Fram - 17.07.1920, Síða 2
112
FRAM
Nr. 29
sig á slíkum sparnaði, ti! þess að
vér megum stranda á því skeri.
Qoðafoss hinn nýi mun verða
tilbúinn um áramótin. Verður hann
alt að því þriðjungi ódýrari en skip
sem hlaupa af stokkunum um sama
leyti, fyrir það, að Níelsen fram-
kvæmdarstjóri festi kaup á efninu
meðan járnið var í lægra verði.
»Vísir« 26. jiíní.
Erl. símfregnir.
—oo—
9. júlí. Flokkur einn í pólska
þinginu ætlar sér að steypa stjórn-
inni þar. — Frá London fréttist að
Bolsjevikkar séu fúsir að ganga að
skilyrðuni Lloyd Qeorge. — Pól-
verjar ganga að kröfum Bandamanna
um að minka her sinn og á hann
að verða 150 þús.
13 júlí. Pjóðverjar mótmæla að
verða við kolakröfum Bandamanna
nema að litlum hluta (einum tutt-
ugasta). Bandamenn skora á Pól-
verja að hverfa inn fyrir hin ákveðnu
landamæri og semja frið við Bol-
sjevikka. — Finnar hafa látið þá
Álendinga lausa, sem þeir héldu í
varðhaldi. — Wrangel helduráfram
sókn á Bolsjevikka. — Eugenia
keisara-ekkja er látin á Spáni í hárri
elli. — Uppreisn er hafin í Kína. —
Lítháar og Bolsjevikkar hafa undir-
skrifað friðarsamning í Moskva. —
Stjórnarbylting í Bolivíu (lýðv. í
S. Ameríku) og forsetinn tekinn
höndum. — Grikkir hafa tekið
Smyrnu herskildi.
15. júlí Pjóðverjar hafa nú geng-
ið að kolakröfum Bandamanna. —
Berzkir verkamenn hóta allsherjar-
verkfalli ef herinn verður ekki kvadd-
ur heim frá írlandi. — Rússar hafa
slitið friðarsamningum við Finna.
ínnl. símfregnir.
Rvík 16. júlí. Oullfoss er farinn til
Khafnar. — 15. júlí var Gunnar
Egilson skipaóur erindreki á Ítalíu
og Spáni; mun setjast að í Genúa.
— Amerískt kolaskip er komið til
Landsverzlunarinnar. — Botnía kom
í morgun og með henni lík Jóns
Aðils. — Á sunnudaginn sýnir Nýja
Bíó í fyrsta skifti Sigrúnu á Sunnu-
hvoli í hinu nýja húsi sínu. —
Jón Stefánsson heldur málverkasýn-
ingu hér.
t
Sverre Moxem
bókhaldari
er nýlega látinn í Haugasundi í
Noregi, rúmlega þrítugur að aldri.
Banamein hans voru berklar. Moxem
heitinn var hinn besti drengur, og
átti hér marga kunningja, frá því
hann var hér fyrir nokkrum árum
bjá þeim Henriksen & Staalesen,
Clement Johnsen
Bergen Norge
Telegraíadresse: ,,Clement“
Aktiekapital & Fonds Kr, 750.000.
Mottar til forhandling Fiskeprodukter:
Rogn, Tran, Sild, Fisk, Vildt etc.
Lager af Tönder, Salt, Bliktrantönder, Ekefat.
Bankareikningar 1919.
—oo—
Landsbankinn.
Á árinu 1919 hafa tekjur Lands-
bankans numið kr. 1,850,576. Par
af er 65V2 þús. kr. flutt frá fyrra
ári, 107 þús. kr. tekjur af útibúun-
um á ísafirði, Akureyri og Eski-
firði, innborgaðir vextir 695 þús. kr.
forvextir af víxlum og ávísunum
tæpar 840 þús. kr. og »ýmsar tekj-
.ur« 143 þús. kr. Útborgaðir vextir,
kostnaður við rekstur bankans, tap
á útibúinu á Selfossi o. fl. hefur
numið kr. 1,082,192. Tekjuafgang-
ur eða ársarður af rekstri bankans
hefur því orðið rúmar 768 þús. kr.,
en árið á undan var arðurinn 685
þús. kr. og var það framundir helm-
ingi meira en árið þar á undan. Af
ársarðinum hefur n'kissjóður fengið
tæp 98 þús. kr. í ágóða af innstæðu-
fé sínu, auk hins lögákveðna tillags
kr. 7,500. Verðbréf hafa verið færð
niður í verði um rúmar 98 þús. kr.
og í varasjóð hafa verið lagðar kr.
557% þús. kr.; er varasjóður bank-
ans þá orðinn nær 2% milj. kr.,
1917 var hann 1.6 milj. kr., 1916
1.3 milj. kr. og 1915 1.1 milj. kr.
íslandsbanki.
Velta bankans hefur enn aukist
afarmikið á árinu 1919; hún var
það ár 568 milj. kr., 1918 418 milj.
kr., 1917 292.5 milj. kr. og 1915
139.7 milj. kr. Tekjurnar á árinu
1919 hafa numið 2% milj, kr, og
er sú upphæð að heiía má ósund-
urliðuð í reikningi bankans. Kostn-
aður við bankareksturinn og við
stofnun útibús í Vestmannaeyjum
hefur numið 272 þús. kr. og árs-
arðurinn hefur því orðið nær 2%
iniij. kr., árið á undan (1918) var
arðurinn 1.6 milj. kr. og 1917 rúml.
®/4 milj. kr. Af ársarðinum fær rík-
issjóður 10% eða kr. 204,482 og
af því sem þá er eftir rennur í
varasjóð 10% eða kr. 202,034 og
ennfremur eru lagðar í varasjóð kr.
1,114,472. Hluthafar fá 12% af hluta-
fénu kr. 540,000 og til fulltrúaráðs
og framkvæmdarstjórnar rennur kr.
163,830. Varasjóður bankans er þá
í árslok 1919 3.8 milj. kr. eða um
84% af hlutafénu.
t
Guðrún Einarsdóttir
lést 9. þ. m, að heimili sínu Sölva-
bakka i Húnavatnssýslu úr afleið-
ingum af slagi, nær áttræð að aidri.
Mann sinn Bessa Porleifsson misti
Guðrún heitin fyrir nokkrum árum.
Fyrstu hjúskaparár sín 13 bjuggu
þau hjón hér í Siglufirði, síðan um
nokkur ár að Ökrum í Fljótum,
fluttu þaðan að Sölvabakka og
bjuggu þar ætícf síðan og dóu þar
bæði eftir vel unnið æfistarf. Guð-
rún heitin var hin mesta sæmdar-
,og dugnaðarkona vel gefin og vin-
sæl. Meðal barna þeirra er Krist-
jana kona Sigurjóns Benediktsonar
járnsiniðs hér í bænum.
Br u n atryggi n gar
Sj ó vátryggi ngar
Líftrygging&r.
Pormóður Eyólfsson.
Vikan.
—00—
Tíðin: Pokur tíðar og austanstormar ti|
Iiafsins en ágæt tíð til landsins.
Porskfiski mjög rýrt, sem stafar mest
af beituvandræðum, annars mun töluverð-
ur fiskur úti.
f
Richard Pétur Riis,
kaupmaður á Borðeyri, andaðist ný-
lega á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn,
62 ára að aldri. Hann var sonur
»gamla Riis« á ísafirði, er var skip-
stjóri framan af æfinni en stýrði-
síðan Clausens verzlun (hæsta kaup
staðnuin svo nefndum) á ísafirði
um margra ára skeið, unz hann lét
af þeirn starfa í elli sinni og fluttist
þá til Kaupin.hafnar og dó þar.
Var hann alkunnugur maðurásinni
tíð og þótti jafnan sæmdannaður
og vel látinn af öllum, sem kynt-
ust honum.
R. P. Riis hafði rekið verzlun á
Borðeyri eilthvað um 30 ár, en auk
þess setti hann verzlanir á stofn á
Hólmavík og Hvammsíanga á seinni
árum og var Hvammstangaverzlun-
in orðin þeirra stærst, enhanaseidi
hann seinast liðið ár Verziunarfé-
lagi Vestur-Húnvetninga. Voru það
því engin smáræðis viðskifti, er
hann hafði með höndum, en allir
luku upp sama munni um það, að
hann væri áreiðanlegur og orðheld-
inn með afbrigðum, svo að hann
þótti vart eiga sinn líka í þeimefn-
um. Hann var einnig sérlega vöru-
vandur og einn hinn fyrsti og helzti
frömuður þess að flokka og vanda
sem bezt íslenzkar afurðir, enda
galt hann þær jafnan manna bezt.
Sömuleiðis átti hann drjúgan þátt í
því, að skipagöngur um Húnaflóa
breyttust mjög til batnaðar um hans
tíð og má hiklaust, allra hluta vegna,
telja hann með hinum allrafremstu
kaupmönnum Norðurlands. Pað jók
og vinsældir hans, að hann var hið
mesta prúðmenni í allri framgöngu,
en þó hispurslaus og síkátur og
skemtilegur. Hann var giftur danskri
konu, er lifir mann sinn ásamt 3
dætrum uppkomnum.
Systkini R. P. Riis, sem á lífi eru,
eru þeir kaupmennirnir Michael og
Árni og systur tvær, Ása og Anna.
Fyrir nokkrum árum lézt einn bróð-
irinn, Kristján Riis. Gekk hann í
latínuskólann í Rvík, fór svo til há-
skólansíKaupm.höfn, las þar læknis-
fræði og gerðist síðan Jæknir á Sjá-
landi og dó þar tiltölulega ungur
að aldri.
Síld hefur einstaka bátur hitt í reknet,
tveir bátar af Eyjafirði fengu á föstudags-
nótt 6 tnr. annar og 10 tnr. hinn. Nokkur
skip eru úti héðan með herpinót en hafa
ekki koniið inn ennþá.
Skip. Þessi norsk fiskiskip til dvalar
hér: »Njörd«, »Von«, »Borgund« og »Sverr-
ir« til Tynesar. »Skervöy« til Örtenblads.
»Aspö«, »Isodd« og »WilIiam« ..ætla að
salta um borð. Af sunnlenzkum skipum,
sem hér ætla að leggja upp' eru komin:
M. k. »Þórir« til Kveldúifs og »Faxi« til
Sigurjóns Péturssonar. Fimm færeyskir
kútterar hafa komið inn. »LúdoIf Eide«
kom hér á leið til Hesteyrar og »BIæjan«
á leið til ísafjarðar. Með Lud. Eide var
Henriksen kaupmaður.
Með þessuni skipum hafa komið frá
Noregi: Utgerðarmennirnir Oie O. Tynes
J. Iversen, Andreas Hövik, Corneliusson,
Ungfrú Herdís Hjartardóttir, Vilh. Sæby,
Steinþór Haiigrímsson og Pétur Björnss.
Frá Reykjavík: kaupm. Páll S. Daltnar,
Þórarinn Böðvarsson. Ingvar Ouðjónsson
Jón Guðjónsson og margt fleira fólk sem
vér ekkí kunnum að nafngreina.
Ennþá er von á mörgum fiskiskiputn
bæði utanlands frá og innan, þessa næstu
daga, en þó mun útgerð verða héðaa með
minna móti. Herra Tynes segir oss að
margir sem hann hafi átt tal við hafi sagt
sér að þeir þyrðu ekkf að eiga á hættu
að koma eða senda skip hingað, þó ef
til vill hægt hefði verið að fá kol ogolíu
þar sem síld hafi brugðist svo hér und-
atjfarin ár, en hitt sé víst að verði síld
hér í sumar, megum við búast við mikl-
um fjölda upp að sumri. Vegna kola-
vandrabða korna engin af skipuin Roalds
að þessu sinni og hafa þeir neyðst tii að
segja upp öllu sínu verkafóik'i. Herra Iv-
ersen býst ekki við að þeir (Bakkevig)
geri héðan neitt út í sumar.
Dúfa kom um borð í M.k. »Þórir« út
af Breiðafirði, á leið hans hingað nú í
vikunni. Dúfan er með gúmrníhring á öðr-
um fætinuni, og láíúnshring á hinum og
er látúnshringurinn merktur: C. B. 126
N. U. 16. Ekki er auðið að giska á hvað-
an dúfa þessi kemur, en ósennilegt er ekki
að hún kunni að vera einhverskonar boð-
beri.
Hákarlaskipin eru nú liætt veiðumog
hafa fcngið yfir vertíðina: M.k. »Snyg«
528 lifrartunnur, M.k. »Kristjana« 454, M.k.
»NjálI« 432 og Siglnesingur 205 tunnur.
Sigln. er mótorlaus. Hjá þeim hæsta er
mannahluturinn á tólfta hundrað krónur
og hefur þetta því verið besta vertíð.
Kirkjan. Messað á morgun kl. 5.
Borg er komin til Austfjarða.
Munið
aö gjalddagi blaðssns var
1. þ. m.