Plógur - 01.11.1906, Blaðsíða 8
88
PLÓGUR.
að láta kvennmann slá en karl-
mann raka eftir sér þegar ber
svo undir, að annarshvors þessa
þarf við. Karlmenn eru ílestir
stirðari og afkastaminni við
rakstur en kvennfólk, og hafa
þess utan margir hverjir óvilja
og óbeit á að raka, sem gerir
þá aftur áhugaminni og' hyskn-
ari við sláttinn.«
Þetta eru þau atriði, er þessi
merkisbóndi hefir, á sinni tíð,
álitið þungamiðju farsæls bú-
skapar. Eg vil nú spyrja: Gilda
ekki allar þessar reglur enn í
dag? Jú, sannarlega. Og nú,
þegar svo ervitt er að fá hjú,
er ekki úr vegi, að athuga, á
hvern hátt hjúin geta unnið
heimilinu hlessunarríkast starf.
X.
Spánýtt.
A. Hver er verstur svikari?
B. Sá sem svíkur sjálfan
sig. *
A. Hverri dygð hrósa menn
sér mest af?
B. Af þeirri, sem maður
ekki á.
A. Hvað er vakandi manns
draumur?
B. Yonin.
A. Hver er ríkastur?
B. Sá sem er ánægðastur.
A. Hvað er það, sem rikir
án laga.
B. Kærleikurinn.
A. Hver munur er á friði
og kyrð?
B. Frið þurfa þeir, sem lifa,
en kyrð þeir, sem dánir eru.
jarira'
eftir
Sigurö Pórólísson
fæst hjá hóksölum.
Yerð 1 kr. 20 au.
PLÓGUR
vill komast inn á sem ílest
sveitaheimili.
1‘LÓGl lt flylur stuttar en
gagnorðar ritgerðir um búnað-
armálefni.
I*IiO<jtUK óskar þess, að
bændur sendi honum stuttar
greinar um ýms efni. Það er
einmitt málgagn bændanna, að
Plógur vill vera.
PLÓGIIK kostar aö eins
I kr«>nii um árið. Engan
munar um 1 kr. á ári, en það
er bráðnauðsynlegt fyrir bænd-
ur að halda búnaðarblað.
Itoi'gið hlnðið slúlví§l(%u:.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Sisrnrður E*órólfsson.
Gutenberg.