Fram - 21.05.1921, Qupperneq 1
NÝKOMIÐ:
Hveiti 2 teg., Kex ósætt, Sveskjur,
Niðursoðið: Apricots, Spanske
Kirseber, Jarðarber, Stikkelsber,
Reykjarpípur, Flag • og Three-
Castle-cigarettur, Kvensokkar sv.
Páll S. Dalmar.
V. ár. Siglufirði 21. maí 1921. 20. blað.
Frá Alþingi.
Við 2. umr. í e. d. um einkasöiu
á áfengi kom Sig. Kvar. fram með
þ?r breyt.till., að í reglunum, sem
i issíj. setti viðvíkjandi áfengissöl-
uuni, skyldi einnig vera lekið fram,
hve mikið mætti láta af hendi við
lækna og lyfsala á ári og að hækka
skyldi aðcins álagningu á það á-
fengi, sem ekki ætíi að 'vera til
lækninga. Mælti lyfjasölunefndin á
móíi síðari till. og ósþaði, að þingm.
íæki hana aftur og gerði hann það
við 3. umr. en fyrri till. var samþ.
— Sig. Eggerz talaði á móti frv.
og tók fram, að menn hefðu aðal-
lega mælt með þessu frv. vegna
þess, að það væri til verndunar
bannlögunum, en það væri þó hægt
að sýna fram á, að þessi lög mundu
að engu leyti vernda þau. En hér
væri ráðist í að stofna embætti, sem
yrði hátt launað og landlæknir gæti
þó auðveldlega komist yfir.
Við 3. umr. í n. d. um ríkisveð-
bankafrv. yrðu nokkrar umræður
og bar Sig. Stef. fratn rökst. dag-
skrá þess efnis að fresta framkv. í
málinu þar til það hefði fengið
betri undirbúning. Varð dagskrá
þessi tilefni til allmikilla illdeilna
milli fiutn.manns og Bjarna frá Vogi
og var hún að síðustu feld með
22:4 atkv. en frv. síðan at'gr. til e. d.
Frv. til laga um breyt. á póstlög-
um nr. 43, 16. nóv. 1917 og lög-
u n nr. 64, 28. nóv. 1919 afgr. sem
lög fiá Alþingi og sömul frv. til
laga um erfðafjárskatt.
Frv. til laga um afstöðu foreldra
t'i óskilgetinna barna. — 1919 kom
! m þingsályktunartill., er skoraði
a stjórnina að leggja fiv. fyrir þitig-
ið um afstöðu óskilget. barna til
foreldra. Stjórnin varð við þessu og
fal Lár. H. Bjarnas. hæstaréttardóm-
ara að semja frv., en það er snið-
'ó eftir dönskum, norskum og
sæuskum lögum og er í þá átt, að
bæta |<jör óskilget. barna. Allsherj-
arnefnd hefir gert allmargar breyt.
við frv.
Frv, um framlenging laga nr. 57,
28. nóv. 1919, um seðlaaukningu
íslandsbanka kom fyrir n. d. 27.
apr. — Framlengingin gildir aðeins
til 1. júní næstk. og voru því 3
fundir haldnir í striklotu í deildinni
og fiv. síðan látið ganga til e. d.
Sætti frv. sömu meðferð þar og
var á nokkrum mínútum afgr. sem
lög frá Aiþingi.
Fjáraukalögin 1920 — ’21 hafa enn
orðið fyrir allmiklum breytingum við
2. umr. í e. d., er fjárveitinganeínd
þeirrar deildar hafði gert frá því,
sem n. d. hafði skilið við þau, Rar
á meðal: 2000 kr. dýrt.uppbót* til
hvers ráðherrans fyrir sig þar eð
laun þeirra væru lítil — samþ. —
Þrír læknar höfðu sótt um utanfar-
arstyrk og n. d. veitt tveim þeirra
2500 kr. hvorum, en fjárv.nefnd e.
d. lagði til, að einnig sá þriðji fengi
styrk, 1500 kr. og lækkaö við ann-
an hinna, en það var felt. — 45
þús. kr. til bóía og endurbygging-
ar Eliiðaeyjar- og Arnarnesvita var
felt, þar sem nefndin gat ekki við-
urkent þöríina á endurbyggiugu
þessara vita fremur en þörfina á
þeim vitum, sem þegar hefir verið
veitt fé til í fjárlögunum, en ekki
fengjust bygðir vegna fjárskorts. —
Styrkur til alþ.bókasafns Rvíkur var
feldur, enda þótt nefndin viðurkenni,
að full þörf væri á slíkum styrk
bæði í Rvík og víðar. — Neftidin
vildi ekki leggja 5450 kr. til Flens-
borgarskólans, en áleit réttara, að
ríkissj. greiddi aðeins 4000 kr. og
Hafnarfjörður 1450 sökum þess, að
skóli þessi væri ekki landsskóli,
heldur sérstakl. hancjg} Hafnfirðing-
um, en þetta var felt. — Styrkur til
lögfræðilegs tímarits feldur. — 30
þús. kr. styrkur til björg.skipsins
*Þór« samþ. — 9500 kr. styrkur
til Ara Arnalds, 8000 kr. til Sig.
Kaldalóns pg 5000 kr. til Kristj.
Kristjánssonar til þess að leita sér
lækninga samþ. með 9:3 atkv. þar
eð menn þessir væru lítt efnum
búnir og sagði Sig. Kvaran, að það
væri sama sem »að neita þeim um
lífið«, eða sumum þeirra að minsta
kosti, að fe!|a þessa styrkbeiðni
þeirra. Ennfr. lagði nefndin til,
að styrkir til listamanna væru feld-
ir burt og var það samþ.
Frv. til laga um vexti, flutt af
Ounn. Sig., var til umr. í n. d. 28.
apr. — Frv. fer fram á, að vextir
af peningalánum, þegar ekki sé til-
tekin upphæð þeirra, skuli vera 6%
og að heimilt skuli að taka 8°/0 í
ársvexti af peningaláni með veði í
fasteignum. Fjárhagsnefnd hafði haft
málið til meðferðar og kom ineð
breyt.till. um að hafa 5% 1 sfað
6% og 6% í stað 8%. Voru þær
breyt.till. samþ. og frv. síðan vísað
til 3. umr.
Sama dag kom fyrir deildina til
2. umr. frv. Stef. Stef. um sölu
Hvanneyrarprestsseturs og kirkju-
jarðarinnai Leynimýri og hafði alls-
herjarnefnd ekki orðið sammála um
frv. Minni hluti hetinar (P. O, og
B. H.) vildu auk þess, sem tindan
skilið væri í frv., láta undanskilja
kaupstaðarlóðina (Siglufjarðareyri)
og var breyt.till. hans um þetta
samþ. með 13:2 atkv. — Meiri hl.
nefndarinnar (Sig. Stef., Stef, Stef,
og E. P.) hafði hins vegar komið
fram með breyt.till. um það, að
bæjarstjórninni væri óheimilt að af-
lienda landið nema til leigu um á-
kveðinn tíma (samþ. með 13:5) og
að reglur um leigu á landi bæjarins
skyldu staðfestar af ráðherra (samþ.
með 14:1). Frv. þaiínig breytt vís-
að til 3. umr. nieð 16:3 atkv. og
má segja, að mjög sé frv. skert og
bænum til lítils gagns þegar búið
er að undanskilja sjálfa kaupstaðar-
lóðina frá sölunni.
Frv. til laga um vátrygging sveita-
bæja afgreitt sem lög frá Alþingi.
Söniul. frv. til laga urn lestargjald
af skipum og frv. til laga um stofn-
un og slit hjúskapar.
Frv. til laga uin breytingu á fá-
tækralögunum var til 2. umr. í n.
d. 3. þ. m. og hafði Jón Baldvins-
son komið fram með 6 breyt.till.
við þau þess efnis, að eigi skyldi
teljast sveitarstyrkur sá styrkur, er
veittur væri samkv. fátækralögunum
1. vegna ómegðar, 2. vegna slysa
og vanheilsu, 3. vegna atvinnuskorts,
4. vegna elli, 5. að engan rnætti
flytja syeitarflutningi nema hann
hefði gefið skrifl. samþykki sitt til
þess og 6. að sveitarskuldir skyldu
fyrnast á 5 árum. Voru allar þessar
breyt.till. feldar með miklum atkv.
mun og frv. síðan vísað til 3. umr.
Fjárlögin voru afgr. til e. d. 30.
apr. eftir 3. umr. í n. d. með 40
breyt.till. og stóð fundur sá langt
fram á nótt, en hiti í umræðum ó-
venju lítill. — Breyt.till. frá Jakob
Möller um að hækka sendiherra-
launin úr 12 þús. kr. upp í 20 þús.
feld með 17:4 atkv., en varatillaga
hans um að hækka þau upp í 16
þús. kr. samþ. með 14:11. — Breyt.
tillaga frá fjárveit.nefnd um 3000
kr. styrk til Læknafélagsins til þess
að kosta umbúðasmið til útlanda
feld nieð 13:8. — Breyt.till. sömu
nefndar um endurveitingu til síma-
lagningar milli Hólmavíkur og Reykj-
arfjarðar (60 þús. kr.) og Búðardals
og Króksfjarðarness (75 þús. kr.)
báðar samþ. — Breyt.till. um að
fella burt styrkinn til bæjargerðar
í Reykholti feld með 14:12. — Breyt.
till. frá fjárv.nefnd um að vextir af
lánuðu fé til húsabóta á prestssetr-
um skyldu lækkaðir úr 6% niður í
3% feld með 13:10. — Breyt.till.
um að ákveða nú á þingi, hvaða
unglingaskólar skyldu njóta styrks
úr ríkissj. feld með 17:6. — Breyt.
till. uni að hækka styrkinn til skól-
ans í Bergstaðastræti saipþ. með
15:4. — Breyí.till. um að hækka
fjárveit. til kaupa á listaverkum úr
3000 kr. upp í 5000 samþ. með
14:12. — Breyt.till. um 5000 kr.
styrk til útgáfu þjóðsagna Jóns Árna-
sonar feld með 18:4. — Breyt.till.
um 2000 kr. námsstyrk til B. Stef-
ánssonar samþ. með 14:4.—Breyt.
till. um 9300 kr. styrk til leiðbein-
ingar um húsagerð til sveita samþ.
með 16:5. — Breyt.till. um eftirgjöf
á láni til Suðurfjarðahrepps feld m.
16:10. — Breyt.till. um 45 þús. kr.
til björgunarskipsins Pórs samþykt
með 14:12. — Breyt.till. um 5000
kr. til sjómannahæiis Hjálpr.hersins
á ísafirði samþ. m. 20:6. — Br.till,
um 3000 kr. til Staðarfellshjónanna
samþ. m. 17:1. — Br.till. um hækk-
un á styrktarfé Páls sundkennara,
1000 kr., samþ. m. 14:4. — Br.till.
um heimild fyrir stjórnina til að
veiía Dalasýslu 30 þús. kr. lán úr
viðlagasjóði til kaupa á Hjarðarholti
fyrir skólasetur samþ. m. 13:6, —
Br.till. tim heimild fyrir stjórnina
til að ábyrgjast alt að 500 þús. kr.
lán fyrir Álafoss samþ. m. 17:9 að
viðh. nafnakalli. Ábyrgðin sé bund-
in þeim skilyrðum: 1. að verksm.
segi stjórninni alt um sinn hag og
stjórnin þá telji fyi irtækið trygt, 2.
að ríkið fái veð í eignum og mann-
virkjum verksm. og 3. að ríkið hafi
sérstakan mann til eftirlits með öll-
uin rekstri fyrirtækisins. — Br.till.
þess efnis, að fjármálaráðh. séheim-
ilt að fella burt, ef honuin þykir
nauðsynlegt, greiðslu ýmsra fjár-
veitinga, sein ekki eru ákvéðnar í
öðium lögum en fjárlögum, feld
með 22:3. — Br.till. um að veita
Jak. J. Smára. 6600 kr. til að vinna
að ísl. orðabók feld með 20:6 og
br.till. um að veita Porh. Pórðar-
syni 2500 kr. í sama skyni sömu-
leiðis feld.
%
t