Fram - 21.05.1921, Side 4
74
WM
Nr. 20
Eftir kröfu Rögnvalds Snorrasonar og að
undangengnu fjárnámi 12. apr. s.l. verður haldið
opinbert uppboð á ýmsu lausafé tilheyrandi Hans
Söbstad Siglufirði, og selt svo sem: Hrærivél,
vigt með lóðum, seglsaumavél, 1 snyrpinót ný-
leg, 1 snyrpinót gömul, 11 rúllur kaðali, pen-
ingaskápur, skrifborð, eirþráður 100 mtr. ca.,
16 blýsökkur, 2 járnkallar og boltatöng, matborð,
6 stólar, 5 hurðir lausar, 1 mótorvél, 2 snyrpi-
nótabátar.
Uppboðið fer fram á lóð H. Söbstads Siglu-
firði þar sem munirnir eru föstudaginn 1. júlí
n. k. kl. 1 e. h. - Uppboðsskilmálar til sýnis á
skrifstofunni degi fyrir uppboðið.
Skrifstofu Siglufjarðarkaupstaðar 19. niaí 192!
G. Hannesson.
i
Konungskoman
1521.
Pað er nú ráðgert að konungur
og drotning komi hingað til Reykja-
víkur sunnud. 26. júní að morgni.
í för með konungshjónum verða
synir þeirra báðir, Friðrik ríktsarf*
og Knud prins, ennfremur fröken
Schested hirðdama drotningar,
oberstieutenant Appeldorn, málar-
inn prófessor Tuxen, kommandör
Carstensen, Ojernals ofursti, Juel
kammerherra, Jón Sveinbjörnsson
konungsritari, ennfremur tveir adju-
tantar, Sander kapteinn og Gotfred
Hansen kapteinn og ioks nokkuð
af þjónustufólki, um 11 manns.
Konungur og fylgdariið mun
koma hingað tii iands á herskipinu
Valkyrien, nema prinsarnir, sem
báðir koma á herskipinu Heimdalli
er verður með í förinni.
Sama dag og stígið er á iand
verður konungsfjölskyldunni fagn-
að við móttökuhátíð í Alþingishús-
inu. Verður þar meðal annars sung-
in kantata, sem Porsteinn Oísiason
hefir ort, en lagið hefir Sigfús Ein-
arsson samið. Að kvöldi sama dags
hefir Alþingi boð inni í Iðnó.
Næsta dag verður haldið kyrru fyr-
ir í Reykjavík.
Að morgni þ. 28. verður lagt
upp í 4 daga ferðalag austur í
svedir. Fyrsta daginn verður haid-
ið til Ringvalla í bifreiðum og kom-
ið þangað um hádegi. Verður þar
sýnd glíma, ennfremur verða ræðu-
höid og annar fagnaður. — 2. dag-
inn snemma að morgni verður far-
ið til Geysis ríðandi. A leiðinni
verður morgunverður snæddur á
flötunum austan við Laugarvatn.
3. daginn um hádegi verður far-
ið að Gullfossi og aftur að Geysi
um kvöldið.
4. daginn að morgni verður lagt
af stað frá Geysi ríðandi um Hv: :á
á Brúarhlöðum suður Hreppa, u ri
Skipholt, og þar snæddur morgu í-
verður, suður yfir Stóru Laxá ;.ð
Ósabakka eða Húsatóftum. Paðun
verður ferðinni haldið áfr3m á b f-
reiðum að Ölfusá og- riáttað þar.
5. daginn verður farið á bifreið-
um austur fyrir Sogs'orú, en síð;.n
ríðandi að Sogsfossum. Par verður
snæddur morgunverður og dvalið
um stund. Um eftirmiðdaginn verð-
ur haldið til Reykjavíkur eða til
Ölfusár aftur, og þá þaðan næsta
morgun til Reykjavíkur. Síðan verð-
ur dvalið í Reykjavík 3. og 4. júlí,
en þriðjudag 5. júlí verður hald.ð
á brott áleiðis til Grænlands.
I Reykjavík dvelur konungsfjöl-
skyldan með fylgdarliði í Menta-
skólanum. Á Pingvöllum og vð
Geysi býr konungsfjölskyldan í
konungshúsunum, sem reist vom
1907, en fylgdarlið og aðrir gestir
á Þingvöllum sumpart í Valhöll og
sumpart í tjöldum, en við Geysi
sumir í skála, sem reistur var síð-
astliðið sumar, en sumir í tjöldurn.
Við Ölfusá verður búið í útibús-
húsi Landsbankans og í Tryggva-
skála.
Komið geta þau atvik fyrir, að
breytt verði að einhverju frá því,
sem hér hefir verið skýrt frá.
Stjórnin og alþingisforsetar hafa
falið þeim Geir G. Zoéga vega-
málastjóra, Guðjóni Samúelssyni
húsameistara og Haraldi Árnasy ii
kaupmanni að hafa á hendi allan
undirbúning og framkværndir vegna
konungskomunnar.
Til þess að standa fyrir veiting-
um í Reykjavík og á ferðinni hafa
verið fengnir þeir veitingamennirn-
ir Hákansson og Rosenberg. Söng-
inn anÉÉ|t 2 flokkar, blandaður kór
undir stjórn Páls ísólfssonar og
karlakór undir síjórn Jóns Halldórs-
sonar ríkisféhirðis. Ennfremur mun
lúðrafélagið Harpa skemta með
hljóðfæraslætti.
Undir stjórn formanns íþrótta-
sambandsins, Axel Tulinius, sem
einnig verður fararstjóri oglögreglu-
stjóri i landferðinni, mun verða höfð
Yfirlýsing.
Get ekki tekið til greina áskorun
Ólafsfirðingsins í 16. tölubl. ,Frams‘,
þar sem hann ekki vill geta nafns
síns.
Steinþór Þorsteinsson.
íþróttasýning einhvern daginn á í*
þróttavellinum.
(Mbl.)
inn sýnum. Mér fanst hljóta að vera eitthvað bogið við þetta, án
þess eg gæti gert mér nokkra grein fyrir því, enda var ekki orð-
ið svo ýkja framorðið. Eg hefi aldrei verið hjátrúarfullur, en samt
var eins og mig óraði fyrir, að eg mundi verða sjónarvottur að
einhverjum viðburði í þessu húsi, ef eg biði — og það brást
heldur ekki. Eg var búinn að standa þarna eitthvað fimm mín-
útur og ætlaði að fara að hypja mig burtu, en þá sá eg að glLgg-
inn var opnaður og litlu síðar stakk einhver maður höfði og
herðum út um hann og skimaði í allar áttir, en hann varð einskis var
og sté hanti þá út á veggsvalir fyrir neðan gluggann og hlustaði.
Eg sá hann greinilega, þótt ekki sæi hann mig og hann var eitt-
hvað svo flóttaiegur á svipinn, að auðséð var, að hér var ekki
alt með feldu. Hann var náíölur í framan og augnaráðið hálfæð-
islegt. Hann var rnjög vel búinn, en flibbinn fráhneptur og skyrtu-
brjóstið rifið og flakandi. Þarna stóð hann og hlustaði stundar-
korn, en gekk svo aftur inn í iierbergið og skildi gluggann eftir
opinn. Eg beið kyr og lét ekkert á mér kræla og litlu síðar kom
hann út aítur og annar maður með honum.
Þennan mann sá eg ekki eins greinilega og hinn, því að
lampinn hafði verið skrúfaður niður, en samt tók eg eftir því, að
þeir voru mjög svipaðir á hæð og annan vóxt. Þeir hvísluðust
eitthvað á, en síðan klifraði annar þeirra yfir veggsvalirnar og
og stökk ot'an í blómreitinn, sem þar var fyrir neðan. Það var
ekki sérlega hátt fall og jarðvegurinn mjúkur, svo að hættan var
litjl. Hinn maðurinn kom svo á eftir að vörmu spori. Síðan opn-
uðu þeir hliðið og flýttu sér út á götuna og sá eg þá greiniiega
þegar þeir fóru'fram hjá götuluktinni, sern var beint á móti mér.
Það voru ósköp að sjá, hvernig þeir litu út, báðir náfölir og atin-
ar þeirra svo óstyrkur, að hann gat naumlega gengið. Þeir voru
nijög líkir ásýndum, báðir háir vexti og dökkir yfirlitum. Sá
þeirra. sem virtist styrkari, þreif í handleggirm á hinum og dró
. 7
hann með sér fyrir götuhornið og hurfu þeir svo von bráðar
sýnurn.
Eg var að hugsa um, hvort eg ætti að veita þeim eftirför,
en þá tók eg eftir því, að þeir höfðu skilið eftir gluggann opinn
og að það mundi vera hægðarleikur að klilrast upp á veggsval-
irnar. Afréð eg strax að reyna það og það fókst líka vel, en
mér brá heldur en ekki í brún við það, sem eg sá inni í herberg-
inu og hafði eg þó hálfbúist við einhverju því íku. Úti í einu
horninu lá maður og hélt eg að hann væri steindauður, því að hann
bærði ekki á sér og annað gagnaugað blóðugr og hánð sömu-
leiðis. Eg liefi nú raunar séð iriörg iík um æf eri i þetta skifti
féllust mér hendur og var helzt í huga að lau nast út ;ftur. Samt
sem áður þótti mér réttara að næla mér í eittnvað u u ieið og
stakk þvi í vasann nokkrum silfurmunum, sem eg sá á arinhyll-
unni. Herbergið var mjög ríkniannlega búið og með því að alt
var kyrf og hljótt í húsinu, opnaði eg skáp einn og Tarin* þar
vindlakassa úr silfri og fleira sinávegis. Þegar eg þótlist vera búinn
að fá nægju mína eða svo mikið, sem eg gæti komist burt rneð
slindru laust, sneri eg mér við og ætlaði að fara, en í sama bili
heyrði eg eitthvert þrusk fyrir aftan mig og þegar eg leit við, þá
var maðurinn, sem eg hélt að væri dauður, staðinn á fætur og
starði á mig hræddur og ringlaður. Mér brá allmjög við þetta
og starði á hann aftur í stað þess að flýta mér burtu sein
skjótast.
»Hvaða erindi eigið þér hingað?« spurði hann.
Þá rankaði eg við mér og hljóp útað glugganum, en hann var
nær honum en eg, þreif í mig og svo tókumst við á dálitla stund.
Eg var hálfslitttulegur um þessar mundir því að eg var nýstað-
inn upp úr legu, en hann var stór maður og sterkur og fékk
brátt yfirhöndina, svo að eg varð að grípa til bareflis, sem eg
hafði á mér. Mér tókst líka að ná góðum tökum á því og þegar
hann ætlaði að þríía það af mér, vék eg undan og sló hann svo