Fram


Fram - 04.01.1919, Blaðsíða 2

Fram - 04.01.1919, Blaðsíða 2
2 Bann. í dag sást auglyst á götunum, að Siglufjörður væri fyrst um sinn í í samgöngubanni, er sú bannfæring frá sýslumanni Eyjafjarðarsýslu og mun enginn undrast yfir henni. Hér norðanlands hefir fram að þessu ríkt sú viturlega stefna að reyna af ítrasta mætti að verjast hinni skæðu spönsku veiki, eli nú höfum við Sigifirðingar slitið bandalagið og cpnað faðminn fyrir hinum norsku skipum og með því fyrir möguleik- um til þess að veikin komi hér, ef hún er í þeim. Valdhafar hér eru á þeirri skoðun að af skipunum stafi engin hætta, og má vel vera að þeir hafi rétt fyrir sér, en sannanir hafa þeir engar, er þeim að líkindum ekki fyllilega Ijóst hverja ábyrgð þeir taka sér á herðar. Þrátt fyrir það þó byrjað sé að afgreiða skipin, er svo ákveðið, að menn þeir er í skipunum þurfa að vinna, skuli ekki hafa neitt samneyti við skipsmenn, ekki svo mikið sem drekka vatn um borð. En mér er spurn. Hví þarf þessa varasemi, ef engin hætta er með að sýking geti orðið af skipsmönnum? Er treyst- andi að þessum fyrirskipunum verði hlýtt? Eða hafa þeir, sem ráðið hafa því að skipin skuli fermast, ekki fulla trú á því að það sé hættulaust? Eru þeir vísvitandi og viljandi að hleypa veikinni inn í sveitina? Manni verður ósjálfrátt að leggja þessar spurningar fyrir sig. Hið eina rétta var að láta skipin liggja hér svo langan tíma, að út- séð væri að nokkur hætta væri að umgangast skipsfólkið. Jafnframt átti að hafa sterkan vörð á því að skipsmenn ekki gengju á land og að enginn færi um borð. Okkur varðar ekkert um tafir skipanna. í fyrirrúmi fyrir öllu á að sitja, að verja sveitina fyrir veikinni svo lengi sem föng eru á. Þeir menn, sem hafa ráðið því að byrja skyldi á að ferma skipin nú þegar, spila hátt spii, það er líf manna hér sem það gildir. Eg óska og vona að þeir vinni. En fram- koma þeirra er jafn óvarleg þó þeir vinni, þeir hafa eingar rökstuddar sannanir, einungis líkur fyrir því að hættan sé engin. Petta bann er um óákveðinn tíma. Að líkindum þar til nokkrir dagar eru liðnir eftir að búið er að af- greiða skipin, ef enginn veikist. En það er von á fleiri skipum, og þau geta komið áður en þessir dag- ar eru iiðnir, og þá framlengís bann- ið, og getur náð yfir langan tíma. Skyldi það ekki geta orðið einhver- um hvumieitt? Þangáð til eg fæ fullnægjandi skýr- ingar verð eg aðálíta að þetta frum- hlaup, að byrja að ferma skipin fyr en hættulaust var, sé Siglfirðingum til mikillar vanvirðu, þar sem allar nærliggjandi sveitir halda fast við varnarstefnuna. Og þeir munu marg- jr sem eru á sama máli og eg. Á Gamlársdag. Ölver. FRAM Nr. 1 Rafljósin. Eg hefi ©rðið þess var, að mér væri eignuð grein með þessari fyr- irsögn í 51. tbl. »Fram;« — meðal annars gaf meðhjálparinn No. 1 það ótvírætt í skyn með hógværum orð- um og prúðmannlegri framkomu í áheyrn safnaðarins í kirkjunni ann- an jóladag. Jafnvel þó mér liggi þetta í léttu rúmi, og þó eg sé téðri grein að mörgu leyti samdóma, þá skal eg nú hérmeð lýsa því yfir að eg er ekki Jiöfundur hennar. Grein þessi er orð í tíma talað að öllu öðru leyti en því sem kirkj- una snertir. Kirkjan greiðir sitt Ijós- gjald fyllilega á móts við hvern ann- an Ijósnotanda og á því fylstu heimt- ingu á Ijósunum. Pau loga þar held- ur ekki í þágu neins einstaks, held- ur fyrir okkur öll og það eitt ætti að nægja til, að við værum á eitt mál sátt að hafa þau þar. Jólahátíðin hefir staðið mér fyrir sjónum sem Ijósanna hátíð, sér- staklega í kirkjunni, síðan eg var barn og hún stendur það víst svo lengi sem eg lifi. Við sem nú erum eldri menn munum það víst allir vel, að gömlu litlu sveitakirkjurnar voru uppljómaðar og ljósum skreytt- ar svo sem föng voru á á jólunum og Ijósin lögðu ótvíræðan hátíðar- bjarma yfir þær jafnvel þó þau væru fátækleg. Ætti það þá að bera vott um framfarir og vaxandi menningu hér hjá okkur að láta kirkjuna okk- ar vera næstum Ijóslausa á Ijósanna hátíð? Lýsing kirkjunnar á jóladaginn var hreinasta hneyksli, 7 kerta týrur niðri og tvær uppi! — Á ann- an var það lítið eitt skárra er/ þó langt frá viðunanlegt. Báða dagana næstum ómögulegt að sjá á sálma- bók í miðkirkjunni. Eg veit að þetta hefir hneykslað fleiri en mig. Rafljósin hefðu auðvitað átt að loga, og það hefði ekki stytt Ijós- tímann að kvöldinu til neinna muna ef þau hefðu hvergi lifað ann- arstaðar en í kirkjunni, en fyrst þau, fyrir íhlutun einstakra manna, ekki voru látin loga, þá áttu þeir hinir sömu að ?já um að meðhjálp- arinn gengdi þeirri ótvíræðu skyldu sinni, að tendra eins mörg kerta- ljós og hægt var að koma við, og þau gátu verið fleiri; — t. d. voru aðeins tvö kerti á altarinu í tveim* ur fimm örmuðum Ijósastjökum og eins niátti með lítilli fyrirhöfn kveikja á tveimur olíulömpum sem hanga í kirkjunni. Retta fyrirkomulag er lítt þolandi, það hefir orðið til að spilla jóla- gleði minni og sjálfsegt margra ann- ara. Kirkjan er þarna órétti beitt því hún borgar Ijósgjald með þessu fyr- irkomulagi, fyrir Ijós sem hún ekki fær að nota og eg vil alvarlega skora á sóknarnefndina að vernda hag kirkjunnar og sóma í þessu tilliti. Ekki get eg heldur að því gert, að betur þykja mér Ijósin sæma kirkjunni, þessar stundir sem hún hefir þeirra þörf, en sumum kram- araholunum hérna þar sem þau eru sjaldan slökt, og sjóhúsum ogbrygg- jum þar sem þau loga til lítilla eða engra nota allar nætur. Sama má segja um mörg íbúðarhús einstakra manna; þar eru rafljósin notuð eða réttara sagt loga að engum notum í mörgum herbergjum allan þann tíma sem vatnið leyfir. Rafljósanefndin ætti nú að halda fund með sér — einrw fund á ára bili — og gjöra þá heppilega ráð- stöfun að taka af, nú meðan Ijós- vandræðin eru, öll óþarfa ljós o: þau Ijós seni hægt er að komast af fyrir utan, svo og alla strauboltana sem aldrei hefðu átt að vera leyfðir, því þeir eyða straum á við mörg hús hver en gefa raflýsingunni ekki tí- unda part af þeim tekjum sem þeir ættu að gefa henni, og síðast en ekki síst, að gjöra þá ályktun að Ijósin skuli algerlega tekin af þeim húsum sem nota þau í óhófi. Jón Jóhannesson. Manndauði af voldum spænsku veikinnar er orðinn afskaplegur, einkum þó í Reykjavík. Blöð sem hingað eru komin þaðan frá 4. des. segja að þá séu um 250 dánir í Rvik, en fregn frá 12. des. segir að dánir séu 360 manns í Reykjavík, 25 í Vest- mannaeyjum og 17 á Vífilstöðum. Á Akranesi og, Hafnarfirði hafamarg- ir dáið, en víðast hvar annarsstaðar tiltölulega mikið færri. Hjúkrunarnefnd skipaði stjórnar- áðið 8. nóv. sem setti fast skipu- lag á alla hjúkrun og læknisvitjanir í Reykjavík. Formaðurþeirrar nefnd- ar var L. H. Bjarnason prófessor, og er honum mikið hælt fyrir dug- lega framgöngu við hjúkrunarráð- stafanir. Samskot voru hafin til líknar bág- stöddum af afleiðingum veikinnar. og safnaðist á fáum dögum full 40 þús. kr. Hæðstir gefendur eru H. P. Duus verslun 10 þús. h.f. Víðir 5 þús., G. Gíslason 1100, Fenger 1000, Gísli Johnsen 1000 kr. o. m. fl. Eldhús setti Thor Jensen upp og útbýtti daglega upp undir 1000 mál- tíðum ókeypis til bæjarbúa. Meiri hluti þess var sent heirn í húsin til fólksins. Hann lét einnig botnvörp- ung ganga til veiða og útbýtti fiskin- um gefins meðal bæjarbúa. Fréttir. Jörðin Hrafnagil í Eyjafirði er ný- lega seld Magnúsi Sigurðssyni kaupmanni á Grund. Verðið var 41100 krónnr. Seljandinn var síra Þorsteinn Briem, hafði hann keypt jörðina af landsjóði fyrir fáum árum fyrir 4500 krónur. Kristinn Ketilsson áður bóndi að Hrísum í Eyafirði andaðist að heim- ili sínu, Reykhúsum í Eyafirði 16. des. s. 1. Hann var myndarmaður, glaðlynd- ur og vel látinn, áhugamaður um alt er að framföruin laut og fylgd- ist vel með í hinum ýmsu lands- málum. Synir hans eru: Hallgrímur framkvæmdarstjóri Sambandskaup: félaganna og einn af forstjórum 242 Æg skal segja yður alt harra, Schnell, ef þér ekki kær- mig fyrir yfirvöldunum,« svaraði Mr. Pemberton. Schnell murraði eitthvað í hálfum hljóðum, og settist svo við skrifborð sitt. »Segið frá öllu,« urraði hann með skip- andi málrómi. Mr. Pemberton dró andann þungt. >Ef þér lofið því að segja ekkí til mín skal eg segja yður alt, stamaði hann. »Skjalið er skrá yfir skrautgripi og verðmæta hluti sem móðir mín á.« »Já rétt,« sagði umboðsmaðurinn og brosti djöfullega. »Rað er þá partur af erfðaskrá.e »Það er alveg rétt herra*Schnell,« sagði Mr. Pemberton, Hann sýndist mjög hissa yfir skarpskyg-ni umboðsmannsins. »Mig grunaði það, herra Parlot,« sagði Schnell glottandi. »Og til þess að komast nógu fljótt að endirnum á frásögn yðar, skal eg segja yður af hvaða ástæðu þér viljið fá mig til þess að gera þetta skítverk fyrir yður.« Mr. Pemberton leit útfyrir að verða meira og meira forviða. »Á þessum seðli, sem á að festa við erfðaskrá móður yðar, sem lista yfir dýrgripi hennar, viljið þér víst gjöra nokkrar breytingar?« hélt Schnell áfram. Mr. Pemberton kinkaði kolli. »Og tilgangurinn er, að ná með því í nokkra dýrmæta gimsteina handa sjálfum yður?« »Já,« svaraði Mr. Pemberton, áherslulaust. »Og af hvaða ástæðu, herra Perlot?« spurði Schnell, sem auðsjáanlega kættist yfir sálarangist þeirri er Mr. Pem- berton gat látió skína út úr andliti sfnu. »Spilaskuldir, — kvenmaður---------«

x

Fram

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fram
https://timarit.is/publication/34

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.