Fram - 19.03.1921, Side 2
u
Nr. 11
FRAM
Erl. símfregnir.
Rússneska byltingin breiðist um
Suður-Rússland og Kerensky talinn
frömuður hennar. Bolsjevikkar hafa
kínverskar hersveitir reiðubúnar til
að ráðast á Krónstadt.—Bretar og
Rússar hafa gert viðskiftasamning
og að viðsjár hætti þeirra á milli,
en óvíst er að Rússar viðurkenni
skuldir Zarstjórnarinnar. — Rýzka
stjórnin hefír fengið traustyfirlýsingu
og er alt þar með kyrrum kjörum.
— Talaat Pasha fyrv. vezír hefir
verið myrtur í Berlín. — Nikulás
stórfursti er látinn á Ítalíu.
Innl. símfregnir.
Umræðum um vantraustsyfirlýs-
inguna lauk á fimtudag kl. 3Va um
nöttina. Tvær rökstuddar dagskrár
komu fram, önnur frá Gunnari á
Selalæk og var traustsyfirlýsing, en
hin hlutlaus frá Jóni Porlákssyni.
Móti tiilögu Gunnars voru greidd
12 atkv. en aðrir neituðu aðgreiða
atkv. og töldu tillöguna marklausa.
Bjarni frá Vogi taldi traustsyfirlýs-
inguna fallna og tók sína yfirlýsíngu
afrur. Viðskiftanefndir beggja
deilda leggja til að viðskiftahöft á
nauðsynjavörum verði afnumin og
innflutningsnefnd hætti störfum, en
stjórninni sé falið að sjá um tak-
mörkun á óþarfavörum. Botn-
vörpungarnir liggja hér enn aðgerða-
lausir.
þá, sem fossinn einhvern tíma kann
að áenda frá sér eftir ein 50—100
ár, eða e. t. v. aldrei. Annars vil
eg ekki spá neinu um það, hve langt
verður þangað til Siglufj. getur lagt
í að virkja foss þennan, er mun
kosta miljónir króna; en það verð-
ur þó að minsta kosti að fara bet-
ur með fé bæjarins hér eftir en ef
til vill hefi verið gert nú á síðustu
tímum, til þess að það geti orðið í
náinni framtíð.
Ábyggilegar heimildir hefi eg einn-
ig fyrir því, að Rafljósanefndin hafi á
síðasta fundi sínum samþ. með 4
atkv. gegn 1 (Bæjarfóg.) að fá hing-
að upp sérfræðing, strax á næsta
vori, til að athuga möguleika fyrir
virkjun Skeiðsfossins og gera áætl-
un um hvað sú virkjun myndi kosta.
—- Eftir þessu að dæma, vita þeir
háu herrar, og Frúin með, ekki enn
þá hvað þeir hafa keypt og eru að
kaupa. — Eg vil því leyfa mér að
spyrja þá háu herra, hvort ekki hefði
verið réttara og hyggilegra, að þess-
ar mælingar og áætlun hefði verið
gerð áður en fossinn var keyptur?
Sú aðferð, fyrst að kaupa hlutinn
og síðan að athuga hvort hann er
hæfur til þess sem hann er ætlaður,
getur verið hættuleg og getur kom-
ið hlutaðeiganda á kaldan klaka
áður en varir.
Ætli þeir góðu herrar hafi þessa
aðferð þegar þeir eru að versfa fyr-
ir sjálfa sig? (Eg álít ekki.)
Hvað snertir kaup á helmingi Fr.
B. Arngr.s. & Co. vil eg ekki segja
neitt um, eg geri ráð fyrir að með
fossréttindunum fylgi nauðsynl. land
meðfram ánni til að grafa niðurrör
og eins undir væntanlega aflstöð o.
s. frv., svo að ekki þurfi að borga
önnur 5000 kr. fyrir landræmu með-
fram ánni undir þetta.
Pað mun öllum bæjarbúum finn-
ast ótrúlegt, en samt er það satt,
að rafljósanefndin er hér, ofan á
alt annað, að gera tilraun til þess
að bæta ennþá einum steini í hina
þungu gjaldabyrði Siglufjarðar;
En vonandi mótmæla allir gjald-
endur bæjarms þessarí ráðstöfun,
undir núverandi kringumstæðum og
útliti.
Eg get ekki skilið hvaða gullnámu
þeir góðu Skeiðsfossspekúlantar hafa
fundið, eða hvort það að eins er
af því, að þeir treysta svo mjög
gjaldþoli gjaldendanna hér, að það
viriðst sem þeirhafi svo mikla ástríðu
til að fást við stórar upphæðir og
að vissu leyti hafa »keypt köttinn í
sekknutm. Ef þeir treysta svo mjög
á gjaldþol manna, þá ætti það að
vera þeim, frekar en öðrum, Ijóst
að hvað það snertir, er boginn svo
hátt spentur að hann þolir ekki
meira.
Hvað það muni kosta að fá hing-
að verkfræðing til að annast mæl-
ingarnar er ekki gott að segja rneð
vissu.
Akureyrarbær hafði síðastliðið
sumar (1920) verkfræðing til að fram-
kvæma svipaðar mælingar, og kost-
aði það Akureyrarbæ á milli 15 og
20 þús. krónur, þegar alt var reikn-
að með; svo að fyrir minna en 10
til 15 þúsund krónur myndum við
ekki fá verkið (mælingarnar) framkv.
ef það ætti að gerast í ár.
Eg þekki ekki þá brýnu nauðsyn
á því að gera þessar mælingar ein-
mitt á þessu ári, þar sem ekki get-
ur komið til mála að fossinn verði
beislaður fyr en eftir marga áratugi.
Öðru máli væri að gegna ef útlit
væri fyrir að fossinn yrði notaður
eftir ein 2-3 ár, eða ætti að ransaka
hann vegna væntanlegra kaupa. En
þar sem nú fossinn er þegar keyptur,
þá er nógur tíminn til að vitahvað
virkjunin mundi kosta þegar þeir
tímar nálgast, er bærinn sér sér
fært að ráðast í virkjunina.
Annað sem bendir á, að best sé að
bíða með mælingarnar er verðfallið
sem nú á sér stað, og búast má
við að ekki nái lágmarki sínu fyr en
eftir 2—3 ár.
Við höfum nú í bráðina fengið
nóg af Skeiðs-braski, .og hefir þegar
verið seilst nógu djúpt í vasa gjald-
endanna vegna þess og skyldu næstu
ár færa bæjarbúum hér svo mikið
upp í hendurnar að þeir hefðu meira
en það allra nauðsynlegasta, þá eru
það aðrir hlutir í Srglufirði sem bíða
framkvæmda.
Eftir útlitinu sem nú er, þá er það
ekkert sem örvar fólk til að fara gá-
lauslega með peninga, hvort sem
eru manns eigin eða annara.
H a f þ ó r.
Strausykur
kemur næstu daga
Litla búðin.
Vikan.
Tíðin. Meinlaus og hæg veðrátta hér
og nærlendis, en dimmviðri urn miðja vik-
una.
Skíðamót verður háð á Akureyri á
morgun að tilhlutun úngmennaíjelagsins
þar. Verður kept í kappgöngu og langri
brekku og verðlaun veitt. Úr flestum sveit-
um Eyjafjarðarsýslu munu skíðamenn sækja
mót þetta og keppa þar. Skíðafélag Siglu-
fjarðar sendi á mótið 4 félaga sína, þá
Jóhann Þorfinnsson, Svein Hjartarson,
Vilhjálm Hjartarson og Jón Ágústsson
og fóru áleiðis í morgun. Treista Sigl-
firðingar þessum ungu og efnilegu skíða-
mönnum til þess að halda uppi heiðri
Siglufjarðar á mótinu.
Barnaveiki. hefir á ný stungið sér niður
hér, er hún í tveim húsum og hafa bæði
verið sett í sóttkví.
»VilIemoes«: kom hingað beina leið
frá Rvík í gærkvöld, tekur síldarfarm, fer
héðan um miðja næstuviku beinaleið til
útlanda.
Hrognkelsaveiði er byrjuð hér, hefur
töluvet aflast þessa viku, og er það með
fyrsta móti.
Klukkunni flýtt. í kvöld kl. 11 á að
flýta öllum klukkum á landinu um klukku-
tíma.
Kirkjan . Messað á morgun og Skírda
kl. 5 síðd. en Föstudag innlanga kl. 1.
Skeiðsfossinn.
Hálf fossréttindin, þeirra
sem fossinn eiga móti
Siglufjarðarkaupstað,
boðin bænum á 5
þúsund krónur
Rafmagnsnefnd bæjarstjórnar legg-
ur til að þegar á komandi sumri
verði eytt tugum þúsunda til
mælinga og undirbúnings
rafvirkjunar á Skeiðsfossi.
Pað er nú öllum almenningi kunn-
ugt, að eigendur Skeiðsfoss hálfs
hafa nú boðið bæjarstjórn Siglu-
fjarðarkaupstaðar réttindi sín til foss-
ins á 5 þ ú s u n d k r ó n u r og
áreiðanlegar heimildir hefur maður
fyrir því, að rafleiðslunefnd okkar
leggur til að réttindi þessi verði keypt.
Ekki skal rafljósanefnd eða bæjar-
stjórn hallrnælt fyrir það þótt helm-
ingur fossins verði nú keypturfyrir
þfetta verð ef — bæjarstjórn sér sér
útvegi til að geta greitt andvirðið
án þess enn á ný að seilast niður
í vasa marg-þyngdra gjaldenda
þessa kaupstaðar eftir þessari upp-
hæð, þótt ekki sé nema 5 þús-
und krónur í viðbót við alla aðra
óumflýjanlega gjalda-liði sem koma
til með að »punta« næstu fjárhags-
áætlun kaupstaðarins.
Pað hefur þá verið lítið vií í því
að kaupa helming fossréttindanna
af Sigurjóni á Skeiði fyrir 20 þ ú s-
undir króna fyrir rúmum 2
mánuðum, þótt jarðarskækill fylgdi
kaupunum, sé ekki sjálfsagt að reyna
að kaupa hinn helminginn fyrir 5
þúsund krónur nú, ef möguleikar
eru fyrir hendi. Pótt opinberar pen-
ingastofnanir inegi heita lokaðar sem
stendur, er ekki loku fyrir skotið
að bæjarstjórnin, ef hún leggur sig
í framkróka, geti útvegað bænum
1 á n hjá prívat efnamönnum — til
þessara kaupa, annaðhvort hér inn-
sveitis, eða þá annarstaðar. Og þá
leíð á hún að fara. Hijiu vill maður
ekki trúa, en sem gengur þó staf-
laust um bæinn, að bæjarstjórn hafi
auk inneignar kaupstaðarins sjálfs
við sparisjóðinn, heimtað svo og svo
mikið af kirkju- eða sjúkrahússsjóði,
sem inni standa þar, til þess að
nota við jarða-brask sitt; og þar af
leiðandi sé mönnum hér sögð upp
lán í hrífu, og verði slfku framfylgt,
ekki útlit fyrir annað en við það
bíði margur stórhnekki. Við þessu
verður að slá vamagla þegar í stað,
Enginn mótmælir því að sjálfgefið
sé að kaupstaðurinn á heimtng á
innieign sinni. við sjóðinn um leið
og hann þarf til þess að grípa, en
undrun veldur það manni, að bær-
inn skuli hafa haft ráð á því gegn-
um dýrtíð og vandræði síðustu ára,
að eiga þessar 4 þúsund krónur
liggjandi með sparisjóðsvöxtum, til
þessa tíma. En hinu verður maður
að mótmæla þegar í stað, að fastir
sjóðir bæjarins verði heimtaðir til
þess að leggja í slík fyrirtæki, þar
sem líka að peningar þeir eru þeg-
ar lánaðir einstaklingum hér, sem
fé sparisjóðsins, og ógjörningur er
að innheimta á þessum tíma nema
þá að ganga að lántakendum en
út í þá sálma fara aðrar peninga-
stofnanir varlega eins og sakir standa.
Ábyggilegar heimildir hefur niaður
fyrir því að á sama fundi sem raf-
leiðslunefnd leggur til að nefnd rétt-
indi séu keypt, leggur hún ennfremur
til, með 4 atkv. gfegn 1 (bæjarfóg.)
að þegar á komandi sumri verði
hingað fenginn sérfræðingur í vatna-
virkjun til þess að mæla orku Skeiðs-
foss og til þess jafnframt að gera
áætlun um raforkuvirkjun nefnds
foss, og kemur tillaga þessi undir
atkvæði næsta bæjarstjórnarfundar.
En gjörir nefnd þessi sér Ijósa grein
fyrir því hvað þetia »sport« kostar
bæjarsjóð? Petta er hér kallað »sport«
sökum þess að fyrirsjáanlegt er að
næstu ár kemur ekki til greina að
ráðist verði í þetta virkjunarfyrir-
tæki sem kosta mun miljónir. E>u
menn þessir að gjöra sér leik að
því að ofbjóða gjaldþoli bæjarbúa?
En það kallar maður að ofbjóða
gjaldþoli voru á þessum vandræða-
tímum, þar sem meiri fjöldi íbú-
anna, en dæmi til þekkjast áður hér,
mega nauðugir viljugir leita á náðir
fátækranefndar til þess að geta fram-
fleytt lifi sínu og sinna, að stofna
til útgjalda svo tugum þúsunda
skiltir í algjörðu þarfleysi, og með
fullu skeytingaleysi um hag og kröf-
ur almennings. Vitanlegt er að
slík áætlun með öllu og öllu, enda
yfirlýst á opinberum borgarafundi
af formælenduin þessa máls, kost
ar tæpast innan við 20 þúsund kr.,
en máske töluvert mikið þar fram-
yfir. Til allrar gælu er vitanlegt að