Fram


Fram - 17.07.1920, Side 1

Fram - 17.07.1920, Side 1
»bSbb)tóbfc3taibite2 Nýkomið margar tegundir af Kjólataui bæði! í sumar og vetrarkjóla og als- konar útsaumsdót. versl. Páls S. Dalmar. IV. ár. Siglufirði 17. júlí 1920. 29. blað. Rafmagnsmálið. —00— Þá má telja víst að hugmyndin um að mótorstöð til hjálpar núver- andi vatnstöð verði reist, sé svæfð urn óákveðinn tíma. A lista þann sem gekk milli Ijósnotenda síðast- liðna viku, söfnuðust pantanir að- eins fyrir tæpum 700 Ijósum, eða ekki helmingi þess Ijósmagns sem selja þurfti til þess að von væri til að aflstöðin gæti borið sig með því verði sem áætlað hafði verið, svo rafljósanefndin sá ekki annað ráð vænna en hafna tilboði því er fyrir lá, með því líka að bæjarfógeti, sem tal hafði átt við bankastjóra beggja útbúanna á Akureyri, taldi vonlaust að peningar mundu fást hjá þeim til framkvæmda verkinu, eins og út- lit væri nú. Hvað verður þá gjört til þess að bæta úr ljósvandræðunum? Ad undas - Norður og niður! Eftir norskan uppeldisfræðing. —OO— Framh. F*að er eingöngu strangari löggjöf og aðhaldsmeira uppeldi og ekkert annað, sem fær hindrað blóðsút- hellingar og þjóðfélagsspillandi bylt-* ingar, hegningin verður að hafa meiri áhrif á vandræðamennina, hryllilegustu stórglæpir að varða líf- láti, en skólar og heimili að herða til muna á umvöndum og aga ung- linganna til þess að kæfa ilt innræti þegar í fæðingunni — verða að sýna að þeim sé í raun og sann- leika ant um velferð hinnar upp- rennandi kynslóðar tneð því að varpa frá sér hégómlegri hræðslu við vönd- inn og beita líkamlegri hirtingu meira en nú er gert. Á þann hátt fæst verulega gagnsöm vörn gegn hinni vaxandi siðspilling og haid- góð brú á það óstjórnar og aga- leysis díki, sem heimurinn virðist nú vera að kollsteypast í. En nú er engan vegirtn fullnægj- andi að skerpa siðavöndun laganna heldur er það að eins ein leiðin til að rétta þjóðfélagið við og veita þvi viðhald. Jafnframt því verður að leggja öfluga rækt við uppeldismál- in, svo að afbrota-tilhneigingin fá- ist niðurbæld af eiginoginnri hvötum. Pað verður að neyta öfl- ugri meðala, en nú gerist, til þess að bæta siðferði afbrotamannanna, stórra og smárra. Því að lögin eru ekki annað en fastsett mark eða lína — hingað og ekki lengra! Sé farið yfir þá iínu, varðar það hegn- ingu. Pau eru ógnandi og því ekki beint siðandi í strangasta skilningi, en hins vegar er það tilgangur sið- bætandi uppeldis að vekja virðingu fyrir lögunum og velvild til þeirra. Pað verður að koma á fót stofnun- um til að ala önn fyrir afbrotamönn- unumað afplánaðri hegningu. Peim verður að gefast kostur á að komast að heiðarlegri atvinnu og verða aðnjótandi góðrar umgengni og áhrifa, svo þeir ginnist eigi und- ir eins á glapstigu og verði freist- ingunum að bráð. Slíkar stofnanir ættu að kostast af ríkisfé og þar ættu þessir frávillingar fyrst um sinn að fá launaða atvinnu og góðar leiðbeiningar — þetta ættu að vera eins konar skólar, er veittu fulltíða mönnum bóklega og verklegafræðslu og gætu hlaðið ofan á þann grund- völl, sem áður kynni að hafa verið lagður, þannig að burtfararvottorð þeirra væri um leið trygging fyrir góðum framförum í siðgæði og verkviii. Hví skyldi ekki mega vonast til þess, að slíkir skólar gætu jafnvel komið upp álitlegum mönnum þann- ig að þeir, sem notið hefðu þar fræðslu, ættu síðan greiðan aðgang að einhverri starfsemi við sitt hæfi, algerlega lausir við sína fyrri ágalla. Á þann hátt mundi þjóðfélagið sjálft stuðla að viðreisn sinni og ætti því hver og einn að styðja það málefni og styrkja og gera sitt til, að reisa þá, sem fallið hafa — það er ekki annað en einfaldur mannkærleikur. Samfara þessu yrði þá almenn uppfræðsla, er leitaðist við að aftra mönnum frá skaðvænlegum skemt- unum og gatnarápi t. d. með al- þýðubókasöfnum og lestrarstofum, lýðháskólum og ýmislegum félags- skap og fyrirtækjum, er miðuðu til sannra þjóðþrifa. Pessa starfsemi yrði ríkið einnig að styrkja kröftug- lega og mun röggsamlegar en nú er gert, enda gæti það ekki á ann- an hátt látið þjóðfélaginu betri hjálp í té. Með framansögðu hefi eg ekki eingöngu ætlað mér að sýna frani á nauðsyn þess að herða á hegn- ingunni fyrir stórkostleg lagabrot, þó að eg að svo komnu hafi eink- um gert það að umtalsefni, en eg ætlaði mér einnig að benda' á þá Ieið að takmarkinu, sem ekki er eins augljós — því takmarki að auka þjóðfélaginu Iffsþrótt og þrek — og sömuleiðis að líta á málið frá hagkvæmilegu sjónarmiði, en með þessu hvorutveggja er átt við uppeidisstofnanirnar. Skal eg þá þessu næst fara nokkr- um orðum um uppeldi æskuiýðsins í skóluni og á heimilum — en það er sá grundvöllur, sem öll manns- æfin byggist á — og mun eg þá einkum hafa skólafræðsluna fyrir augum, þar sem hún tilheyrir mín- um verkahring. F*ví að sá þroski og þróun, seni ungiingurinn verð- ur aðnjótandi í skólanum og heima fyrir, ef undirstaða alls þess, setn seinna kemur fram í honum, hvort heldur er gott eða ilt — það er sú meginrót, frjó eða feyskin, sem fyrir því ræður, hvort tréð ber heldur góða eða illa ávexti. Eitt af því, sem einkennir aldar- háttinn, er sívaxandi skilningsleysi foreldranna á samvinnu skóla og heimilis. F’ví er ver og miður, að gömul og gild lífsregla, sú lífsregla að hver sem elskar afkvæmi sitt, agar það snemma, og að sá ann ei sínu, er sjaldan hreyfir vöndinn, er nú ekki lengur í heiðri höfð. Kenning kveifarskaparins og dýrkun dálætisins skipar öndvegið í skól- um ög á heimilum, börnin alast upp við orðageip og eftirlæti, en alla athöfn brestur, enda þótt hún sé eina meðalið, sem hrífur, þegar alt munnflapur reynist einskis nýtt — og á eg þar við holla hirtingu, sem ekki gleymist jafnharðan, held- ur verður til aðvörunar framvegis. Prátt fyrir ítrekaða óhlýðni og vax- andi þrjózku er látið sitja við orð- in tóm, sem unglingurinn virðir að vettugi. Mér finst engin ástæða til að býsnast yfir því samsaíni, sem nú situr á skólabekkjunum, þegar þess er gætt að lífsregla sú, sem áður er nefnd, er að litlu eðaengu höfð á heimilunum. og virðist vera fallin í gleymsku og dá í skólun- um. F’ví að þarna er meinið. Sem betur fer eru þó allmörg börn enn þá alin upp með umhyggju, ást- seind og — aga. En hin eru svo margfalt fleiri, sem eru látin ganga sjálfala og þverskallast við allri ög- un og reglusemi, jafnt í skólunum sem heima fyrir. Verði nú slíkir unglingar fyrir einhverri skólatefs- ingu, þá finst þeim sér óréttur ger — slíku áttu þeir ekki að venjast í heimahúsum. Peir bera sig þá upp við foreldrana, er taka þá trú- anlega og draga taum þeirra. Pessir foreldrar bregða svo kennurunum um rangsleitni, þar sem þeir hafi dirfst að misbjóða »blessuðu barn- inu« að ástæðulausu, en ’ þetta »blessaða barn« rangfærir oft og tíðum alla málavöxtu og skýrir skakt írá því, hvers vegna sér hafi verið refsað — og á þann fram- burð leggja foreidrarnir fullan trún- að. En í þess stað ættu þeir vel að gæta þess, að kennararnir vilja börnunum alt gott og stæði þess- um foreldrum nær að taka svari kennaranna og styðja þá í viðleitni sinni að gegna samvizkusamlega sinni erfiðu og vandasömu köllun. Framh. „Fossarnir“. —oo— Eins og áður hefir verið minst á, er verið að gera við Lagarfoss í Kaupmannahöfn. Verður sú viðgerð meiri en ætlað var í fyrstu, og það svo, að menn munu ekki þekkja hann aftur fyrir sama skip. Möstrin verða færð til, sett nýtt þilfar og tvö ný farrými smíðuð ofan þilja. F'að hefir reynst óhjákvæmilegt, að hafa farrými á þeim skipum, sem hér sigla, því að farþegaflutningur hjá oss er nú einu sinni ekki full- komnari en svo. Lagarfoss á að vera tiibúinn 1. ágústogmun hann þá fertna vörur hingað heim. F’að hafði komið til tnála, aA smíða fjórða skipið, enda er þess full þörf. En vegna þess, hvað ný skip eru nú dýr, og hins vegar lík- ur til að verðið kunni að lækka bráðlega, vegua feikna mikillar skipa- framleiðslu, þá þótti ráðlegra að gera því vandlegar við Lagarfoss, svo að hann fullnægði betur kröf- unum og yrði endingarbetri. Virð- ist það líka rétt ráðið. Eitt aðal- skilyrðið fyrir góðum viðgangi eitn- skipafélaga, er það, að spara ekki gott viðhald á skipum sínum. Alt of margir skipaeigendur hafa brent

x

Fram

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fram
https://timarit.is/publication/34

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.