Fram - 17.06.1922, Page 3
Nr. 22 FRAM 81
Nauðungaruppboð.
Samkvæmt ráðstöfun skiftafundar í þrotabúi
Hans Söbstad verður opinbert nauðungarupp-
boð haldið á ýmsum lausafjármunum tilheyrandi
þrotabúinu og fjárnám hefir áður verið gert í.
Meðal annars verður þar seld nót eða nótarhiuti,
vantavír, lóðabelgir, 50 stokkar uppsettar lóðir,
tóm olíuföt, færi o. fl. Gjaldfrestur verður veitt-
ur skilvísum kaupendum, sem uppboðshaldari
þekkir, til 5. sept. n. k.
Uppboðið hefst þriðjtidaginn 27. þ. m. kl. 1
e. h. við hús fyrrum H. Söbstads.
Skrifstofu Siglufjarðarkaupstað?r 16. júní 1922.
G. Hannesson.
E.s. »Sirius« kom og fór héðan á þriðju-
dag. Hafði mikið af vörum meðferðis
hingað og fjölda farþega. Þar á meðal
Jóhannes Jónsson lækisnetna héðan ogjón
Loftsson Slétthlíðing sem ætlar að versla
hér í sumar.
Leiðarþing héldu þingmenn okkarog
Eyfirðinga hér á mánud. kl. 4 s. d. í>Bíó<
en ekki var það fyrir fullu húsi að sögn,
— t*ar var flest 21 sála og alt niður í 5
en lengi 13.
Það er hálf kynlegt að þingmennirnir
skyldu ekki tilkynna kotnu sína með ofur-
litlum fyrirvara, því það var þeim innan-
handa, en varla von að fundir verði sóttir
að ráði þegar fólki er hóað saman svona
fyrirvaralaust mitt í mesta annríkinu. —
Annars er nú skaðinn bættur, því blöðin
hafa fært og færa almenningi þingfréttirn-
ar og afstöðu þingmannanna kynnumst
vér af þingtíðindunum þegar þau koma.
íslands banki ætlar að hafa hér
útibú i sumar og tekur það bráðum til
starfa. Hann hefir leigt neðri hæð íslands-
félagshússins fyrir útibúið.
Mokfiski hefir verið á alla vélbát-
ana undantekningarlaust, síðan róðrarnir
byrjuðu og þar til tvo síðustu dágana að
það hefir verið nokkru minna og misjafn-
ara. Altaf hefir verið haldið áfram dag og
nótt að sækja auðinn í gullkistu Siglu-
fjarðar, sjóinn, og hefir verið ánægjuleg
sjón fyrir oss »landkrabbana« að sjá bát-
ana koma drekkhlaðna hvern eftir annan.
Þeir hafa aflað frá 3 og alt upp í 11 þ ú s.
p d. í róðri. Vér munum eigi svona jafn-
an og mikinn afla áður nema vorið 1910.
Hryggilegt slys. Lítill drengur 4
ára gamall, Kristinn, sonur Agústar vél-
stjóra Hreggviðssonar og fóstursonur Tyn-
eshjónanna, féll út af bryggju á sunnu-
daginn og druknaði. Hann hafði verið
heima lítilli stundu áðttr en hann fannst
örendur á floti franian við Eyrina. Föður
hans, seill misti konn sína fyrir jtæpu ári,
er mikill hartnur kveðinn með þessusorg-
lega slysi, og eigi siður fósturforeldrunum
sem unnti drengnum jafnt og hann væri
þeirra eigið barn.
Sjá eigi yfirvöld bæjaritis sér fært að
skylda eigendur sildarpallanna til þess að
byrg)3 götin á þeim sem eru hættuleg bæði
börnum og fullorðnum, og að skylda þá
til þess að girða um og loka pöllum og
bryggjum þann tíma sem söltunarplássin
eru auð og ónotuð. — Það er t. d. alveg
ófært að söltunarpláss Vedins sé látið
standa óátalið og óviðgert eins og það er
nú, því það er full hættulegt fullorðnum
auk heldur börnum og gegnir mestu furðtt
að fleiri slys hafa ekki orðið bæði þar
og annarstaðar á pöllunum.
Ef þessi leið eigi álítst fær, þá verður
bæriun að bæta úr þvt brýnasta í þessu
efni, því líf barna vorra er oss of dýrmætt
til þess að vér getum horft í nokkrar kn
af bæjarfé til að bæta götin.
Jarðarföriu fór fram í gær og vottuðu
bæjarbúar hluttekningu sína með mjög
fjölmennri líkfylgd. /
Erlendur Pálsson verslunarstjóri
á Hofsós létst 10. þ. m. Jarðarförin fer
fram í dag. Hans verðnr nánar getið síðar.
Ferðamenn. Sra. Haraldur Níelsson
prófessor, var með »Sirius« og ætlaði að
halda hér fyrirlestur um sálartannsóknir og
sýna skuggamyndir til skýringar, en vannst
ékki tími til þess því skipið stóð svo stutt
við. Þótti fólki hér þetta leitt, því flestum
Siglfirðingum er efnið mikil nýlunda, og
mjög er látið af prófessornum sem fyrir-
lesara. Fyrir tilmæli margra bæjarbúa, ætl-
ar prófessorinn að koma hingað aftur í
næstu viku og bæta okkur upp vonbrigðin.
ÓlafurFriðriksson rifstjóri var með Goða-
foss á fyrirlestraferð kringum landið. Ekki
hélt hann neinn fyrirlestur hér, — hefir
líklega litist jarðvegur hér ófrjór, en áAk-
ureyri hélt hann fyrirlestur.
F u g 1 a f 1 i óvanalega góður við Drang-
ey, og fiskafli byrjaður þar lika en iítið
um beitu.
1
Skemtiferð fór E.s. »Surna« til Haga-
nesvíkur á sunnudaginn á kostnað eigand-
ans. Var fjöldi fólks með endurgjaldslaust
og ferðin hin ánægjulegasta bæði hvað
veður og viðbúð alla snerti.
Sauðárkrókur heldur 50 ára afmæli
sitt setn löggylts verslunarstaðar í dag. —
Hann fékk löggyldingu 14. júní 1872; en
hefir slegið afmælinu saman við afmæli
þjóðhetjunnar okkar frægu, Jóns Sigurðs-
sonar, og er það vel til fallið. — Þar er
mikið um dýrðir og margt til gleðiauka, og
er það að vonuni, því að Sauðárkrókur
er nú orðinn blómlegt kauptún og þeim kær
Skagfirðingum. Munu bæði íbúarnir og
bændur héraðsins fátt til spara að gjöra
afmælisfagnaðinn setn veglegastan. »Fram«
færir afmælisbarninu bestu hamingjuóskir,
fytir sína, Siglufjarðarbæjar og ritstjórans
hönd.
Kartöflur og Lauk
best að kaupa í verslun
Sig. Kristjánssonar.
Allir
sem fengu lánaðar eldavélar eða
ofna hjá S. Goos síðastl. liaust,
skili þeim tafarlaust.
Hannes Jónasson.
Matvörur allskonar
Vefnaðarvara
Leirvara
Skófatnaður
Kryddvörur allsk.
o. m. fl. nykomið í verslun
Sig. Kristjánssonar.
Nýja
skóverkstæðið
Aðalgötu 6.
Allar aðgeiðir á skóm og
stígvélum fljótt og vel af
hendi leistar.
Sanngjarnt verð.
Sundmaga
þurkaða og vel verkaða kaupir
Sophus A. Blöndal.
142
vissu líka allir, sem til hans þektu, að þess háttar sigurvinning-
ar breyttu í engu daglegri framkomu hans.
Haraldur Mornington sat í djúpum hugsunum þetta kvöld:
Honum var annars ekki tamt að hugsa til liðinna tíma, en nú
varð honum það, lagði dagblaðið frá sér og hallaði sér aftur á
bak í hægindastólnum. Honum komu í hug fyrstu æsku^r sín í
litla þorpinu, Það vor einu sæludagarnir, sem hann hafði lifað —
áður en hann komst á snoðir um hneisu móður sinnár og ætt-
erni sjálfs sín. Hann mundi óglögt eftir móður sinni og hinu
þunglyndisiega yfirbragði hennar, er bar menjar ógæfu þeirrar,
sem hún hafði ra^ð í og liann var of ungur til að skilja. Hann
minist þess hörmungardags, þegar litla húsið þeirra fyltist af
dökk-klæddum mönnum og honum var sagt, að nú fengi hann
aldrei að sjá móður sína framar. Hann mintist einnig uppvaxtar-
áranna, hins gamla málfærslumanns, sem nú var löngu dáinn og
kominn undir græna torfu og hins minnisstæða dags þegarhon-
um var sagður helber sannleikurinn. Hann mundi, að þann dag
hafði hann séð andlit móður sinnar afmyndast af sorg og greinju
og heyrt hana formæla Morningtons nafninu.
Honum kom í hug eiðurinn, sem hann hafði svarið, að
hefna sinnar eigin svívirðu og móður sinnar gtimmilega á Morn-
ingtonunum. Hann hugsaði til þess, hversu hann hefði varið al-
eigu sinni til þess að kosta veru sína við háskólann, þar sem
hann hitti Harald Mornington og leitaði vinfengis hans. Hann
hugsaði til furuviðarkofans vestur í Kanada, þar sem sá varð að
hyrast, er hann ofsótti á allar lundir og honum var sem hann
sæi hann sitjandi við eldstóna, hokinn og hríðskjálfandi í frost
grimdinni, náfölan og tekinn til augnanna af hvers konar sorg
og armæðu og honum fanst hann heyia þyt vetrarstormsins í
toppum furutrjánna, eins og hann hafði svo margoft heyrt áður
á tíðum, ,
I^egar hér var komið hugleiðingum hans, hrökk hann upp
139
þér auðsýnt honum alla þá ást, seni þér báruð til hans í huga
yðar?«
Eva var með grátstaf í hálsinnm og gat engu orði komið
upp. Hún fleygði sér á leg'ubekkinn, hé;t klút fyrir augun og
kjökraði. Það var Vicars nægilegt svar og gekk liann ekki fastar
að hen/ii.
»Fyrirgefið þér,« sagði hann þýðlega. »Eg held, að eg hafi
gert yður hrædda með ákafanum í mér. þeriið þér nú augun
og eg ætlaði líka að biðja yður bónar, áður en gestirnir koma.«
Hún reis á fætur, lézt vera hálíreið, en fórst það fremur ó-
höndulega.
»Eg hefi sagt yður, að eg hefði átt dóttur, sem var svipuð
yður,« sagði liann, »en eg á enga mynd af henni. Viljið þér nú
gefa mér eina mynd af yður, svo að eg geti hugsað um hana
og yður þegar eg lít á myndina?*
s-þér skuluð fá eina,« svaraði Eva, tók mynd úr ljósmynda-
bókinni og fékk honum. Hann stakk henni í vasa sinn og þakk-
aði henni.
»Komið þér aldrei ti! Englands aftur herra Vicars?« spurði
hún.
»Nei aldrei,« svaraði hann.
1 •
»Má eg spyrja yður að einu, herra Vicars?«
Hann játti því, en þó hálf nauðugur.
»rjað er kannske tóm ímyndun, en mér finst eg hálfkannast
við yður. Hefi eg nokkurn tima séð yður aður, t. d. þegar eg
var í barnæsku?*
»Við höfum sézt í fyrsta skifti í húsum föður yðar,« svar-
aði liann alvarlega. »Mig langaði alt af til að sjá yður hennar
vegna, og nú þegar eg er búinn að sjá yður, þá mun mér oft
verða hugsað til yðar, sjálfrar yðar vegna-.«
Nú heyrðist til margra vagna, sem voru að koma. Eva gekk
fram að dyrunum, en um leið og hún gekk fram hjá Vicars, laut