Fram - 17.06.1922, Side 2
ÖO
FRAM
algers kæruleysjs fyrir erindi því,
sem hann flutti fyrir 27 árum síð-
an«.
Hér er hvorki tími né rúm til
þess að geta ítarlega um alt það,
sem drepið er á í þessu hefti, enda
hefir fyrs'tu greinanna (bls. 1—32),
sem komu út í sérstöku smáhefti,
verið áður að nokkru getið hér í
blaðinu. Skal því aðeins stuttlega
minst á fátt eitt, sem borið hefir
fyrir sjónir við hraðan yfirlestur
heftisins og þá fyrst bent á grein
um sjávarútveginn, vöxt hans og
viðgang á síðustu 27 árum.
Höf. kveðst að eins vilja benda
á helztu framkvæmdir sjávarbænda
og annara sjávarútgerðarmanna til
þess að gefa eins Ijóst yfirlit og
unt er yfir síðustu 27 árin, svo að
hægra verði fyrir þá, sem ekki hafa
annarstaðar lesið sögu sjávarútvegs-
ins, að sjá hve mikinn arð sjávar-
útvegurinn hefir gelið af sér og
hve miklu þjóðfélagið á og« má til
hans kosta, án þess að hindra
framför landbúnaðarins eða setja
fjárhag þjóðfélagsins í hættn, eða
á annan hátt hindra þess heilbrigðu
framför og velmegun. — Höf. bygg-
ir athuganir sínar á hagskýrslum
þeim, sem gefnar eru út af Hag-
stofu íslands í Rvík og segir þær
auðsjáanl. samvizkusamlega samdar,
þó að sumu leyti ófullkomnar og
nokkuð á eftir tímanum, líklega
vegna þess, að nákvæmar og full-
komnar skýrslur hafa ekki fengist
frá hlutaðeigendum í tíma. Samkv,
þessu hefir þá verðhæð allra út-
fluttra sjávarafurða á síðustu 27 ár-
um numið hér um bil 3 4 9 m i 1-
jónum króna, en 3 2 3 m i I j-
ó n u m þegar arður af öllum hval-
veiðum Norðmanna hér við land
er frá dreginn. Um þetta segir svo
höf., að það sé þrefalt hærri upp-
hæð, en útfl. landafurðir á sama
tímabili nema, en þess beri að gæta
að til sjávarútvegsins hafi inenn
kostað á 11 f a 11 meiru fé en til
landbúnaðarins á sama tíma, og
megi þar af ráða, að með jöfnum
•tilkostnaði gæti landbúnaðurinn gef-
in nærri þ r e f a 11 ineiri arð, en
sjávarútvegurinn gefur, ef landbún-
aðurinn væri jafnkappsamlega stund-
aður.
Með þessu kveðst höf. ekki vilja
kasta rýrð á dugandi sjómenn og
útgerðarmenn, heldur aðeins benda
á þá hætlu, sem þjóðfélaginu sé
búin, ef sjávarútvegurinn er látinn
sitja fyrir lan()búnaðinum, eins og
að öllu leyti væri hann arðvænlegri
fyrir almhnning og endar hann svo
greinina þannig:
»Yfirstandandi fjárkreppa, sein svo mik-
ið hefir verið rætt um, stafar eins og flest-
ir vita af skuldum, áföllnum á síðustu
árum, en skuldirnar stafa af óhagkvæmri
verzlun og eyðslu landsmanna. Meira en
helmingur allra skulda við útlönd kemur
frá kaupstöðunum og meira en helming-
ur allra kaupstaðaskulda kemur frá bæn-
um Reykjavík, hinum svo nefnda höfuð-
stað íslands, sem nú telur alt að 17. þús.
íbúa, eða næstum einn fimta allra lands-
búa, það er meira en 3falt fleiri en ekki
meiri iðnaðar og framfarabær á að hafa
og má hafa til þess að hann hafi arðvæn-
lega atvinnu handa hverjuin íbúaogverði
ekki þjóðfélaginu til byrði og niðurdreps.
Til að lækka skuldirnar og fyrirbyggja
atvinnuleysið er beinasti ogbesti vegnrinn
sá, að fólk flytji sent framast er unt burt
úr kaupstöðunuin út á landið, yrki það
og láti það fæða sig og klæða, eigi að
eins þangað til ríkisskuidin er afmáð, held-
ur þar til kaupstaðirnir þarfnast fleira fólks
og geta veitt því viðunanlega atvinnu og
gott viðurværi, ei aðeins yfir sumartímann,
heldur um alt árið. Paó verður ólíkt viss-
ari vegur út úr vandræðunum, en alt gróða-
braskið á eina hönd og öll jafnaðarmensk-
an og byltingastefnan á hina«.
Ferðir um Eyjafjörð fór
höf. nokkrar síðastl. sumar, einkum
í þeim tilgangi að athuga enn ná-
kvæmar en hann enn þá hafði gert
hvar helst væri líkur til að kalk-
steinn fyndist, hvar helst mætti fá
gnægtir af kúfskeljum og hvar hent-
ast yrði að byggja kalkbrensluofna,
enn fremur til að athuga nákvæm-
ar orkulindir þær, sem Hörgárdalur
og Fram-Eyjafjörður geyma. Skýrir
höf. gjör frá þessu öllu í greininni.
í r i t s j á getur höf. m. a. um
merka bók, sem Fylki hafi borist
og heitir Native Trees of
C a n a d a (Kanadisk tré). Eru þar
taldar upp ýmsar þarlendar trjáteg-
undir og þeim lýst. Höf. segir, að
í Alaska sé loftslag mjög líkt veðr-
áttunni á íslandi, þó lítið eitt heit-
ara á sumrum og sé það því það-
an, sem helst ætti aó fá trjáfræ til
reynslu hér.
Bækur og bókmentir ræða
um Eddu-útgáfur og fer höf. all-
hörðum um þær — segir t. d. að
í útgáfum Finns Jónssonar reki af-
bakanir, ritviílur og málvillur hver
aðra, svo að kvæðin verði enn tor-
skildari en í fyrri útgáfum.
Aðalgreinin í þessu hefti er
Gestaþrautin í 2 þáttum.
Fyrri’ þátturinn um r a f h i t u n í-
búða á íslandi og hinn seinni
uin h v í t u k o I i n á í s 1 a n d i.
Hér eru ekki tök á því að geta
greinar þessarar nákvæmlega, en
eftir ítarlegar athuganir segist höf.
hafa sýnt með óhrekjandi rökum,
að kostnaður eidsneytis og Ijósmet-
is nemi, þar sem nægileg hitun og
nægilegt loffrými er, ca. 36 kr. á
hvert nef á ári. En sé pössun og
viðhald kolaofna og steinolíulampa
metin til peninga og tímatöfin við
þá pössun, t. d. 20 kr. á mann á
ári. þá kosti eldsneyti, Ijósmeti og
pössun um 56 kr. á mann á ári,
þegar kol seljast á 25 kr. smálestin
og steinolía á 10 au. pundið — að
til að gefa gefa nægan hita í 50
ten-álna herbergi, jáfnvel í mestu
aftökum og einnig til suðu, Ijósa
og smáiðju nægi 1 kw. rafmagns
á matin til jafnaðar. Geti því raf-
magnið kept við kol og steinolíu
til ofangreindra heimilisþaifa, þó
seld við ofangreindu verði, ef kíló-
wattið kostar ekki um árið meira
en 56 kr. né hestaflið yfir 42 kr.
— og að öll iíkindi séu til, að hér
á íslandi hefði verið mögulegt, jafn-
vel fyrir síðustu aldamót, að byggja
raforkustöðvar svo ódýrt, að raf-
magnið hefði getað kept við kol
og annað eldsneyti til herbergjahit-
unar og hefði ekki þurft að kosta
yfir 36 kr. hvert kw. um árið eða
27 kr. hvert raforkuhestafl árlangt
ef dugandi verkfræðingur og ósér-
plægnir oddvitar hefðu haft verkið
með höndum.
Seinni þátt greinarinnar endar
höf með þessum orðum:
»Þegar öll vatnsorka landsins verður
notuð, nfl. þær fjögur og hálf milj. túrb.
ársh: o., þ. e. um 3 milj. ársh. o. rafmagns,
sem hún getur framleitt, þá gildir hún á
við 108 rnilj. kr. virði af kolum og stein-
olíu á hverju ári, þó aflið sé notað að
eins rúman helming ársins, en á við 140
milj. kr. virði af kolum og steinolíu, ef
notuð eru til heimilisþarfa 9g iðnaðar,
þó kol seljist á 25 kr. smálestin og stein-
olía á 10 au. pnndið. Fetta gilda hvítu
kolin á íslandi, séu þau alment notuð,
svo lengi sem sólin skín og fljót falla til
sjávar. Hreinn arður af orkunni yrði 45
til 60 milj. kr. á ári, þ. e. 5 prc. af 900
til 1200 milj. kr. höfuðstól. Fetta eru gull-
kisturnar, sem vatnsföll íslands geyma fyr-
ir þá, sem kunna að nota þau og bera
gæfu til þess. Til þess þarf ekki stóriðn-
að né útlent lánsfé. Það á að byrja með
rafhítun, raflýsingu og smáiðjn í kaup-
stöðum, þorpum og bygðum og koma
henni á fyrir peningana, sem afurðir lands-
ins gefa af sér«.
H i 11 o g þ e 11 a eru smágrein-
ar ýmislegs efnis. Rar á meðal grein
um Einsteins kenninguna, sem fræg
er orðin og gelið hefir verið hér í
blaðinu áður. Virðist höf. ekki vera
sérlega hrifinn af Einsteini þeim og
ekki trúa honum fortakslaust
segir m. a. að annan eins bita og
þessar kenningar E^ séu, þurfi
»kokvíða trúgirni« til að gleypa!
Seinast í heftinu eru nokkur smá-
kvæði eftir höf. þýdd og frumsam-
in og gömul, afar dýrt kveðin, en
þó lipur og létt þula eftir séra Por-
lák Þórarinsson á Möðruvöllum í
Hörgárdal.
Heftið kostar 6 krónur og er vel
þess vírði.
B.
j . íUt 'á u -m- ' ■
Símfregnir.
Rvík 10. júní.
Kosningabandalag Collins og de
Valera hefir valdið vandræðum því
það kom í bága við sáttmálann við
Breta. Róstur og vígaferli í Belfast.
Englendingar hafa sent herlið til
Ulster og eru viðbúnir ófriði. Síð-
ustu fregnir segja þó samkomulags-
horfur er byggjast á því, að írar
taki upp í grundvallarlög sín við-
urkenningu á því, að frand sé inn-
an vébanda bretska heimsveldisins.
Ræstad, utanríkisráðherra Norð-
manna fór frá völdum 31. maí vegna
Spánarsamninganna og er nú búist
við að Norðmenn nái samningum
við Spánverja'með því móti að þeir
lofi að kaupa x/2 miljón lítra af
Spánarvíni árlega, með 14 til 20%
áfengi.
Zita Ungverjadrotning ekkja Karls
keisara, krefst rikiserfða fyrir son
sinn Otto. Horthy ríkisstjóri miðl-
ar málum á þeim grundvelli að rfk-
iserfðir sonar hennar verði viður-
kendar.
Lenin snögglega veikur. Radek
og Litvinoff heim kvaddir og pró-
fessor Klemperer, þýskur krabba-
meinslæknir sóttur í flugvél.
Scheidemann sýnt banatilræði.
Bjarni prófastur Pálsson í Stein-
Nr. 22
nesi andaðist þann 3. og Guðtn.
prófastur Helgason þann 1. júnf.
Rvfk 16. júní.
Dr. Kapp, sá er byltingu kom á
stað í Pýskalandi 1920 og hefir síð-
an dvalið útlagi í Svíþjóð, en var
nú kominn heim, er dáinn.
Vilhjálmur Pýskalandskeisari er
að skrifa endurminningar sínar og
hefir selt amerísku félagi útgáfuréft-
inn að þeim fyrir 250 þús. dollara.
Pýska stjórnin hefir fengið loforð
fyrir láni til ' greiðslu á 2ur fyrstu
hernaðarskaðabótaafborgunum þ. á.,
en þær nema 50 miljónum gullmarka
hvor. Austurríki er við það að verða
gjaldþrota og hefir beðið stórveldin
ásjár.
Lenin er að hressast og býst við
að geta tekið við stjórninni bráðl.
Ver.slunarsamningurinn milli ítala
og Rússa var feldur af sovjetstjórn-
inni.
Roald Amundsen er hættur við
að sigla til heimskautsins, en ætlar
í þess stað að fljúga það, frá Al-
aska og til Cap Columbia og býst
við að ferðin yfir heimskautið taki
15 kl.tíma.
Breski visandaleiðangurinn, sem
er að reyna að komast upp á Mont
Everest, hefir komist 26800 feta
hátt, en það er 2000 fetum hærra
en nokkur maður hefir koinist áður.
Bandaríkjamenn hafa í undirbún-
ingi frumvörp um háa vermdartolla,
en sendiherrar Breta og ítala hafa
mótmælt og er búist við harðri
rimmu og jafnvel talið líklegt að
Bandaríkin muni láta undan síga.
Frú Elisabet Sveinsdóttir ekkja
Björns heit. ráðherra, létstásunnu-
daginn var.
Gengi ísl. peninga í Rvík. 26,50
miðað við sterlingspund og danska
krónan 129.
Vikan.
Tíðin. Hægviðri og htýindi á sunnud.
og rigndi að öðru hvoru. Mánud.nóttina
gerði austan óveður og hríð til fjalla og
varaði það við frani á mánudaginn en þá
hægði og hefir síðan verið gott og hlýtt
veður en rignt að öðru hvoru þar til á
föstudag að gerði útvestan kuldastorm með
regni og snjó í fjöll — Jörðin grær nú óð-
um enda var mál komið.
.1
Leiðréttirig. Fregnin sem birtist í
síð&sta blaði að V.s. »Skírnir« rnundi hafa
farist, hefir sem betur fer reynst tilhæfu-
Iaus. — Vér höfðum fregnina eftir skipum
sem koniu að vestan og töldum hana þvi
ábyggilega, en skeyti komu engin til blaðs-
ins siðash — f>ótt blaðinu falli illa yfirleitt
að afturkalla fregnir sem það flytur vegna
óáreiðanlegleika þeirra, þá er því þó í
þessu tilfelli óblandin ánægja að gjöra
það, og það hefði hjartans fegið viljað
hafa ástæðu til að afturkalla fleiri af slysa-
fregnunum.
Skipakomur. E.s. »Ooðafoss« kom
á sunnudaginn að austan og fór á mánud.
héðan til Skagafjarðar og vestur og suður.
Hann hafði talsvert af vörum til kauptn;
hér. Með skipinu var fjöldi farþega, þar
á meðal þingmenn kjördænrisins o. fl.
V.s. »Sjösíjarnan« kom hingað á mánud.
frá Akureyri og fór til baka. Hafði full-
fermi af fólki og flutningi. Þingmennirnir
fóru með henni heimleiðis aftur.
t