Plógur - 01.01.1907, Blaðsíða 8

Plógur - 01.01.1907, Blaðsíða 8
8 PLÖGUR. landi. Hvernig á eg að fara að því? (A. B.). S v a r: Eg býst ekki við því, að þaðborgi sig aðeigamikið við þess konar jörð til ræktunai’. — Hið eina, sem reynandi er til þess, að ná þessum óþverra úr mýrinni, mosanum og hrísinu, er það, að brenna mosann og kvistinn að vorinu, þegar þurk- ar ganga, en sé nokkur hætta á því, að eldurinn geti farið í betra land og skemt það, þá er bezt að lofa þessari mýri að sigla sinn eigin sjó. Hún er beitiland og verður seint og dýrt, að gera hana annað. 2. Hvernig er bezt að breyta í tún móum, þar sem er leir- kendur gróðurlítill jarðvegur? S v a r: Að líkindum væri heppilegast að plægja eða þá stinga móa þessa upp, og sá í þá höfrum í 2—3 ár. Eftir það mundi gefast vel að sá í flagið grasfræi, ef hæfilegur áburður væri borinn í það. En einnig mætti láta flagið liggja autt nokkur ár og lofa sjálfri nátt- úrunni að skreyta það gróðri sínum. En það þarf að lijálpa henni dálítið til þess, t. d. friða blettinn fyrir búfjárágangi og bera moð, salla og hrossatað í ílagið. Þriðja ráðið er að ilytja gras- rót annarsstaðar frá og þekja flagið með lienni. Sé grasrót — þökur — langt að fluttar, verður þess konar jarðabót svo dýr, að óvíst er að það borgi sig í sveit. En grasrótin þarf ekki að vera sérlega góð. Vall-lendis-grasrót er bezt, en nota má einnig grasrót úr mýr- um, þar sem góðar fóðurjurtir vaxa. — En vel þarf að bera undir þökurnar, ogeinnig vinna tað ofan í rótina, eftir að flagið er þakið. 3. Með hverju er bezt að girða með fram þjóðvegi, þar sem lít- ið er af grjóti? (A. B.). Svar: Þessu verður naum- ast svarað, án frekari upplýs- inga frá spyrjanda. Ef þjóð- vegurinn er rétt við túnið, garð- inn eða landið, sem girða á, getur verið hættulegt að girða með gaddavír. Frá girðingunni að veginum verður að vera að xninsta kosti 2—3 faðmar. — Ef torf er gott við hendina, þá er gott að girða með því, eða skurði og torfgarði. „Plógur“ kostar 1 kr. árg. Gjalddagi er í júní. Ritstjóri og ábyrgðarmaðnr. Sij*;urðui* E^órólfsson. Hvítárbnkka. Guteuberg.

x

Plógur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.