Fram - 19.03.1921, Side 1
t
Til Páskanna:
Gerduft, Eggjaduft, Búðingsduít,
þur Egg o.-fl. o. fl. fæst í
versl. Helga Hafliðasonar
10°o afsláttur
verður fyrst um sinn gefinn á
öllum vörum sé keypt fyrir
minnst 5 krónur í senn.
Páll S. Dalmar. ^
k
I
V. ár. Siglufirði 19. marz 1921. 11. blað.
Frá Alþingi.
Alþingi var sett 15. f m. eins og
til stóð og gengu þingmenn fyrst
í dómkirkjuna aðvanda ,en þar talaði
Árni prófastur Björnsson í Görðum
og lagði út af hinum alkunnu orð-
um um hús það, sem bygt er á
bjargi og hús það, sem bygt er á
sandi. Þótti mönnum ræða hans
iún bezta.
Að lokinni guðsþjónustu gengu
þingmenn í þingsal neðri deildar
og las forsætisráðherra þar upp
boðskap konungs og lýsti yfir að
Alþingi væri sett, en Sigurður prest-
ur Stefansson árnaði konungi langra
lífdaga og tóku þingmenn undir
með níföldu húrrahrópi. Forsætis-
ráðherra kvaddi þá elzta þingmann-
inn, Sig. Jónsson frá Yzta-Felli, til
að stýra l'yrsta fundi þingsins og
Settist hann í forsetasæti. Síðan
skiftust menn í þrjár deildir til kjör-
bréfarannsókna hinna nýkosnu
Reykjavíkur þingmanna. Hafði kom-
ið fram ein kæra yfir kosningunni
og varð mikið og langt stapp um
þetta mál, er loksins lyktaði svo,
að daginn eftir var kosningin dæmd
gild með 28 atkv. gegn 6. Pótti
víst flestum þetta óþarfar málaleng-
ingar með því að allir voru sam-
mála um, að niðurstaðan mundi
verða alveg hin sama þó að kosn-
'"gin yrði gerð ógild og kojið upp
aítur.
Forsetar þingsins eru í samein-
uðu þingi Jóhannes bæjarfóg. Jó-
hannesson en varaforseti Sveinn
Ólafsson frá Firði; skrifarar Eiríkur
Einarsson og Jón A Jónsson. For-
seti efri deildar Guðmundur land-
læknir Björnsson, en varaforsetar
Guðm. Ólafsson og Karl Einarsson;
skrifarar Sigurður H. Kvaran og
Karl Einarsson. Forseti neðri deild-
ar Benedikt Sveinsson bankastjóri,
en varaforsetar sr. Sigurður Stef-
ánsson og Bjarni frá Vogi; skrifar-
ar Porsteinn jónsson og Magnús
Pétursson.
Nú geta þingmenn vorir ekki einu
sinni komið sér saman um sæti sín
eins og í fyrri daga, heldur draga
um þau og þykir víst sunium eldri
mönnum þetta hálfbarnalegt og ó-
viðeigandi, Morgunblaðið segir að
nokkrir þingmenn hafi neitað að
tfka þátt í þessum leik, en aðrir
geit það og verið harðóánægðir
nieð hlutskifti sitt.
Nefndarkosningar í neðrideild.
Fjárhagsnefnd: Hák. Kristó-
ferss , Sv. Ólafss., Porst. Guðmurids-
son, Magn. Kristjánss., Jak. Möller,
Jón A. Jónss. og Pórar. Jónsson.
Fjárveitinganefnd: Bjarni
Jónss., Porl. Jónss., Gunnar Sig-
urðss., Stef. Stefánss., Magn. Pét-
urss,, Ol. Proppé, Magn. Jónsson.
Samgöngumálanefnd: Pét-
ur Pórðars., Porst. M. Jónss., Gunn-
ar Sigurðss., Jón Sigurðss, Gísli
Sveinss., Jón A. Jónss., Jón Por-
lákss. Landbúnaðarnefnd:
Hák. Kristóferss., Jón Sigurðsson,
Björn Hallss. • Sig. Stefánss. Pór.
Jónss. Sjáv.arútvegsnefnd:
Pétur Ottesen, Magn. 'Kristjánsson,
Porl. Guðmundss. Jón Baldvinss.
Einar Porgilss. Mentamálanefd:
Bjarni Jónss. Eiríkur Einarss. Porst.
Jónss. Magn. Jónss. Jón Porlákss.
Allsherjarnefnd: Pét. Ottesen
Stef. Stefánsson, Björn Hallsson,
Einar Porgilss. Sig. Stefánss.
Nefndarkosn. í efri deild, F j á r-
hagsnefnd: Björn Kristjánsson,
Guðjón Guðlaugss. Guðm. Ólafss.
Sig Eggerz, Sigurjón Friðjónsson.
Fjárveitinganefnd: Jóhannes
Jóhanness. Hjörtur Snorras. Halld.
Steinss. S, H. Kvaran. Sa m g ö n gu-
málanefnd: Guðj. Guðlaugss.,
Hjörtur Snorras., Halld. Steinsson,
S. H. Kvaran, Guðm. Guðfinnsson.
Landbún.nefnd: Sig. Jónss.,
Guðm. Ólafss., Hjörtur Snorrason.
Sjjvarútv.nefnd: Björn K' ist-
jánss., Kar! Einarss., Einar Árnas.
Mentamálanefnd: Síg.Jóiss.
Guðm. Guðfinnss., Karl Eiuarsson.
Allsherjarnefnd: Jóh. Jó-
hanness., Sig. Eggerz, Sigurjón
Friðjónss.
Pað þykir eftirtektarvert við þess-
ar nefndarkosningar í n. d., að
gamli heimastjórnarflokkurinn kem-
ur þar hvergi við sem sérstæður
flokkur og er honum nú ekki talið
nema 1 sæti í neðri deild,
Eins og lög mæla fyrir, ruddi efri
deild þriðjungi úr landsdómi eða
24 mönnum.
Pessi erindi hafa verið lögð frain
á lestrarsal Alþingis:
1. Ályktun Verkfræð.félagsins í
fossamálinu 2. Sig. Guðmundsson
sækir um 2000 kr. árl. styrk í næstu
2 ár til náms í byggingarfræði. 3.
H.f. »Djúpbáturinn« á ísaf. sækir
um 10 þús. kr. styrkhækkun til út-
gerðar sinnar i ár (var 20 þús.).
4. Stef. Sigurðss. Hvítadal biður
um 10 þús. kr. styrk og lán til
húsgerðar og jarðabóta. 5. Ping-
málafundargerð úr Dalasýslu. 6. Á-
skorun 55 kjósenda í Dalasýsiu til
þingmanns síns um að gera fyrir-
spurn til stjórnarinnar viðvíkjandi
símalínu frá Búðardal til Króksfj,-
ness og aðalpóstleið um Austur-
Barðastr.sýslu og Dalasýslu, 7. Ásm.
Sveinss. biður um styrk til að læra
myndhöggv.list í Stokkhólmi. 8. Pur-
íður Jónsd. hjúkr.kona sækir um
2000 kr. til að fullkomna sig í
hjúkr.fræði. 9. Jóhannes Jónss. fyrv.
póstur biður að 1000 kr. eftirlaun,
er honum voru veitt á Alþ. 1918
verði látin haldast æfilangt. 10. Á-
skorun frá Samb.fél. norðlenzkra
kvenna um að lögskipað verði mat
á prjónlesi. 11. Halldóra Bjarnad.
Ak.eyri óskar leyfis að mega nota
styrkinn (il handavinnunámsskeiðs
kvenna til utanfarar handa 2 stúlk-
um. 12, Sama sendir erindi um
heimilisiðnaðarmálið. 13, Sama býðst
til að kenna kennurum handavinnu,
er sé við barnahæfi og að gerast
ráðunautur Heimilisiðnaðarfélagsins
fyrir 6000 kr. á ári. 14. Pingmála-
fund.g. úr Suður-Ping.sýslu. 15. ít-
rekað erindi frá fræðslumálastjóra
um fjárveitingu til- skólabygginga,
einkurn farskólaskýla í sveitum.
16. Héraðslækn. Sig. Magnússon
leitar þess að ríkið kaupi húseign
hans á Patreksfirði þegar hann segi
af sér embætti. 1 . H.f. Hvítárbakki
sækir um 18 þús. kr. styrkánæstu
fjárlögum til skólahalds, en 7.500
kr fyrir yfirstand. ár. 18. Fiyidar-
gerðir úr Vestur-Barðastr,- V.-ísafj-
sýslum viðvíkj. strandvörnum. i9.
Bréf um sama efni frá sameiginl.
fundi þessara sýslna. 20. Frú Guð-
rún Jochumson sækir um að mega
njóta framvegis styrks þess, sem
manni hennar var ætlaður, ásamt
dýrtíðaruppbót. 21. Hreppsnefnd
Ytri-Akraneshr. sækir um styrk til
endurbyggingar bryggjunnar í Steins-
vör. 22. Guðm. Hávarðss. sækir um
styrk til útgáfu bæklings um hrossa-
sölu til Norðurlanda. 23. Sami vlll
fá ferðastyrk til Danmerkur til að
halda þar fyrirlestra um ísl. hross.
24. Skólanefnd kvennaskólans í Rvík
fer þess á leit, að ríkið taki að sér
rekstur skólans að fullu og öllu.
25. Erindi frá Sláturfél. um nýjar
markaðsleiðir fyrir landbúnaðarafurð-
ir. 26. Erindi um styrk til húsbygg-
ar. á prestsetrinu Desjarmýri. 27.
Pingmálafund.g. úr Borgarfj.sýslu.
28. Erindi frá Mjólkurfélaginu um
mjólkurniðursuðu. ‘29. Pingmálaf.g.
úr Mýrasýslu. 30. Sömul. úr ísafj,-
sýslu. 31. Erindi frá hreppsnefnd
Hólshrepps viðv. samgöngumálum,
prestamálum. rafmagnsmálum og
hafnarmálum, 32. Hólmgeir Jensson
vill fá framhaldsstyrk til dýralækn-
inga. 33. Pingtn.f.g. úr S.-Múlasýslu.
34. Hreppsnefnd Neshr. í Norðfirði
sækir um endurgreiðslu á 460 kr.
sem hreppurinn hefir orðið að greiða
Árna Vilhjálmssyni lækni.
Betri helmingur Skeiðs-
fossins tii sölu fyrir
5000 krónur.
Frá áreiðanlegum heimildum hef-
ir mér borist að Fr B. Arngrímsson
8i Co. hafi boðið bæjarstjórn Siglu-
fjarðarkaupst. sinn helming aá Skeiðs-
fossinum til kaups, fyrir 5000 kr.
og finst mér það ekki vera neitt
ótrúlega lágt tilboð, enda mun
það líka vera það hæsta sem
eigendunum hefir komið til hugar
að fosshelmingur þeirra mundi geta
selst fyrir, þegai litið er meðal ann-
ars á legu fossins og hve örðugt
myndi um alla flutninga á tækjum
og öðru efni til virkjunnar á foss-
inum, ef til þess kæmi, þar sem eru
vegleysur, bryggjulaust o. s. frv.
Manni verður á að spyrja: Hvar
eru nú »spekúlantarnir«?
Eða hefir bæjarstjórnin, þrátt fyrir
alt sitt leynimakk, látið leika ,á sig?
Petta virðist kannske ótrúlegt þeg-
ar menn minnast þeirrá upplýsínga,
sem oddviti bæjarstj. gafáborgara-
fundinum í vetur, að honum hafj
tekist að fá fosshelminginn 5000 kr.
ódýrari en hann hafði heimild frá
bæjarstjórninni til að kaupa hann
fyrir, — nefnilega kr. 25000. — Og
einnig þegar þess er rninst, er einn
bæjarfulltrúinn (Flóvent Jóhannsson)
sagði á sama fundi, að honum fynd-
ist bæjarstjórnin hafa borgað ,skamm-
arlega lítið' fyrir Skeið.
Nei, »spekúlanta«-hræðslan, sem
bæjarstjórnin þá notaði sem nokk-
urs konar vörn eða brimbrjót á há-
vær mótmæli almennings á hinum,
vægast sagt, hneykslanlegu kaupum
á jörðinni Skeið, hefir reynst ástæðu-
laus og hafa þeir háu herrar víst
séð hana í anda gegn um geisla