Fram


Fram - 17.01.1920, Blaðsíða 3

Fram - 17.01.1920, Blaðsíða 3
Nr. 3 FRAM 11 valdar kvikmyndasýningar. Nú er »Fjalla-Eyvindur« sýndur um allan heim, og — auðvitað — halda allir, þeir sem eigi vita betur, að þarna sé sönn mynd af íslensku fólki, ís- lenskri náttúru og íslenskum bæjum og búningi! Pað er beinlínis hatramlegt að stjórn bæjarfélagsins skuli láta það viðgangast að eina húsið sem bærinn á og hefír á að skipa til samkoma og fundarhalda skuli vera fastleigt, og það eigi einungis til stutts tíma, heldur til margra ára! Sök sér væri það, ef bærinn hefði sjálfur átt fyrirtækið. En því fer nú betur að svo er ekki; og eg vona að stjórn þessa bæjarfélags verði aldrei svo langt leidd, að hún ráð- ist í slíkt fyrirtæki. Ekki mælir það heldur með, að á flest öllum sýn- ingum hér er mesta ómynd. »Film- urnar« gamlar, þvældar og úr sér gengnar, af handahófsvali, útbúnað- ur allur óvistlegur, þó útyfir taki kumbaldinn gluggalausi, hurðarlausi og gólflausi, sem bygður var úti- fyrir dyrum hússins, og gerir að- sækjendum illkleyft að komast inn, ef mikil er aðsókn. Fyrir utan þá óprýði sem þessi »hundsrass« veld- ur, og sem sennilega tekur út á væntanlega gangstétt. Og — mér er spurn — til hvers samþykti bæj- arstjórnin þessa »byggingu.« Hvern- ig stóð á því? Hverjum á hún að vera til góðs? Á húnað vera minn- ismerki um sntekk núverandi bygg- ingarnefndar? Og svo tekur útyfir alt, ef bæjarsjóður á að borga mik- inn hluta kumbaldans. Nei, þetta Bíó hérna er engum til góðs. Hjá því er ekkert fyrsta flokks — nema verðið á aðgöngumiðunum — það gengur »luksus« næst! F*að er líka efamál, hvort það borgaði sig ekki betur fyrir bæinn að hafa húsið laust — ef á annað borð hefir verið tilgangurinn að »spekúlra« með það. En þó að bær- inn tapaði algjörlega þessari bíó- leigu, þá væri samt ekki áhorfsmál að festa eigi húsið. Eins og nú er, er bærinn algjörlega útilokaður frá öllum betri skemtunum, fundarhöld- um og samkomuin, nema með því móti að eiga undir góðsemi leigj- andans; og það væri synd að segja annað en að hann hafi verið tölu- vert greiðugur hvað það snertir — framar öllum vonum. Hann er auð- vitað ekkert skyldugur til að lána það hverjum sem er, og efamál hvort hann yfir höfuð hefir leyfi til þess, þegar fundir í þarfir bæjarfé- lags eða bæjarstjórnar eru undan- skildir. Hús þetta á fyrst og fremst að vera leikfimishús, eða átti að vera það. En þá vanta öll áhöld tiiþess að æfa þar leikfimi þó vitanlega mætti koma miklu af þeim upp í skyndi, t. d. rimlavegg, köðlum, hringjum, trapizum, stökk-»búkkum« (hestum) o. fl., o, fl. sem ástæðu- laust er að sækja út úr landinu. F*á ætti að vera þar leiksvið, hag- anlega útbúið til að leika á smá- sjónleiki. Efast eg ekki um að drjúgir peningar fengjust í bæjarsjóð á hverjum vetri í leigu, ef svo væri umbúið. Hér er töluverður og lofs- r-erður áhugi hjá mörgum um það, að stofnað yrði hér dálítið leikfé- lag til þess að hafa ofan af fyrir bæjarbúum í vetrarfásinninu. Og eg segi fyrir mig, að eg vildi heldur horfa á einn vel leikinn gamanleik en tíu kvikmyndasýn- ingar. Eg vona að ef til vili fleiri bæjar- búar láti til sín heyra um þetta mál, því það er alls ekki svo iitils virði sem margur kannske hyggur. Og eg ber það traust til hinnar háttvirtu bæjarstjórnar að hún láti sér víti gömlu hreppsnefndarinnar að varn- aði verða, og leigi ekki þetta eina hús bæjarins aftur er leigutíminn er útrunninn til slíkra hluta, sem það nú er leigt til. Sig. Bj. Aths. (Þótt vér ekki séuni sammála heiðruð- um höfundi þessarar greinar,í nokkrum, at- riðum, sjáum vér ekki ástæðu til að koma fram með nokkrar athugasemdir að þessu sinni. Ritstj.) B-list-istar. —00— Þið, sem með öllum meðölum berjist fyrir B-listanum, segið engum manni að það sé sannfæring ykkar að frú Guðrún og Hennes, að þeitn ólöstuðum séu á- litlegrl fulltrúaefni fyrir verkamenn eða bæinn en Jón Guðmundsson og Tynes. Segið heldur satt og rétt og sem allirvita að þið hafið fundið upp það herbragð að láta kvenþjóðina, móti vilja sínum, styðja Hannes og það þó þið eiginlega allir séuð óánægðir með hann. Að þið hafið litið svo á að sömu rnenn sem verslunar- menn gæfu atkv. sitt, gætu verkamenn aldrei kosið. Að Haunes hafi nú í annað sinn biðlað til ykkar eða jafnvel verið sá eini, er þiggja vildi brauðið. Að verkamenn hafi félagsskap með sér, sem æsingalaus og með fullri sanngirni og lipurð, setur fratn sínar kröfur, er ekk- ert nema gott um að segja, en sé félags- skapurinn ntisskilinn eða notaður til að spilla almennu friðsamlega samkomulagi, og samvinnu þeirra, sem saman eiga þó að lifa og starfa svo sem verslunarmaður- inn og verkamaðurinn, æsa og rægja einn á móti öðrum og hrifsa til sín yfirráð og völd, þá væri betur að hann væri enginn. Kjósendur, í hverri stétt eða stöðu sem þið eruð flytjið aldrei þá óheillapólitík inn í þetta unga bæjarfélag, því hún er eitur fyrir heimilislíf hvers einataklings og alt bæjarfélagið. Þeir menn sem telja nauðsynl. að eiga setn flesta í bæjarstjórninni nteð húð og hári, og helst samfæringunni líka ættu að athuga að fyrst og fremst á eng- inn flokkspólitík að eiga sér stað í bæj- arstjórninni, eða vill nokkur verkamaður það, og í öðru lagi: hvað fulltrúarnir sem slíkir geta gert sérstaklega fyrir einn eða annan flokk. Ekki ráða þeir almennu kaupi eða vinnutíma, ekki ráða þeirheldurvöru- verðinu né stofna verslun fyrir einn eða annan, ekki gefa þeir verkamönnutn at- vinnu, eða verkamannalöggjöf sem íslenk- ur verkálíður á enn eftir að eignast, þeir jafna ekki einu sinni niður útsvörunum og hvað er það þá? Flokkadr. við svona kosningar er því bæði heimskul. og skaðlegur Æskilegt væri að hinirbestu ménn væru ætíð sjálfkjörnir, að um það væri enginn meininga munur. Kjósið því ekki í tilliti tit flokka, heldur allir þann listann sem hefir aflmeiri mönuum til framkvæmda á að skipa Gerið það fyrir bæjarfélagið. Gamall verkamaður. Jólatréð sem notað var á barnaskemtun kven- félagsins var gjöf frá Guðm. Skarp- héðinssyni skólastj. til barnanna í Siglufirði, og því átti að fylgja kær kveðja frá honum og innilegustu óíkir um gott og farsælt nýar. Guðr. Björnsdóttir. Reykjarhdll í Austur-Fljótum er til sölu. Sernjið við » Guðm. Davíðsson Hraunum. Ritstj. og afgreiðslum.: Sophus A. Blöndal. Siglufjarðarprentsmiðja. 120 Um leið ók vagn að dyrunum og kvenmaður steig út úr honum með aðgöngumiða í hendinni; hún gekk fram hjá honum án þess að veita honum eftirtekt. F’að var frú Demidoff. Valenski hafði aldrei komið til hugar aö frú Demidoff gæti liaft hugmynd um hvað orðið hefði af stikunum. Að hún var þarna stödd hitti hann nú sem elding úr heíðskýru lofti. En var það í raun og veru svo óeðlilegt? Valenski vissi að þeir er samsekir voru Griinebaum höfðu komið upp um hann. Hús hans og bækur hafði verið ransakað,. nafn félaga hans í Lundúnum uppgötvað, og frú Demidoff hafði án efa farið alveg eins að og hann sjálfur. Með hótunurn og mútum hafði hún rakið feril Ijósastikanna frá sölubúð Davies að húsi Mr. James & Hudsons. Hann skildi straks, að koma hennar boðaði mikla hættu fyr- ir hann sjálfan. F’að var augljóst, að hún hafði af einhverjum persónulegum, leyndum ástæðum mikinn áhuga á að ná sjálf í stikurnar, annars hefði hún ekki komið sjálf tii Lundúna heldur sent einhvern umboðsmann. til þess að ná í hina stolnu muni. Væri það ætlun hennar að bjóða í stikurnar, mátti búastvið að hann yrði í minni hluta, Harm hafði að vísu yfir miklu fé að ráða, en ef orðrómurinn var sannur, og frú Demidoff var launaður erindreki rússnesku stjórnarinnar, þá var lánstraust henn- ar ótakmarkað. Baráttan milli hans og hennar kæmi til að verða upp á líf og dauða. Ef hann aðeins gæti séð tuttugu og fjóar klukkustundir fram í tímann og straks vitað hið versta er fyrir gæti komið! Honum flaug í hug að spyrja sig fyrir á hverju hóteli í Lundúnum eftir frú Demidoff og fá að vita af hennar eigin vörum hver verða skyldu örlög hans. En hann sá fljótt, að bæði var vonlaust að finna hana í jafn stórum bæ og Lundúnum, og svo myndi hún skoða þá framkomu sem vott um þrekleysi, og þar að auki voru ofurlitlir möguleikar til að hún hefði als ekki orðið vör við skjölin. Ef svo væri myndi hún hætta við að bjóða í stikurnar um leið og hún sæi Valenski meðal keppinauta sinna; álíta að hann byði í þær fyrir hönd kardínála d’Orsay. 126 — Ivan Stefanovitsch Valenski! sagði hann. — Að þér skilduð leyfa þessum njósnara, versta og hættulegasta aðstoðar- manni óvina okkar að hafa leyndarmál okkar til umsjónar, já nærri því fara höndum um þau, nokkurt augnablik, að þér skild- uð ekki ryðja henni úr vegi, og ef þér voruð sjálfur of blaut- geðja til þess, þá fá annaii þrekmeiri til að gera það! Ivan svaraði ekki. Hverju átti hann svo setn að svara. Ávít- unin var réttmæt, en meining hans hafði verið góð; það voru forlögin er höfðu borið hann ofurliði. Hann horfði á Mirkovitsch ganga aftur á bak og áfram um gólfið. Orðið hefnd stóð skýrt skrifað á svipþungt andlit hans. — Ef eg aðeins hefði keisarasoninn ennþá á mínu valdi, tautaði hann — þá gæti alt lagast. — F*á er — spurði Ivan — Dunajevski —? — Kominn heilu og höldnu til Englands, og keisarasonur- inn kominn aftur til Pétursborgar. — Eg skil ekki — hvernig var hægt að komast að sam- komulagi ? — Á allra einfaldasta hátt, svaraði Mirkovitsch. — Kven- maður, dóttir mín gerði það. — Maria Stefanovna? — Hún virðist hafa verið snortin einhverjum kvenlegum bleyði- skap — eins og reyndar margir af félögum okkar. Hún áleit það ekki gott ráð að tortíma fanganum eins og eg alt af hélt fram, með þá hugsun fyrir augum, að hræðsla og ótti gæti gert það að verkurn er samningar gátu ekki. Pegar við fréttum ekkert af yður og við urðum að álíta að eitthvert óhapp hefði komið fyrir yður, kváðum við í einu hljóði upp dauðadóm yfir Aleksander Nikulássyni. En María hugsaði nú ein upp ráð til þess, að koma gamla bjánanum, Lavrovski tii þess, að leggja bréf fram fyrir keisarann, nákvæmlega samhljóðandi því, er þér áttuð að færa Taraniev. Hún fór til Lavrovski án þess að tala um það við nokkurn mann. Við höfðum áður fengið að vita með vissu, að hann blátt áfrain af hræðslu hafði tafið með að senda stjórninni í Pétursborg vit- neskju urn málið.

x

Fram

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fram
https://timarit.is/publication/34

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.