Allur fjörðurinn er ein stór höfn með hundruðum bryggja og hafnarvirkja. Hér er tvöhundruð ára minning- arhátíð, gleði og fögnuður. Veðrið er brosandi bjart, himininn heiður og blár. Síðastl. vetur hefir í fyrsta sinn hepnast að útiloka hafísinn frá höfn- inni með risavöxnum stíflum, þó þessi landins forni fjandi lægi fyrir öllu Norð'urlandi í hálfan annan mánuð. Peim peningum, er gera hefði mátt ráð fyrir að þurft hefðu til endur- bóta á skemdum af völdum íssins, er nú varið til hátíðahalds. Einn af ræðumönnum hátíðarinnar endar mál sitt með þessum orðum: »Að síðustu flyt eg Siglufirði hugheilar hamingju óskir, og vil leyfa mér að enda ræðu mína með þeim orðum, er afi minn skrifaði fyrir 100 árum síðaníblað- ið »Fram,« er þá var hið eina blað bæjarins: »Sýndu uppsprettu auðæfa þinna og framfara þann þakklætis- jgg F RA M kemur út 52 sinnum á ári. Verð 4 kr. Gjalddagi 1. júní. Útgefandi: Hlutaféiag. Ritstjórar: Friðb. Níe/sson og Hannes Jónasson. Afgreiðslu* og innheimtumað- ur Friðb. Níelsson. Siglufjarðarprentsmiðja 1918. Almanak næstu viku. Maí. Hvítasunnudagur 1918. Sd. 19. f. Steingr. Thorsteinsson 1831. D. Gladstone 1898. Md. 20. Annar í hvítas. f. Stuart Mill 1806 Löggiltur verslunarst. á Sigluf. 1818. Ld. 21. d. Kolumbus 1506. Md. 22. Imrudagur d. Sæm. fróði 1133. Fd. 23. d. Hinrik Ibsen 1906. 5. v. s umars. Fd. 24. d. Nicol. Kopernicus 1543. Skerpla. Ld. 25. Urbanusmessa fult tungl 9.32 e. m. vott, að breyta um nafn, kalla þig Síldarfjörð.« F. G. H. Bæjarfréttir, —0— Afmæli: 23. maí. Aðalh. Tómasd. ungfrú. 24. »« Valg. B. Björnsd. — 24. »« öuðrún Björnsd. ráðsk. 25. »« Hólmk. Jónass. verkam. Ferming fór fram í kirkjunni í gær. Voru fermingarbörnin með flesta móti, 8 drengir og 17 stúlkur. Þrír se/fangarar norskir hafa nýlega komið hingað inn og liggja hér yfir hátíðina. Þeir heita »Polarhavet,« »Selfangeren« og »Ishavet.« Bóluseining á að fara fram í barnaskólanum næstkomandi miðvikudag. Aðkomumenn eru hér afarmargir í tilefni hátíð- arinnar; flestir frá Akureyri. Alþingi. Lausafregnir hafa gengið um það undanfarið, að alþingi yrði slitið og svo kallað saman í ágúst aftur. Nú hefir það verið borið opinberlega til baka, svo því verður ekki frestað fyrst um sinn. Mikið af karlmanna Nærfatnaði selur með innkaups verði Friðb. Níelsson.

x

Fram

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fram
https://timarit.is/publication/34

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.